Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutabréf hækka í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Bréf Flögu hækkaði um 2,7 prósent en bankar og fjárfestingafélög fylgja fast á hæla þess. Þá hélt gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu áfram að hækka og stendur gengið í hæstu hæðum. Einungis gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur lækkað. 12.11.2007 10:06
Töluverð aukning á innfluttum vörum Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fluttar inn vörur fyrir 34,9 milljarða kr. í október. Er þetta töluverð aukning frá síðasta mánuði þegar innflutningurinn nam um 28 milljörðum. 12.11.2007 09:26
Verðbólgan er 5,2% Vísitala neysluverðs í nóvember 2007 er 279,9 stig og hækkaði um 0,65% frá fyrra mánuði. Verðbólga mælist nú 5,2% 12.11.2007 09:17
Airbus gerir risasamning við Emirates Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus sér fram á bjartari tíma en arabíska flugfélagið Emirates hefur lagt inn stærstu pöntun í sögu flugsins. Flugfélagið ætlar að kaupa á einu bretti sjötíu A350 vélar, og líklega fimmtíu í viðbót, þar af ellefu A380 risavélar. Samningurinn varð þess valdandi að verð á bréfum í EADS, framleiðanda Airbus, hækkuðu um rúm þrjú prósent. 12.11.2007 07:07
Spá minnkandi hagvexti í Evrópu Óróleiki á fjármálamörkuðum og veiking bandaríska hagkerfisins mun hafa neikvæð áhrif á hagvöxt ríkja Evrópubandalagsins að mati sérfræðinga. Spáð er 2,4 prósent hagvexti á Evrópubandalagssvæðinu á næstu tveimur árum. 11.11.2007 22:45
Skyldar lánastofnanir til að stækka varasjóði Kínverski seðlabankinn hefur skyldað fjármálafyrirtæki og banka til að hækka hlutfall varasjóða. Með því vonast bankinn til að draga úr verðbólgu í landinu en hún mælist nú 6,2 prósent. 11.11.2007 13:45
Emirates kaupir 82 Airbus þotur Flugfélagið Emirates hefur gert samning við Airbus flugvélaframleiðandann um kaup á 82 farþegavélum. Samningurinn er metinn á um 120 milljarða króna. 11.11.2007 10:59
Óttast áframhaldandi óróleika á fjármálamörkuðum Fjárfestar í Bandaríkjunum óttast áframhaldandi óróleika á fjármálamörkuðum vegna aukinna vanskila á fasteignalánamarkaði þar vestra. Í gær tilkynnti fjórða stærsta lánafyrirtæki Bandaríkjanna, Wachovia, að það hefði tapað rúmlega 60 milljörðum í síðasta mánuði vegna vanskila á fasteignalánum. 10.11.2007 17:30
Kínverjar loka á útflutning á leikföngum Stjórnvöld í Kína hafa lokað á allan útflutning á leikföngum vegna eiturefna sem fundist hafa í þeim. Mikið hefur verið um innkallanir á leikföngum framleiddum í Kína vegna þess að málning á þeim inniheldur of mikið blý. Þá fannst einnig efni sem tengist nauðgunarlyfinu GHB í einu þeirra. 10.11.2007 16:44
Hluthafar vilja afskráninguna Vinnslustöðin fer úr Kauphöllinni samkvæmt ákvörðun hluthafafundar. Næststærsti hluhafinn biður Kauphöllina að hafna eða fresta afkráningu. 10.11.2007 04:00
Greiningadeild Kaupþings spáir 4,8% verðbólgu Greiningardeild Kaupþings hefur endurskoðað spá sína til hækkunar og spáir nú 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs í stað 0,2%, eftir því sem fram kemur í Hálf-fimm fréttum. Þar segir að endurskoðun frá fyrri spá megi rekja til hækkunar eldsneytisverðs í lok mánaðar. 9.11.2007 18:58
Tekjur Íslendinga vegna upplýsingaiðnaðarins hafa sexfaldast Útflutningstekjur Íslendinga vegna upplýsingaiðnaðarins hafa nær sexfaldast frá árinu 1996. Á árinu 2006 jukust útflutningstekjurnar um 30,4% miðað við fyrra ár, eftir því sem fram kemur í samantekt Bryndísar Pétursdóttur, sem birtist á vefsvæði Seðlabanka Íslands. 9.11.2007 18:19
Varar við hægari hagvexti í Bandaríkjunum „„Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, varar við hægingu á hagvexti í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi," að því er fram kom í máli Árna Jóns Árnasonar, sérfræðings hjá Askar Capital. Sindri Sindrason tók Árna Jón tali við lokun markaða í dag. 9.11.2007 17:43
Áfram lækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði enn einn daginn í dag en Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,07 prósent. Hún hefur hríðlækkað í vikunni, eða sem nemur tæpum tíu prósentum. Hún hefur lækkað um tæp 25 prósent frá því hún stóð hæst um miðjan júlí. 9.11.2007 16:56
Áfram skellur á bandarískum fjármálamarkaði Fjárfestar í Bandaríkjunum horfðu upp á áframhaldandi skell á fjármálamörkuðum vestanhafs í dag. Hlutabréf réttu lítillega úr kútnum fyrir vitnaleiðslu Ben Bernankes, seðlabankastjóra landsins, í gær eftir viðvarandi lækkun alla vikuna en fóru niður með hraði eftir að hann sagði líkur á minni hagvexti í Bandaríkjunum á þessum síðasta fjórðungi ársins vegna fjármálakrísunnar sem sett hefur stórt skarð í afkomutölur helstu fjármálafyrirtækja. 9.11.2007 14:42
Lykilstarfsmenn Teymis fá kauprétti Stjórn Teymis hf. hefur ákveðið að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til lykilstarfsmanna samstæðunnar. Heildarupphæðin nemur rúmlega 65 milljónum kr. 9.11.2007 11:55
Spá 0,4% hækkun á neysluverðsvísitölu Greining Glitnis reiknar með að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% milli október og nóvember en Hagstofa Íslands birtir mælingu sína á mánudagsmorgun. 9.11.2007 11:31
Samþykkt að afskrá Vinnslustöðina Á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum í gærdag var samþykkt að afskrá félagið úr kauphöllinni. 9.11.2007 10:29
Atlantic Petroleum enn á uppleið Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um 4,32 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag og stendur nú í hæstu hæðum. Félagið hefur verið á þeysireið þrátt fyrir óróleika á hlutabréfamörkuðum og rokið upp um rúm 330 prósent það sem af er árs. 9.11.2007 10:07
Skipasmíðastöð Walesa seld Samkeppnisyfirvöld í Póllandi hafa samþykkt að selja skipasmíðastöðina í borginni Gdansk til fyrirtækis í Úkraínu. Skipasmíðastöðin hefur fram til þessa verið í eigu pólska ríkisins og komst á spjöld sögunnar snemma á níunda áratug síðustu aldar en verkalýðsfélagið Samstaða var stofnuð innan hennar veggja með Lech Walesa í fararbroddi. 9.11.2007 09:45
Sparisjóðirnir hækka húsnæðislánavexti Sparisjóðirnir hafa hækkað vexti af húsnæðislánum sínum, sem þeir lána í samstarfi við Íbúðalánasjóð. 9.11.2007 09:17
Kreppir að hjá Sothebys Fjármálavandræðin á Wall Street hafa nú náð inn í virðulega sali uppboðsfyrirtækisins Sothebys. 9.11.2007 07:44
Vonbrigði með samþættingu Marel Food Systems væntir þess að sjá ábata vegna fyrirtækjakaupa í næsta uppgjöri. Hörður Arnarson, forstjóri félagsins, segir hins vegar ákveðin vonbrigði að ávinningur af samþættingu við AEW Delford og Scanvaegt skuli ekki hafa komið fram á þriðja ársfjórðungi líkt og vænst hafi verið. Hann kynnti árshlutauppgjör félagsins í gærmorgun. 9.11.2007 01:00
