Seðlabankinn aftur með inngrip á gjaldeyrismarkaðinum 8. maí 2009 11:55
Eftir takmörkuð afskipti af gjaldeyrismarkaði í mars virðist Seðlabankinn hafa tekið til við inngrip að nýju í apríl. Samkvæmt nýbirtum tölum bankans um veltu á gjaldeyrismarkaði nam sala hans á gjaldeyri á millibankamarkaði í apríl ríflega 1,1 milljarði kr., sem jafngildir 28% af heildarveltu á markaðinum í síðasta mánuði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir inngrip Seðlabankans í apríl séu í takti við umsvif bankans á markaði fyrstu tvo mánuði ársins, en í janúar nam gjaldeyrissala Seðlabanka 31% af heildarveltu á millibankamarkaði með gjaldeyri og í febrúar var hlutfallið 39%. Marsmánuður sker sig hins vegar úr hvað þetta varðar. Þá nam gjaldeyrissala bankans einungis 229 milljónum kr. sem samsvarar rúmum 7% af heildarveltu þann mánuð. Ekki liggur fyrir hvers vegna Seðlabankinn hélt sig til hlés á gjaldeyrismarkaði í mars. Bankinn hefur þó nefnt að ætlun hans væri ekki að afstýra öllum skammtímasveiflum á gengi krónu með afskiptum af gjaldeyrismarkaði og einnig að rekja megi umtalsverða veikingu krónunnar í marsmánuði til tímabundinna þátta á borð við verulegt útflæði vaxtagreiðslna til útlendinga. Á hinn bóginn má færa fyrir því rök að Seðlabankinn hefði að minnsta kosti átt að halda sig við sama takt inngripa í mars og hinum mánuðunum þremur. Þótt inngrip bankans hafi fram að þessu ekki höggvið stór skörð í gjaldeyrisforða hans (forðinn nam 414 milljöerðum kr. um síðustu mánaðamót) virðast þau hafa haft sitt að segja fyrir gengi krónu, enda innlendur gjaldeyrismarkaður afar grunnur undir núverandi gjaldeyrishöftum. Því má álykta að fjarvera bankans frá gjaldeyrismarkaði í mars hafi a.m.k. ekki bætt úr skák varðandi gengisfall krónu. Í kjölfarið virðist trú margra á því að krónan sæki í sig veðrið á komandi mánuðum hafa minnkað og því á brattann að sækja fyrir Seðlabankann að fylgja eftir því skammtímamarkmiði sínu að ná fram stöðugleika og styrkingu á gengi krónu.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira