Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir 800 leigusamningum þinglýst í október Alls voru 840 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á landinu í október. Þetta eru mun færri samningar heldur en í septembermánuði síðastliðnum, en þá var 1.553 leigusamningi þinglýst. Það var jafnframt mesti fjöldi leigusamninga sem þinglýst hefur verið innan eins mánaðar það sem af er þessu ári. 10.11.2010 10:41
Segir óþarft að banna notkun transfitusýra Opinber íhlutun vegna notkunar transfitusýra í matvælum er óþörf, segir Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, í samtali við Vísi. Gæðabakstur framleiðir meðal annars ömmukleinur og kleinuhringi. 10.11.2010 10:32
Rekstrarlausnir Skýrr sameinast EJS EJS og rekstrarlausnir Skýrr hafa verið sameinuð undir nafni EJS, sem verður eftirleiðis rekið sem eitt af þremur tekjusviðum Skýrr. Sameiningin var tilkynnt starfsfólki í dag. Starfsfólk sameinaðs fyrirtækis Skýrr og EJS er um 470 talsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. 10.11.2010 10:00
Skuldir fyrirtækja stjarnfræðilega háar Þriðjungur íslenskra fyrirtækja skuldar meira en rekstur þeirra stendur undir. Skuldir þeirra umfram eignir eru samtals ríflega sex þúsund og sex hundruð milljarðar króna. 9.11.2010 18:35
Réttarhöldum yfir sjömenningunum frestað Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum sem fara áttu fram í dag í New York í Bandaríkjunum hefur verið frestað. 9.11.2010 15:54
90 Icesave-milljarðar falla á ríkið Nú er talið að um níutíu og þrjú prósent fáist upp í Icesave kröfur Landsbankans og hafa endurheimtur aldrei verið hærri. Samkvæmt þessu falla rúmlega níutíu og tveir milljarðar á íslenska ríkið. Tölurnar voru kynntar á kröfuhafafundi í Lundúnum fyrr í dag. 9.11.2010 18:39
Endurheimtur Landsbankans nema 93% af forgangskröfum Endurheimtur Landsbanka Íslands í erlendri mynt nema 93% af forgangskröfum, en vegna mikillar hækkunar íslensku krónunnar á tímabilinu eru endurheimtur í þeirri mynt áætlaðar 86% þann 30. september síðastliðinn. 9.11.2010 16:35
Um 19 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,4% í dag í 19 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,6% í 6,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 12,1 ma. viðskiptum. 9.11.2010 16:24
Þriðjungur fyrirtækja er tæknilega gjaldþrota Um þriðjungur íslenskra fyrirtækja, eða á bilinu 5-7 þúsund, skulda meira en rekstur þeirra þolir til lengri tíma. Þetta kemur fram í Hagsýn, nýju vefriti efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. 9.11.2010 16:14
Bakkavör velti tæpum 333 milljörðum Bakkavör Group var stærsta fyrirtækið á Íslandi í fyrra, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Velta fyrirtækisins nam tæpum 333 milljörðum. Rit þeirra, 300 stærstu, kom út í dag. Actavis var næststærsta fyrirtækið með tæplega 267 milljarða króna veltu og Icelandic Group er þriðja fyrirtækið í röðinni með um 179 milljarða veltu. 9.11.2010 13:21
Töluverð fjölgun farþega hjá Icelandair í ár Farþegum Icelandair fjölgaði um 14% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í ár. Farþegafjöldinn í ár var tæplega 1,3 milljón manns en í fyrra var fjöldinn rúmlega 1,1 milljón manns. 9.11.2010 12:32
Afkoma ríkisins nær 20 milljörðum betri en vænst var Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 73,6 milljörðum kr. en var neikvætt um 88,7 milljarða kr. á sama tímabili 2009. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um tæpa 93 milljarða kr. 9.11.2010 12:11
Lífeyrissjóðirnir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi Þrátt fyrir að hrein eign lífeyrissjóðanna sé nú lægri en hún var fyrir hrun bankanna eru þeir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi. Hvergi í heiminum, fyrir utan Holland, er stærð sjóðanna jafnhátt hlutfall af landsframleiðslu. 9.11.2010 11:41
Starfsmenn Stálskipa voru tekjuhæstir Meðallaun starfsmanna Stálskipa voru hæst allra fyrirtækja á Íslandi í fyrra. Eftir því sem fram kemur í nýju riti Frjálsrar verslunar, 300 stærstu, fengu starfsmenn fyrirtækisins að meðaltali 17,363 milljónir króna. Það þýðir að hver starfsmaður var með um 1,45 milljónir króna í laun á mánuði í fyrra. 9.11.2010 11:40
Már: Loforð stjórnvalda stoppa endurreisnina Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að röð loforða stjórnvalda um lausn á skuldavanda heimilanna séu að stöðva endurreisn efnahagslífsins. Þeir sem skuldi dragi lappirnar við að endurskipuleggja fjárhag sinni í þeirri von að betri pakki komi á borðið. 9.11.2010 11:20
Mikil fækkun leigusamninga milli mánaða Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 840 í október 2010 og fækkar þeim um 45,9% frá september 2010 og 1,8% frá október 2009. 9.11.2010 10:58
Vigdís segir loftfimleika með ólíkindum í Avenskaupum Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir að það sé með ólíkindum að slíkir loftfimleikar skuli vera stundaðir af Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóðunum eins og raunin var með Avenskaupin á sínum tíma. 9.11.2010 10:10
Iceland Airwaves skilaði rúmum 300 milljónum Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) vann í samstarfi við Höfuðborgarstofu könnun á meðal erlendra gesta á nýliðinni Iceland Airwaves-hátíð. 9.11.2010 09:39
Icelandair leikur stórt hlutverk í kynningarherferð Icelandair leikur stórt hlutverk í umfangsmikilli kynningarherferð sem ferðamálaráð Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar standa sameiginlega að í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ferðamálastofurnar þrjár, sem heita VisitDenmark, Innovation Norway og VisitSweden hafa tekið höndum saman og kynna löndin þrjú sameiginlega sem áfangastaða ferðamanna með beinum auglýsingum á götum úti og á vefnum. 9.11.2010 09:20
Reiðufé nam 43,5 milljörðum í Avenskaupunum Af þeim eignum sem Seðlabankinn keypti af Avens B.V. félagi í eigu Landsbankans í Lúxemborg nam reiðufé alls 43,5 milljörðum kr. og var hlutfall þess tæplega 34%. 9.11.2010 09:10
Hrein eign lífeyrissjóða jókst um 7,4 milljarða í september Hrein eign lífeyrissjóða í lok september sl. var 1.835,1 milljarður kr. og hækkaði hún um 7,4 milljarða kr. í mánuðinum eða um 0,4%. 9.11.2010 08:01
Gjaldeyrisforðinn rýrnaði um 15,6 milljarða í október Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 471,9 milljörðum kr. í lok október og lækkaði um 15,3 milljarða kr. milli mánaða. Erlendur gjaldeyrir minnkaði um 15,6 milljarða kr. og aðrar eignir hækkuðu samtals um 219 milljónir kr. í mánuðinum. 9.11.2010 07:51
Samkomulag milli slitastjórnar og Spkef sparisjóðs Náðst hefur samkomulag milli slitastjórnar Sparisjóðsins í Keflavík og Spkef sparisjóðs, um uppgjör vegna yfirtöku Spkef sparsjóðs á innstæðum og rekstri Sparisjóðsins í Keflavík. 9.11.2010 07:45
Reikningurinn falinn í gjaldþrota bönkum Erlendir aðilar bera allan fjárhagslegan kostnað af hruninu og borga einnig hallann á viðskiptum Íslands við útlönd á síðustu árum. Þetta segir Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor að hafi gleymst í þeirri miklu ólgu sem verið hafi hér á landi frá því að bankarnir fóru á hliðina í október 2008. 9.11.2010 06:00
Dior notar vatn úr Ölfusinu í snyrtivörur Franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior hefur samið við fyrirtækið Icelandic Water Holdings um að nota lindarvatn úr Ölfusinu í krem sem kemur á markað í kringum áramótin. Vatninu er tappað á flöskur í verksmiðju Icelandic Water Holdings við Þorlákshöfn og selt um heim allan undir merkjum Icelandic Glacial. 9.11.2010 05:00
Hleðsla, Skyr.is og Ab-drykkur fengu gull í Danmörku Hleðsla, Skyr.is og Ab-drykkur frá Mjólkursamsölunni hrepptu gullverðlaun í sínum flokkum í norrænni samkeppni mjólkurvara í Danmörku. 8.11.2010 15:22
Nærri átta milljarða viðskipti með Gamma Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 7,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,3% í 3,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,3% í 3,9 ma. viðskiptum. 8.11.2010 16:12
Icelandair með í samnorrænu ferðamálaátaki Icelandair er hluti af samnorrænum ferðamálaátaki sem gengur undir nafninu Faces of Scandinaiva. Átakið er byggt í kringum vefsíðu þar sem þekktir ríkisborgarar á Norðurlöndunum segja frá ferðareynslu sinni. 8.11.2010 15:08
Krónuveltan á millibankamarkaði að verða eðlileg Veltan á millibankamarkaði með krónur nam 31,5 millljörðum kr. í október. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans og samkvæmt þeim virðist veltan á þessum markaði að komast í eðlilegt horf, það er að verða svipuð og hún var frá 1999 og fram á mitt árið 2004. 8.11.2010 14:03
Kröfuhafar Þorgils tapa 600 milljónum Aðeins 1,8 milljónir kr. fengust upp í kröfur í þrotabú C22 sem var í eigu Þorgils Óttars Mathiesen fyrrum forstjóra Sjóvár. Þar með töpuðu kröfuhafar nær 600 milljónum kr. á þrotabúinu en stærsti kröfuhafinn var Íslandsbanki. 8.11.2010 12:48
Útflutningsverðmæti aukakvótans hátt í 300 milljónir Útflutningsverðmæti 460 tonna neyðar- eða aukakvóta, sem sjávarútvegsráðherra ætlar að úthluta til lítilla sjávarbyggða, sem hafa orðið fyrir óvæntu áfalli í atvinnulífinu, nemur á þriðja hundrað milljónum króna. 8.11.2010 12:06
Pálmi Haraldsson er fluttur til Lúxemborgar Pálmi Haraldsson flutti lögheimili sitt til Lúxemborgar þann 24. ágúst síðastliðinn. Þetta kemur fram í eiðsvarinni yfirlýsingu Pálma sem send var dómstólum í New York þann 4. nóvember í síðustu viku. 8.11.2010 11:25
Utanferðir Íslendinga jukust um 22% milli ára í október Nýjar tölur Ferðamálastofu eru til marks um að stöðugt fleiri Íslendingar láta undan útþrá sinni. Þannig héldu mun fleiri Íslendingar utan nú í október en á sama tíma í fyrra, eða ríflega 34 þúsund í nýliðnum mánuði á móti tæpum 25 þúsund í október í fyrra. Þetta jafngildir aukningu upp á 22,2%. 8.11.2010 11:21
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 12% milli ára í október Erlendir ferðamenn voru 12,2% fleiri nú í október síðastliðnum samanborið við október í fyrra. Þannig fóru rúmlega 34 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð nú í október samanborið við rúm 30 þúsund árið á undan. 8.11.2010 11:17
Hafnarfjörður gerir upp við bæverskan banka Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að taka 400 milljón króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið á að nota til að greiða upp erlent lán frá Bayerische Landesbank upp á 4,5 milljónir evra eða 700 milljónir. 8.11.2010 11:09
Fasteignakaupum fjölgar á höfuðborgarsvæðinu Alls var 86 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þetta eru nokkuð fleiri samningar en verið hafa að meðtali á viku undanfarnar 12 vikur en þeir eru 71 talsins. 8.11.2010 10:48
Engin vandamál í samskiptum AGS og Íslands „Ég veit ekki til þess að nein vandamál séu í samskiptum okkar við Ísland,“ segir Caroline Atkinson forstjóri samskiptasviðs Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). 8.11.2010 09:30
Málaferli gætu dregist á langinn og skaðað Ísland Kröfuhafar stóru föllnu bankanna þriggja segja að málaferli þeirra á hendur íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna gætu dregist á langinn árum saman og orðið mjög skaðleg fyrir Ísland. Þeir hyggjast hnekkja því ákvæði neyðarlaganna sem kveður á um forgangsrétt innstæðueigenda, en greint er frá þessu á vef breska dagblaðsins The Guardian. 7.11.2010 18:30
Íslendingar borga lægstu tekjuskattana á Norðurlöndum samkvæmt skýrslu Þrátt fyrir skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru tekjuskattar lægstir á Íslandi og Noregi af öllum Norðurlöndunum, samkvæmt skýrslu KPMG um skattamál. Í Noregi eru tekjuskattar einstaklinga ásamt tryggingagjöldum 47,8 prósent en hæst 46,3 prósent á Íslandi. 7.11.2010 12:04
Segja gögn sanna bein afskipti Hannesar Slitastjórn Glitnis telur sig búa yfir gögnum sem sanna að Hannes Smárason, fyrrum stjórnarformaður FL Group sem var stærsti hluthafi bankans, hafi haft bein áhrif á lánveitingar Glitnis á sínum tíma. Hefur Hannes sjálfur og reyndar velflestir sjömenninganna sem stefnt er af hálfu slitastjórnar neitað öllu slíku hingað til. 7.11.2010 11:06
Flutti 631 tonn af langreyðum til Japans Hvalur hf. flutti 631 tonn af langreyðum til Japan fyrstu níu mánuði þessa árs og heildarútflutningurinn gæti numið svipuðu magni og flutt var snemma á tíunda áratug síðustu aldar, að því er fram kemur í vefútgáfu Japan Today. Í Japan eru um fjögur þúsund tonn af hvalkjöti, aðallega hrefnu sem veidd er í „vísindaskyni," sett á markað í Japan á ári hverju. 7.11.2010 09:49
Smálánafyrirtæki Bjarna Ármanns selt á þrjá milljarða Smálánafyrirtækið Folkia, sem var að hluta í eigu Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis, var nýlega selt bandarísku fyrirtæki fyrir þrjá milljarða. Gera má ráð fyrir að Bjarni hafi fengið 300 milljónir fyrir sinn snúð, en 800 milljóna króna skuld hans við skilanefnd Glitnis stendur þó enn ógreidd. 6.11.2010 18:30
Til verði yfir 50 þúsund ný störf Bandarísk stjórnvöld hafa gengið frá viðskiptasamkomulagið við Indland að andvirði 10 milljarða dollara. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, greindi frá þessu í dag en hann kom til Indlands í opinbera heimsókn í morgun. Lögð verður aukinn áhersla á útflutning og vonast Obama til þess að samkomulagið verði til þess að um 54 þúsund störf verði til í Bandaríkjunum. 6.11.2010 17:39
Ákvörðun Jóns skiptir sköpum fyrir nokkur bæjarfélög Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að auka kvóta til stuðnings minni byggðarlögum gæti skipt sköpum fyrir nokkur bæjarfélög. Á Flateyri verða uppsagnir í útgerð hugsanlega dregnar til baka. 6.11.2010 12:22
Aldrei fleiri íslensk skáldverk gefin út Aldrei fleiri íslensk skáldverk hafa verið gefin út en í ár en 85 titlar eru skráðir í Bókatíðindi íslenskra bókaútgefenda. Þetta er tólf titlum fleira en fyrra metárið 2007 að því fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Þótt íslenskum skáldverkum fjölgi eru titlar sem rata í Bókatíðindin í heild lítið eitt færri en metárið 2007. Nú eru titlarnir 747, um fimmtíu færri en árið 2007. Ævisögurnar gefa mest eftir. Þær eru 31 talsins og hafa ekki verið færri síðan 1999. 6.11.2010 11:49