Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vinnslustöðin greiðir ekki út arð Aðalfundur Vinnslustöðvarinn samþykkti að greiða ekki út arð til hluthafa. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. 9.5.2009 16:19
S&P íhugar að lækka lánshæfismat Landsvirkjunar Matsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) íhugar nú að lækka lánshæfismat Landsvirkjunar og hefur sett fyrirtækið á athugunarlista hjá sér með neikvæðum horfum. Sem stendur er langtímaeinkunn Landsvirkjunar BBB- og til skamms tíma er hún A-3. 9.5.2009 10:13
Icelandair tapaði 3,6 milljörðun á fyrsta ársfjórðungi Tap Icelandair eftir skatta var 3,6 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi ársins en var 1,7 milljarða króna á sama tíma í fyrra. 9.5.2009 08:44
Stýrivextirnir koma til með að bíta víðar Skortur á erlendu lánsfé kemur til með að þrengja kosti fólks og fyrirtækja á lánamarkaði. Samningar um að erlendir kröfuhafar eignuðust nýju bankana hefðu breytt allri þeirri mynd og líkast til orðið til að styðja við gengi krónu, að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. 9.5.2009 08:00
Seðlabankinn um þróun og horfur í efnahagsmálum: Álverð hefur náð botni Ekki eru taldar miklar líkur á að álverð nái sér aftur á strik á næstu mánuðum nema dregið verði verulega úr framleiðslu og birgðir minnki, að mati hagdeildar Seðlabanka Íslands. Fjallað er um álverðshorfur í rammagrein í nýjasta hefti Peningamála, efnahagsriti bankans. 9.5.2009 07:00
Bakkavör hækkað um tæp 29% Bakkavör var á mikilli siglingu í kauphöllinni í dag og hækkað um tæp 29%. Hinsvegar lækkaði Century Aluminium um tæp 11%. 8.5.2009 16:05
Brugga bjór á gömlum bóndabæ Eigendur Ölvisholts brugghúss framleiða 300 þúsund lítra af bjór á ári í gömlu fjárhúsi og hlöðu í Ölvisholti í Árnessýslunni. „Það var búskapur þarna, en við breyttum húsnæðinu og settum upp framleiðslu," segir Bjarni Einarsson, 8.5.2009 11:59
Byr lækkar vexti Byr sparisjóður mun lækka innláns- og útlánsvexti í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands og tekur breytingin gildi frá og með mánudeginum 11. maí. 8.5.2009 16:24
Veltumesta vika kauphallarinnar á þessu ári Mikil viðskipti voru með skuldabréf í vikunni í kauphöllinni. Heildarvelta nam 58,3 milljörðum kr. og er vikan sú veltumesta á árinu. 8.5.2009 16:19
Hildur ráðin nýr stjóri hjá Sævari Karli Hildur Erla Björgvinsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri Vigfúsar Guðbrandssonar og Co. ehf. sem rekur verslunina Sævar Karl í Bankastræti. 8.5.2009 15:52
Bakkavör átti daginn í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Bakkavör rauk upp um 27 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkunin. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marel Food Systems, sem hækkaði um 4,08 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Færeyjabanka um 3,33 prósent og Össurar um 3,12 prósent. 8.5.2009 15:42
Héraðsnefnd ESB býður íslenskum sveitarfélögum til viðræðna Í nýlegri fréttatilkynningu frá Héraðanefnd Evrópusambandsins (Committee of the Regions) segir að nefndin fagni þeim skilboðum frá stjórnvöldum á Íslandi um að vilji sé til þess að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. 8.5.2009 14:43
Verslanir BT eru opnar áfram Skiptastjóri þrotabús BT verslananna vill taka það fram vegna frétta í gærdag um að fallið hafi verið frá kaupum Haga á BT að verslanir BT eru áfram opnar. 8.5.2009 13:23
Eigið fé Landsafls ehf. er neikvætt Fyrir liggur að eigið fé félagsins er neikvætt samkvæmt drögum af óendurskoðuðu uppgjöri ársins 2008. Helsta ástæða þessa er að fjármögnun félagsins er að stærstum hluta í erlendum gjaldmiðlum og hefur veiking íslensku krónunnar haft neikvæð áhrif á eigið fé félagsins. 8.5.2009 12:52
Bakkavör í mikilli uppsveiflu Bakkavör hefur verið í mikilli uppsveiflu í kauphöllinni í morgun. Hafa hlutir í félaginu hækkað um 20,7%. 8.5.2009 12:21
Seðlabankinn aftur með inngrip á gjaldeyrismarkaðinum Eftir takmörkuð afskipti af gjaldeyrismarkaði í mars virðist Seðlabankinn hafa tekið til við inngrip að nýju í apríl. 8.5.2009 11:55
Makaskipti orðin helmingur af fasteignaviðskiptum Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum hefur verið að færast í aukana undanfarna mánuði samkvæmt upplýsingum Fasteignaskrár Íslands. Þannig voru um það bil helmingur allra fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í apríl mánuði afgreiddur með makaskiptum og 40% í mars. 8.5.2009 11:12
Sparisjóðirnir lækka vexti Sparisjóðirnir munu flestir lækka inn- og útlánsvexti frá og með 11. maí. Einnig verður breyting á innlendum gjaldeyrisreikningum. 8.5.2009 11:03
Veltir fyrir sér merkingu orðsins „umtalsvert“ Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans sem birt var samhliða ákvörðun hennar um að lækka stýrivexti bankans í gær segir að nefndin vænti þess að stýrivextir verði lækkaðir umtalsvert til viðbótar í júní þegar næsta vaxtaákvörðun nefndarinnar er á dagskrá. 8.5.2009 10:56
Atvinnuleysi minnkar í fyrsta sinn síðan í október Atvinnulausum fækkar milli mánaðanna apríl og maí og hefur það ekki gerst síðan í október s.l. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 17.511 á atvinnuleysisskrá þann 8. apríl s.l. en í dag er talan 17.351 sem er fækkun um 160 einstaklinga. 8.5.2009 09:55
Segir afstöðu Sjálfstæðisflokks til ESB vera sorgarsögu Dr.Jónas Haralz segir afstöðu Sjálfstæðisflokksins til Evrópusambandsaðildar sorgarsögu sem líklega er byggð á misskilningi. Hann segir allt tal um að skila láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fjarstæðukennt. 8.5.2009 09:31
Samstarf Norðurlanda um erfðaauðlindir kynnt hjá SÞ Norðurlöndin starfa meðal annars með genabönkum í Afríku og Mið-Asíu og þau reka öryggisgeymslu fyrir fræ á Svalbarða. Fræ frá stórum hluta heimsins eru þegar geymd í geymslunum á Svalbarða. 8.5.2009 09:28
Hagnaður vátryggingarfélaga nam 819 milljónum í fyrra Hagnaður innlendra vátryggingafélaga af skaðatryggingarekstri (vátryggingarekstri öðrum en líftryggingarekstri) nam 819 milljónum kr. á árinu 2008. Hagnaður félaganna af þessum rekstri nam 2,7 milljarðar kr. árið 2007. 8.5.2009 08:56
Spáir þriggja prósentustiga stýrivaxtalækkun í júní Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði lækkaðir um 3 prósentustig þann 4. júní þegar peningastefnunefnd Seðlabankans tekur aftur ákvörðun um vaxtastigið. Færu vextirnir þá í 10%. 8.5.2009 08:49
Tæp 600 fyrirtæki í greiðsluþrot frá áramótum Fyrstu fjóra mánuði ársins hafa 580 íslensk fyrirtæki farið í greiðsluþrot, þar af hafa 319 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta. Flest fyrirtæki störfuðu í byggingariðnaði eða 151 fyrirtæki. Næstflest fyrirtæki störfuðu á sviði verslunar og þjónustu eða samtals 109 fyrirtæki. 8.5.2009 08:38
Stærra skref en við var búist Stýrivextir eru 13 prósent eftir lækkun. Enn frekari lækkun er boðuð í júní. Ekki er talið að veik króna trufli áframhaldandi hraða hjöðnun verðbólgu. Kallað er á lækkun bankavaxta, helst meiri en nemi stýrivaxtalækkuninni. 8.5.2009 01:00
Milljarðamæringar verða milljónamæringar - fréttaskýring Um 85prósent af auði ríkustu Íslendinganna hefur gufað upp á tveimur árum, eða sem jafngildir um tólf hundruð milljörðum króna. 7.5.2009 19:30
Ekkert félag lækkaði í dag Ekkert félag lækkaði í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,3% og stendur í 245 stigum. 7.5.2009 16:24
Atorka fær PwC í Danmörku til að leggja mat á eignir Stjórn Atorku ákveðið að leita til PricewaterhouseCoopers (PwC) í Danmörku til að leggja vandað heildstætt mat á virði eignasafnsins og líklega þróun þar á næstu árin. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. 7.5.2009 16:13
Hætt við kaup Haga á verslunum BT Hætt hefur verið við kaup Haga á verslunum og viðskiptavild tölvuverslana BT sem gerður var þann 20. nóvember síðastliðin. Það er gert vegna athugasemda sem komu fram að hálfu Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga Jóhannessyni hrl. skiptastjóra BT verslana ehf. 7.5.2009 16:07
Athugasemd vegna fréttar um Storebrand Talsmaður Arion safnreiknings vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemd vegna fréttar af gengistapi Kaupþings í kauphöllinni í Osló í gær. Þar féllu hlutir í Storebrand um 11,5% í kjölfar lélegs uppgjör félagsins eftir fyrsta ársfjórðung. 7.5.2009 15:44
Íslandsbanki lækkar vexti Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka útláns- og innlánsvexti bankans frá og með 11. maí nk. Þetta hefur í för með sér að vextir á óverðtryggðum inn- og útlánum lækka um 1,0 – 6,4 prósentustig og vextir á verðtryggðum inn- og útlánum lækka einnig um 0,95 – 1 prósentustig. 7.5.2009 15:19
Danir lækka stýrivexti Danski seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína um 0,35 prósentustig og niður í 1,65%. Eru vextirnir því komnir inn fyrir vikmörkin sem eiga að gilda milli vaxta seðlabankans og evrópska seðlabankans en mörkin eru 0,75 prósentustig. 7.5.2009 14:48
Bretar í viðræðum við AGS vegna Icesave skulda Gordon Brown, forsætisráðherra Breta sagði í fyrirspurnatíma á breska þinginu í gærkvöldi að stjórnvöld þar í landi væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 7.5.2009 13:47
Innlán jukust um 19% eftir bankahrunið í haust Fyrstu tvo mánuðina eftir hrun bankakerfisins jukust innlán um rúmlega 19%. Heldur hefur dregið úr þeim á ný enda hefur staða heimila og fyrirtækja versnað, m.a. vegna hækkandi greiðslubyrðar lána og minnkandi atvinnu. 7.5.2009 13:39
Um 40% erlendra krónueigenda vilja strax út úr landinu Bráðabirgðamat Seðlabankans á krónueignum erlendra aðila bendir til að um 40%, eða um 250 milljarðar kr. heildareigna þeirra í verðbréfum og innstæðum í krónum séu í eigu aðila sem hafa verið flokkaðir sem „óþolinmóðir“ erlendir fjárfestar. Það er þeir sem vilja komast út úr landinu sem fyrst. 7.5.2009 13:18
Gengið lækkaði um tæpt prósent Gengi krónunnar lækkaði um tæpt prósent í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti um 2,5 prósentu stig. Stendur gengisvísitalan nú í 223 stigum. 7.5.2009 12:41
Nýja Kaupþing lækkar vexti um 2,5% til 4% Nýja Kaupþing lækkar, í kjölfar stýrivaxtalækkunarinnar í dag, innlánsvexti um 2,5% til 4% og útlánsvexti um 3% til 4% frá og með 11. maí. 7.5.2009 11:52
Atvinnuleysið nær hámarki á næsta ári Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi nái hámarki í 11% árið 2010 en fari svo lækkandi. Atvinnuleysi muni hins vegar lækka hægar en gert var ráð fyrir. Þetta kom fram í máli Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, þegar stýrivaxtalækkunin var rökstudd í morgun. 7.5.2009 11:42
Century Aluminium upp en Marel niður Ekkert lát er á hækkunum á gengi Century Aluminium í kauphöllinni en félagið hefur hækkað um tæp 5% í dag. Marel hefur aftur á móti lækkað um 6%. 7.5.2009 11:26
Boðar umfangsmikla lækkun stýrivaxta í júní „Verði gengisþróun krónunnar og aðgerðir í fjármálum hins opinbera eins og nú er gert ráð fyrir, væntir peningastefnunefndin þess að stýrivextir verði lækkaðir umtalsvert til viðbótar eftir fund nefndarinnar í júní, enda verði þá komin til framkvæmda fleiri skref í efnahagsáætluninni. Eftir það gerir nefndin ráð fyrir hægari lækkun stýrivaxta." 7.5.2009 11:07
Icesaving hópurinn: Fá fund með sendiherra Gerard van Vliet, forsvarsmaður Icesaving Association í Hollandi, sem er hópur hlunnfarinna sparifjáreigenda, segir að hann hafi fengið bréf frá forsætisráðuneytinu í gær þar sem hópnum er boðið að hitta sendiherra Íslands gagnvart Hollandi um miðjan þennan mánuð auk þess sem van Vliet mun hitta forsvarsmenn í forsætisráðuneytinu þegar hann kemur hingað til lands í júní. Til stóð að leggja fram kæru hjá EFTA og Evrópusambandinu í gær yrði ekki brugðist við kröfum hópsins. 7.5.2009 10:47
Hefði viljað sjá meiri lækkun „Mér finnst Seðlabankinn gerast frekar djarfari en hitt miðað við það sem á undan er gengið. Ég fagna því þó ég hefði ekki haft á móti því að sjá enn stærri skref tekinn,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður um stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Bankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 2,5 prósentustig, úr 15,5 prósentum í 13 prósent. 7.5.2009 09:42
Stýrivextir lækkaðir um 2,5 prósentustig Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 2,5 prósentustig, úr 15,5 prósentum í 13 prósent . 7.5.2009 08:59
Tap fyrsta fjórðungs er 1,1 milljarður Viðskipti Marel Food Systems tapaði tæpum sjö milljónum evra eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins. Upphæðin nemur um 1,1 milljarði króna. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 739 þúsund evrur, eða tæplega 118 milljónir króna. 7.5.2009 04:00