Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SP-Fjármögnun býður 20-40 % lækkun á höfuðstól Viðskiptavinum SP-Fjármögnunar býðst að lækka höfuðstól erlendra bílalána og breyta þeim í verðtryggð eða óverðtryggð íslensk lán. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að lækkunin fari eftir myntsamsetningu lánsins og hvenær það var tekið. „Samkvæmt útreikningum SP-Fjármögnunar lækka um 80% lána til einstaklinga um 20-40% en meðaltalslækkun er 28%,“ segir einnig. 25.5.2010 20:41
Gengi hlutabréfa Össurar féll um tæp tvö prósent Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um 1,99 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi annarra félaga hreyfðist ekki úr stað. 25.5.2010 17:00
Óvenjulítil velta á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 2,4 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 1,5 milljarðs kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 0,9 milljarða kr. viðskiptum. Þetta er ein minnsta velta á skuldabréfamarkaði í ár. 25.5.2010 15:49
Horfur á að krónan haldi áfram að styrkjast Tæknigreining bendir til þess að krónan sé í styrkingarfasa og horfur séu á áframhaldandi styrkingu. Þetta kemur fram í vikulegum Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa. 25.5.2010 14:35
Evrópska fyrirtækjavikan hefst á morgun Evrópska fyrirtækjavikan hefst á Grand hóteli á morgun, 26. maí. Þar fá frumkvöðlar, fulltrúar fyrirtækja í nýsköpun og einstaklingar með viðskiptahugmyndir tækifæri til að fá heildstætt yfirlit yfir stuðning við nýsköpun á Íslandi. 25.5.2010 12:21
Bjarsýni landsmanna áfram á uppleið Væntingar neytenda halda áfram að glæðast ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun. Vísitalan hækkar um tæplega þrjú stig frá fyrri mánuði og stendur nú í 57,4 stigum, sem er hæsta gildi hennar frá því fyrir hrun. 25.5.2010 11:55
Orkuútrásin byggir á samstarfi við MHI í Japan Samstarfi átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hérlendis var komið á í framhaldi af samstarfsyfirlýsingu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og japanska stórfyrirtækisins Mitsubishi Heavy Industries (MHI), sem undirrituð var í Tókýó 15. apríl sl. Í samræmi við hana er OR að skapa breiðan vettvang íslenskrar sérþekkingar í jarðhitanýtingu. 25.5.2010 11:13
Orkufyrirtæki sameinast í útrás Í morgun undirrituðu fulltrúar átta fyrirtækja, sem eru leiðandi í jarðhitanýtingu hér á landi, viljayfirlýsingu um samstarf sín á milli að erlendum verkefnum. 25.5.2010 10:45
SÍ hyggst koma á uppboðsmarkaði með gjaldeyri Seðlabanki Íslands (SÍ) hyggst koma á fót uppboðsmarkaði með gjaldeyri sem lið í afnámi gjaldeyrishaftanna í náinni framtíð. Þetta kemur fram í skjali sem Selabankinn gaf út í ágúst í fyrra undir heitinu „Afnám gjaldeyrishaftanna". 25.5.2010 10:18
Óbreytt stjórnarlaun hjá Icelandair Group Samþykkt var á aðalfundi Icelandair Group fyrir helgina að stjórnarlaun verði óbreytt. Stjórnarmenn fái 160 þúsund krónur á mánuði, formaður fái 320 þúsund krónur á mánuði og varamenn fái 80 þúsund krónur fyrir hvern setinn fund. 25.5.2010 09:59
Kaupþingsrannsókn Breta nær til Lúx Rannsókn Serious Fraud Office, efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, á starfsemi Kaupþings í Bretlandi hefur nú teygt anga sína til Lúxemborgar. Fulltrúar embættisins hittu sérstakan saksóknara í Amsterdam í síðustu viku. Þar voru einnig fulltrúar belgískra rannsakenda sem og heimamanna og efnahagsbrotadeildar Europol. 25.5.2010 06:00
Grynnka á skuldum ríkis með sölu eigna „Mælikvarði IMD er misvísandi, hann málar stöðuna of dökkum litum,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, um útreikninga svissneska viðskiptaháskólans á skuldastöðu hins opinbera. 25.5.2010 03:00
Segja Panama-peninginn hafa ratað aftur til Íslands Yfirvöld hafa til rannsóknar 3 milljarða sem Pálmi Haraldsson, oft kenndur við hlutafélagið Fons, fékk lánaða en peningurinn á að hafa farið til Panama í gegnum Lúxemborg og þaðan aftur til Íslands. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 24.5.2010 19:04
Tap íslenskra fyrirtækja gríðarlegt Tap íslenskra fyrirtækja nam rúmum níu þúsund og sexhundruð milljörðum króna á árinu 2008 og hefur eigið fé þeirra nánast gufað upp. Þetta leiðir til minni skatttekna en útlit er fyrir að tekjuskattsstofninn hafi rýrnað um tæpan fjórðung á milli ára. 24.5.2010 18:32
Hótel Rangá á lista yfir 100 bestu hótel Evrópu Hótel Rangá er að finna á lista yfir 100 bestu hótelin í Evrópu. Listinn er tekinn saman af sérfræðingum fyrir breska blaðið The Times. 24.5.2010 11:52
Ríkisskattstjóri og FME taka upp samstarf Ríkisskattstjóri og Fjármálaeftirlitið hafa ákveðið að taka upp samstarf og hafa gert með sér samstarfssamning. 24.5.2010 09:53
Ódýrari leið fyrir skattgreiðendur Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri grænna, íhugar að leggja fram þingsályktunartillögu um að farin verði svo kölluð uppboðsleið við afnám gjaldeyrishafta hér á landi. Hún segir þá leið ódýrasta fyrir skattgreiðendur. 23.5.2010 19:32
Fæðuöryggi falsrök fyrir miklum styrkjum til landbúnaðar Hagfræðiprófessor segir fæðuöryggi þjóðarinnar vera falsrök fyrir miklum styrkjum til landbúnaðar. Hann segir eldgosið í Eyjafjallajökli hafa sýnt fram á það með áþreifanlegum hætti, og leggur til að landbúnaðarkerfið verði endurskoðað frá grunni. 23.5.2010 12:45
Norski olíusjóðurinn stórgræddi á efnahagshruninu á Íslandi Norski olíusjóðurinn stórgræddi á efnahagshruninu á Íslandi en hann veðjaði á að allt færi á versta veg hér á landi allt frá árinu 2005. Sjóðurinn er einn sá ríkasti í heimi. 22.5.2010 18:56
Vinstri grænir vildu bráðabirðalög á Magma Energy Ráðherrar Vinstri grænna vildu beita bráðabirgðalögum gegn Magma Energy. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins í dag og birt er á vefsíðu blaðsins. 22.5.2010 16:59
Síminn telur sig ekki hafa brotið lög Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir að fyrirtækið hafi talið að þær aðgerðir þegar Síminn útbjó lista með upplýsingum um mörg þúsund viðskiptavina símafyrirtækisins Nova væru í samræmi við gildandi lög og reglur. 22.5.2010 12:16
Eignir innlánsstofnana rýrnuðu um 12.000 milljarða Heildareignir innlánsstofnana námu 2.956 milljarða kr. í lok árs 2009 samanborið við 14.895 milljarða kr. í lok september 2008. Útlán og kröfur nema um 70% af heildareignum bankanna í árslok 2009. 21.5.2010 18:06
Líklegt að Síminn hafi brotið samkeppnislög Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og þannig gerst brotlegt gagnvart samkeppnislögum. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. 21.5.2010 16:31
Enn lækkar gengi fyrirtækja í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa Marels féll um 2,6 prósent í Kauphöllinni í dag. Önnur hreyfing var ekki á markaðnum. 21.5.2010 16:29
Rólegt á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 5 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 0,7 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 4,2 milljarða kr. viðskiptum. 21.5.2010 15:48
Arion banki yfirtekur hluta af starfsemi BM Vallá Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur gert samkomulag við Arion banka um að bankinn taki yfir hluta af steypustarfsemi BM Vallár en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota fyrir skömmu. 21.5.2010 15:43
Landsbankinn kaupir eignir úr þrotabúi BM Vallár Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur tekið tilboði Landsbankans um kaup bankans á rekstrareiningunum Vírneti í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleininga í Reykholti en þessar rekstrareiningar voru sá hluti af rekstri BM Vallár hf. sem fjármagnaður var af Landsbankanum. 21.5.2010 15:32
Marel styður við leikskólana í Garðabæ Marel afhenti leikskólunum í Garðabæ gjöf í dag til eflingar kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Leikskólarnir níu sem starfræktir eru í Garðabæ fengu hver um sig afhenta víðsjá og pakka með ýmsum öðrum kennslubúnaði, að því er segir í tilkynningu. 21.5.2010 15:22
Uppboðsmarkaður gæti verið hluti af afléttingu haftanna Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir að vel gæti komið til greina að setja á fót uppboðsmarkað með gjaldeyri sem hluta af afléttingu gjaldeyrishaftanna í náinni framtíð. 21.5.2010 15:05
Öflugt atvinnumálaráðuneyti styrkir atvinnulífið Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) fagna því að stefnt skuli að fækkun ráðuneyta og þannig stefnt að hagræðingu og nauðsynlegum sparnaði hjá hinu opinbera. Samtökin telja að öflugt atvinnumálaráðuneyti muni styrkja atvinnulífið. 21.5.2010 14:22
Afkoma Reykjanesbæjar mun betri en áætlanir Afkoma bæjarsjóðs Reykjanesbæjar á fyrsta ársfjórðungi ársins var mun betri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs fyrstu 3 mánuðina er 65 milljónir króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að rekstrarhalla á þessu tímabili upp á 277 milljónir króna. 21.5.2010 12:56
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hækkar áfram Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur hækkað nokkuð allra síðustu daga. Í lok dagsins í gær stóð álagið til 5 ára í 367 punktum (3,67%) og hafði það hækkað um heila 90 punkta frá því síðastliðinn föstudag. 21.5.2010 12:30
Dótturfélög Landsbankans hafa frítt spil um launastefnu Dótturfélögum Landsbankans er gefið frítt spil með launastefnu eftir að Samkeppniseftirlitið gerði þá kröfu um að félögin yrðu færð frá bankanum. Nú hefur Kjararáð ekkert um laun stjórnenda þessara fyrirtækja að segja. Landsbankinn segir að launastefna hjá dótturfélögum sé hins vegar ekki frábrugðin stefnu bankans og að þar séu engir hálaunamenn. 21.5.2010 12:08
Ástralar vilja leita að gulli austur á fjörðum Ástralskt fyrirtæki, Platina Resources, hefur sótt um rannsóknarleyfi til Orkustofnunnar til að leita að gulli og öðrum málmum á Austurlandi. Lárus Ólafsson lögmaður Orkustofnunar segir að Platina Resources hafi haft samband við stofnunina fyrir ári síðan. Samskiptin hafa nú leitt til umsóknar Ástralana. 21.5.2010 11:56
Jón Ólafsson gerir stóran samning við Hilton hótelin Icelandic Water Holdings, að stórum hluta í eigu Jón Ólafssonar, hefur gert stóran samning við Hilton hótelkeðjuna í Bandaríkjunum um sölu á Icelandic Glacial vatni sínu. Niðurstaðan er að Icelandic Glacial verður hér eftir helsta átappaða drykkjarvatnið á 750 hótelum Hilton um alla Norður-Ameríku. 21.5.2010 10:39
Uppboðsmarkaður með gjaldeyri léttir á stöðunni Valdimar Ármann hagfræðingur hjá hinu óháða fjármálafyrirtæki GAM Management segir að samhliða gjaldeyrishöftum geti uppboðsmarkaður með gjaldeyri verið nytsamlegur til að létta á „óþolinmóðu" fjármagni. 21.5.2010 09:59
Vangaveltur um hvað SÍ geri við Lúxemborgarbréfin Greining Arion banka veltir fyrir sér hvernig krónueignum þeim sem Seðlabanki Íslands (SÍ) eignaðist í vikunni með samkomulagi við Seðlabankann í Lúxemborg. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um ráðstöfun eignanna en þær nema 120 milljarða kr. eins og kunnugt er. 21.5.2010 09:56
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar milli mánaða Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan maí 2010 er 101,8 stig sem er hækkun um 0,8% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í júní 2010. 21.5.2010 09:04
Stór hluti heimila í vanskilum eða ná ekki endum saman Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. 21.5.2010 09:02
Opera Software flytur gagnavinnslu sína til Íslands Norska fyrirtækið Opera Software mun flytja gagnavinnslu sína til Íslands. Hefur Opera samið við íslenska fyrirtækið Thor Data Center um málið. Reiknað er með að starfsemi Opera muni valda stórfelldri aukingu á gagnaflutningum um sæstrengina Farice og Danice. 21.5.2010 08:25
Nýtt félag tekur við rekstrinum á Hofsá Veiðifélag Hofsár og Sunnudalsár mun taka taka við þjónustu og sölu veiðileyfa í Hofsá eftir 19. ágúst nk. af Stangveiðifélagi Hofsá ehf. 21.5.2010 08:04
Seðlabankinn lækkar dráttarvexti Seðlabanki Íslands hefur lækkað dráttarvexti og verða þeir 15,5 %. Þetta er lækkun um hálft prósentustig. 21.5.2010 08:00
Getum sjálf kennt okkur um kreppuna Ísland er hugsanlega komið lengra á veg með að fást við alþjóðafjármálakreppuna en mörg önnur ríki í Evrópu, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í grein sem birtist eftir hana í Businessweek 21.5.2010 07:00
Telur Magma traustari bakhjarl en GGE Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að bæjarstjórnin muni láta meta fjárhagslega getu Magma Energy og skoða hvort áhætta bæjarsjóðs aukist við það að móðurfélagið Magma Canada taki yfir greiðslu á 6,3 milljarða króna skuldabréfi sem bærinn á og Geysir Green Energy (GGE) gaf upphaflega út. 21.5.2010 05:00
Skilur gremju vegna bónusa - en segir kröfuna réttmæta Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans, sem vill hálfan milljarð króna í ógreiddan kauprétt frá þrotabúi bankans, segir að samningar verði að halda þótt mótaðili fari í þrot. Hann segist skilja gremju almennings en krafa sín sé réttmæt. 20.5.2010 18:49