Hluthafar vilja afskráninguna Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. nóvember 2007 04:00 Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri (lengst til hægri), fylgist með sínu fólki í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Hluthafafundur félagsins samþykkti á miðvikudag að fara fram á afskráningu þess úr Kauphöll. Fréttablaðið/HARi
Vinnslustöðin fer úr Kauphöllinni samkvæmt ákvörðun hluthafafundar. Næststærsti hluhafinn biður Kauphöllina að hafna eða fresta afkráningu. „Umboð stjórnarinnar er nú ljóst,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og forsvarsmaður Eyjamanna ehf., sem á rétt rúm 50 prósent í Vinnslustöðinni. Hluthafafundur samþykkti á miðvikudag að farið yrði fram á afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands. Boðað var til fundarins að beiðni Kauphallar Íslands vegna mótmæla næststærsta hluthafans við afskráningu félagsins. Í september hafði stjórn Vinnslustöðvarinnar þegar samþykkt afskráningu. Lögmaður fór með ríflega 32 prósenta atkvæði Stillu, sem er í eigu Guðmundar og Hjálmars Kristjánssonar. Sáralítil viðskipti hafa verið með bréf Vinnslustöðvarinnar í Kauphöllinni. Síðast gengu bréf félagsins kaupum og sölum 22. ágúst. Óvirk verðmyndun og tilkostnaður við að halda úti skráningu eru meðal raka sem stjórn Vinnslustöðvarinnar hefur fært með afskráningu. „Næst er að skrifa Kauphöllinni aftur og óska eftir afskráningu,“ segir Sigurgeir Brynjar og gerir ráð fyrir þeim bréfaskriftum í næstu viku að afloknum stjórnarfundi. „Svo veit maður ekki hvað þeir gera,“ segir hann, en Kauphöllinni er heimilt er að fresta afskráningunni í eitt ár. „Ég ræði ekki einstakar fjárfestingar sjóðsins við utanaðkomandi,“ sagði Torfi Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og sleit samtali. Sjóðurinn, sem á 5,34 prósent í Vinnslustöðinni, sat hjá við atkvæðagreiðslu miðvikudagsins. Samkvæmt samþykktum lífeyrissjóðsins má hann ekki eiga í óskráðum félögum nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í sumar ákvað sjóðurinn að selja ekki hlut sinn. Eyjamenn buðu 4,6 krónur á hlut og Stilla 8,5 krónur. Miðað við boð Stillu var hlutur lífeyrissjóðsins 707 milljóna króna virði. Guðrún Erlingsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrisjóðs Vestmannaeyja, segir tímann munu leiða í ljós hvort ákvörðunin um að selja ekki hafi verið rétt eða röng. Hún segir sjóðinn halda sínum hlut og að eignir hans í óskráðum bréfum fari ekki yfir sett mörk þótt Vinnslustöðin verði afskráð. „Við höfum trú á því að Vinnslustöðin haldi áfram að vaxa og þessi bréf verði alveg seljanleg. Þá kom fram á fundinum að Vinnslustöðin færi ekki illa með þá sem staðið hafa við bakið á fyrirtækinu og kynnu að vilja selja síðar. Þá yrði fengið óháð fyrirtæki til að meta verðmæti og sanngjarnt söluverð fundið,“ segir Guðrún.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira