Viðskipti innlent

Segir rekstrarkostnað lífeyrissjóða glórulausan

Valur Grettisson skrifar
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna er glórulaus að mati Ragnars Þórs.
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna er glórulaus að mati Ragnars Þórs.

„Þetta er glórulaust í þeim skilningi að sjóðirnir gera nákvæmlega það sama," segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, en hann tók saman rekstrarkostnað sex stærstu lífeyrissjóðanna fyrir árið 2009.

Þar kemst hann að þeirri niðurstöðu að rekstrarkostnaður þeirra er samanlagður 2,1 milljarður. Sjóðirnir sem um ræðir eru Lífeyrissjóður starfsmanna ríkissins, Verslunarmanna, Gildi, Stafir, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Stapi.

Mestur er rekstrarkostnaðurinn hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkissins. Þar er kostnaðurinn tæpar 600 milljónir króna. Hjá sjóðnum starfa 40,4 stöðugildi Launakostnaður sjóðsins eru rétt tæpar þrjúhundruð milljónir.

Því er meðal launakostnaður á hvert stöðugildi 7,2 milljónir króna. Þess má geta að auðvitað eru ekki allir starfsmenn með svo háar tekjur.

Launahæsti framkvæmdarstjórinn er hjá Gildi það er Árni Guðmundsson sem er með nítján og hálfa milljón í árstekjur.

„Rekstrarkostnaðurinn hefur ekkert minnkað síðan eftir hrun," segir Ragnar Þór sem hefur skoðað lífeyrissjóðina nú í þrjú ár.

Hann segir einu leiðina til þess að lækka rekstrarkostnað sjóðanna sé að sameina þá í einn sjóð og hann bendir á að sjóðirnir séu í raun að vinna sömu vinnuna.

Ragnar Þór Ingólfsson vill sameina lífeyrissjóðina.

„Það er ólíðandi að rekstrarkostnaðurinn sé jafn hár og raun ber vitni," segir Ragnar Þór sem segir alla sjóðina sýsla í litlu hagkerfi og geta bara fjárfest visst mikið.

Hann segir launakostnaðinn líka óvanalega háan. Til að mynda er launakostnaðurinn rúmur milljarður hjá þessum sex lífeyrissjóðum sem telja 63 prósent af öllum eignum lífeyrissjóðanna. Alls eru 132 stöðugildi hjá þessum sex lífeyrissjóðum.

Ragnar fullyrðir að með sameiningu sjóðanna sé hægt að spara einn og hálfan milljarð.

Þá má því áætla að kostnaður við rekstur sjóðanna gæti verið um 4 milljarðar á ári ef erlend fjárfestingagjöld eru tekin með í reikninginn.

Á bloggi sínu skrifar Ragnar Þór: „Miðað við þetta hlutfall væri rekstrarkostnaður við kerfið kr. 3.342.570.904 á ári. Sem jafngildir iðgjöldum 11.458 einstaklinga með 200.000 kr. í laun á mánuði."

Þess má geta að inn í þessar tölur vantar erlend fjárfestingagjöld.

Hægt er að skoða bloggið hans hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×