Bankasýslan gagnrýnir uppgjör bankanna 7. júlí 2010 10:28
Í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins um starfsemi ársins í ár kemur fram gagnrýni á uppgjör stóru bankanna þriggja. Þar segir að arðsemi eigin fjár þeirra lækki umtalsvert þegar gert hafi verið ráð fyrir óreglulegum liðum. Í tilkynningu segir að sérstaklega sé fjallað um starfsemi bankanna í skýrslunni og ársreikninga þeirra vegna ársins 2009. Þar kemur fram það mat Bankasýslunnar að reikningar bankanna séu ekki vel fallnir til samanburðar þar sem mismunandi aðferðum er beitt við uppgjör og framsetningu og ekki hægt að greina afkomu grunnrekstrar nema með töluverðum tilfæringum. Þegar reikningar bankanna vegna ársins 2009 eru skoðaðir er ljóst að óreglulegir liðir hafa umtalsverð áhrif á rekstrarniðurstöður þeirra sem stafar m.a. af endurmati á eignasafni sem flutt var frá gömlu bönkunum til þeirra nýju. Eftir að leiðrétt hefur verið fyrir óreglulegum liðum lækkar arðsemi eigin fjár umtalsvert í tilviki Landsbankans og Arion banka og nokkuð hjá Íslandsbanka. Gerð er ítarlega grein fyrir þessu í skýrslunni. Fram kemur í skýrslunni að arðsemi Íslandsbanka af eigin fé hafi verið mest eða 35,3%. Hjá Arion banka nam hún 16,7% og hjá NBI (Landsbankanum) aðeins 10%. Kostnaðarhlutfall af reglulegum rekstri er sömuleiðis umtalsvert hærra en kostnaðarhlutfall ef miðað er við heildartekjur og heildargjöld bankanna. Þannig er þetta hlutfall 81% hjá Arion banka, 79% hjá NBI og 41,3% hjá Íslandsbanka. Fjárbinding íslenska ríkisins í bönkunum þremur nemur um 190 milljörðum króna. Fjárframlag vegna hlutafjár nemur rúmlega 135 milljörðum króna og tæpum 55 milljörðum króna vegna víkjandi lána. Lágmarksarðsemiskrafa ríkisins tekur mið af fjármagnskostnaði að viðbættu álagi. Í skýrslunni er umfjöllun um grundvöllinn að baki arðsemiskröfu ríkisins sem hluthafa og kemur fram að eðlileg arðsemiskrafa fyrir banka í blönduðum rekstri geti talist vera rétt rúmlega 15%. Bankasýslu ríkisins ber lögum samkvæmt að skila árlegri skýrslu um starfsemi sína og liggur nú fyrir skýrsla vegna ársins 2010. Í skýrslunni er greint frá starfsemi Bankasýslunnar frá því að til hennar var stofnað síðastliðið haust en eignarhlutir ríkisins í Landsbankanum, Arion banka og Íslandsbanka voru formlega færðir Bankasýslunni til umsýslu 4. janúar 2010.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira