Viðskipti innlent

SP-Fjármögnun býður 20-40 % lækkun á höfuðstól

Viðskiptavinum SP-Fjármögnunar býðst að lækka höfuðstól erlendra bílalána og breyta þeim í verðtryggð eða óverðtryggð íslensk lán. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að lækkunin fari eftir myntsamsetningu lánsins og hvenær það var tekið. „Samkvæmt útreikningum SP-Fjármögnunar lækka um 80% lána til einstaklinga um 20-40% en meðaltalslækkun er 28%," segir einnig.

„Með þessari lækkun tekur SP-Fjármögnun einhliða upp það ákvæði í frumvarpi félagsmálaráðherra, sem liggur fyrir á alþingi og lítur að höfuðstólslækkun erlendra lána. Þessum aðgerðum er einnig ætlað að stuðla að aukinni hreyfingu á bílamarkaðnum sem einkennst hefur af kyrrstöðu undanfarna mánuði," segir í tilkynningunni.

Þá segir að fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum í rekstri bjóðist að meðaltali 25% lækkun á höfuðstól lána og samninga í erlendri mynt samfara því að breyta þeim í verðtryggð eða óverðtryggð lán eða samninga í íslenskum krónum. „SP-Fjármögnun býður viðskiptavinum sínum ennfremur að lengja lánstímann um 12 eða 24 mánuði, en þá gefst enn betra tækifæri til að stýra greiðslubyrði lánanna. Fyrirtækið mun ekki setja þak á hámarkslækkun höfuðstólsins. Höfuðstólslækkunin gildir fyrir þá lántakendur sem tóku lán eða samninga fyrir 8. október 2008 og er þeim að kostnaðarlausu."

Að sögn verður hægt að sækja um höfuðstólslækkunina á heimasíðu SP-Fjármögnunar, www.sp.is. „Viðskiptavinir fyrirtækisins geta með veflykli, sem þeir fá sendan í heimabanka sinn, komist inn á lokað svæði á heimasíðunni þar sem þeir geta sótt um höfuðstólslækkunina. Frá því í október 2008 hafa þúsundir viðskiptavina SP-Fjármögnunar nýtt sér ýmis úrræði, sem fyrirtækið hefur boðið upp á, til að lækka greiðslubyrði erlendra bílalána. Lántakendur, sem þegar hafa nýtt sér úrræði fyrirtækisins, fyrirgera ekki rétti sínum bjóðist þeim betri leiðir."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×