Fleiri fréttir

Milljarður snjallsíma seldur árið 2015

Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að milljarður snjallsíma verði seldur árið 2015 og að 350 milljón spjaldtölvur verði í umferð á þeim tíma.

Galaxy S III er snjallsími ársins

Tævanski raftækjaframleiðandinn ASUS vann til fimm verðlauna á T3 tæknihátíðinni sem fór fram í Lundúnum í vikunni. Fulltrúar frá öllum helstu tæknifyrirtækjum veraldar voru viðstaddir afhendingu verðlaunanna.

Stjórn REI vildi fjármagna 100 milljarða kaup með lánum

Aðeins tíu vikum eftir að Reykjavík Energy Invest (REI) var stofnað lagði stjórn fyrirtækisins það til við fjármálastjóra Orkuveitu Reykjavíkur að hann færi að kanna hvernig hægt væri að kaupa hlut í orkufyrirtæki á Filipseyjum fyrir 800 milljónir dala, eða sem nemur um ríflega 100 milljörðum króna á núverandi gengi.

Glansmyndir af Íslandi prýða nýjan bækling Hyundai

Seðlabankinn er færður og settur við hliðina á Hörpunni, jeppi ekur á fullri ferð út í Jökulsárlón, og glæ nýr jeppi ekur undir tveggja ára gömlu öskufalli úr Eyjafjallajökli í nýjum bæklingi Hyundai bílaframleiðands, sem er þar að kynna nýjasta jeppann, eða þriðju kynslóð Hyundai jeppanna. Tuttugu stórar glansmyndir frá Íslandi prýða bæklinginn, þar af 17 óbrenglaðar, en fiktað hefur verið ótæpilega með þrjár fyrrnefndu myndirnar, með nýjustu tölvutækni.

Aukin jákvæðni meðal stjórnenda fyrirtækja

Margfalt fleiri stjórnendur telja aðstæður slæmar í atvinnulífinu en að þær séu góðar en fleiri þeirra eru á jákvæðu nótunum en í síðustu könnun sem gerð var í júní s.l.. Nú telja 48,1% þeirra aðstæður vera slæmar, 6,4% að þær séu góðar en 45,5% að þær séu hvorki góðar né slæmar.

Lánshæfiseinkunn Spánar á leið í ruslflokk hjá S&P

Matsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hefur ákveðið að lækka lánshæfiseinkunn Spánar um tvo flokka með neikvæðum horfum. Þar með er lánshæfiseinkunnin, BBB-, aðeins einum flokki frá svokölluðum ruslflokki.

Nýjar höfuðstöðvar kostuðu 8,5 milljarða króna

Árið 1999 var ákveðið að byggja nýjar höfuðstöðvar OR við Bæjarháls í Reykjavík. Byggingin átti upphaflega að kosta um tvo milljarða króna. Boðað var til sérstaks blaðamannafundar vegna mikillar umræðu um kostnað við byggingu hússins í janúar 2005. Þar upplýstu Guðmundur Þóroddsson og Alfreð Þorsteinsson, forstjóri og stjórnarformaður OR á þeim tíma, að heildarkostnaður hefði verið um 4,2 milljarðar króna. Alfreð sagði á fundinum að kostnaðurinn „væri ekki nema rétt rúmlega það sem gerðist í vandaðri grunnskólabyggingu í Reykjavík".

Arðgreiðslur: Fjármagnaðar með erlendum lánum

Eigendur OR greiddu sér út háar arðgreiðslur og ábyrgðargjald og tóku eignarhlut í Landsvirkjun út úr fyrirtækinu á tímabilinu. Allt þetta veikti eiginfjárstöðu OR mikið. Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið grundvöllur fyrir þorra þessarra aðgerða.

Fjármögnun: Tóku stöðu með krónunni

Á tímabilinu sem úttektarnefndin skoðaði fjárfesti OR fyrir 210,4 milljarða króna. Fjárfestingarnar skiluðu hins vegar ekki nægjanlegri arðsemi og hafa hvorki staðið undir kostnaði við fjármagn né uppfyllt arðsemismarkmið sem sett voru af stjórn. Í skýrslunni segir: "Meðalarðsemi eigna á tímabilinu er 3% án áhrifa tekjuskatts og fjármagnskostnaðar. Huga þarf að því hvaða þýðingu það hafi til lengri tíma ef arðsemi eigna fyrirtækisins stendur ekki undir fjármagnskostnaði.“

Ólíðandi verkstopp á tímum atvinnuleysis

Hörð gagnrýni á vinnubrögð stjórnarflokkanna kom fram á fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands í gær. Var þar sérstaklega vísað í ummæli Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns VG, á Alþingi í fyrradag um framkvæmdir í Bjarnarflagi.

Á ekki að "viðgangast í fyrirtæki sem er í almannaeigu"

Sérstaklega gagnrýnt er í skýrslu úttektarnefndarinnar að stjórnendur hafi tekið ákvörðun um að verja fyrirtækið ekki fyrir gengisáhættu, án þess að fyrir þeirri ákvörðun lægi ítarleg greining á mögulegum áhrifum til lengri tíma litið. Með þessu var tekin áhætta, sem að mati nefndarinnar á ekki að viðgangast í fyrirtæki í almannaeigu.

Stærsta skuldabréfaútgáfa einkaaðila frá hruni

Eik fasteignafélag hf. lauk í dag skuldabréfaútgáfu upp á 11,6 milljarða króna. Þetta er stærsta skuldabréfaútgáfa einkaaðila á fjármálamarkaði frá árinu 2008 og er sögð marka vatnaskil á íslenskum fjármagnsmarkaði í tilkynningu frá félaginu.

Björn Ingi: Allir sem komu að stjórn bera ábyrgð á stöðunni

„Eftir á að hyggja var farið of hratt í skuldsetningu, of mikil áhætta tekin gagnvart gengi gjaldmiðla og á því bera allir ábyrgð sem komu að stjórn fyrirtækisins undanfarin ár. Hins vegar má ekki gleyma því að þetta er, þrátt fyrir allt, gífurlega stöndugt fyrirtæki og það skapar mjög miklar tekjur og ef allt gengur að óskum þá verður hægt að líta á vandræðin núna sem mikilvæga lexíu,"

Milljarðaframkvæmdir fyrirhugaðar á Grundartanga

Norðurál á Grundartanga áformar verkefni fyrir á annan tug milljarða. Markmiðið er að auka framleiðni, bæta rekstraröryggi, og auka framleiðslu um allt að 50 þúsund tonn af áli á ári, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.

Iceland Express þriðja besta lággjaldaflugfélagið í Danmörku

Iceland Express lenti í þriðja sæti í kjörinu um besta lággjaldaflugfélagið í Danmörku þegar úrslit Danish Travel Awards voru kynnt í gær. Sigurvegarinn var Danish Air Transport og Norwegian fékk silfrið. Þetta kemur fram á vefnum Túristi.is.

Ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir

Útgáfufélagið Birtíngur tapaði 20,9 milljónum króna í fyrra. Það tap bætist við 55,9 milljóna króna tap þess árið áður. Eigið fé Birtíngs var neikvætt um 83,2 milljónir króna um síðustu áramót.

Félag í eigu SÍ tapaði átta milljörðum

Eignasafn Seðlabanka Íslands flutti 34,5 milljarða króna af eignum yfir í Hildu, sem átti áður Sögu. Um er að ræða kröfur á einstaklinga og minni fyrirtæki með veði í fasteignum þeirra.

Drómi vill milljarð frá Kaupþingstoppunum

Drómi hefur höfðað mál á hendur fimm fyrrverandi yfirstjórnendum Kaupþings til innheimtu rúmlega 900 milljóna króna skuldar vegna jarðakaupa við Langá á Mýrum. Jarðirnar voru ætlaðir undir sumarhús sem aldrei risu.

Allt fyrir atvinnumanninn

Hjá MHG verslun er persónuleg þjónusta í fyrirrúmi. Verslunin er leiðandi í innflutningi á vinnuvélum og varahlutum og er einnig í fararbroddi með vörur fyrir golf- og fótboltavelli, steypusagir, bora, sláttuvélar og hillukerfi. Öllum þörfum viðskiptavina er mætt með heildarlausnum og skilvirkni.

Sími Sigurðar hleraður á vormánuðum 2010

Embætti sérstaks saksóknara hleraði síma Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, frá 9. mars til 21. apríl 2010 og síðan aftur frá 6. maí til 27. maí sama ár. Þetta var gert á grundvelli beiðna frá embættinu til héraðsdóms, en þar færð voru fyrir því rök að hlerunin gæti veitt mikilvægar upplýsingar um meinta refsiverða háttsemi og þátttöku einstakra manna í ákvörðunartöku og framkvæmd viðskipta. Þá þótti líklegt að sakborningar í málinu gætu borið saman bækur sínar. Þetta kemur fram í greinargerð Sigurðar Einarssonar í Al-Thani málinu, en greinargerðin var birt í heild sinni á Vísi í gær. Sigurður var upplýstur um hlerunina í lok árs í fyrra.

Mikilvægi góðrar hljóðvistar

Vitundarvakning hefur orðið hér á landi um mikilvægi hljóðvistar. Sérstakt svið innan verkfræðistofunnar EFLU veitir ráðgjöf um hljóðvist til fyrirtækja, stofnana og heimila. Vinnustaðir, skólar og íbúðarhúsnæði eru dæmi um staði þar sem mikilvægt er að hafa hljóðvist í lagi.

Mikið úrval gæðamerkja á góðu verði

Húsasmiðjan býður upp á mikið úrval borvéla, bæði rafmagns- og rafhlöðuborvélar fyrir heimili og iðnaðarmenn. "Hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi og nánast í hverjum mánuði erum við með tilboð á einhverjum vélum," segir Jón Örn Bragason, vörustjóri Húsasmiðjunnar.

Nýr vefur um viðskipti með fyrirtæki

Nýr vefur www.fyrirtaekjakaup.is hefur verið opnaður. Hann er vettvangur fyrir sölu og kaup á litlum og meðalstórum fyrirtækjum og er lifandi markaðstorg þar sem kaupendum og seljendum fyrirtækja er þjónað á hagkvæman og ábyrgan hátt af fagfólki.

Markaðurinn kominn á Vísi

Milljarðakrafa á hendur Kaupþingsmönnum, hagnaður Viðskiptablaðsins og helmingsfjölgun starfsmanna hjá Google og Amazon. Um allt þetta má lesa í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins sem kom út í morgun. Ef þú smellir á hlekkinn hér að neðan getur þú lesið blaðið.

Eigandi Viðskiptablaðsins skilar 14 milljóna hagnaði

Myllusetur ehf., sem á og rekur Viðskiptablaðið og tengda fjölmiðla, hagnaðist um 14 milljónir króna í fyrra. Það er töluvert minna en árið áður en félagið hagnaðist þá um 20,9 milljónir króna. Ástæða samdráttarins er sú að fjármunatekjur drógust saman á síðasta ári, fjármagnsgjöld hækkuðu og félagið greiddi 2,8 milljónir króna í tekjuskatt, en það greiddi engan slíkan árið 2010. Þetta kemur fram í ársreikningi Mylluseturs sem var skilað inn til ársreikningaskrár í síðustu viku. Eigendur Mylluseturs eru Pétur Árni Jónsson, sem á 67 prósent, og Sveinn Biering Jónsson, sem á 33 prósent.

Veritas hagnaðist um 755 milljónir í fyrra

Veritas Capital hagnaðist um 755 milljónir króna í fyrra og eigið fé félagsins nam tæpum fjórum milljörðum króna um síðustu áramót. Alls seldi fyrirtækið vörur fyrir 13,7 milljarða króna. Hagnaður Veritas á árinu 2010 var 1,1 milljarður króna. Samanlagt hefur fyrirtækið því hagnast um tæpa tvo milljarða króna á tveimur árum.

Alcoa skilaði rekstrarhagnaði

Álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaráls, skilaði hagnaði af rekstri sínum á þriðja ársfjórðungi ársins þvert á væntingar sérfræðinga sem spáð höfðu engum hagnaði eða jafnvel tapi á ársfjórðungnum.

Launin hækka og hækka á Wall Street

Laun fjármálafyrirtækjanna Í Bandaríkjunum, sem oft eru kennd við Wall Street, eru nú sögulegu hámarki, jafnvel þótt störfum hafi fækkað töluvert á undanförnum árum. Meðalárslaun venjulegs starfsmanns fjármálafyrirtækis í New York, þ.e. ekki stjórnanda, sem vinnur við tryggingaviðskipti og fleira, nema tæplega 362 þúsund dölum á ári, eða sem nemur 45,3 milljónum króna. Það gerir um 3,7 milljónir króna á mánuði. Frá þessu er greint á vefsíðu New York Times í dag.

Íslendingar hringja tvær milljónir farsímtala dag hvern

Íslenskir farsímanotendur hringdu alls tæplega 766 milljón símtöl í fyrra, að því er fram kemur á vef Póst- og fjarskiptastofnunar. Það er um þriggja prósenta aukning frá árinu 2010 og jafngildir rúmlega tveimur milljónum símtala á degi hverjum að jafnaði.

Breytingar gætu bætt stöðuna

Gengi hlutabréfa álrisans Alcoa hefur fallið í verði um 50% síðustu átján mánuði vegna lækkandi heimsmarkaðsverðs á áli. Búist var við því að í gær, eftir að Markaðurinn fór í prentun, að tilkynnt yrði um tap á rekstri á þriðja ársfjórðungi. Bloomberg segir svo frá.

Fréttaskýring: Leigumarkaðurinn í ójafnvægi

Hagstæðara virðist vera að kaupa íbúðarhúsnæði um þessar mundir en leigja. Í það minnsta ef tekið er mið af hlutfalli kaupverðs af leiguverði sem oft er notað til að gefa vísbendingu um hvor valkosturinn er betri. Greiningaraðilar á markaði spá flestir nokkurri raunhækkun á húsnæðisverði á næstu misserum. Ein forsenda slíkra spáa er að hluti þess hóps sem nú er á leigumarkaði fari brátt að huga að húsnæðiskaupum.

Reyna sífellt að skafa af mínútur

DHL á Íslandi fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli. Markaðurinn ræddi við Atla Frey Einarsson, framkvæmdastjóra félagsins, af þessu tilefni um fyrirtækið, umsvifin í efnahagslífinu og þær breytingar sem orðið hafa á hraðflutningum síðustu áratugi.

Samruni hefði getað kostað skattborgara háar fjárhæðir

Samkeppniseftirlitið (SE) ógilti á mánudag samruna Veritas Capital og Fastus ehf., sem bæði reka starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu. Taldi eftirlitið að við samrunann yrði til fyrirtæki sem öðlast myndi markaðsráðandi stöðu í sölu á flóknum lækningatækjum sem myndi leiða af sér aðgangshindranir fyrir nýja aðila. Auk þess sýndi ítarleg rannsókn SE þá niðurstöðu að Landspítalinn og aðrir viðskiptavinir þess byggju ekki yfir nægilegum kaupendastyrk til að „draga úr mætti hins sameinaða fyrirtækis“.

ESÍ átti 340 milljarða um áramót

Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) var stofnað eftir hrun til að halda utan um allskyns útistandandi kröfur Seðlabankans. Að stærstum hluta er um að ræða þær kröfur sem ríkissjóður keypti af bankanum til að gera eigið fé hans jákvætt í lok árs 2008 og sem bankinn keypti síðan aftur á árinu 2009.

Sigurður: Farið fram með offorsi - greinargerðin í heild

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segist engin lög hafa brotið í hinu svokallaða Al-Thani máli. Í nítján síðna greinargerð sinni í málinu segir hann upplegg málsins bera þess merki, að embætti sérstaks saksóknara hafi farið fram með offorsi gegnum honum, og raunar fleiri fyrrverandi starfsmönnum fjármálafyrirtækja.

Langmest verðtryggingarmisvægi hjá Landsbankanum

Verðtryggingarmisvægi viðskiptabankanna, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur ríflega 208 milljörðum króna, samkvæmt tölum sem birtar eru í fjármálastöðugleikariti Seðlabanka Íslands. Það þýðir að verðtryggðar eignir bankanna voru meiri en verðtryggðar skuldir þeirra, sem nemur ofangreindri tölu. Mest er misvægið hjá Landsbankanum, eða 73 prósent af eiginfjárgrunni. Hjá Arion er það 32 af eiginfjárgrunni og hjá Íslandsbanka 6 prósent af eiginfjárgrunni.

Tollastríð að skella á milli Norðmanna og ESB

Tollastríð virðist skollið á milli Noregs og Evrópusambandsins en það eru einkum Danir sem vilja að Norðmönnum verði refsað vegna fyrirhugaðra ofurtolla þeirra á landbúnaðarvörur.

Rífandi gangur í fasteignaviðskiptum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 124. Þetta er umtalsvert meiri fjöldi samninga en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði sem er 104 samningar.

Sjá næstu 50 fréttir