Viðskipti innlent

Um 7,5% atvinnuleysi í október

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 7,5% atvinnuleysi var á Íslandi í október síðastliðnum og eykst um 0,4% frá september.

Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgar um 416 eða um 0,6 prósentustig að meðaltali og konum um 99 að meðaltali eða um 0,3 prósentustig. Mest fjölgar atvinnulausum hlutfallslega á Vesturlandi en þar fjölgar um 58 manns á atvinnuleysisskrá að meðaltali.

Atvinnuleysið er 8,4% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum, eða um 12,2%, en minnst á Norðurlandi vestra, um 2,5%. Atvinnuleysið er 7,8% á meðal karla og 7,2% á meðal kvenna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×