Fleiri fréttir

Greining: Munar 85 milljörðum á Icesave tillögum

Kostnaður Íslendinga verður 100 milljarðar kr. árið 2016 miðað við tillögur íslensku samninganefndarinnar samkvæmt mati greiningar Arion banka. Gangi tillögur Hollendinga og Breta hinsvegar eftir þá nemur kostnaðurinn um 185 milljörðum kr. en verulegrar óvissu gætir í því mati þar sem vextir í síðasta tilboði þjóðanna er gert ráð fyrir fljótandi vöxtum með 275 punkta álagi.

Deyfð yfir gjaldeyrisviðskiptum á millibankamarkaði

Mikil deyfð var yfir millibankamarkaðinum með gjaldeyri í febrúar mánuði. Samkvæmt hagtölum Seðlabankans nam heildarveltan aðeins 704 milljónum kr. Í góðærinu fyrir þremur til fjórum árum síðan hefði sú upphæð þótt döpur dagvelta á þessum markaði.

Nýskráningum bíla heldur áfram að fækka

Í febrúar síðastliðnum voru nýskráðir 117 bílar hér á landi sem er fækkun upp á 32% frá sama mánuði 2009 þegar 172 bílar voru skráðir. Ef tekið er mið af nýskráningum í janúar og febrúar þá er um að ræða 39% fækkun milli ára.

Bandaríkin tapa nýsköpunartitli sínum til Íslands

Bandaríkin hafa tapað titli sínum sem mesta nýsköpunarþjóð heimsins til Íslands. Samkvæmt árlegri skýrslu frá INSEAD og Samtökum iðnaðarins á Indlandi skaust Ísland úr 20. sæti listans yfir mestu nýsköpunarþjóðirnar og upp í efsta sætið í ár.

Lántökur ríkissjóðs námu tæpum 437 milljörðum í fyrra

Lántökur ríkissjóðs námu alls 436,8 milljarða kr. á árinu 2009. Ríkissjóður seldi ríkisbréf fyrir um 194,5 milljarða kr. og jók útistandandi stöðu ríkisvíxla um 9 milljarða kr. Einnig gaf ríkissjóður út nýjan flokk ríkisskuldabréfa til fjármögnunar eiginfjárframlagi til bankanna og veittum lánum því tengdu að fjárhæð 186 milljarða kr.

Ríkissjóður rekinn með 150 milljarða halla í fyrra

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um rúma 150 milljarða kr., sem er 138,1 milljarða kr. lakari útkoma en árið 2008.

Bankarnir greiða úr eigin flækjum

Í kjölfar þess að íslenskt efnahagslíf fór á hliðina haustið 2008 flykktust að þröskuldi bankanna fjölmörg fyrirtæki í fjárhagslegum vanda. Eigendur þeirra höfðu þá misst allt sitt og gátu ekki staðið við bak fyrirtækjanna, eða þá að efnahagsreikningur fyrirtækjanna var slig­aður af skuldum, gjarnan í erlendri mynt.

Listaháskólinn enn í biðstöðu í borginni

Áætlanir eru enn á teikniborðinu um að reisa 14.000 fermetra hús yfir Listaháskóla Íslands á mótum Laugavegar, Frakkastígs og Hverfisgötu og verslana- og þjónustukjarna ofar við Laugaveginn. Sveinn Björnssonar, framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Cube Properties, sem á meirihluta fasteigna og lóða á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði, segir efnahagsástandið setja strik í reikninginn.

Skrá má Marel ytra á næsta ári

Ekki er útilokað að leitað verði eftir því að skrá hlutabréf Marels á erlendan hlutabréfamarkað á næsta ári. Um tvíhliða skráningu væri að ræða en Marel hefur verið á markaði hér frá 1982.

Kaupþing í rúman aldarfjórðung

Kaupþing banki hélt upp á fimm ára afmæli sitt í október 1987. Á myndinni má sjá Pétur Blöndal, einn af stofnendum Kaupþings og núverandi alþingismann, taka í höndina á jafnaldra bankans í tilefni dagsins.

Hryðjaverkalögin voru Glitni verst

Bankahrunið hér og það hvernig Bretar beittu hryðjuverkalögum til að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi eftir setningu neyðarlaganna í okóber 2008 olli því að 1.600 milljarðar króna gufuðu upp úr eignasafni Glitni.

Halda listagyðjunni lifandi í kreppunni

Innan Arion banka er starfræktur listaklúbbur með um 230 félagsmönnum. Hann var stofnaður fyrir um fjórum árum og er öflugur í kynningu á íslenskri og erlendri myndlist innan veggja bankans. Meðlimir, sem eru allir starfsmenn Arion banka og tengdra félaga, leggja eitt þúsund krónur af launum í sameiginlegan sjóð um hver mánaðamót og er fyrir það keypt í kringum þrjátíu verk eftir íslenska myndlistarmenn.

Varasamt að færa féð úr Englandsbanka

Þrotabú Landsbankans á háa fjárhæð, jafnvel 220 milljarða króna, á reikningi í Bank of England sem er seðlabanki Englands. Vextir á reikningnum eru mjög lágir eins og jafnan er með reikninga í seðlabönkum. Peningarnir eru afborganir af útlánum Landsbankans.

Hagar færast nær hlutabréfamarkaði

Síðasta rekstrarári Haga, móðurfélags Hagkaupa og Bónuss og á annan tug annarra verslana, lauk í febrúarlok og hófst nýtt ár í bókum félagsins á mánudag. Skráningarferli Haga á hlutabréfamarkað hófst fyrir nokkru og er fundað reglulega um málið. Þá er áreiðanleikakönnun á fyrstu metrunum.

Kaupþing vill selja spítalalóð í Bretlandi

Kaupþing banki hefur ráðið ráðgjafarfyrirtækið CB Richard Ellis til að sjá um sölu á lóð, þar sem áður var Middlesex-sjúkrahúsið, í miðborg London samkvæmt tilkynningu á heimasíðu bankans.

Iceland stendur undir tæpum fjórðung af Icesave

Eignarhlutur Íslendinga í bresku verslunarkeðjunni Iceland einn og sér stendur undir tæplega fjórðungi af Icesaveskuldinni. Samkvæmt útreikningum byggðum á síðasta ársuppgjöri Iceland er eignarhluturinn 750 milljón punda virði en Icesave skuldin í heild nemur 3,2 milljörðum punda.

Dráttur á gögnum frá Lúxemborg

Hálfs árs dráttur getur orðið á því að embætti sérstaks saksóknara fái gögn sem efnahagsbrotadeildin í Lúxemborg lagði hald á í húsleit í Banque Havilland.

Ólöglegt gjaldeyrisbrask veikti krónuna

Í janúar voru 4 einstaklingar handteknir vegna gruns um brot gegn gjaldeyrishaftalögunum. Það var Seðlabankinn sem skoðaði málið fyrst, sendi það til Fjármálaeftirlitsins sem vísaði málinu svo til Efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.

Landsbankinn selur Bílaleigu Flugleiða/Hertz

Allt hlutafé Bílaleigu Flugleiða ehf. hefur verið selt til félags í jafnri eigu Sigfúsar R. Sigfússonar, Sigfúsar B. Sigfússonar, Hendriks Berndsen og Sigurðar Berndsen. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist söluna.

Skuldabréfaveltan tæpir 9 milljarðar í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 8,9 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði einnig um 0,1% í 1,9 milljarða kr. viðskiptum sem og GAMMAxi: Óverðtryggt í 7,1 milljarða kr. viðskiptum.

Orkukostnaður Íslendinga jókst langmest af OECD löndum

Í nýrri skýrslu frá OECD kemur fram að orkukostnaður Íslendinga jókst langmest af öllum þjóðum innan OECD á tímabilinu janúar í fyrra og til janúar í ár. Á Íslandi jókst kostnaðurinn um 22,7% á tímabilinu en meðaltalshækkunin í OECD var 10,6%.

Ragna Sara Jónsdóttir ráðin til Landsvirkjunnar

Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. Ragna er MSc í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og BA í mannfræði frá Háskóla Íslands.

Allar líkur á talsverðum viðskiptajöfnuði næsta kastið

Greining Íslandsbanka telur allar líkur á að afgangur af viðskiptajöfnuði reynist talsverður næsta kastið, ef frá eru talin áhrif gömlu bankanna. Áfram séu horfur á myndarlegum afgangi af vöru- og þjónustujöfnuði vegna lágs raungengis krónu og tiltölulegra hagstæðrar verðþróunar helstu útflutningsvara okkar.

Gengið verður nærri gjaldeyrisforðanum á næsta ári

Í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa er fjallað um að töluvert hefur verið rætt um gjalddaga skulda ríkissjóðs og orkufyrirtækja á næsta og þar næsta ári. Í september á næsta ári er 300 milljón evra sambankalán ríkissjóðs á gjalddaga og í apríl 2012 er 250 milljón evra lán á gjalddaga.

Nettóskuldir þjóðarbúsins lækkuðu um 325 milljarða

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 8.964 milljörðum kr. í lok fjórða ársfjórðungs á síðasta ári en skuldir 14.530 milljarða kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.566 milljarða kr. og lækka nettó skuldir um tæpa 325 milljarða kr. á milli ársfjórðunga.

Lilja Ólafsdóttir nýr stjórnarformaður FME

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað Lilju Ólafsdóttur héraðsdómslögmann formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME), í stað Dr. Gunnars Haraldssonar hagfræðings. Gunnar óskaði lausnar frá störfum stjórnarformanns 15. febrúar síðastliðinn, en hann hverfur nú til starfa á vettvangi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í París.

Veiðarfæralaus bátur með mesta þorskaflann á Vestfjörðum

Það sem af er yfirstandandi fiskveiðiári hefur ekkert skip landað jafn miklu af þorski á Vestfjörðum og brunnbáturinn Papey eða 1044 tonn. Það sem greinir þetta „fengsæla" skip frá öðrum sem landa hér um slóðir er sú staðreynd að það er veiðarfæralaust með öllu. Allur afli þess er nefnilega sóttur í þorskeldiskvíar Hraðfrystihúsins - Gunnvarar hf.

Hagnaður Íslandspósts 92 milljónir í fyrra

Hagnaður varð af rekstri Íslandspósts hf. á árinu 2009 að fjárhæð 92 milljónir króna og var EBITDA um 540 milljónir króna. Heildartekjur félagsins á síðasta ári námu 6,4 milljörðum króna og drógust saman um 3,7% frá fyrra ári.

Aftur snörp lækkun á skuldatryggingaálagi Íslands

Í annað sinn á skömmum tíma hefur orðið snörp lækkun á skuldatryggingaálagi Íslands. Samkvæmt CMA gagnaveitunni er álagið nú komið nokkuð undir 500 punkta að nýju og stendur í 480 punktum.

Hagstæð kjör LSS lækka fjármagnskostnað sveitarfélaga

Kjörin sem sem Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) fékk í útboði sínu á föstudaginn voru með þeim hagstæðustu sem honum hafa staðið til boða undanfarið ár. Ætti það að öðru óbreyttu að leiða til heldur lægri fjármögnunarkostnaðar þeirra sveitarfélaga sem sækja fjármögnun sína til hans þessa dagana.

Sjá næstu 50 fréttir