Eiginfjárhlutfall ÍLS skiptir ekki höfuðmáli 1. desember 2010 11:14
Ekki skiptir höfuðmáli hvert eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs (ÍLS) er á hverjum tíma svo lengi sem sjóðurinn getur staðið undir afborgunum af íbúðabréfum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Í Morgunkorninu fjallar um að meirihluti fjárlaganefndar leggur til að eiginfjárstaða Íbúðalánasjóðs verði efld með 33 milljarða kr. framlagi í breytingatillögu við fjáraukalög fyrir árið 2010. Með þessu ætti eiginfjárstaðan að geta orðið allt að 5% af áhættugrunni sjóðsins við árslok í ár en til þess þarf sjóðurinn um 18 til 20 milljarða kr. Auk þess verður sjóðnum með þessu framlagi ríkissjóðs gert kleyft að mæta viðbótar afskriftum auk hugsanlegs kostnaðar vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda heimilanna en tillögur í þeim efnum eru væntanlegar á næstu dögum. Vitað hefur verið í nokkurn tíma að það þyrfti að endurfjármagna sjóðinn og var þess meðal annars getið í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna þriðju endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS sem birt var í haust. Aðgerð stjórnvalda nú sem birtist í ofangreindri tillögu meirihluta fjárlaganefndar kemur því ekki á óvart. Ekki hefur komið fram með hvaða hætti ríkissjóður muni fjármagna þetta framlag en hann getur það t.d. með því að nýta sjóðseign sína í Seðlabankanum eða með því að leggja sjóðnum til ríkisskuldabréf. „Samkvæmt lögum um Íbúðalánasjóð skal sjóðurinn stefna að því að hafa 5% eiginfjárhlutfall til langs tíma. Sjóðnum er samt ekki beinlínis skylt að halda sig ofan þeirra marka. Sjóðurinn fjármagnar sig með útgáfu ríkistryggðra skuldabréfa og gildir í raun hið sama um eiginfjárframlag ríkissjóðs," segir í Morgunkorninu. „Það skiptir því kannski ekki höfuðmáli hvert eiginfjárhlutfall sjóðsins er á hverjum tíma svo lengi sem sjóðurinn getur staðið undir afborgunum af íbúðabréfum."
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent