Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FME fjallar um stöðu lífeyrissjóðanna Fjármálaeftirlitið boðar til blaðamannafundar klukkan 13.15 í dag, þar sem farið verður yfir stöðu lífeyrissjóðanna. 3.7.2012 09:09
Bankastjóri Barclays segir af sér Bob Diamond bankastjóri Barclays bankans hefur sagt upp störfum og hættir hann strax hjá bankanum. 3.7.2012 07:47
Áfram fjör á fasteignamarkaðinum Ekkert lát er á sölu íbúða á höfuðborgarsvæðinu þótt helsti sumarleyfatími landsmanna sé genginn í garð. 3.7.2012 06:43
GlaxoSmithKline greiðir 376 milljarða í sekt Bandaríska lyfjarisanum GlaxoSmithKline hefur verið gert að greiða þrjá milljarða dollara eða um 376 milljörðum króna í sekt í Bandaríkjunum í stærsta lyfjamisferlismáli sem upp hefur komið þar í landi. 3.7.2012 06:28
N1 býður starfsmönnum Hyrnunnar aftur vinnu Olíufyrirtækið N1 ætlar að reka veitingastað og vegasjoppu í Hyrnunni þar sem Samkaup voru áður. Starfsmönnum Hyrnunnar sem sagt var upp störfum í síðustu viku verður boðin vinna á veitingastað N1, að sögn Hermanns Guðmundssonar, forstjóra N1. 3.7.2012 14:15
Íslendingar ekki verið bjartsýnni í mörg ár Íslendingar eru bjartsýnni en þeir hafa verið frá því fyrir hrun. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í dag þar sem fjallað er um nýbirta væntingavísitölu Gallup. 3.7.2012 12:59
Verslun Jóhannesar opnar 28. júlí Iceland, verslun Jóhannesar Jónssonar, stofnanda Bónuss, mun opna þann 28. júlí næstkomandi í Engihjalla í Kópavogi. Að auki verður opnuð netverslun. Jóhannes segir að undirbúningur verslunarinnar gangi vel. Netverslunin mun ganga þannig fyrir sig að fólk pantar vörur á Netinu og fær þær svo sendar heim. "Þar ætla ég að vera með vörur í þyngra lagi sem fók getur pantað og fengið sendar,“ segir Jóhannes í samtali við Vísi. 3.7.2012 12:11
Umboðsmaður skuldara dregur saman seglin Frá og með 1. september mun fækka í starfsliði umboðsmanns skuldara. Aftur mun fækka í starfsliðinu árið 2013. Umboðsmaður skuldara er því að draga saman seglin og ástæðan er sú að mun færri umsóknir um greiðsluaðlögun berast embættinu. 3.7.2012 12:09
Paris Hilton vill stofna eigin hótelkeðju Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton hefur áhuga á að stofna sína eigin hótelkeðju og ganga þar með í fótspor langafa síns Conrad Hilton. 3.7.2012 10:12
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað nokkuð í morgun eða um tæpt prósent hjá bæði Brent olíunni og bandarísku léttolíunni. 3.7.2012 09:48
Veltan með hlutabréf tvöfaldaðist milli mánaða Veltan með hlutabréf í Kauphöllinni var tvöfalt meiri í júní en í maí. Heildarviðskiptin í júní námu tæplega 9,6 milljörðum kr. á móti tæplega 4,7 milljörðum kr. í maí. 3.7.2012 08:30
Fyrsti makrílinn á vertíðinni komin til Vopnafjarðar Fyrsti síldar- og makrílafli á nýhafinni vertíð barst til Vopnafjarðar í gærkvöldi með Ingunni AK sem skilaði rúmlega 400 tonna afla. 3.7.2012 07:00
FME samþykkir samruna Arion banka og Verdis Fjármálaeftirlitið (FME) hefur samþykkt samruna Arion banka við fjármálaþjónustufyrirtækið Verdis hf. 3.7.2012 06:57
Metsala á notuðum bílum í Danmörku Sala á notuðum bílum hefur aldrei verið meiri í sögunni í Danmörku. Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að á fyrstu fimm mánuðum ársins hafi um 217.000 notaðir bílar verið seldir í Danmörku eða að jafnaði 1.400 bílar á hverjum degi. 3.7.2012 06:39
Segir alrangt að almenningur niðurgreiði gagnaver Ómar Benediktsson, forstjóri Farice ehf., hafnar því með öllu að almenningur niðurgreiði þjónustu Farice við gagnaver. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sagði aftur á móti aðspurður í samtali við Vísi í dag líta svo á að svo væri. 2.7.2012 17:13
Reginn stóð í stað - Bréf Össurar féllu um 2,33 prósent Gengi bréfa Regins, á fyrsta viðskiptadegi félagsins á markai, stóð í stað í dag og var gengið 8,2 í lok dags, sem var skráningargengið. Velta með bréfin nam tæplega 40 milljónum. Gengi bréfa í Högum lækkaði um 1,08 prósent og er nú 18,3. Þá hækkaði gengi bréfa Marels um 0,99 prósent og er nú 153,5. Gengi bréfa í Icelandair hækkaði um 1,21 prósent og er nú 6,69. 2.7.2012 16:28
David Cameron segir framferði Barclays manna hneyksli David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir framferði starfsmanna Barclays-bankans, og eftir atvikum annarra bankamanna, er varðar vaxtasvindl bankans vera hneyksli og tilkynnti um það í breska þinginu í dag að ítarleg rannsókn myndi fara fram á starfsháttum banka í landinu. 2.7.2012 16:11
Evrukreppa gæti seinkað afnámi gjaldeyrishafta Áhrif sem kreppa í Evrópu myndi hafa á Ísland eru óljós. Hún gæti haft neikvæð áhrif á innlendan hagvöxt og frestað eitthvað afnámi gjaldeyrishafta. Litlar líkur eru aftur á móti á alvarlegum fjármálalegum óstöðugleika. Því valda vel fjármagnaðir viðskiptabankar, gjaldeyrishöft, mikiill gjaldeyrisforði og lenging lána ríkissjóðs. 2.7.2012 13:22
Tíu starfsmönnum Hyrnunnar í Borgarnesi sagt upp Tíu starfsmenn Samkaupa í Hyrnunni í Borgarnesi fengu uppsagnarbréf í síðustu viku. Frá þessu er greint á vefsíðu Skessuhorns. Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa sem rekið hefur Hyrnuna, segir að þetta sé gert vegna þess að leigusamningur Samkaupa við húseigendur, N1, er að renna út um næstu áramót. 2.7.2012 13:19
"Ríkið að láta almenning niðurgreiða gagnaver“ Í rauninni er ríkið að láta almenning niðurgreiða gagnaver á Íslandi með því að Farice ehf. fari fram á nær þrefalda verðhækkun á þjónustu sinni við símafyrirtækin. Þetta segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna aðspurður um málið. „Það er alveg ljóst." 2.7.2012 12:46
Gagnaver fá þjónustuna ódýrari en almenningur Íslenskur almenningur mun þurfa að greiða umtalsvert meira en alþjóðleg gagnaver fyrir internettengingu við útlönd verði áform Farice ehf. að veruleika. Fréttastofa greindi frá því á föstudag að Farice ehf., sem rekur tvo stærstu sæstrengina sem tengja Ísland við umheiminn, stefni á að rukka Símann og Vodafone næstum þrefalt meira fyrir þjónustu sína frá og með október. 2.7.2012 10:26
Reginn formlega á markað Viðskipti hófust með hlutabréf í fasteignafélaginu Reginn í dag. Reginn flokkast sem lítið félag nnan fjármálageirans. Það er fjórða félagið sem skráð er á Aðalmarkað innan NASDAQ OMX Nordic á árinu 2012 en fyrsta félagið sem skráð er á NASDAQ OMX Iceland á þessu ári. 2.7.2012 09:58
Stjórnarformaðurinn yfirgefur Barclays Barclays bankinn staðfesti í morgun fréttir breska ríkisútvarpsins, BBC, um að stjórnarformaðurinn, Marcus Aguis, myndi láta af störfum. Ástæðan er sú að bankinn var á dögunum sektaður um það sem samsvarar 57 milljörðum íslenskra króna fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á stýrivexti með ólöglegum aðgerðum. Bob Diamond, framkvæmdastjóri Barclays, mun gefa skýrslu fyrir fjármálanefnd breska þingsins á miðvikudag vegna hneykslisins. Aguis mætir svo fyrir nefndina á fimmtudaginn. 2.7.2012 09:18
Olíuverðið gefur eftir í kjölfar gífurlegrar hækkunnar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur aðeins gefið eftir í morgun en það hækkaði gífurlega seinnipartinn á föstudag. 2.7.2012 07:00
Ísland neðarlega á lista yfir meðallaun í heiminum Íslendingar eru í 19. sæti hvað varðar meðallaun á mánuði í heiminum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Alþjóða vinnumálastofnuninni. 2.7.2012 06:41
Toyota komið í ný húsakynni Toyota afhenti fyrsta bílinn í nýjum höfuðstöðvum í Kauptúni 6 í Garðabæ í morgun. Björn Friðrik Svavarsson tók við lyklunum af nýjum Yaris Hybrid úr höndum Úlfars Steindórssonar, forstjóra Toyota á Íslandi. 2.7.2012 11:55
Apple greiðir 7,5 milljarð króna Apple borgar 7,5 miljarð króna til að sætta mál í Kína um eignarétt á iPad vörumerkinu. 2.7.2012 11:08
Atvinnuleysi á evrusvæðinu eykst áfram Atvinnuleysi á evrusvæðinu heldur áfram að aukast. Atvinnleysið mældist 11,1% í maí samanborið við 11% í apríl og hefur aldrei verið meira í sögu evrusvæðisins. 2.7.2012 09:35
Viðskipti hefjast með hlutabréf Regins Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf Regins hf. á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland. Reginn, sem er flokkað sem lítið félag innan fjármálageirans er fjórða félagið sem skráð er á Aðalmarkað innan NASDAQ OMX Nordic á árinu og það fyrsta sem skráð er á OMX Iceland á þessu ári. 2.7.2012 07:50
Eignir Batista hrynja í verði Brasilíski milljarðamæringurinn Eike Batista, einn ríkasti maður Brasilíu, hefur tapað helmingnum af auði sínu á síðustu þremur mánuðum, að því er fram kemur á vef Forbes. Þar segir að „ástarsambandi Batista“ við hlutabréfamarkaði sé lokið, en frá því í mars mánuði hefur hann tapað 15,5 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega 1.900 milljörðum krónum. Enginn milljarðamæringur í heiminum hefur tapað meiru á árinu en Batista, samkvæmt Forbes. 1.7.2012 22:30
Stjórnarformaður Barclays mun segja upp Marcus Agius stjórnarformaður Barclays mun segja upp vegna vaxtahneykslisins. Bankinn er sakaður um að hafa með markaðsmisnoktun reynt að hafa áhrif á stýrivexti. Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC fullyrðir að Agius muni tilkynna afsögn sína á morgun. Barclays bankinn var sektaður um 290 milljónir sterlingspunda vegna hneykslisins. Royal Bank of Scotland hefur nú þegar rekið fjóra miðlara vegna þáttar þeirra í svindlinu. 1.7.2012 20:39