Eins og góður íþróttaleikur „Dagurinn í dag eins var eins og góður íþróttaleikur,“ sagði Þorbjörn Atli Sveinsson, knattspyrnumaður og sérfræðingur hjá Greiningadeild Kaupþings. Hann var gestur Sindra Sindrasonar við lokun markaðar í dag. 8.11.2007 17:43
Yfirráð Google á vefnum yfirfærast ekki á farsíma Yfirráð Google yfir vefnum munu ekki yfirfærast á farsímamarkaðinn. Þetta segir John Forsyth forstöðumaður Symbian, sem hannaði það stýrikerfi sem knýr flesta farsíma í heiminum. Google skorti reynslu. 8.11.2007 17:10
Úrvalsvísitalan rétt náði að hækka Gengi Úrvalsvísitölunnar hækkaði lítillega eftir mjög sveiflukenndan dag í Kauphöllinni en vísitalan fór frá því að falla um rúm þrjú prósent í tveggja prósenta hækkun. Undir lok dags hafði gengi bréfa í Icelandair hækkað mest, eða um 3,6 prósent. Á hæla fyrirtækisins fylgdi Exista og Bakkavör. 8.11.2007 16:56
Stýrivöxtum í Evrópu haldið óbreyttum Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að halda stýrivöxtum í þeim 13 ríkjum sem undir hann heyra óbreyttum í 4 prósentum. Tilkynningin kemur í kjölfar ákvörðunar breska seðlabankans sem einnig ákvað í dag að hreyfa ekki við vöxtunum. Stýrivextir í Bretlandi eru nú 5,75 prósent. Ákvörðun Evrópska bankans vekur athygli þar sem evran hefur styrkst að undanförnu og hefur aldrei verið sterkari gagnvart Bandaríkjadal. 8.11.2007 15:29
Landsbankinn og Andri Már verðlaunaðir fyrir markaðsstarf Landsbankinn var valinn markaðsfyrirtæki ársins og Andri Már Ingólfsson, stofnandi Heimsferða, markaðsmaður ársins á árlegri verðlaunahátíð ÍMARK, félags íslensks markaðsfólks. 8.11.2007 13:52
Samruni námurisa úr sögunni? Námurisinn Rio Tinto hafnaði í dag yfirtökutilboði frá BHP Billiton, stærsta námuvinnslufyrirtæki í heimi. Við samrunann hefði orðið til virði hins nýja félags orðið 45 þúsund milljarða króna virði. 8.11.2007 13:33
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu og í Bretlandi Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki ákváðu báðir í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í 4,0 prósentum en í 5,75 prósentum í Bretlandi. 8.11.2007 13:31
Frekari sameiningar hjá sparisjóðum Til stendur að sameina Sparisjóðinn í Keflavík og Sparisjóð Þórshafnar og nágrennis eftir því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. 8.11.2007 12:44
Landsbankinn reynir yfirtöku á breskum banka Fjárfestingabankinn Close Brothers hefur hafnað 1,4 milljarða punda, eða um 175 milljarða króna yfirtökutilboði Cenkos og Landsbankans. Fram kemur á vefsíðu The Times að boðinu hefði verið hafnað í morgun en HSBC er sagður bakhjarl tilboðsins. 8.11.2007 11:42
Snarpur viðsnúningur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllina tók skarpa beygju úr lækkanaferli síðustu fjóra daga en þau hafa nú hækkað mjög í verði. Úrvalsvísitalan hafði lækkað um 3,4 prósent í morgun en hefur nú snúist við og hækkað um rúm 2,5 prósent. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað langmest, eða um rúm sex prósent. 8.11.2007 11:38
Ákvörðun um afskráningu Vinnslustöðvarinnar úr kauphöllinni Á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. verður tekin afstaða til tillögu stjórnar félagsins um að afskrá félagið úr Kauphöllinni. Þessi tillaga stjórnar kemur í kjölfarið á þeim hræringum sem verið hafa í félaginu á árinu. 8.11.2007 11:31
Fjármálaráðherra segir stýrivaxtahækkun loksins að virka Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að svo virðist sem stýrivaxtahækkun Seðlabankans hafi loksins virkað eins og henni sé ætlað. Slíkt sjáist þegar í minnkandi þennslu á bæði fasteigna- og hlutabréfamarkaðinum. 8.11.2007 11:15
Árið horfið úr bókum margra félaga í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan féll um 3,42 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöllinni í morgun. Þetta er fjórði dagurinn í röð sem vísitalan lækkar en hún hefur farið niður um 11,4 prósent í vikunni. Fjármálafyrirtæki leiða lækkanalestina. Gengi bréfa í nokkrum fjármálafyrirtækjanna hefur ekki verið lægra síðan í byrjun síðasta hausts. 8.11.2007 10:14
Olíuverðið á niðurleið Heimsmarkaðsverð á framvirkum samningum á hráolíu lækkaði nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að menn telja líkur á að eftirspurn eftir svartagullinu muni minnka í Bandaríkjunum á næstunni. 8.11.2007 09:35
Morgan Stanley tapar 200 milljörðum kr. Fjármálafyrirtækið Morgan Stanley hefur tilkynnt að það hafi tapað 3,7 milljörðum dollara eða yfir 200 milljörðum króna á undirmálslánum sínum í Bandaríkjunum. 8.11.2007 08:33
Spenna fyrir opnun kauphallarinnar Fjármálasérfræðingar og fjárfestar bíða þess nú í ofvæni hvað gerist þegar viðskipti hefjast í kauphöllinni fyrir hádegi, eftir að úrvalsvísitalann hefur hrapað um átta prósent á þremur undanförnum dögum. 8.11.2007 07:57
Miklar lækkanir á bandarískum mörkuðum Bandarísk hlutabréf féllu töluvert í verði í dag en við lokun kauphallarinnar á Wall Street hafði Dow Jones vísitalan fallið um 360.92 punkta, eða 2.64 prósent. S&P 500 vísitalan lækkaði einnig, um 2.94 prósent. 7.11.2007 22:04
VGK-Hönnun styrkir HR Verkfræðistofan VGK-Hönnun og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára sem felur í sér fjárhagslegan stuðning að upphæð 22,5 milljónir króna til tækni- og verkfræðideildar HR. 7.11.2007 18:08
SPRON tapaði 850 milljónum á þriðja ársfjórðungi Hagnaður SPRON á fyrstu níu mánuðum ársins nam 9,3 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri sem kynnt er í dag. Það er um fimm hundruð milljónum króna minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. 7.11.2007 17:02
Úrvalsvísitalan hefur lækkað um nær átta prósent í vikunni Gengi hlutabréfa í öllum félögum í Kauphöll Íslands nema þremur lækkuðu í dag og stendur Úrvalsvísitalan í 7.291 stigi. 7.11.2007 16:42
Hagnaður Marels um 2,7 milljarðar Hagnaður Marels á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2,7 milljónum evra, eða um 230 milljónum króna, og nánast fjórfaldaðist á milli ár. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Hagnaður félagsins á sama tíma í fyrra reyndist um 60 milljónir króna. 7.11.2007 15:41
Finnur Ingólfsson: Lækkunin ekki í takt við virði Icelandair Athafnamaðurinn Finnur Ingólfsson seldi rúmlega 15% hlut sinn í Icelandair 31. ágúst síðastliðinn. Í dag er gengi bréfa félagsins 30,5% lægra en þegar Finnur seldi og má því leiða líkum að Finnur hafi selt á hárréttum tíma. 7.11.2007 14:27