Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frá Norðurorku til Jarðboranna Væntanleg starfslok forstjóra Norðurorku voru kynnt starfsmönnum fyrirtækisins á fundi í gærmorgun. Fram kemur í tilkynningu stjórnar Norðurorku að fráfarandi forstjóri, Ágúst Torfi Hauksson, hafi sagt upp starfi sínu. 10.3.2012 07:00
Treystu ekki Kaupþingi Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaðssviðs Seðlabanka Íslands íslensku bankana hafa verið mjög meðvitaða um þann vanda sem vofði yfir þeim á árinu 2008. 10.3.2012 07:00
Dagur 5 í Landsdómsmáli - 302 Twitter færslur Fimmta degi Landsdómsmálsins lauk í dag, klukkan ríflega hálf fimm, eftir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafði gefið skýrslu. Þar með er fyrstu heilu vikunni í hinu sögulega Landsdómsmáli lokið, en þinghaldi verður framhaldið á mánudaginn. Þú munu m.a. koma fyrir dóminn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, Sigurður Einarsson, fv. stjórnarformaður Kaupþings, Lárus Welding, fv. forstjóri Glitnis, Sigurjón Þ. Árnason, fv. bankastjóri Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, fv. bankastjóri Landsbankans, og Björgólfur Guðmundsson, fv. formaður bankaráðs Landsbankans. 9.3.2012 23:35
Fjármálafyrirtækjum heimilað samstarf við úrvinnslu skuldamála Samkeppniseftirlitið hefur heimilað fjármálafyrirtækjum afmarkað samstarf vegna úrvinnslu skuldamála sem varða gengisbundin lán. Er þetta gert í framhaldi af dómi Hæstaréttar vegna gengislánadómsins 15. febrúar síðastliðinn. 9.3.2012 16:59
Gengið frá sölu Iceland Foods til stjórnenda Slitastjórn gamla Landsbankans, LBI, hefur gengið frá sölu á allri hlutabréfaeign Landsbanka Íslands hf. í verslunarkeðjunni Iceland Foods Limited til Oswestry Acquico Limited, sem er félag í eigu yfirstjórnenda Iceland Foods, að meðtöldum forstjóranum Malcolm Walker, og annarra fjárfesta. 9.3.2012 14:56
Slitastjórn Landsbankans stefnir PWC Slitastjórn gamla Landsbankans hefur ákveðið að höfða mál á hendur endurskoðunarfyrirtækinu PWC, Price Waterhouse Coopers, vegna þess hvernig ársreikningur bankans var úr garði gerður fyrir hrun bankans í október 2008. Slitstjórnin vildi ekki tjá sig um efnisatriði málsins, þegar eftir því var leitað í dag, en málið beinist ekki aðeins að starfsemi PWC hér á landi heldur einnig alþjóðlega. Það verður þingfest fyrir dómi í júní nk. 9.3.2012 18:19
Brynjólfur ráðinn til Framtakssjóðs Brynjólfur Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að Brynjólfur, sem meðal annars hefur verið forstjóri Símans og Skipta, hafi viðamikla reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hann var hjá Símanum og Skiptum frá 2002 til 2010, forstjóri Granda hf. 1984-2002 og framkvæmdastjóri Almenna Bókafélagsins frá 1976-1983. 9.3.2012 16:13
Umtalsverð lækkun lántökukostnaðar hjá Sameinaða Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að breyta innheimtu lántökukostnaðar vegna nýrra sjóðfélagalána. Við þetta lækkar kostnaðurinn um tugi þúsunda króna á algengum lánum. 9.3.2012 11:05
Helmingur þarf að fjölga konum í stjórn Einsleitar stjórnir stuðluðu að efnahagshruninu hér, að mati forstjóra Kauphallarinnar. 190 konur vantar í stjórnir 285 fyrirtækja til þess að uppfylla lög um kynjakvóta sem taka gildi á næsta ári. 45 prósent uppfylla skilyrði. 9.3.2012 11:00
Ágúst Torfi Hauksson hættir sem forstjóri Norðurorku Ágúst Torfi Hauksson hefur sagt upp starfi sínu sem forstjóri Norðurorku hf. miðað við síðustu mánaðarmót og var sú ákvörðun hans tilkynnt á starfsmannafundi Norðurorku hf. í morgun. 9.3.2012 10:06
Skuldir hins opinbera rúmlega 114% af landsframleiðslu Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.865 milljörðum króna í lok 2011 eða sem nam 114,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 1.629 milljörðum króna árið 2010 eða sem svarar 106,2% af landsframleiðslu. 9.3.2012 09:24
Laun hækkuðu meira á almennum markaði en hjá hinu opinbera Regluleg laun voru að meðaltali 1,6% hærri á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 8,7% að meðaltali, hækkunin var 9,4% á almennum vinnumarkaði og 7,2% hjá opinberum starfsmönnum. 9.3.2012 09:10
Útgjöld hins opinbera lækkuðu um 41 milljarð milli ára Heildarútgjöld hins opinbera á síðasta ári námu 751 milljarði króna og lækkuðu um 41 milljarð króna milli ára eða um 5,2%. 9.3.2012 09:05
Coca Cola og Pepsi breyta uppskriftum sínum Gosdrykkjaframleiðendurnir Coca Cola og Pepsi í Bandaríkjunum hafa ákveðið að breyta lítillega uppskriftum sínum að kóladrykkjum til að koma í veg fyrir að þurfa að merkja þá með krabbameinsviðvörun í Kaliforníu. 9.3.2012 07:27
Yfir 90% af kröfuhöfum Grikklands samþykkja afskriftir Yfir 90% af kröfuhöfum Grikklands úr einkageiranum hafa fallist á að afskrifa grísk ríkisskuldabréf sín um ríflega helming af nafnverði þeirra. 9.3.2012 07:03
Fjárfesting jókst í fyrsta sinn milli ára frá hruninu 2008 Í nýjum tölum Hagstofunnar um hagvöxtinn á síðasta ári kemur fram að fjárfesting í atvinnuvegum jókst í fyrsta skipti milli ára eftir hrun, um 26%. 9.3.2012 07:00
Dagur 4 í Landsdómi - 298 Twitter færslur Fjórða degi Landsdómsmálsins lauk um fjögur leytið í dag, þegar Jónína Lárusdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu og nú yfirmaður lögfræðisviðs Arion banka, lauk skýrslugjöf sinni. Á undan henni höfðu Jón Þór Sturluson, f. aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Jónas Fr. Jónsson, f. forstjóri FME, Hreiðar Már Sigurðsson, f. forstjóri Kaupþings, Rúnar Guðmundsson, sviðsstjóri vátryggingasviðs FME, og Þorsteinn Már Baldvinsson, f. stjórnarformaður Glitnis og forstjóri Samherja. 8.3.2012 21:56
Nýr iPad fær góðar viðtökur Sérfræðingar hafa nú fengið sólarhring til að kynna sér nýju iPad spjaldtölvuna frá Apple. Flestir eru sammála um að Apple hafi unnið mikið þrekvirki með hönnun spjaldtölvunnar. 8.3.2012 21:00
Apple verður að slá sölumet til að mæta kröfum markaðarins Tæknirisinn Apple kynnti nýjustu spjaldtölvu sína í gær. Sérfræðingar segja að fyrirtækið verði að selja gríðarlegt magn af spjaldtölvunni til að halda síhækkandi markaðsvirði sínu áfram. 8.3.2012 12:06
Árni Finnsson segir það ólöglegt að flytja inn sorp frá Bandaríkjunum Innflutningur á erlendu sorpi og spilliefnum frá Bandaríkjunum er ólöglegur samkvæmt áliti Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, en hann sendi þingmönnum bréf þess eðlis í gær þar sem hann áréttar að slíkur innflutningur sé ólöglegur samkvæmt svokölluðum Basel-samningum, sem Bandaríkjamenn eru ekki búnir að fullgilda. 8.3.2012 10:11
Fjórða hver verslun í Danmörku á barmi gjaldþrots Tæplega 4.000 verslanir hafa orðið gjaldþrota í Danmörku frá hruninu haustið 2008. Þetta kemur fram í nýrri samantekt matsfyrirtækisins Experian. 8.3.2012 09:52
Verðbréfasjóðir Íslandssjóða skiluðu 8,5 milljarða hagnaði Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini í fyrra nam tæpum 8,5 milljörðum kr., samanborið við 10,5 milljarða kr. hagnað árið 2010. 8.3.2012 09:43
Hagvöxtur 1,9% á síðasta ársfjórðungi Landsframleiðsla jókst um 1,9% að raungildi milli 3. og 4. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,5%. 8.3.2012 09:06
Hagvöxtur á Íslandi var 3,1% í fyrra Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,1% á árinu 2011 samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands. Þessi vöxtur kemur í kjölfar mikils samdráttar tvö ár þar áður, 4% árið 2010 og 6,8% árið 2009. 8.3.2012 09:03
Carlos Slim er áfram auðugasti maður heimsins Mexíkanski auðjöfurinn Carlos Slim er efstur á lista Forbes tímaritsins í ár yfir auðugustu menn heimsins. Þetta er þriðja árið í röð sem Slim er á toppi þessa lista. 8.3.2012 07:29
Smíðuðu dýrasta armbandsúr í heimi Svissneska úrafyrirtækið Hublot hefur smíðað dýrasta armbandsúr í heiminum. Úrið er metið á 5 milljónir dollara, eða yfir 600 milljónir króna, en það er smíðað úr hvítagulli og skreytt með tæplega 1.300 litlum demöntum. 8.3.2012 07:08
Lokadagur fyrir eigendur grískra skuldabréfa runninn upp Í dag er lokadagurinn fyrir eigendur grískra ríkisskuldabréfa að semja um 50% afskriftir á nafnverði bréfanna við grísk stjórnvöld. 8.3.2012 07:00
Fasteignaveltan jókst um 33% milli ára í febrúar Þinglýstum kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 26,4% í febrúar s.l. miðað við sama mánuð í fyrra. Veltan á markaðinum jókst hinsvegar um rúmlega 33% milli þessara mánaða. 8.3.2012 06:58
Eignir lífeyrissjóða orðnar 2.133 milljarðar Eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að vaxa og námu þær 2.133 milljörðum kr. í lok janúar síðast liðsins. Hrein eign hafði þar með hækkað um 36 ma.kr. frá lokum desember eða um 1,7%. 8.3.2012 06:56
Dagur 3 í Landsdómsmáli - 301 Twitter færsla Degi þrjú í Landsdómsmálinu lauk í dag, skömmu fyrir klukkan sex síðdegis, eftir að Jón Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra, hafði lokið við skýrslugjöf. Fyrir dóminn í dag komu Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi stjórnarmaður Seðlabanka Íslands og nú hagfræðingur hjá norska seðlabankanum, Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri hjá fjármálaráðuneytinu, Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og nú skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu, Áslaug Árnadóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og nú lögmaður hjá Landslögum, Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður FME, og fyrrnefndur Jón Sigurgeirsson. 7.3.2012 23:03
Nýja útgáfan af iPad er miklu betri - 4G net og betri skjár Apple kynnti nú síðdegis nýjan iPad og er gert ráð fyrir að hann komi í verslanir þann 16. mars næstkomandi. Tim Cook, forstjóri tölvurisans, segir að nýja útgáfán verði á sama verði og iPad 2 sem kom út í apríl á síðasta árið. Nýr iPad var ekki það eina sem kynnt var á blaðamannafundinum í dag því Apple ætlar að gefa út nýja útgáfu af Apple TV, sem hefur verið vinsælt hjá notendum til að ná í til dæmis sjónvarpsþætti og kvikmyndir. 7.3.2012 19:32
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs betri en búist var við Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2011 liggur nú fyrir. Helstu niðurstöður er þær að handbært fé frá rekstri var neikvætt um 53,4 milljarða króna en var neikvætt um 73,7 miljarða.króna á árinu 2010. 7.3.2012 16:59
Advania velti 24,5 milljörðum Velta samstæðu Advania hf. nam 24,5 milljörðum króna á árinu 2011 miðað við 22,1 milljarð árið áður, ef miðað er við sambærilegan rekstur, en það er 11% vöxtur. Þetta kemur fram í ársreikningi Advania. 7.3.2012 16:30
Hart deilt um sölu á sorpeyðingastöð á Suðurnesjum Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ hafnar öllum hugmyndum um sölu á sorpeyðingarstöðinni Kölku til erlendra aðila. Þeir vilja að íbúar fái að kjósa um málið. 7.3.2012 12:17
SA jafnar kynjahlutfall í stjórnum lífeyrissjóða Samtök atvinnulífsins (SA) hafa tilnefnt 14 stjórnarmenn til setu í stjórnum átta lífeyrissjóða til næstu tveggja ára. Af þeim eru 10 konur eða rúmlega 71%. 7.3.2012 10:46
Um 37% Dana sinnir einkaerindum í vinnutímanum Ný könnun sýnir að yfir þriðjungur Dana sinnir ýmsum einkaerindum sínum í vinnutímanum. 7.3.2012 10:23
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað nokkuð í þessari viku eða um 2%. Þannig er Brent olían komin niður í 122,5 dollara á tunnuna og bandaríska léttolían er komin niður í rúma 105 dollara á tunnuna. 7.3.2012 09:32
Turkcell í slag við Björgólf Thor um kaupin á Vivacom Turkcell stærsta farsímafyrirtæki Tyrklands mun gera tilboð í Vivacom stærsta símafyrirtæki Búlgaríu og keppir því við Björgólf Thor Björgólfsson um kaupin á Vivacom. 7.3.2012 09:16
Óska eftir úttekt á eignasölu OR Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna ætla á næsta borgarráðsfundi að óska eftir sérstakri úttekt á sölu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á ýmsum eignum fyrirtækisins síðastliðið haust. 7.3.2012 07:54
Tæplega milljarðs hagnaður hjá Lánasjóði sveitarfélaga Lánasjóður sveitarfélaga skilaði 951 milljón kr. hagnaði á síðasta ári. Til samanburðar var hagnaðurinn 1.248 milljónir kr. árið 2010. Munur milli ára skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar, en sjóðurinn var ekki með opna gjaldeyrisstöðu sem neinu nemur á árinu 2011. 7.3.2012 07:51
Farþegum Icelandair fjölgaði um 18% milli ára í febrúar Farþegum Icelandair fjölgaði um 18% á milli ára í febrúar og voru þeir tæplega 94 þúsund í mánuðinum. 7.3.2012 07:44
Gengi krónunnar styrktist um 1% eftir inngrip Seðlabankans Gengi krónunnar styrkist um tæpt prósent síðdegis í gærdag eftir að Seðlabankinn ákvað að grípa inn í gjaldeyrismarkaðinn. 7.3.2012 07:19
Þriggja ára gamall kjúklingabiti seldur á milljón á eBay Þriggja ára gamall McNugget kjúklingabiti hefur verið seldur á uppboði á eBay fyrir rúmlega 8.000 dollara eða um eina milljón króna. 7.3.2012 07:05
Gjaldþrotameðferð Lehman Brothers er lokið Gjaldþrotameðferð bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers er lokið. Reiknað er með að fyrstu greiðslur úr þrotabúinu verði í næsta mánuði og að um 65 milljarðar dollara, eða yfir 8.000 milljarðar króna, verði þá greiddir til kröfuhafa. 7.3.2012 07:03
Stanford dæmdur sekur um 900 milljarða fjársvik Dómstóll í Houston í Texas hefur dæmt bandaríska auðkýfinginn Allen Stanford sekann um fjársvik upp á 7 milljarða dollara eða tæplega 900 milljarða króna. 7.3.2012 06:57