Fleiri fréttir Þetta er ekki tímabil sem ég er stoltur af Nick Leeson komst á spjöld sögunnar árið 1995 þegar hann gerði einn elsta og virðulegasta banka Bretlands gjaldþrota með áhættusömum gjaldeyrisviðskiptum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson spjallaði við þennan alræmdasta verðbréfamiðlara í heimi um spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði og lífið eftir gjaldþrot bankans. Leeson kemur hingað til lands eftir viku og ræðir um reynslu sína. 12.9.2007 00:01 Samið um samstarf vegna Kaupþings Fjármálaeftirlitið (FME) og Kredittilsynet í Noregi hafa gert með sér samning um samstarf vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Í tilkynningu FME kemur fram að ástæða samningsins sé að Kaupþing hafi sótt um aðild að innistæðutryggingasjóði norskra banka, en það sé gert til að tryggja að viðskiptavinir bankans í Noregi njóti sömu innistæðutryggingar og viðskiptavinir norskra innlánsstofnana. 12.9.2007 00:01 Alvöru alþjóðafyrirtæki leiðin til vaxtarins Lárus Welding tók við keflinu af Bjarna Ármannssyni í Glitni. Hans verkefni er að fylgja eftir stefnu bankans í nýjum og spennandi kafla í alþjóðlegri uppbyggingu. Hafliði Helgason horfði á hlaupabrautina fram undan með forstjóranum, sem er búinn að nota sumarið til að reima á sig hlaupaskóna og er stokkinn af stað. 12.9.2007 00:01 Bankar í krísu Mjög hefur dregið úr millibankalánum evrópskra fjármálafyrirtækja, að sögn breska vikuritsins Economist í vikunni. Blaðið segir ástæðuna mikla óvissu á fjármálamarkaði. 12.9.2007 00:01 Olíuríkin ætla að framleiða meira OPEC ríkin hafa ákveðið að auka olíuframleiðslu sína um 500 þúsund tunnur á dag til að mæta aukinni eftirspurn. Tillagan um aukninguna er komin frá Saudi Aröbum og felur hún í sér að framleiðslan verði aukin frá 1. nóvember næstkomandi. 11.9.2007 23:23 Kaupþing segir að verðbólga muni hækka Greiningardeild Kaupþings spáir 1,3% hækkun á vísitölu neysluverðs. Hagstofa Íslands mun birta mælingu á vísitölunni fyrir september á morgun. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 4,2%. 11.9.2007 17:46 Kaupþing og Straumur sigla heim með gullið frá Svíþjóð Sænska viðskiptablaðið Dagens Industri fjallar um það í dag að Kaupþing banki og Straumur-Burðarás hafi selt mikið af hlutum sínum í sænskum félögum og síðan siglt heim með gullið eins og það er orðað. Þannig hafi eignasafn Straums-Burðarás minnkað um 870 milljónir skr. eða um 8,7 milljarða kr. og greint er frá því að Kaupþing hafi dregið sig út úr 18 af þeim 38 félögum sem það átti í um áramót. 11.9.2007 16:47 JJB sports gefur út afkomuviðvörun JJB Sports Plc, sem er að hluta í eigu Exista, gaf í dag út afkomuviðvörun en félagið rekur rekur 420 íþróttavöruverslanir í Bretlandi. Fram kemur í viðvöruninni að uppgjör fyrir fyrrihluta ársins sýndi hagnað fyrir skatt upp á 8 milljónir punda eða um einn milljarð kr. sem er 3,5 milljónum punda undir væntingum. 11.9.2007 16:27 Countrywide í fjárhagshremmingum Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækinu Countrywide Financials, einu stærsta fasteignalánafyrirtæki Bandaríkjanna, féll um fimm prósent á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í dag. Ástæðan er frétt bandaríska dagblaðsins New York Post þess efnis að fyrirtækið glími við afar slæma stöðu og sé að undirbúa sölu á hlutabréfum til að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækisins. 11.9.2007 16:07 Gengi Atlantic Petroleum rauk upp Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð í Kauphöllinni í dag, sum talsvert meira en önnur. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,24 prósent og endaði í 7.949 stigum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um 9,19 prósent. Gengið hefur hækkað um heil 135 prósent á árinu. Gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri lækkaði hins vegar mest í dag, eða um 1,46 prósent. 11.9.2007 15:48 Dregur úr viðskiptahalla Bandaríkjanna Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum nam 59,2 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 3.849 milljörðum íslenskra króna, í júlí. Þetta er 0,3 prósentustiga minni halli en í mánuðinum á undan, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Ben Bernanke, seðlabankastjóri landsins, segir ríkisstjórnir heimsins verða að leggjast á eitt og draga úr viðskiptahalla landanna. 11.9.2007 15:34 Fyrrverandi forstjóri MEST kaupir Parket & Gólf Þórður Birgir Bogason, fyrrverandi forstjóri MEST, hefur keypt fyrirtækið Parket & Gólf af fjölskyldu Ómars Friðþjófssonar, stofnanda fyrirtækisins. 11.9.2007 14:40 Verk og vit aftur á næsta ári Ákveðið hefur verið að halda stórstýninguna Verk og vit aftur á næsta ári en hún var haldin í fyrsta sinn í mars 2006. Sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum, mannvirkjagerð og orkumálum og er undirbúningur þegar í fullum gangi eftir því sem segi í tilkynningu frá aðstandendum. 11.9.2007 14:31 Markaðurinn 11. sept. 11.9.2007 12:55 FL Group á nærri 19 prósent í INGG FL Group á nærri 19 prósenta hlut í breska afþreyingarfélaginu Inspired Gaming Group beint eða óbeint í gegnum framvirka samninga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu vegna fréttaflutnings í Bretlandi af áhuga FL Group á kaupum á hlutum í félaginu. 11.9.2007 11:52 Hækkun á hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur hækkað í Kauphöllinni í mörgum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,53 prósent og stendur hún í 7.972 stigum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur hækkað langmest, eða um 6,24 prósent. Gengi bréfa í landa þeirra hjá Föroya banka hefur hins vegar lækkað mest, eða um 0,69 prósent. Hækkunin nú er í takti við hækkun á alþjóðamörkuðum. 11.9.2007 11:25 House of Fraser skattleggur birgja sína House of Fraser, sem er í eigu Baugs Group, hefur lagt fram kröfu um að birgjar verslunarkeðjunnar hjálpi til við að fjármagna 250 milljón punda, eða tæplega 30 milljarða kr., fjárfestingarverkefni. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins Telegraph í dag. 11.9.2007 11:24 Metverðbólga í Kína Verðbólga mældist 6,5 prósent í Kína í síðasta mánuði samanborið við 5,6 prósent í mánuðinum á undan, samkvæmt kínversku hagstofunni. Verðbólga hefur ekki mælst hærri þar í landi í áratug. Snarpar verðhækkanir á kjötvöru á árinu leiða verðbólguna. Gengi hlutabréfa féll í kjölfarið. 11.9.2007 09:30 Olíuverð nálægt sögulegum hæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk upp í hæstu hæðir á fjármálamörkuðum í dag eftir að uppreisnarhópar frömdu skemmdarverk við olíuvinnslustöðvar og leiðslur í Mexíkó Ekki liggur fyrir hvað hópunum stóð til en þeir eru sagðir vinstrisinnaðir uppreisnarseggir og andsnúnir ríkisstjórn landsins. Verðið hækkaði talsvert í gær en þá var gert ráð fyrir því að OPEC-samstökin myndu halda olíuframleiðslukvótum óbreyttum. 11.9.2007 09:15 Fjölmiðlarisinn lækkaði mest Bréf í 365 hf. lækkuðu mest allra í dag, eða um 5,3%. Exista lækkaði um 4,63% Kaupþing lækkaði um 3,52. Icelandair um 3,31 og Century Alumnium Company um 3,19%. Eina fyrirtækið í Kauphöll Íslands sem hækkaði í dag var færeyska fyrirtækið Atlantic Petroleum sem hækkaði um 10,43%. 10.9.2007 21:16 Lækkun á hlutabréfamörkuðum víða í heiminum Greiningadeild Kaupþings telur að sú lækkun sem varð á innlendum hlutabréfamarkaði í dag gæti tengst frétt Sunday Times um helgina. Þar var greint frá því að alþjóðlegir bankar muni lenda í miklum erfiðleikum með að fjármagna lausafjárþörf sína á næstu dögum. 10.9.2007 17:36 Opnar umhverfisvænustu skrifstofubyggingu Bretlands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður í dag og á morgun í heimsókn í Leeds þar sem hann opnar meðal annars nýja skrifstofu dótturfélags Eimskips í borginni sem er sú umhverfisvænasta á Bretlandi. 10.9.2007 14:50 Sveiflur á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur sveiflast nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti síðar í mánuðinum. Þeir rýna síðar í dag í orð nokkurra af stjórnendum seðlabankans um bandarísk efnahagsmál. Þar á meðal er hagfræðingurinn Frederic Mishkin, einn af bankastjórum seðlabankans, sem vann skýrslu um íslenskt efnahagslíf í fyrra í félagi við Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra Askar Capital. 10.9.2007 14:42 Atlantic Petruleum hækkar um 11% eftir olíufund Á meðan flestar tölur í Kauphöllinni í morgun hafa verið í rauðu er Atlantic Petruleum á góðu skriði og hefur hækkað um 11% það sem af er degi. Þetta skýrist af því að félagið hefur fundið stór kolalög á Hook Head svæðinu úti fyrir ströndum Írlands þar sem talið er að séu miklar birgðir af olíu og gasi. Atlantic Petruleum hefur hækkað um tæp 14% í dönsku kauphöllinni í dag. 10.9.2007 13:07 Markaðurinn 10. sept. 10.9.2007 12:47 Tengjast þráðlaust við hljóðgjafa með blátækni Epoq-heyrnartækin eru komin til Íslands en þau eru talin vera fullkomnustu heyrnartæki á markaðinum í dag. „Það sem er einstakt við Epoq-heyrnartækin er að þau búa yfir nýrri, þráðlausri tækni, sem gerir það að verkum að tvö tæki geta skipst á upplýsingum og samhæft allar stillingar. Fyrir vikið upplifir notandinn meiri víðóma skynjun fyrir hljóði en áður, í stað þess að tækin vinni sjálfstætt á hvoru eyra.“ 10.9.2007 12:00 FL Group með tæp 38 prósent í TM FL Group hefur keypt alla hluthafa Kjarrhólma ehf. út úr félaginu og með því eignast 37,57 prósent hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni. Kjarrhólmi er annar stærsti hluthafinn í TM á eftir Glitni, sem keypti stærsta hluthafann og aðra út í síðustu viku en hefur gefið út að hann ætli að selja hlutinn áfram til fjárfesta. 10.9.2007 11:55 Nýr forstjóri hjá Eimskipi í Ameríku Brent Sugden, forstjóri kanadíska kæli- og frystigeymslufélagsins Versacold, hefur í kjölfar skipulagsbreytinga verið ráðinn forstjóri yfir kæli- og frystigeymslusviði Eimskips í Ameríku. Reynir Gíslason sem gegnt hefur bæði stöðu forstjóra Eimskips í Ameríku frá júlí 2006 svo og forstjóra Atlas frá nóvember 2006 heldur áfram sem forstjóri yfir annarri starfsemi Eimskips í Ameríku. 10.9.2007 11:34 Heimsmarkaðsverð á gulli nálgast fyrra met Heimsmarkaðsverð á gulli hefur stigið ört síðustu vikur þar sem taugaóstyrkir fjárfestar hafa reynt að leita í öruggt skjól með fjármuni sína. Samkvæmt frétt í danska viðskiptablaðinu Börsen nálgast verð á gulli nú fyrra met. Verðið er komið í 707 dollara fyrir únsuna en fór hæst í 730 dollara í maí á síðasta ári. 10.9.2007 11:21 Fall á 90 dögum Straumur - Burðarás fjárfestingarbanki stefnir að því auka heildartekjur sínar upp 1.250 milljónir evra, jafnvirði um 112 milljaða króna fyrir árið 2010. Þá er stefnt að því að 40 prósent starfsmanna verði konur í lok næsta árs. Þetta kom fram í kynningu Williams Fall á framtíðarmarkmiðum bankans, en bankinn hefur lækkað um rétt rúmlega níu prósent frá því að hann tók við fyrir 90 dögum. 10.9.2007 11:17 Töluverð lækkun í Kauphöllinni í morgun Töluverð lækkun varð í Kauphöll Íslands þegar markaðir voru opnaðir í morgun klukkan 10 og lækkaði úrvalsvísitalan um 3,35 prósent. 10.9.2007 10:20 Brimborg býður upp á etanól á eldsneytisdælu Bifreiðaumboðið Brimborg opnar á morgun fyrstu eldsneytisdælu sem eingöngu er ætluð etanóli. Um er að ræða tilraunaverkefni sem umboðið stendur að í samvinnu við olíufélagið Olís. 9.9.2007 23:00 Samsung gerir samning upp á 71 milljarð Suður kóreska fyrirtækið Samsung hefur tryggt sér samning við tælensk stjórnvöld um byggingu tveggja gasorkuvera þar í landi. Samningurinn hljóðar upp á rúma 71 milljarð íslenskra króna. 9.9.2007 17:38 Óttast kreppu á heimsmörkuðum Óttast er að fyrirsjáanlegur skortur á lánsfé á bankamarkaði í næstu viku muni valda því að bankar víðs vegar um heim dragi verulega úr útlánastarfsemi. Forráðamenn stærstu banka heims óttast þetta komi til með að valda mikilli kreppu á heimsmörkuðum. 9.9.2007 14:35 Stærsta skuldsetta yfirtaka sögunnar Hluthafar í bandaríska orkufyrirtækinu TXU samþykktu í gær stærstu skuldsettu yfirtöku í heimi. Tilboðið hljóðar upp á rúma 2.400 milljarða íslenskra króna fyrir um 25 prósent eignaraðild að fyrirtækinu. 8.9.2007 22:15 Nasdaq frestar sölu á hlut sínum í LSE Nasdaq kauphöllin í Bandaríkjunum hefur frestað sölu á 30 prósent hlut sínum í bresku kauphöllinni, London Stock Exchange, fram í næstu viku. Forráðamenn Nasdaq vonast til þess að fresturinn muni gefa fleiri fjárfestum tækifæri til að bjóða í hlutinn. 8.9.2007 15:33 Fjöldauppsagnir hjá stærsta fasteignalánafyrirtæki Bandaríkjanna Bandaríska fasteignalánafyrirækið Countrywide Financial Corp. tilkynnti í gær að það þyrfti mögulega að segja upp 12 þúsund starfsmönnum til að spara rekstrarkostnað. Fyrirtækið, líkt og önnur fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu sökum mikilla vanskila á lánum og lækkandi fasteignaverðs. 8.9.2007 15:03 Peningaskápurinn... Nokkuð hefur verið rætt upp á síðkastið um netþjónabú, sem bandarísku hugbúnaðar- og netfyrirtækin Microsoft, Yahoo, Google, ásamt öðrum, eru að skoða að reisa hér á landi. Á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands í vikunni um netþjónabúin komu upp vangaveltur um nafnið enda gætu bú sem þessi geymt mun meira en netþjóna eina. 8.9.2007 00:01 Miklar lækkanir á hlutabréfum í Bandaríkjunum Miklar lækkanir urðu á verði hlutabréfa á bandarískum mörkuðum í dag. Talið er að vaxandi ótti fjárfesta um samdrátt í bandarísku efnhagslífi hafi valdið lækkununum í dag. Dow Jones féll um nærri tvö prósentustig. 7.9.2007 19:50 Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að hækka í dag vegna minnkandi framboðs og vaxandi ókyrrðar í Mið-Austurlöndum. Verð á olíutunnu hækkaði um 40 bandaríkjasent. 7.9.2007 19:27 Farsímalaust frí Farsímabann hefur verið sett á ferðamannaparadís í Karíbahafinu. Stundum er áreitið svo mikið í nútímasamfélagi að marga dreymir um að komast í frí þar sem tæki og tól eins og iPod og farsímar eru hreinlega skilin eftir heima. Nú gætu þeir hinir sömu látið drauminn rætast með fríi á Palm Island, fjölsóttri eyju sem tilheyrir Grenadíneyjunum í Karíbahafinu. 7.9.2007 18:45 Dregur úr veltu á fasteignamarkaði Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 864 talsins í ágúst samanborið við 999 í júlí, samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins. Greiningardeild Kaupþings segir að þótt dregið hafi úr veltu kaupsamninga séu þeir tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Greiningardeildin reiknar með áframhaldandi hækkun á fasteignaverði í september en telur að eftirspurn muni minnka á næstu mánuðum vegna hærri vaxta. 7.9.2007 16:24 Skuldatryggingarálag í hæstu hæðum Skuldatryggingarálag íslensku viðskiptabankanna hefur hækkað töluvert undanfarinn mánuð í kjölfar óróa á erlendum fjármálamörkuðum. Álagið hefur farið hækkandi frá því um miðjan júní og hefur vísitala yfir skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja rúmlega fimmfaldast á tímabilinu. Skuldatryggingarálag Kaupþings hefur hækkað mest en það hefur þrefaldast. 7.9.2007 16:11 Úrvalsvísitalan lækkar í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takti við lækkun á helstu hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 3,75 prósent. Gengi einungis tveggja félaga hækkaði, Atlantic Petroleum og Alfesca. 7.9.2007 15:40 Þröng á þingi hjá Marel Food Systems Þröng mun vera á þingi í höfuðstöðvum Marel Food Systems í Garðabænum þessa dagana en þar stendur nú yfir þriggja daga stjórnendafundur samsteypunnar. Þar koma saman allir forstjórar og framkvæmdastjórar, sölustjórar, þjónustustjórar og fjármálastjórar allra dótturfélaga. Alls eru þetta um 150 stjórnendur frá 25 löndum. 7.9.2007 14:51 Sjá næstu 50 fréttir
Þetta er ekki tímabil sem ég er stoltur af Nick Leeson komst á spjöld sögunnar árið 1995 þegar hann gerði einn elsta og virðulegasta banka Bretlands gjaldþrota með áhættusömum gjaldeyrisviðskiptum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson spjallaði við þennan alræmdasta verðbréfamiðlara í heimi um spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði og lífið eftir gjaldþrot bankans. Leeson kemur hingað til lands eftir viku og ræðir um reynslu sína. 12.9.2007 00:01
Samið um samstarf vegna Kaupþings Fjármálaeftirlitið (FME) og Kredittilsynet í Noregi hafa gert með sér samning um samstarf vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Í tilkynningu FME kemur fram að ástæða samningsins sé að Kaupþing hafi sótt um aðild að innistæðutryggingasjóði norskra banka, en það sé gert til að tryggja að viðskiptavinir bankans í Noregi njóti sömu innistæðutryggingar og viðskiptavinir norskra innlánsstofnana. 12.9.2007 00:01
Alvöru alþjóðafyrirtæki leiðin til vaxtarins Lárus Welding tók við keflinu af Bjarna Ármannssyni í Glitni. Hans verkefni er að fylgja eftir stefnu bankans í nýjum og spennandi kafla í alþjóðlegri uppbyggingu. Hafliði Helgason horfði á hlaupabrautina fram undan með forstjóranum, sem er búinn að nota sumarið til að reima á sig hlaupaskóna og er stokkinn af stað. 12.9.2007 00:01
Bankar í krísu Mjög hefur dregið úr millibankalánum evrópskra fjármálafyrirtækja, að sögn breska vikuritsins Economist í vikunni. Blaðið segir ástæðuna mikla óvissu á fjármálamarkaði. 12.9.2007 00:01
Olíuríkin ætla að framleiða meira OPEC ríkin hafa ákveðið að auka olíuframleiðslu sína um 500 þúsund tunnur á dag til að mæta aukinni eftirspurn. Tillagan um aukninguna er komin frá Saudi Aröbum og felur hún í sér að framleiðslan verði aukin frá 1. nóvember næstkomandi. 11.9.2007 23:23
Kaupþing segir að verðbólga muni hækka Greiningardeild Kaupþings spáir 1,3% hækkun á vísitölu neysluverðs. Hagstofa Íslands mun birta mælingu á vísitölunni fyrir september á morgun. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 4,2%. 11.9.2007 17:46
Kaupþing og Straumur sigla heim með gullið frá Svíþjóð Sænska viðskiptablaðið Dagens Industri fjallar um það í dag að Kaupþing banki og Straumur-Burðarás hafi selt mikið af hlutum sínum í sænskum félögum og síðan siglt heim með gullið eins og það er orðað. Þannig hafi eignasafn Straums-Burðarás minnkað um 870 milljónir skr. eða um 8,7 milljarða kr. og greint er frá því að Kaupþing hafi dregið sig út úr 18 af þeim 38 félögum sem það átti í um áramót. 11.9.2007 16:47
JJB sports gefur út afkomuviðvörun JJB Sports Plc, sem er að hluta í eigu Exista, gaf í dag út afkomuviðvörun en félagið rekur rekur 420 íþróttavöruverslanir í Bretlandi. Fram kemur í viðvöruninni að uppgjör fyrir fyrrihluta ársins sýndi hagnað fyrir skatt upp á 8 milljónir punda eða um einn milljarð kr. sem er 3,5 milljónum punda undir væntingum. 11.9.2007 16:27
Countrywide í fjárhagshremmingum Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækinu Countrywide Financials, einu stærsta fasteignalánafyrirtæki Bandaríkjanna, féll um fimm prósent á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í dag. Ástæðan er frétt bandaríska dagblaðsins New York Post þess efnis að fyrirtækið glími við afar slæma stöðu og sé að undirbúa sölu á hlutabréfum til að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækisins. 11.9.2007 16:07
Gengi Atlantic Petroleum rauk upp Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð í Kauphöllinni í dag, sum talsvert meira en önnur. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,24 prósent og endaði í 7.949 stigum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um 9,19 prósent. Gengið hefur hækkað um heil 135 prósent á árinu. Gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri lækkaði hins vegar mest í dag, eða um 1,46 prósent. 11.9.2007 15:48
Dregur úr viðskiptahalla Bandaríkjanna Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum nam 59,2 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 3.849 milljörðum íslenskra króna, í júlí. Þetta er 0,3 prósentustiga minni halli en í mánuðinum á undan, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Ben Bernanke, seðlabankastjóri landsins, segir ríkisstjórnir heimsins verða að leggjast á eitt og draga úr viðskiptahalla landanna. 11.9.2007 15:34
Fyrrverandi forstjóri MEST kaupir Parket & Gólf Þórður Birgir Bogason, fyrrverandi forstjóri MEST, hefur keypt fyrirtækið Parket & Gólf af fjölskyldu Ómars Friðþjófssonar, stofnanda fyrirtækisins. 11.9.2007 14:40
Verk og vit aftur á næsta ári Ákveðið hefur verið að halda stórstýninguna Verk og vit aftur á næsta ári en hún var haldin í fyrsta sinn í mars 2006. Sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum, mannvirkjagerð og orkumálum og er undirbúningur þegar í fullum gangi eftir því sem segi í tilkynningu frá aðstandendum. 11.9.2007 14:31
FL Group á nærri 19 prósent í INGG FL Group á nærri 19 prósenta hlut í breska afþreyingarfélaginu Inspired Gaming Group beint eða óbeint í gegnum framvirka samninga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu vegna fréttaflutnings í Bretlandi af áhuga FL Group á kaupum á hlutum í félaginu. 11.9.2007 11:52
Hækkun á hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur hækkað í Kauphöllinni í mörgum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,53 prósent og stendur hún í 7.972 stigum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur hækkað langmest, eða um 6,24 prósent. Gengi bréfa í landa þeirra hjá Föroya banka hefur hins vegar lækkað mest, eða um 0,69 prósent. Hækkunin nú er í takti við hækkun á alþjóðamörkuðum. 11.9.2007 11:25
House of Fraser skattleggur birgja sína House of Fraser, sem er í eigu Baugs Group, hefur lagt fram kröfu um að birgjar verslunarkeðjunnar hjálpi til við að fjármagna 250 milljón punda, eða tæplega 30 milljarða kr., fjárfestingarverkefni. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins Telegraph í dag. 11.9.2007 11:24
Metverðbólga í Kína Verðbólga mældist 6,5 prósent í Kína í síðasta mánuði samanborið við 5,6 prósent í mánuðinum á undan, samkvæmt kínversku hagstofunni. Verðbólga hefur ekki mælst hærri þar í landi í áratug. Snarpar verðhækkanir á kjötvöru á árinu leiða verðbólguna. Gengi hlutabréfa féll í kjölfarið. 11.9.2007 09:30
Olíuverð nálægt sögulegum hæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk upp í hæstu hæðir á fjármálamörkuðum í dag eftir að uppreisnarhópar frömdu skemmdarverk við olíuvinnslustöðvar og leiðslur í Mexíkó Ekki liggur fyrir hvað hópunum stóð til en þeir eru sagðir vinstrisinnaðir uppreisnarseggir og andsnúnir ríkisstjórn landsins. Verðið hækkaði talsvert í gær en þá var gert ráð fyrir því að OPEC-samstökin myndu halda olíuframleiðslukvótum óbreyttum. 11.9.2007 09:15
Fjölmiðlarisinn lækkaði mest Bréf í 365 hf. lækkuðu mest allra í dag, eða um 5,3%. Exista lækkaði um 4,63% Kaupþing lækkaði um 3,52. Icelandair um 3,31 og Century Alumnium Company um 3,19%. Eina fyrirtækið í Kauphöll Íslands sem hækkaði í dag var færeyska fyrirtækið Atlantic Petroleum sem hækkaði um 10,43%. 10.9.2007 21:16
Lækkun á hlutabréfamörkuðum víða í heiminum Greiningadeild Kaupþings telur að sú lækkun sem varð á innlendum hlutabréfamarkaði í dag gæti tengst frétt Sunday Times um helgina. Þar var greint frá því að alþjóðlegir bankar muni lenda í miklum erfiðleikum með að fjármagna lausafjárþörf sína á næstu dögum. 10.9.2007 17:36
Opnar umhverfisvænustu skrifstofubyggingu Bretlands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður í dag og á morgun í heimsókn í Leeds þar sem hann opnar meðal annars nýja skrifstofu dótturfélags Eimskips í borginni sem er sú umhverfisvænasta á Bretlandi. 10.9.2007 14:50
Sveiflur á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur sveiflast nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti síðar í mánuðinum. Þeir rýna síðar í dag í orð nokkurra af stjórnendum seðlabankans um bandarísk efnahagsmál. Þar á meðal er hagfræðingurinn Frederic Mishkin, einn af bankastjórum seðlabankans, sem vann skýrslu um íslenskt efnahagslíf í fyrra í félagi við Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra Askar Capital. 10.9.2007 14:42
Atlantic Petruleum hækkar um 11% eftir olíufund Á meðan flestar tölur í Kauphöllinni í morgun hafa verið í rauðu er Atlantic Petruleum á góðu skriði og hefur hækkað um 11% það sem af er degi. Þetta skýrist af því að félagið hefur fundið stór kolalög á Hook Head svæðinu úti fyrir ströndum Írlands þar sem talið er að séu miklar birgðir af olíu og gasi. Atlantic Petruleum hefur hækkað um tæp 14% í dönsku kauphöllinni í dag. 10.9.2007 13:07
Tengjast þráðlaust við hljóðgjafa með blátækni Epoq-heyrnartækin eru komin til Íslands en þau eru talin vera fullkomnustu heyrnartæki á markaðinum í dag. „Það sem er einstakt við Epoq-heyrnartækin er að þau búa yfir nýrri, þráðlausri tækni, sem gerir það að verkum að tvö tæki geta skipst á upplýsingum og samhæft allar stillingar. Fyrir vikið upplifir notandinn meiri víðóma skynjun fyrir hljóði en áður, í stað þess að tækin vinni sjálfstætt á hvoru eyra.“ 10.9.2007 12:00
FL Group með tæp 38 prósent í TM FL Group hefur keypt alla hluthafa Kjarrhólma ehf. út úr félaginu og með því eignast 37,57 prósent hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni. Kjarrhólmi er annar stærsti hluthafinn í TM á eftir Glitni, sem keypti stærsta hluthafann og aðra út í síðustu viku en hefur gefið út að hann ætli að selja hlutinn áfram til fjárfesta. 10.9.2007 11:55
Nýr forstjóri hjá Eimskipi í Ameríku Brent Sugden, forstjóri kanadíska kæli- og frystigeymslufélagsins Versacold, hefur í kjölfar skipulagsbreytinga verið ráðinn forstjóri yfir kæli- og frystigeymslusviði Eimskips í Ameríku. Reynir Gíslason sem gegnt hefur bæði stöðu forstjóra Eimskips í Ameríku frá júlí 2006 svo og forstjóra Atlas frá nóvember 2006 heldur áfram sem forstjóri yfir annarri starfsemi Eimskips í Ameríku. 10.9.2007 11:34
Heimsmarkaðsverð á gulli nálgast fyrra met Heimsmarkaðsverð á gulli hefur stigið ört síðustu vikur þar sem taugaóstyrkir fjárfestar hafa reynt að leita í öruggt skjól með fjármuni sína. Samkvæmt frétt í danska viðskiptablaðinu Börsen nálgast verð á gulli nú fyrra met. Verðið er komið í 707 dollara fyrir únsuna en fór hæst í 730 dollara í maí á síðasta ári. 10.9.2007 11:21
Fall á 90 dögum Straumur - Burðarás fjárfestingarbanki stefnir að því auka heildartekjur sínar upp 1.250 milljónir evra, jafnvirði um 112 milljaða króna fyrir árið 2010. Þá er stefnt að því að 40 prósent starfsmanna verði konur í lok næsta árs. Þetta kom fram í kynningu Williams Fall á framtíðarmarkmiðum bankans, en bankinn hefur lækkað um rétt rúmlega níu prósent frá því að hann tók við fyrir 90 dögum. 10.9.2007 11:17
Töluverð lækkun í Kauphöllinni í morgun Töluverð lækkun varð í Kauphöll Íslands þegar markaðir voru opnaðir í morgun klukkan 10 og lækkaði úrvalsvísitalan um 3,35 prósent. 10.9.2007 10:20
Brimborg býður upp á etanól á eldsneytisdælu Bifreiðaumboðið Brimborg opnar á morgun fyrstu eldsneytisdælu sem eingöngu er ætluð etanóli. Um er að ræða tilraunaverkefni sem umboðið stendur að í samvinnu við olíufélagið Olís. 9.9.2007 23:00
Samsung gerir samning upp á 71 milljarð Suður kóreska fyrirtækið Samsung hefur tryggt sér samning við tælensk stjórnvöld um byggingu tveggja gasorkuvera þar í landi. Samningurinn hljóðar upp á rúma 71 milljarð íslenskra króna. 9.9.2007 17:38
Óttast kreppu á heimsmörkuðum Óttast er að fyrirsjáanlegur skortur á lánsfé á bankamarkaði í næstu viku muni valda því að bankar víðs vegar um heim dragi verulega úr útlánastarfsemi. Forráðamenn stærstu banka heims óttast þetta komi til með að valda mikilli kreppu á heimsmörkuðum. 9.9.2007 14:35
Stærsta skuldsetta yfirtaka sögunnar Hluthafar í bandaríska orkufyrirtækinu TXU samþykktu í gær stærstu skuldsettu yfirtöku í heimi. Tilboðið hljóðar upp á rúma 2.400 milljarða íslenskra króna fyrir um 25 prósent eignaraðild að fyrirtækinu. 8.9.2007 22:15
Nasdaq frestar sölu á hlut sínum í LSE Nasdaq kauphöllin í Bandaríkjunum hefur frestað sölu á 30 prósent hlut sínum í bresku kauphöllinni, London Stock Exchange, fram í næstu viku. Forráðamenn Nasdaq vonast til þess að fresturinn muni gefa fleiri fjárfestum tækifæri til að bjóða í hlutinn. 8.9.2007 15:33
Fjöldauppsagnir hjá stærsta fasteignalánafyrirtæki Bandaríkjanna Bandaríska fasteignalánafyrirækið Countrywide Financial Corp. tilkynnti í gær að það þyrfti mögulega að segja upp 12 þúsund starfsmönnum til að spara rekstrarkostnað. Fyrirtækið, líkt og önnur fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu sökum mikilla vanskila á lánum og lækkandi fasteignaverðs. 8.9.2007 15:03
Peningaskápurinn... Nokkuð hefur verið rætt upp á síðkastið um netþjónabú, sem bandarísku hugbúnaðar- og netfyrirtækin Microsoft, Yahoo, Google, ásamt öðrum, eru að skoða að reisa hér á landi. Á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands í vikunni um netþjónabúin komu upp vangaveltur um nafnið enda gætu bú sem þessi geymt mun meira en netþjóna eina. 8.9.2007 00:01
Miklar lækkanir á hlutabréfum í Bandaríkjunum Miklar lækkanir urðu á verði hlutabréfa á bandarískum mörkuðum í dag. Talið er að vaxandi ótti fjárfesta um samdrátt í bandarísku efnhagslífi hafi valdið lækkununum í dag. Dow Jones féll um nærri tvö prósentustig. 7.9.2007 19:50
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að hækka í dag vegna minnkandi framboðs og vaxandi ókyrrðar í Mið-Austurlöndum. Verð á olíutunnu hækkaði um 40 bandaríkjasent. 7.9.2007 19:27
Farsímalaust frí Farsímabann hefur verið sett á ferðamannaparadís í Karíbahafinu. Stundum er áreitið svo mikið í nútímasamfélagi að marga dreymir um að komast í frí þar sem tæki og tól eins og iPod og farsímar eru hreinlega skilin eftir heima. Nú gætu þeir hinir sömu látið drauminn rætast með fríi á Palm Island, fjölsóttri eyju sem tilheyrir Grenadíneyjunum í Karíbahafinu. 7.9.2007 18:45
Dregur úr veltu á fasteignamarkaði Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 864 talsins í ágúst samanborið við 999 í júlí, samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins. Greiningardeild Kaupþings segir að þótt dregið hafi úr veltu kaupsamninga séu þeir tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Greiningardeildin reiknar með áframhaldandi hækkun á fasteignaverði í september en telur að eftirspurn muni minnka á næstu mánuðum vegna hærri vaxta. 7.9.2007 16:24
Skuldatryggingarálag í hæstu hæðum Skuldatryggingarálag íslensku viðskiptabankanna hefur hækkað töluvert undanfarinn mánuð í kjölfar óróa á erlendum fjármálamörkuðum. Álagið hefur farið hækkandi frá því um miðjan júní og hefur vísitala yfir skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja rúmlega fimmfaldast á tímabilinu. Skuldatryggingarálag Kaupþings hefur hækkað mest en það hefur þrefaldast. 7.9.2007 16:11
Úrvalsvísitalan lækkar í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takti við lækkun á helstu hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 3,75 prósent. Gengi einungis tveggja félaga hækkaði, Atlantic Petroleum og Alfesca. 7.9.2007 15:40
Þröng á þingi hjá Marel Food Systems Þröng mun vera á þingi í höfuðstöðvum Marel Food Systems í Garðabænum þessa dagana en þar stendur nú yfir þriggja daga stjórnendafundur samsteypunnar. Þar koma saman allir forstjórar og framkvæmdastjórar, sölustjórar, þjónustustjórar og fjármálastjórar allra dótturfélaga. Alls eru þetta um 150 stjórnendur frá 25 löndum. 7.9.2007 14:51