Greining: Munar 85 milljörðum á Icesave tillögum 3. mars 2010 12:45
Kostnaður Íslendinga verður 100 milljarðar kr. árið 2016 miðað við tillögur íslensku samninganefndarinnar samkvæmt mati greiningar Arion banka. Gangi tillögur Hollendinga og Breta hinsvegar eftir þá nemur kostnaðurinn um 185 milljörðum kr. en verulegrar óvissu gætir í því mati þar sem vextir í síðasta tilboði þjóðanna er gert ráð fyrir fljótandi vöxtum með 275 punkta álagi.Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að í lok síðustu viku lak á netið skjal (http://wikileaks.org/file/icesave2.pdf) sem varpar ljósi á þau kjör sem Bretar og Hollendingar hafa boðið Íslendingum í Icesave deilunni. Í sama skjali koma jafnframt fram hugmyndir Íslendinga um lausn á deilunni.Í tilboði Íslendinga ber ríkið enga vexti út árið 2011 en stighækkandi fastir vextir bætast við skuldina á árunum 2012-2016. Vextirnir eru 2,5% í upphafi en hækka svo um 25 punkta á ári þar til þeir fara upp í 3,5% og virðast þau viðmið vera nokkuð í takt við fjármögnunarkostnað Breta, sem hefur reyndar versnað á síðustu dögum. Einnig má benda á að í síðasta tilboði Breta og Hollendinga var boðið upp á vaxtalaust tímabil út þetta ár.„Við miðum útreikninga við að endurheimtur í bú Landsbankans verði með svipuðum hætti og fram kemur í síðasta mati skilanefndar bankans þar sem gert er ráð fyrir að 89% fáist upp í forgangskröfur," segir í Markaðspunktunum.„Ennfremur gerum við ráð fyrir að skuldabréf Nýja Landsbankans til þess gamla verði notað sem greiðsla upp í Icesave skuldbindinguna að fullu árið 2010 eða 2011 en með því verður vaxtakostnaður ríkisins umtalsvert lægri. Ástæða þess að við gerum það er sú að í samningsdrögum Íslendinga er gert ráð fyrir að eignir þrotabús Landsbankans hafi þegar verið nýttar upp í forgangskröfur í júní árið 2016, áður en liðið er að lokagjalddaga Landsbankaskuldabréfsins. Það hlýtur því að vera að Íslendingar ætli sér með einhverjum hætti að nota umrætt skuldabréf til að lágmarka vaxtakostnað ríkisins."
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira