Pálmi Haraldsson: „Þér kemur það ekki við“ 11. júlí 2010 12:07 Pálmi Haraldsson. Hann segir öruggt að stefnu á hendur sér í New York verði vísað frá. „
Þér kemur það ekki við. Hvernig dettur þér í hug að spyrja svona spurningar?" sagði Pálmi Haraldsson við fréttamann nú í morgun þegar óskað var eftir upplýsingum um hver hefði lánað honum 600 milljónir króna, en upphæðin var notuð sem trygging í sátt sem hann gerði við slitastjórn Glitnis til að koma í veg fyrir að eignir hans yrðu kyrrsettar, m.a Iceland Express og Astreus flugfélagið sem rekur vélar Iceland Express. Mikið gengur á hjá Pálma þessa dagana en hann er meðal þeirra sem slitastjórnin hefur stefnt í New York til greiðslu skaðabóta. Pálmi telur öruggt að stefnu á hendur sér í New York-fylki verði vísað frá. Gögn málsins og fordæmi tryggi það, enda sé rétturinn hans megin. Hann segir að það sjáist glögglega af gögnum málsins að eina ástæðan fyrir því að honum sé stefnt sé sú að hann er vinur Jóns Ásgeirs, en Pálmi telur málatilbúnað slitastjórnarinnar fráleitan. Þá hefur þetta verið gríðarlega kostnaðarsamt. „Þetta er ekkert gamanmál að standa í þessu. Hvað heldurðu að tíminn kosti hjá lögmanni í Bandaríkjunum? Svo fæst lögmannskostnaðurinn ekki greiddur af sækjandanum ef stefndu vinna málið. Átta menn sig á þessu? Það er gríðarlega erfitt fyrir okkur að verjast þarna, það virðist líka vera tilgangurinn hjá slitastjórninni. Ég get bara talað fyrir mína hönd, ég er ekki með sömu lögmenn og hinir, en þetta er gríðarlega kostnaðarsamt." Hversu mikið er þetta? „Þetta eru engar smá upphæðir. Það segir sig sjálft," segir Pálmi en segist ekki hafa tekið það nákvæmlega saman.
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira