Thor Data Center með 400 milljóna hlutafjáraukningu 8. júlí 2010 10:03
Títan fjárfestingafélag ásamt núverandi hluthöfum og lykilstarfsmönnum hafa fjárfest í Thor Data Center fyrir um 400 milljónir kr.Í tilkynningu segir að Títan fjárfestingarfélag muni eignast ríflega 33% hlut í Thor eftir hlutafjáraukninguna. Thor var stofnað af nokkrum reynslumiklum frumkvöðlum úr íslenska tölvugeiranum og hóf nýlega gagnavörslu fyrir norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software í gagnaveri sínu í Hafnarfirði.Thor gagnaverið er í dag það gagnaver í heiminum sem veldur minnstri röskun á umhverfinu. Bæði er það vegna nýrrar gámatækni sem gagnaverið notar, en ekki síst vegna þess að það nýtir einungis endurnýjanlega orku frá íslenskum gufuaflsvirkjunum. Fyrirtækið hefur tryggt sér 3,2 megawatta raforku frá HS Orku á Suðurnesjum og ákvæði eru í samningnum um allt að 19,2 megawött ef þörf krefur. Thor er fyrsta gagnaverið af þessum toga sem tekið hefur verið í notkun á Íslandi.Skúli Mogensen eigandi og stjórnarformaður Títans og Baldur Baldursson framkvæmdastjóri félagsins munu taka sæti í stjórn Thor .„Hjá Thor Data Center er frábært starfsfólk sem byggt hefur upp mikla þekkingu á gagnaflutningum og stendur að okkar mati mjög framarlega á sínu sviði. Það verður mjög spennandi að taka þátt í uppbyggingu félagsins á næstu árum, „ segir Skúli Mogensen, eigandi Títan í tilkynningunni.„Verkefni Thor Data Center og fleiri gagnavera hérlendis geta skapað þjóðinni miklar gjaldeyristekjur, sem er afar mikilvægt fyrir uppbyggingu atvinnulífsins alls. Hröð þróun er í gagnaversiðnaðinum um þessar mundir. Samningurinn við Opera Software sýnir glöggt að Thor Data Center er fyllilega samkeppnishæft við gagnaver annars staðar í heiminum. Hinir sjálfbæru orkugjafar sem hér eru munu skapa okkur mikla sérstöðu á næstu árum," segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Thor Data Center.„Það er sérstaklega ánægjulegt að fá til liðs við okkur svo öflugan og reynslumikinn fjárfesti. Að koma Skúla að fyrirtækinu styrkir Thor DC enn frekar. Reynsla hans mun án efa nýtast vel í þeim verkefnum sem framundan eru," segir Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Thor Data Center.
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira