Mesti samdrátturinn í Evrópu er hér 12. júlí 2010 00:01
Landsframleiðsla jókst um 0,2 prósent að meðaltali hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins (ESB) á fyrsta fjórðungi ársins og mælist hagvöxtur þar nú 0,5 prósent á ársgrundvelli. Hagvöxtur jókst jafn mikið innan evrusvæðisins á sama tíma. Hagvöxtur var 0,1 prósentustigi meiri á ársgrundvelli. Framkvæmdastjórn ESB býst við 0,9 prósenta hagvexti á evrusvæðinu í ár eftir 2,1 prósent samdrátt í fyrra. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í endurskoðuðum gögnum Eurostat, hagstofu ESB, sem birt voru á miðvikudag. Greiningar-aðilar í Evrópu segja niðurstöðurnar í samræmi við væntingar. Til samanburðar jókst landsframleiðsla hér um 0,6 prósent á milli ársfjórðunga. Þeir hagfræðingar sem Fréttablaðið hefur rætt við benda á að meiri sveiflur séu í íslensku hagkerfi en evrópsku og því séu ársfjórðungstölurnar ekki samanburðarhæfar. Það ætti þó að segja eitthvað um stöðu landsins í alþjóðlegu samhengi að hagkerfið hefur dregist saman um 6,5 prósent á ársgrundvell. Aðrar eins tölur sjást ekki á meginlandi Evrópu um þessar mundir, ekki einu sinni hjá verst settu löndunum nú um stundir, svo sem í Grikklandi, Spáni og Portúgal. amkvæmt gögnum hagstofunnar var hagvöxtur mestur á Írlandi miðað við ársfjórðunginn á undan, eða um 2,7 prósent. Hagvöxtur þar í landi er enn neikvæður um 0,6 prósent. Þá var 1,1 prósenta hagvöxtur á milli fjórðunga í Portúgal. Athygli vekur að Portúgal, sem flokkast til þeirra landa sem glíma við einhverja mestu fjárhagserfiðleikana innan ESB nú um stundir, flaggar 1,8 prósenta hagvexti á ársgrundvelli. Mesta niðursveiflan á milli fjórðunga var í Litháen og Eistlandi en bæði löndin glíma við mikla fjárhagserfiðleika. Hagkerfi Litháens dróst saman um 3,9 prósent en hagkerfi Eistlands um tvö prósent. Eystrasaltsríkin eru nú að snúa við úr afar djúpri lægð. Howard Archer, aðalhagfræðingur hjá evrópska greiningarfyrirtækinu IHS Insight, segir í samtali við fréttastofu Reuters nýjustu hagtölur í Evrópu geta villt mönnum sýn. Líkt og hér skýrir bætt birgðastaða viðsnúninginn að nokkru leyti. Líf hafi ekki færst í fjárfestingar, einkaneysla ekki tekið við sér líkt og vonast hafi verið til og útflutningur sé undir væntingum. Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi á evrusvæðinu og snarpan niðurskurð í opinbera geiranum á efnahagssvæðinu býst Archer þó við bata síðar á árinu. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira