Atvinnulausir fá 45 þúsund í desemberuppbót 1. desember 2010 08:40
Atvinnulausir sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í gærmorgun. Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010. Í umfjöllun um málið á vefsíðu stjórnarráðsins segir að uppbótin verður greidd þeim sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember-5. desember á þessu ári og ræðst heildarfjárhæðin af fjölda daga sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun. Þeir sem hafa verið skráðir án atvinnu í samtals tíu mánuði árið 2010 og eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá óskerta eingreiðslu, samtals 44.857 krónur. Þeir sem hafa ekki verið tryggðir að fullu, heldur hlutfallslega innan atvinnuleysisbótakerfisins, fá greidda eingreiðslu í samræmi við tryggingarhlutfall sitt. Sama máli gegnir um þá sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins en hafa aðeins verið hluta ársins án atvinnu. Eingreiðsla miðað við óskert tryggingarhlutfall verður aldrei lægri en 11.214 krónur og getur eingreiðsla miðað við skert tryggingarhlutfall að lágmarki numið fjórðungi þeirrar fjárhæðar. Vinnumálastofnun annast útborgun eingreiðslnanna og verða þær greiddar út í síðasta lagi 31. desember næstkomandi. Ekki þarf að sækja um eingreiðslu. Gert er ráð fyrir að eingreiðsla til atvinnuleitenda auki útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs um tæpar 280 milljónir króna. Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs samþykkti tillögu um eingreiðslu til atvinnuleitenda samhljóða.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira