Skýrslan unnin út frá hagsmunum fjármagnseigenda Sigríður Mogensen skrifar 11. nóvember 2010 12:00 Formenn ríkisstjórnarflokkanna funda með oddvitum stjórnarandstöðunnar. Mynd/ Vilhelm.
Útreikningarnir eru unnir af fjármagnseigendum og út frá hagsmunum þeirra og eru tölurnar um kostnað því vart marktækar, segir formaður Framsóknarflokksins. Þingmaður Hreyfingarinnar segir vel svigrúm fyrir almenna leiðréttingu á lánum en forsætisráðherra segir líklegt að fara þurfi samsetta leið. Fram kemur í skýrslu sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna að flestar leiðir sem lagt var mat á kosti 100 milljarða eða meira. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins segir ekki tekið tillit efnahagslegra áhrifa, né þess að bankarnir hafi þegar afskrifað stóran hluta lánanna. „Þessir útreikningar eru unnir að langmestu leyti af fjármagnseigendum og út frá hagsmunum þeirra," segir Sigmundur. Heilmikið vanti inn í útreikningana. „Fyrir vikið eru tölurnar vart marktækar." Þannig að þetta er ekki tæmandi að þínu mati? „Nei og í rauninni eins og ég benti á á fundinum (fundi stjórnar- og stjórnarandstöðu í gær, innskot blaðamanns) þá er verra en ekki að setja tölurnar fram með þessum hætti, þar sem menn reikna ekki inn í grundvallaratriði eins og það að það er búið að afskrifa heilmikið - gera bara ráð fyrir því að það innheimtist allt ef menn gera ekki neitt." Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir gert ráð fyrir of miklum kostnaði í skýrslunni, því hluti af lánunum mun aldrei innheimtast. „Eftir að hafa skoðað þetta mjög nákvæmlega er það ennþá skoðun okkar að það sé vel svigrúm fyrir almenna leiðréttingu á þessum lánum sem þarf." Boðað hefur verið til fundar með hagsmunaaðilum í Þjóðmenningarhúsinu klukkan tvö í dag. Forsætisráðherra segir að skýrslan sýni að vandamálið sé víðtækt. "Nú þurfum við að skoða hvaða leið við förum, þetta eru 8-9 leiðir, mismunandi dýrar, hafa mismunandi áhrif og gagnast misjafnlega eftir því um hvaða hóp er að ræða - þannig að það getur vel verið að við þurfum að fara samsettar leiðir," segir Jóhanna Sigurðardóttir.
Mest lesið Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira