Jón Ásgeir: Ásakanir slitastjórnar „rakalausar lygar“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. júlí 2010 18:30
Malcolm Walker, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods, segir fyrirtækið hafa átt mikla fjármuni á bankareikningum haustið 2008, en getur ekki staðfest hvort það hafi verið 200 milljónir punda. Rannsóknarfyrirtækið Kroll er nú að staðreyna hvort peningarnir hafi í raun tilheyrt Iceland. Jón Ásgeir Jóhannesson segir ásakanir slitastjórnar Glitnis banka rakalausar lygar. Hinn 22. september 2008 sendi Jón Ásgeir tölvupóst til Lárusar Welding, bankastjóra Glitnis og Jóns Sigurðssonar, forstjóra FL Group, undir heitinu „Sterling deposits" með fyrirsögninni „For your eyes only." Pósturinn hafði að geyma mynd af töflum sem sýna innstæður í breskum bönkum, samtals 202 milljónir punda, eða jafnvirði 38 milljarða króna, í innstæðum í bönkunum HBOS, Barclays, HSBC, Alliance & Leicester og Bank of Ireland. Fyrirtækið Kroll fann póstinn, en formaður slitastjórnar Glitnis segist hafa ástæðu til að ætla að innstæðurnar tilheyri Jóni Ásgeiri. Látið hefur verið í veðri vaka í fjölmiðlum að þessir peningar tilheyri Jóni Ásgeiri og hafa sumir spurt spurninga eins og hvar eru milljarðarnir hans Jóns Ásgeirs? Ef þetta eru ekki haldlausar ásakanir af hálfu slitastjórnarinnar þá er hann sennilega langríkasti Íslendingurinn. Fréttastofa náði í dag tali af Jóni Ásgeiri, en hann er staddur í Lundúnum. Í myndskeiði hér ofar má sjá símaviðtal við hann. Hver átti þessar innstæður? „Það var verslunarfyrirtækið Iceland Foods sem átti þessar innstæður og bæði FL Group og Glitnir voru á þessum tíma hluthafar í Iceland Foods. Þetta voru því upplýsingar sem voru að fara á milli hluthafa," segir Jón Ásgeir. Í hvaða tilgangi? „Þetta var bara til að fara yfir fjárhagsstöðu félagsins og sýna hvernig það væri statt, það væri í mjög sterkri stöðu. Þetta hefði slitastjórn Glitnis getað fundið út með einum tölvupósti." Fóru þessar innstæður einhvern tímann til þín, félaga í þinni eigu eða félaga sem tengjast þér? „Aldrei nokkurn tímann," segir Jón Ásgeir. Jón Ásgeir segir að slitstjórn Glitnis hafi aldrei reynt að staðreyna eða afla upplýsinga um þetta hjá sér áður en ásakanirnar voru settar fram. „Það hefði verið mjög auðvelt að svara þessu áður en þau komu fram með þessar rakalausu lygar," segir Jón Ásgeir. Hann segir að innstæðurnar hafi tilheyrt keðjunni sjálfri og þetta hafi verið kallað „Sterling deposits" í tölvupóstinum því innstæður voru í breskum pundum. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarfyrirtækinu Kroll gaf Jón Ásgeir slitastjórninni sömu skýringar fyrir nokkrum vikum þegar óskað var eftir því hvaða innstæður þetta væru. Eru sérfræðingar Kroll að reyna að staðreyna þetta, þ.e að Iceland hafi í raun átt innstæðurnar, en vilja ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Málið er viðkvæmt því ef innstæðurnar voru í eigu Iceland Foods var Jóni Ásgeiri hugsanlega ekki heimilt að upplýsa Lárus Welding og Jón Sigurðsson um tilvist þeirra þar sem þær tilheyrðu öðru félagi sem hann var ráðandi hluthafi í. Jón Ásgeir telur samt að um eðlilega upplýsingagjöf hafi verið að ræða til fulltrúa hluthafa Iceland Foods. Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, gaf ekki kost á viðtali þegar fréttastofa hafði samband við hann í dag, en sagði að Iceland hafi átt mjög mikla fjármuni í formi innstæðna í breskum bönkum haustið 2008. Þessar innstæður hafi verið á reikningum í nafni keðjunnar. Hann gat hins vegar ekki staðfest hvort innstæðurnar hafi samtals numið 200 milljónum punda og sagðist þurfa að kanna málið betur. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans sem er stærsti hluthafinn í Iceland, sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann myndi á næstu dögum grennslast fyrir um hvort innstæðurnar tilheyrðu í raun Iceland Foods, það væru hagsmunir allra að upplýsa málið. Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, er stærsti hluthafinn í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira