Viðskipti innlent

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hækkar áfram

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur hækkað nokkuð allra síðustu daga. Í lok dagsins í gær stóð álagið til 5 ára í 367 punktum (3,67%) og hafði það hækkað um heila 90 punkta frá því síðastliðinn föstudag.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að telja megi líklegt að hækkunin að þessu sinni sé aðeins tímabundin og komi til með að ganga til baka með tíð og tíma. Má hér benda á þann áfanga sem náðist nú í vikunni í uppgjöri vegna falls íslensku bankanna með samkomulagi Seðlabanka Íslands og Ríkissjóðs Íslands við Seðlabankann í Lúxemborg og skiptastjóra Landsbankans í Lúxemborg um kaup á 98% útistandandi skuldabréfa Avens B.V.

Þetta samkomulag bætti nokkuð hreina stöðu þjóðarbúsins enda er Avens B.V. stærsti einstaki eigandi krónueigna utan Íslands. Þannig lækkaði þetta erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins um rúmlega 3,5% af landsframleiðslu og krónueignir erlendra aðila um 120 milljarða kr. sem samsvarar til fjórðungs af heildarkrónueignum þeirra.

„Teljum við því líklegt að þessi hækkun tengist ekki sérstökum innlendum þáttum heldur komi í kjölfar aukinnar áhættufælni á mörkuðum enda hefur áhættuálag nánast undantekningalaust verið að hækka á önnur ríki á sama tíma. Jafnframt má sjá, þegar litið er yfir þróun skuldatryggingaálags nokkurra ríkja Evrópu, að þeim mun hærra sem álagið er að jafnaði því meiri er breytingin í punktum talið enda er álagið þá þeim mun næmara fyrir titringi á mörkuðum," segir í Morgunkorninu.

Þannig hefur skuldtryggingaálag á ríkissjóð Grikklands hækkað um 121 punkt (úr 607 í 728 punkta) og Portúgals um 86 punkta (úr 249 í 335 punkta) frá því síðastliðinn föstudag. Á sama tíma hefur skuldatryggingaálag á ríkissjóð Finnlands hækkað um 1 punkt (úr 29 í 30 punkta) og Frakklands um 3 punkta (úr 72 í 75 punkta) svo einhver ríki séu nefnd.

Af ríkjum Vestur Evrópu er skuldatryggingaálagið á Ríkissjóð Íslands næsthæst á eftir álaginu á Grikkland. Lægst er skuldatryggingaálag á hin Norðurlöndin og eru Norðmenn þar með yfirburðastöðu, en álagið á norska ríkið í lok dags í gær nam aðeins 20 punktum. Þó má geta þess til samanburðar að í árslok 2007 var skuldatryggingaálagið á Ísland hið hæsta af ríkjum Vestur Evrópu og var þá 68 punktar. Á sama tíma var áhættuálagið á Grikkland 22 punktar og á Noreg um 4 punktar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×