Yfir þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en eitt ár 12. nóvember 2010 09:07
Enn fjölgar í þeim hópi einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár. Þeir voru nú í lok október 4.614 talsins en höfðu verið 4.534 í lok september. Þetta jafngildir 35% atvinnulausra í október sem er með hæsta hlutfalli sem mælst hefur. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ljóst er að þetta er mikill viðsnúningur frá því sem áður var, sem má glögglega sjá þegar litið er tvö ár aftur í tímann eða til þess tíma sem bankahrunið skall á með miklum látum. Í lok október árið 2008 höfðu 534 einstaklingar verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur, eða sem jafngildir 13% atvinnulausra, og þar af höfðu 245 verið án atvinnu í meira en ár, eða um 6% atvinnulausra. Í lok október voru alls 13.280 einstaklingar atvinnulausir og höfðu 54% þeirra verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Þetta er nokkuð lægra hlutfall en mánuðinn á undan, en í lok september höfðu um 57% atvinnulausra einstaklinga verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Greiningin segir að reikna megi með því að atvinnuleysi samkvæmt skráningu á vinnumiðlunum komi til með að aukast enn frekar eftir því sem líður á veturinn. Er það hvort tveggja vegna árstíðaráhrifa sem og vegna aðstæðna í atvinnulífinu. Á milli október og nóvember í fyrra fór atvinnuleysi úr 7,6% í 8,0% og er ekki við að búast að annað verði upp á teningnum í ár. Eru því horfur á að atvinnuástandið versni enn frekar nú í nóvember og áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 7,6%-8,0% í þeim mánuði.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira