ESÍ átti 340 milljarða um áramót 10. október 2012 00:00 Mynd/Pjetur
Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) var stofnað eftir hrun til að halda utan um allskyns útistandandi kröfur Seðlabankans. Að stærstum hluta er um að ræða þær kröfur sem ríkissjóður keypti af bankanum til að gera eigið fé hans jákvætt í lok árs 2008 og sem bankinn keypti síðan aftur á árinu 2009. Í ársskýrslu Seðlabankans segir að ESÍ hafi á árinu 2011 náð samkomulagi við „mikinn hluta þeirra slitastjórna sem fara með stjórn þeirra fyrirtækja sem ESÍ á kröfur á. Í kjölfarið hefur ESÍ fullnustað veð auk þess að eiga almenna kröfu á fyrirtækin. Á árinu 2011 tók ESÍ yfir Hildu hf. sem varð þá dótturfélag ESÍ". Í lok árs 2011 átti ESÍ eignir sem sagðar voru 340,3 milljarða króna virði. Þær eignir eru 21 prósent af heildarefnahag Seðlabankans. Eignir ESÍ lækkuðu um 56 milljarða króna í fyrra. Að sögn Seðlabankans má rekja þá lækkun til innheimtu eigna og niðurgreiðslu á skuldum gagnvart eiganda sínum. Samtals nam hagnaður ESÍ þremur milljörðum króna í fyrra. Á meðal þeirra eigna sem geymdar eru inni í ESÍ er seljendalán sem Seðlabankinn veitti við söluna á hinum danska FIH-banka haustið 2010. Höfuðstóll lánsins var upphaflega 70 milljarðar króna en Seðlabankinn hefur viðurkennt að líkur séu á því að hluti þess muni tapast. Bankinn vill hins vegar ekki upplýsa um hvert bókfært virði lánsins er í bókum ESÍ.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira