Stærra skref en við var búist Óli Kristján Ármannsson skrifar 8. maí 2009 01:00 Kynna lækkun vaxta. Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynntu ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um lækkun vaxta í gærmorgun. Fréttablaðið/Vilhelm
Stýrivextir eru 13 prósent eftir lækkun. Enn frekari lækkun er boðuð í júní. Ekki er talið að veik króna trufli áframhaldandi hraða hjöðnun verðbólgu. Kallað er á lækkun bankavaxta, helst meiri en nemi stýrivaxtalækkuninni. Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa nú í 13 prósentum eftir 2,5 prósentustiga lækkun í gær samkvæmt ákvörðun peningastefnunefndar bankans. Lækkunin er meiri en greiningardeildir höfðu spáð, en nálgast tilmæli skuggabankastjórnar Markaðarins. Hún lagði til 3,0 prósentustiga lækkun og yfirlýsingu um annað eins í júní. Peningastefnunefndin boðar þó umtalsverða lækkun á næsta ákvörðunarfundi. Svein Harald Øygard seðlabankastjóri kvaðst ekki vilja tjá sig um tölur í því sambandi, en hann kynnti ákvörðun nefndarinnar ásamt Arnóri Sighvatssyni aðstoðarseðlabankastjóra. Í umfjöllun IFS Greiningar er bent á að vextirnir séu háir þrátt fyrir lækkun. Nú sé stýrivaxtastigið svipað og 2007 þegar síðasta uppsveifla var í hámarki. „Hins vegar eru raunstýrivextir lágir eða aðeins um 1,1 prósent ef miðað er við 12 mánaða verðbólgu sem mælist um 11,9 prósent. Hins vegar er þriggja mánaða verðbólga aðeins 1,4 prósent á ársgrundvelli. Út frá lágri þriggja mánaða verðbólgu og því sjónarmiði að 12 mánaða verðbólga sé aðeins vandamál fortíðarinnar hefði mátt ætla að tilefni væri til kröftugri stýrivaxtalækkunar," segir þar. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar kemur fram að skammtímamarkmið peningastefnunnar sé stöðugleiki í gengismálum. „Gengi krónunnar hefur verið tiltölulega stöðugt frá síðasta fundi nefndarinnar. Það sem helst hefur stutt gengið er umtalsverður afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum. Í ljósi undirliggjandi efnahagsþróunar má ætla að gengi krónunnar muni til lengri tíma litið vera hærra en það hefur verið að undanförnu. Greining Íslandsbanka vekur athygli á að innlánsvextir Seðlabankans hafi lækkað meira en stýrivextirnir, eða um 3,0 prósentustig. „Þar sem skammtímavaxtastig í fjármálakerfinu miðast fyrst og fremst við innlánsvexti Seðlabankans fremur en stýrivextina sjálfa þessa dagana má því segja að í raun hafi fremur verið um þriggja prósenta vaxtalækkun að ræða," segir þar. Í greinargerð peningastefnunefndar eru bankar hvattir til að lækka vexti umfram lækkun stýrivaxtanna. Peningastefnunefndin segir verðbólguþrýsting hafa haldið áfram að hjaðna líkt og búist var við. „Ekki er reiknað með að gengislækkun krónunnar frá í mars muni seinka hjöðnun verðbólgunnar svo neinu nemi."
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira