Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Wise 11. júní 2026 10:06 Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise lausna tók við verðlaununum í höfuðstöðvum Microsoft í Danmörku. Árangur Wise við innleiðingu skýjalausna hefur vakið eftirtekt erlendis en fyrirtækið var nýverið valið samstarfsaðili ársins 2026 hjá Companial (e. Companial Partner of the Year).
Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi árangur við stafræna umbreytingu og hraða innleiðingu skýjalausna sem og fyrir öflugt samstarf Wise og Companial um Microsoft Dynamics 365 Business Central. Verðlaunin voru afhent á stórri ráðstefnu sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Danmörku. „Við lítum á þessa viðurkenningu sem staðfestingu á því að nálgun okkar sé að skila raunverulegum árangri og sem hvatningu til að halda ótrauð áfram,“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise lausna. Viðskiptavinir sækja hraðar í tækniframfarir „Uppfærslur geta verið flóknar og tímafrekar og fyrir nokkrum árum stóðum við frammi fyrir því að þurfa að færa stóran hluta viðskiptavina okkar af eldri Navision / BC-lausnum yfir í Microsoft Dynamics 365 Business Central,“ segir Jóhannes Helgi. Miðað við hefðbundið verklag og fjölda starfsmanna hjá fyrirtækinu hefði sú vinna tekið mörg ár. „Verkefnið kallaði því á nýja nálgun með aukinni stöðlun, skýrari ferlum og mun meiri skalanleika en hefðbundin innleiðingarverkefni gera ráð fyrir. Með þeirri nálgun og öflugu samstarfi við Companial og Microsoft tókst okkur að stytta innleiðingartímann um meira en helming.“ Jóhannes segir flutning í skýið skila viðskiptavinum miklum ávinningi, meðal annars í einfaldari og öruggari rekstri. Einnig auðveldi hann fyrirtækjum að nýta gervigreind í kerfum Microsoft til að auka sjálfvirkni og ná fram verulegum vinnusparnaði: „Þegar fyrirtæki eru komin yfir í skýið getum við einbeitt okkur enn betur að því að hjálpa þeim að ná árangri og veita þeim góða þjónustu.“ Skilvirkara og skalanlegra verklag Í rökstuðningi Companial kemur fram að Wise hafi sýnt hvernig breyta megi hefðbundinni nálgun við kerfisflutninga í skilvirkara og skalanlegra verklag. „Á síðasta ári hefur félagið ekki aðeins hraðað eigin umbreytingarferlum heldur einnig tekið upp opnara og markvissara samstarf við okkur,“ segir Kim Enrum, framkvæmdastjóri Companial á Norðurlöndum. „Niðurstaðan er samstarf sem byggir á trausti, gagnsæi og sameiginlegri áherslu á raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Það er einmitt það sem þessi viðurkenning stendur fyrir.“
Stafræn þróun Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira