Milljarðamæringar verða milljónamæringar - fréttaskýring Sigríður Mogensen skrifar 7. maí 2009 19:30
Um 85prósent af auði ríkustu Íslendinganna hefur gufað upp á tveimur árum, eða sem jafngildir um tólf hundruð milljörðum króna. Samhliða samdrætti á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hruni íslenska bankakerfisins hefur hvert fyrirtækið á fætur öðru komist í þrot. Þetta á sérstaklega við um eignarhalds- og fjárfestingafélög en mörg þeirra áttu beinna og óbeinna hagsmuna að gæta í bönkunum. Á síðustu árum hafa fjölmargir íslenskir milljarðamæringar litið dagsins ljós. Sirkus, fylgirit Fréttablaðsins, birti lista yfir 25 ríkustu Íslendingana í maí 2007, en það má segja að á þeim tíma hafi góðærið verið á hápunkti. Samtals áttu þeir sem skipuðu listann eignir upp á eitt þúsund, þrjúhundruð og níutíu milljarða króna. Á síðustu mánuðum hafa eignir auðmanna hins vegar gufað upp hver á eftir annarri, enda eru félög eins og Baugur, Fons, Milestone og Exista öll komin í þrot. Björgólfur Thor Björgólfsson, ríkasti maður Íslands, er af Forbes talinn eiga um 127 milljarða króna. Hann var metinn á 315 milljarða króna í maí 2007. Auður hans hefur því rýrnað um að minnsta kosti 188 milljarða króna. Aðrir sem voru ofarlega á listanum árið 2007 eru Björgólfur Guðmundsson, Lýður og Ágúst Guðmundssynir, Ólafur Ólafsson og Karl Wernersson. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa tapað nánast öllu. Þegar listinn var birtur í maí 2007 komst enginn sem átti undir 20 milljarða skuldlaust inn á hann. Nú er öldin önnur og hefur íslenskum milljarðamæringum snarfækkað. Örfáir einstaklingar á listanum hafa hins vegar náð að halda í verðmæti sín, en meðal þeirra má nefna Guðbjörgu Matthíasdóttur, sem er meðal annars einn af nýju eigendum Morgunblaðsins. Í flestum tilfellum er þessir aðilar ekki í persónulegri ábyrgð fyrir skuldbindingum sínum. Það þýðir einfaldlega að þrátt fyrir mikið eignatap og háar útistandandi skuldir leiðir gjaldþrot fyrirtækja þessara aðila ekki beint til persónulegs gjaldþrots. Björgólfur Guðmundsson er sá eini, svo vitað sé, sem er í persónulegri ábyrgð fyrir stórum skuldbindingum. Af heildareignum áður tuttugu og fimm ríkustu Íslendingana standa eftir um 200 milljarðar króna. Þetta þýðir rýrnun upp á um 85% frá því sem var.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira