House of Fraser skattleggur birgja sína 11. september 2007 11:24 MYND/365
House of Fraser, sem er í eigu Baugs Group, hefur lagt fram kröfu um að birgjar verslunarkeðjunnar hjálpi til við að fjármagna 250 milljón punda, eða tæplega 30 milljarða kr., fjárfestingarverkefni. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins Telegraph í dag. Verslunarkeðjan ætlar að leggja sérstakann skatt eða gjald, allt að 4%, á birgjana til að hjálpa til við endurbætur og endurbyggingu á verslunum sínum. Ætlunin er að höfða til efnameiri kúnna en nú er. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem House of Fraser hefur reynt að endursemja um kaup og kjör við birgja sína. Að sögn Telegraph er birgjunum viðbrugðið og einn þeirra segir áform verslunarkeðjunnar "árásargjörn" og "fáránleg". Talið er að margir birgjanna muni berjast gegn þessum áformum þar sem markaður þeirra er viðkvæmur þessa stundina. Telegraph vitnar í bréf frá Stefan Cassar, fjármálastjóra House of Fraser, til birgjanna í síðustu viku. Þar segir m.a. að til að allir njóti góðs af verulegum hagnaðartækifærum sé nauðsynlegt sé frekari samvinna nauðsynleg. Allir verði að taka þátt til að sýna fram á samvinnu og stuðning í framtíðinni. „Því er ég að tilkynna þér formlega að frá og með 30. desember 2007 munu eftirfarandi breytingar verða gerðar á viðskiptasamningum." Breytingar sem boðaðar eru í bréfinu felast m.a. í því að birgjar borgi á bilinu 2 til 4% af veltu sinni í fyrrgreindan skatt eftir um hvaða verslanir sé að ræða og að þetta gjald minnki um 0,5 til 1% ef birgjar nái 5-10% í aukinni sölu í verslununum. Að sögn Telegraph vildi talsmaður Baugs ekki tjá sig um málið.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira