Fleiri fréttir

Jón Ásgeir: Ásakanir slitastjórnar „rakalausar lygar“

Malcolm Walker, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods, segir fyrirtækið hafa átt mikla fjármuni á bankareikningum haustið 2008, en getur ekki staðfest hvort það hafi verið 200 milljónir punda. Rannsóknarfyrirtækið Kroll er nú að staðreyna hvort peningarnir hafi í raun tilheyrt Iceland. Jón Ásgeir Jóhannesson segir ásakanir slitastjórnar Glitnis banka rakalausar lygar.

Katrín segir skoðanir samráðherra upphlaupskenndar

Katrín Júlíusdóttir iðnaðaráðherra segir skoðanir umhverfisráðherra á eignarhlut Magma á HS orku upphlaupskenndar. Það eigi ekki við nein rök að styðjast að iðnaðarráðuneytið hafi veitt magma faglega ráðgjöf um hvernig fyrirtækið gæti farið á svig við lög til að skjóta rótum á íslenskum orkumarkaði.

Pálmi Haraldsson: „Þér kemur það ekki við“

„Þér kemur það ekki við. Hvernig dettur þér í hug að spyrja svona spurningar?" sagði Pálmi Haraldsson við fréttamann nú í morgun þegar óskað var eftir upplýsingum um hver hefði lánað honum 600 milljónir króna, en upphæðin var notuð sem trygging í sátt sem hann gerði við slitastjórn Glitnis til að koma í veg fyrir að eignir hans yrðu kyrrsettar, m.a Iceland Express og Astreus flugfélagið sem rekur vélar Iceland Express.

Millifærði hundrað milljónir daginn eftir beiðni um kyrrsetningu

Jón Ásgeir Jóhannesson millifærði 585 þúsund pund, jafnvirði rúmlega hundrað milljónum króna, af einkareikningi sínum daginn eftir að slitastjórn Glitnis lagði fram kröfu um frystingu eigna hans. Jón Ásgeir hefur nú þegar greitt slitastjórn Glitnis tæplega tvo milljarða króna í tengslum við uppgjör á láni vegna skíðaskála í Frakklandi.

Jón Ásgeir: Iceland Foods á peningana

Slitastjórn Glitnis heldur því fram að Jón Ásgeir Jóhannesson eða einhverjir tengdir honum hafi ráðið yfir þrjátíu og átta milljörðum króna í reiðufé á bankareikningum sínum aðeins 15 dögum áður en bankakerfið hrundi í október 2008. Jón Ásgeir segir hins vegar að Iceland Foods hafi átt peningana og eigi þá enn.

Skipti greiða 400 milljónir í sekt

Skipti, sem meðal annars rekur Símann og Tæknivörur, hefur fallist á að greiða 400 milljónir í stjórnvaldssekt vegna brota á samkeppnislögum. Þá hafa Skipti fallist á að selja allan eignarhlut sinn í Tæknivörum og skuldbundið sig til að grípa ekki til aðgerða sem raskað geta samkeppni á farsímamarkaði.

Gamma stóð nánast í stað

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 6,2 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,3% í 2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 4,2 ma. viðskiptum.

Minna álag á evruskuldir

Skuldatryggingarálag á evruskuldir ríkissjóðs Íslands hefur þróast með töluvert ólíkum hætti en almennt gerist á markaði með evrópskar skuldatryggingar frá upphafi annars ársfjórðungs.

Viðskiptaráð hraunar yfir skattastefnu stjórnvalda

„Veruleg óvissa ríkir nú í skattamálum fyrirtækja. Takmarkaðar upplýsingar um væntanlegar tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs fyrir næsta ár bæta ekki úr skák og gera það að verkum að ómögulegt er að gera langtímaáætlanir."

Þrýstingur að utan um aukið eigið fé ÍLS

Á stjórnarfundi Íbúðalánasjóðs (ÍLS) sem stóð fram á kvöld í gær lá fyrir að fjalla um skýrslu um stöðu sjóðsins sem skila á til Fjármálaeftirlitsins á mánudag. Jafnframt vinnur hópur undir forystu Bolla Bollasonar, ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins, að gerð tillagna til félagsmálaráðherra um eiginfjárhlutfall sjóðsins.

Óttast opinberun hússtjórnargagna

Slitastjórn Glitnis rær nú að því öllum árum að fá aðgang að gögnum í vörslu hússtjórnar glæsihýsis á Manhattan-eyju þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir eiga tvær lúxusíbúðir. Telur slitastjórnin að gögnin, auk gagna úr Royal Bank of Canada, séu nauðsynleg til að rekja slóð þess fjár sem hjónin eru sökuð um að hafa svikið út úr Glitni.

Vafi um heimildir HS orku

Vafi kann að leika á því hvort HS orku sé heimilt að eiga hluti í öðrum innlendum orkufyrirtækjum. Félagið á umtalsverðan hlut í fyrirtækinu Suðurorku sem hyggur á rannsóknir og ef til vill virkjanir í framtíðinni.

GAMMA: GBI lækkaði lítillega

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 5,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 2,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 2,5 ma. viðskiptum.

Búast við lækkun matarverðs

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 2-7% í helstu verslunarkeðjum frá því í maí í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá ASÍ hefur vverð körfunnar þó lækkað nokkuð í flestum verslunarkeðjum frá því hún var hæst í febrúar síðastliðnum eftir nær samfeldar verðhækkanir síðan um mitt ár 2008. ASÍ segir að

Skúffufyrirtæki má eiga HS Orku

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur úrskurðað að Magma Energy Sweden AB (MES), megi eiga 52,35% í HS Orku hf. Minnihluti nefndarinnar er andvíg áliti meirihlutans en hart var deilt um það hvort kanadíska fyrirtækið Magma Energy mætti eiga hlut í íslensku orkufyrirtæki í ljósi þess að það er ekki á evrópska efnahagssvæðinu.

Gengisdómur gæti þýtt 350 milljarða eignatilfærslu

Ef miðað verður við samningsvexti gengistryggðra lána mun um 350 milljarða króna eignartilfærsla eiga sér stað frá fjármálafyrirtækjum yfir til lántakenda. Að minnsta kosti 100 milljarðar króna munu lenda á ríkissjóði, og þar með skattgreiðendum, ef sú eignartilfærsla á sér stað. Þetta kemur fram í frétt í Viðskiptablaðinu í dag.

Rekstur Landsbanka og Arion óviðunandi

„Til lengri tíma litið er þetta ekki afkoma af kjarnastarfsemi sem menn væru sáttir við. En það verður að hafa hugfast að verið er að vinna úr erfiðum úrlausnarefnum. Mér finnst skýrslan ekki gefa tilefni til svartsýni,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.

Kröfuhafar eignast Exista

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að beiðni stjórnar Exista veitt félaginu heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Ákvörðun stjórnar byggir á ítarlegri greiningu á stöðu félagsins og hvernig hámarka megi endurheimtur kröfuhafa.

Glittir í samning á milli Björgólfs Deutche Bank

Deutsche Bank er við það að ganga frá samkomulagi við Björgólf Thor Björgólfsson varðandi skuldir Actavis við bankann. Þetta hefur Reuters fréttastofan eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Heimildirnar herma að skuldir Actavis verði felldar niður að hluta en að í stað þess fái Deutsche bank hluta af söluhagnaði verði Actavis selt.

Bankarnir vilja fimm þúsund af milljón

Arion Banki, Landsbanki og Íslandsbanki hafa ákveðið að bjóða einstaklingum með erlend íbúðalán hjá bankanum, með veði í fasteign, að greiða mánaðarlega 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls lánsins á verðlagi við lánveitingu. Þetta er í samræmi við tilmæli Samtaka fjármálafyrirtækja sem send voru fjölmiðlum í dag sem og tilmæli FME og SÍ.

Einhugur í peningastefnunefnd um vextina

Allir þeir sem sæti eiga í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru sammála um það að lækka skyldi vexti bankans um 9,5 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun.

Litlar breytingar á GAMMA

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 11,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 5 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,3% í 6,5 ma. viðskiptum.

Spá yfir 100 milljarða vöruskiptaafgangi

Greining Íslandsbanka býst við að áfram verði myndarlegur afgangur af vöruskiptum við útlönd. Verð helstu útflutningsvara hafi hækkað verulega frá fyrri hluta síðasta árs og horfur séu á að innflutningur neyslu- og fjárfestingarvara verði enn um sinn með minna móti þar til hagkerfið nær sér á strik að nýju.

Bankasýslan gagnrýnir uppgjör bankanna

Í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins um starfsemi ársins í ár kemur fram gagnrýni á uppgjör stóru bankanna þriggja. Þar segir að arðsemi eigin fjár þeirra lækki umtalsvert þegar gert hafi verið ráð fyrir óreglulegum liðum.

Kortavelta heimilanna jókst um tæp 10%

Kreditkortavelta heimila jókst um 9,8% í janúar-maí í ár miðað við janúar-maí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,1% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-maí 2010 um 8,0%.

Dyrum nærri lokað á erlenda fjárfesta

Ísland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) yfir þau lönd sem hafa miklar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Mestu hömlurnar eru í Kína. Næst á eftir Íslandi stendur Rússland og Sádi-Arabía kemur þar á eftir. Á hinum endanum eru Holland og Lúxemborg, sem hafa opnað dyrnar í fulla gátt fyrir beina fjárfestingu erlendra aðila.

Fyrirtæki geta hagrætt í rekstri með kaupum á aðgangi að hugbúnaði á netinu.

Lítil fyrirtæki þurfa ekki lengur að kaupa dýran hugbúnað og leggja fjármagn í tölvukerfi. Þau geta sparað sér háar fjárhæðir með því að kaupa aðgang að tölvuskýjum (e. cloud computing) á netinu til lengri eða skemmri tíma. Þegar netnotkun eykst með farsímum og spjaldtölvum verður þetta framtíðin í upplýsingatækni.

Hamfarir dreifa veirum

Hamförum á borð við eldgosið í Eyjafjallajökli er nú tekið fagnandi af tölvuþrjótum.

Búa þarf í haginnfyrir fyrirtækin

„Við verðum að búa í haginn fyrir fjárfesta og bjóða upp á góðar aðstæður, í það minnsta sambærilegar og í nágrannalöndum. Þanni glæðum við atvinnustarfsemi sem er undirstaða efnahagslífsins,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Gjaldeyrishöftin verst: CCP óskar eftir stöðugleika

„Við höfum ekki velt því fyrir okkur að fara. En það er voðalega erfitt að taka ákvarðanir og gera áætlanir fram í tímann á þeim forsendum hvað eigi mögulega að gera hér í framtíðinni. Það virðist vera planið að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evruna eftir einhver ár. Mér líst vel á það,“ segir Hilmar V. Pétursson, forstjóri tölvuleikjaframleiðandans CCP.

Leita ráða hjá Sveini Haraldi

„Bæði íslensk fyrirtæki sem leita norrænna fjárfesta og norræn fyrirtæki sem hug hafa á að fjárfesta á Íslandi hafa leitað til mín. En þetta er ekki launað starf; ég hjálpa þeim í frítíma mínum utan vinnu. Þetta litla framlag mitt vona ég að sé hluti af því að rétta efnahagslífið við,“ segir Svein Harald Öygard, fyrrverandi seðlabankastjóri. Um tólf íslensk fyrirtæki hafa leitað til hans.

Lilja kveður Seðlabankann

Lilja Alfreðsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra á skrifstofu seðlabankastjóra, hefur verið ráðin ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) í Washington í Bandaríkjunum.

Sjá næstu 50 fréttir