Seðlabankinn um þróun og horfur í efnahagsmálum: Álverð hefur náð botni 9. maí 2009 07:00 Í Helguvík Frá framkvæmdum vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Fréttablaðið/GVA
Ekki eru taldar miklar líkur á að álverð nái sér aftur á strik á næstu mánuðum nema dregið verði verulega úr framleiðslu og birgðir minnki, að mati hagdeildar Seðlabanka Íslands. Fjallað er um álverðshorfur í rammagrein í nýjasta hefti Peningamála, efnahagsriti bankans. Álverð seig hratt eftir mitt síðasta ár, var komið undir 1.400 dali á tonnið um áramót. Það jafngilti 50 prósenta verðlækkun frá því í júlí þegar það stóð hæst í 3.300 dölum. Verðið seig frekar og skrapaði botninn tímabundið í febrúar í rúmum 1.250 dölum á tonnið. Það hefur hækkað um tæp 27 prósent síðan þá, var í gær í 1.585 dollurum tonnið. „Á hinn bóginn eru nú meiri líkur á því að verðið hafi náð lágmarki og taki smám saman að hækka á ný,“ segir í Peningamálum, en meðalverð fyrstu fjórtán vikur ársins var nálægt 1.400 dollurum tonnið. Fram kemur að framvirkt verð LME (London Mineral Exchange) bendi til þess að meðalverð á þessu ári verði nálægt 1.470 dollurum tonnið, ríflega 55 prósentum frá hámarki síðasta sumars. Mikla lækkun rekur Seðlabankinn til umróts vegna fjármálakreppunnar í heiminum. „Í fyrsta lagi varð minni aðgangur vogunarsjóða og hrávörukaupmanna að fjármagni til þess að þeir drógu sig að nokkru marki í hlé á mörkuðum með málma. Á hinn bóginn hefur vaxandi samdráttur í heimsbúskapnum, sérstaklega í byggingar- og bílaiðnaðinum þar sem notað er mikið af áli, leitt til minnkandi eftirspurnar eftir áli.“ Seðlabankinn gerir ekki ráð fyrir að ál hækki að marki í verði fyrr en á árinu 2010. Hækkun til 2011 verði þá 9,0 til 10,0 prósent. Álverð fari þá í um 1.800 dollara á tonn, sem sé svipað verð og árið 2005. - óká, jab
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira