Innlán jukust um 19% eftir bankahrunið í haust 7. maí 2009 13:39
Fyrstu tvo mánuðina eftir hrun bankakerfisins jukust innlán um rúmlega 19%. Heldur hefur dregið úr þeim á ný enda hefur staða heimila og fyrirtækja versnað, m.a. vegna hækkandi greiðslubyrðar lána og minnkandi atvinnu. Frá septemberlokum til loka febrúar nam innlánaaukning bankakerfisins þó rúmlega 15% eða rúmlega 216 milljarða kr. Þetta kemur fram í ritinu Peningamál sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að aukninguna má að stórum hluta rekja til fjögurra þátta. Í fyrsta lagi má áætla að innlán hafi aukist um rúmlega 100 milljarða kr. vegna útgreiðslna úr verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum eftir að þeim var lokað. Hér er því um tilfærslu milli eignaflokka að ræða fremur en hreina aukningu heildarinnlána. Í öðru lagi hafa innlán aukist vegna flótta í örugga fjárfestingu, sem kemur m.a. fram í minnkandi útgáfu fyrirtækjaskuldabréfa sökum þess að dregið hefur úr eftirspurn. Þegar þróun peningamagns er skoðuð þarf á sama hátt að taka tillit til þess að ólíklegt er að slík tilfærsla auki aðgang fyrirtækja að lánsfé þar sem framboð lánsfjár úr bankakerfinu hefur ekki aukist sem því nemur, eins og rakið er hér að neðan. Neyðarlögin, sem gerðu innstæður rétthærri en áður, og loforð ríkisstjórnarinnar um fulla tryggingu innstæðna í innlendum útibúum bankanna hafa orðið til þess að draga fjármagn frá fyrirtækjaskuldabréfamarkaðnum í innlán. Þriðja ástæða þessarar miklu aukningar innlána er sú að ekki er lengur heimilt að fjárfesta í erlendum verðbréfum. Fjármagni hefur því verið beint í hefðbundin innlán. Framboð fjárfestingarkosta hefur einnig minnkað vegna hruns hlutabréfamarkaðarins og afskráningar fyrirtækja. Að lokum kann tímabundin óvissa um útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar að hafa valdið því að lífeyrissjóðir hafi fremur fjárfest í innlánum en öðrum eignum sökum óvissu um útgreiðslur komandi mánaða. Innlán lífeyrissjóða jukust þannig um rúmlega 68 milljarða kr. frá september fram til loka febrúarmánaðar, að hluta til vegna lokunar verðbréfa- og fjárfestingasjóða.3 Síðan segir í Peningamálum: „Töluverð aukning innlána ætti að skapa bönkunum góða lausafjárstöðu. Þrátt fyrir það hefur lítið verið um ný útlán frá hruni banka kerfisins. Ástæða fyrir litlu framboði lánsfjár virðist því fremur vera óvissa um stöðu bankanna sjálfra, efnahagsreikninga þeirra og stöðu efnahagslífsins í heild fremur en skortur á lausafé."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira