Stýrivextirnir koma til með að bíta víðar 9. maí 2009 08:00 Seðlabankastjórarnir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Svein Harald Øygard seðlabankastjóri kynntu yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um 2,5 prósenta lækkun stýrivaxta á fimmtudag. Fréttablaðið/Vilhelm
Skortur á erlendu lánsfé kemur til með að þrengja kosti fólks og fyrirtækja á lánamarkaði. Samningar um að erlendir kröfuhafar eignuðust nýju bankana hefðu breytt allri þeirri mynd og líkast til orðið til að styðja við gengi krónu, að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands boðar í yfirlýsingu sinni vegna stýrivaxtaákvörðunar síðasta fimmtudag að lánakjör fari versnandi vegna breyttra aðstæðna íslensku bankanna. „Til viðbótar auknu aðhaldi í ríkisfjármálum, mun endurskipulagning starfsemi viðskiptabankanna, sem færir rekstur þeirra í eðlilegt horf, hafa í för með sér að lántakendur standi frammi fyrir lánskjörum sem endurspegla fjármögnunarkostnað bankanna. Það felur í sér aðhaldssamari fjármálaskilyrði,“ segir í yfirlýsingunni. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) telur vísað til þess að bankarnir fái ekki í bráð aðgang að erlendu lánsfé. „Ég held að í bönkunum verði ákveðinn þrýstingur á viðskiptavinina þegar kemur að endursamningum eða endurskipulagningu erlendra lána. Þá munu bankarnir reyna að hækka vextina og breyta þeim yfir í íslensk lán á íslenskum kjörum, nái þeir ekki að fjármagna sig á móti með erlendum lánum,“ segir hann og kveður bankana í raun í „ömurlegri stöðu“ gagnvart viðskiptavinum sem tekið hafa erlend lán að geta ekki fjármagnað sig í erlendum gjaldeyri. Í þröngri stöðu bankanna segir Vilhjálmur að endurspeglist afrakstur þeirrar leiðar sem valin hafi verin í endurfjármögnun þeirra og SA hafi gagnrýnt. „Við höfum talið þá leið sem farin hefur verið í endurskipulagningu bankanna ganga út á að loka okkur af gagnvart erlendum lánardrottnum og það fáum við náttúrulega í hausinn með einhverjum hætti,“ segir hann. Betri leið hefði verið að búa svo um hnúta að erlendu kröfuhafarnir eignuðust bankana og byrjuðu að endurfjármagna lán þannig að inn í landið kæmi fé á móti afborgunum. „Þá myndi gengi krónunnar snarhækka og hlutirnir færu að rúlla á ný.“ Heimildarmaður blaðsins í einum viðskiptabankanna tekur í sama streng og Vilhjálmur og telur peningastefnunefndina helst horfa til þess í orðum sínum að erlend lán komi ekki til með að standa fólki til boða í sama mæli og verið hefur. Það þýði að stýrivextirnir fari nú að bíta víðar en þeir hafa gert áður því nú verði ekki hægt að fara fram hjá stýrivöxtunum með erlendri lántöku. Lán standi heimilum og fyrirtækjum til boða í krónum, en ekki í erlendri mynt. Í því felist aðhaldssamari fjármálaskilyrði. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira