Fleiri fréttir

Fasteignafélag byggt á starfslokum

Þegar Ole Vagner stóð uppi sem bankastjóri án atvinnu ákvað hann að nýta þekkingu sína á fasteignafjárfestingum og stofna eigið fyrirtæki. Keops er í dag fjölþætt og öflugt fyrirtæki á sviði fasteignafjárfestinga, fjármálaafurða og eignastýringar. Hafliði Helgason hitti Ole Vagner og ræddi við hann um fyrirtækið.

Flugið fangar fjárfesta

Fjárfestingar Íslendinga í lággjaldaflugfélögum nema um fjórtán milljörðum á einu ári. Geirinn vex hratt og ferðalöngum fjölgar. Allir eru sammála um enn frekari vöxt.

Methagnaður hjá FL Group

FL group hagnaðist um 2,3 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og er það mesti hagnaður í sögu félagsins. Velta FL group og fjórtán dótturfyrirtækja var 20,1 milljarður króna og jókst um 6,4 prósent frá sama tíma á síðasta ári.

Hugsanleg innherjaviðskipti skoðuð

Kauphöll Íslands skoðar hvort innherjaviðskipti hafi farið fram í FL Group síðustu daga, en veruleg viðskipti voru með bréf í félaginu í gær og hækkaði gengi þeirra um fjögur prósent. Hagnaður félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,3 milljörðum króna og er þetta mesti hagnaður þess frá upphafi.

Oddaflug ekki yfirtökuskylt

Eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar, Oddaflug er ekki yfirtökuskylt vegna eignarhluta síns í FL Group. Yfirtökunefnd hefur síðustu vikur skoðað hvort Oddaflug hefði haft samráð við Baug eða Kötlu Investment um að ná yfirráðum í félaginu. Nefndin telur ekki að um samráð hafi verið að ræða.

Frekari fjárfestingar á döfinni

Stjórnendur FL Group hafa áætlanir um að styrka eiginfjárstöðu félagsins til þess að sækja enn frekar fram á við. Talið er líklegt að félagið gefi út nýtt hlutafé áður en langt um líður en fjölmörg verkefni eru til skoðunar.

Samþykktu kaup Samskipa á Seawheel

Evrópsk Samkeppnisyfirvöld hafa samþykkt kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel, sem tilkynnt voru fyrr í sumar, sem og fyrirhugaða sameiningu Samskipa við starfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Geest North Sea Line sem Samskip keyptu fyrr á árinu.

Hagnaður SAS þrefaldast

Hagnaður SAS, stærsta flugfélags á Norðurlöndunum, rúmlega þrefaldaðist á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra. Hagnaður fjórðungsins nam rétt undir 500 milljónum sænskra króna, en á sama tíma síðasta árs nam hann 145 milljónum. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag.

Lítll þjóðhagslegur ávinningur

KB-banki segir þjóðhagslegan ávinning vegna álvera smáan og skýrir það með þeirri stefnu að raforkan sé seld nærri kostnaðarverði og með lágri ávöxtunarkröfu til virkjana. Efnahagsleg áhrif áliðnaðar hafa verið ofmetin í umræðu hérlendis, miðað við niðurstöðu sérfræðinga KB-banka.

Lítil áhrif álframleiðslu

Efnahagsleg áhrif aukinnar álframleiðslu á Íslandi eru mun minni en reiknað var með í upphafi samkvæmt því sem kemur fram í efnahagsfregnum KB banka.

Minni ábati

Hætt er við að þjóðhaglsegur ábati af virkjunum og álverum verði mun minni þar sem raforkan er seld mjög nærri kostnaðarverði.

Verðbólga ekki meiri í átta ár

Verðbólga hefur aukist í Bretlandi og er nú 2,3 prósent, en það er meiri verðbólga en mælst hefur þar í landi á síðustu átta árum. Hækkandi olíuverð er helsta orsök aukins verðbólguþrýstings í hagkerfinu. Íbúðaverð í London hefur lækkað síðustu mánuðina og hafa nýbyggingar í borginni lækkað mest. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka í dag.

Beita viðeigandi úrræðum

"Við erum stöðugt að skoða myndun virks eignarhluta í Sparisjóði Hafnarfjarðar," segir Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Áfram lágir vextir

"Það er áframhaldandi útlit fyrir lága vexti á evrusvæðinu og breski seðlabankinn var að lækka stýrivexti fyrr í mánuðinum," segir Lúðvík Elíasson, hjá greiningardeild Landsbankans, spurður um þróun vaxta á næstu misserum.

Hluthafar bíða boðunar

Ekki er búið að boða til hluthafafundur í Burðarási, Landsbankanum né Straumi Fjárfestingarbanka vegna fyrirhugaðrar sameiningar félaganna. Beðið er eftir að skiptingaráætlun félaganna, sem send er Ríkisskattstjóra, sé birt í Lögbirtingarblaðinu. Þegar það hefur verið gert verður minnst einn mánuður að líða þangað til halda má hluthafafund. 

Góð afkoma Finnair

Hagnaður Finnair eftir skatta var um þrír milljarðar á fyrri árshelmingi. Hlutabréf í flugfélaginu hækkuðu yfir átta prósent í finnsku kauphöllinni í gær. Burðarás er annar stærsti hluthafinn með 8,3 prósenta hlut og nemur markaðsvirði hans um fimm milljörðum króna. Finnska ríkið er stærsti hluthafinn með 59 prósent.

Undir sama þak í London

Starfsemi Kaupþings í London og breska bankans Singer & Friedlander verður sameinuð samkvæmt heimildum Markaðarins. Unnið er að því að finna hentugt húsnæði og eru viðræður í gangi um að öll starfsemin flytjist undir sama þak við Hanover Square í Mayfair í London.

Júlí metmánuður hjá Icelandair

Farþegar Icelandair í júlí 2005 voru rúmlega 214 þúsund og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði í sögu félagsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Farþegum fjölgaði um 16,2 prósent frá því í júlí í fyrra en þá voru farþegarnir 184 þúsund. Farþegafjöldinn í júlí í ár samsvarar því að félagið hafi flutt um 70 prósent íslensku þjóðarinnar í mánuðinum, en sú er ekki raunin, því mikill meirihluti farþeganna er erlendur.

Rannsókn hætt

"Miðað við þær upplýsingar sem við höfum þá teljum við ekki tilefni til að rannsaka málið frekar," segir Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins aðspurður um athugun eftirlitsins á meintum upplýsingaleka frá Actavis í maí síðastliðnum.

Ábatasamur þorskur

Ábati íslenska hagkerfisins af hverju tonni af áli er rúmlega 28 þúsund krónur samkvæmt greiningardeild KB banka.

Fimmtán mínútur til Eyja

"Ég þori að segja að þetta er Rollsinn í flugflotanum," segir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson um nýja 32ja manna Dornier flugvél sem Landsflug hefur keypt.

Lítil áhrif Fjarðaráls á hagvöxt

Árlegur ábati Austurlands af Fjarðaráli eftir að það tekur til starfa mun vera um átta milljarðar króna samkvæmt útreikningum greiningardeildar KB banka.

Enginn gróði af lágu verði

<strong>Aurasálin hefur</strong> velt mikið því fyrir sér hvernig Bónusfeðgar urðu jafn ríkir og raun ber vitni. Þar sem Aurasálin er svo rík að eiga stóran hóp barna sem öll hafa erft dugnað og útsjónarsemi foreldra sinna, ber hún nokkurn hlýhug til þeirra feðga. Þeir lækkuðu matarreikning fjölskyldunnar svo um munaði og vandséð að Aurasálin hefði nokkurn tímann tekið sér sumarfrí ef Bónus hefði ekki verið stofnað.

Easy does it

Ég verð sannfærðari um það með hverjum deginum að Hannes Smárason hefur bara eitt lokatakmark með eignarhlutnum í easyJet. Það er að eignast félagið að fullu. Hann má hins vegar ekkert tala um það, en hann verður alltaf skrítinn á svipinn þegar maður spyr hann út í þetta.

Sjöundi himinn

Blaðið þóttist hafa sjöunda himin höndum tekið þegar þeir ráku augun í það í birtingu Baugsákærunnar í Fréttablaðinu að engin ákæra var undir VII lið ákærunnar. Dró Blaðið þegar þá ályktun að þarna hefðu þeir nú aldeilis gripið menn í bólinu og þyrfti ekki fleiri vitna við í því hvernig sakborningar ritstýrðu birtingu ákærunnar.

Hvað um kindina?

Það er ekki auðvelt að finna núverandi skrifstofur breska bankans Singer & Friedlander, sem KB banki tók yfir í sumar. Inngangurinn stendur við þrönga hliðargötu í London og sjálft húsið er ekki sjáanlegt í fyrstu. Hins vegar er hliðið að húsinu tignarlegt og nokkuð sérstakt fyrir inngang að fjármálafyrirtæki.

Ráðgjafi Pútíns

Andrei Illarionov, aðalefnahagsráðgjafi Pútins Rússlandsforseta, verður staddur hér á landi í byrjun næstu viku til að sækja fund Mont Pelerin-samtakanna. Samtökin voru á eftirstríðsárunum mikilvægur vettvangur helstu fræðimanna Evrópu og Bandaríkjanna sem vildu í sameiningu takmarka vöxt ríkisvaldsins, stuðla að frjálsu hagkerfi og tryggja athafnafrelsi einstaklingsins.

Fleiri í útrás

Íslenskir bankar eru ekki einu norrænu bankarnir í útrásarhug. Den Danske Bank birti uppgjör í gær og skilaði hátt í 90 milljörðum í hagnað á fyrstu sex mánuðum ársins. Den Danske Bank hefur verið að hasla sér völl á Írlandi og nú boða forsvarsmenn bankans að þeir hyggist auka hlutdeild sína í Svíþjóð.

Myndgæðin sigra markaðinnn

Nýir farsímar sem eru með 1,3 megapixla myndavél eiga eftir að sigra heiminn á næsta ári að mati rannsóknarfyrirtækisins ABI. Fórnarlömb þessarar sigurgöngu eru að mati ABI núverandi myndavélasímar og einfaldari gerðir af stafrænum myndavélum.

Hagnast um 900 milljónir í Noregi

Líklegt er að Burðárás hagnist um 900 milljónir á yfirtökutilboði í norska olíuleitarfyrirtækið Exploration Resources en Burðarás hefur frá því fyrr í sumar átt 8,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Í tilkynningu frá Burðarási segir að miðað við gengi félagsins í dag hafi markaðsverðmæti hlutar Burðaráss aukist úr um 90 milljónum norskra króna í 172 milljónir en mismunurinn nemur um 900 milljónum íslenskra króna.

Sænskt hugvit í þýskar þotur

Sænsk tækni verður væntanlega nýtt í þýsku Tornado-orrustuþoturnar en Saab hefur skrifað undir framleiðslusamning að upphæð einn milljarður sænskra króna, sem samsvarar 8,5 milljörðum íslenskra króna, við þýska hluta flugvélaframleiðandans EADS samkvæmt Vegvísi Landsbankans í dag.

Litlar líkur á yfirtöku

Markaðssérfræðingar Sunday Times spá í líkurnar á yfirtökutilboði FL-Group, sem á Icelandair, í easyJet. Bent er á að gengi bréfa í easyJet hafi verið hærra fyrir helgi en allt árið á undan og er sú hækkun rakin til hugsanlegrar yfirtöku.

Yfirtökuskylda könnuð

Yfirtökunefnd er nú að kanna hvort nýir hluthafar í Icelandair, eða FL Group, séu svo tengdir Baugi og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fjárhagslega, að yfirtökuskylda hafi myndast. Yfirtökunefnd hefur fjallað um málefni FL Group á nokkrum fundum sínum og skipað sérstaka nefnd til þess að kanna hvort nokkrir hluthafar í fyrirtækinu væru svo efnahagslega tengdir að yfirtökuskylda hafi myndast.

Ráða framkvæmdastjóra Enex-Kína

Hans Bragi Bernharðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Enex-Kína ehf. Félagið vinnur að þróun og uppbyggingu hitaveitna í Kína í samstarfi við þarlenda aðila og sem stendur er m.a. unnið að undirbúningi hitaveitu í borginni Xianyang í Shaanxi-héraði. Enn fremur vinnur Enex-Kína að útvegun og sölu búnaðar frá Kína til Evrópu.

Ágæt afkoma Verðbréfaþings

Hagnaður Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hf., sem á og rekur Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, fyrstu sex mánuði ársins nam 36,7 milljónum króna og jókst um tæpar tvær milljónir frá sama tíma í fyrra.

Olíuútgjöld mun meiri en ætlað var

Olíureikningur Icelandair, eða Flugleiða, er orðinn einum milljarði hærri en gert var ráð fyrir um áramót. Sérstakt olíugjald, sem lagt hefur verið á hvern farmiða, hrekkur hvergi nærri upp í mismuninn.

Hive kvartar yfir fjarskiptarisum

Fjarskiptafyrirtækið Hive hefur sent inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þar sem fyrirtækið telur að Síminn og Og Vodafone tvinni saman á óeðlilegan og samkeppnishindrandi hátt fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu og brjóti þar með gegn gildandi úrskurði samkeppnisyfirvalda varðandi samruna fjarskipta og sjónvarps.

Tíu ár frá upphafi netbólunnar

Tíu ár eru liðin frá hlutafjárútboði Netscape en það er talið marka upphaf netbólunnar miklu sem sprakk með látum árið 2000. Fram að útboði Netscape höfðu félög sem sóttust eftir skráningu á markað þurft að sýna mikla tekjuaukningu í þrjá ársfjórðunga og aukinn hagnað eða hagnaðarmöguleika áður en hlutafjárútboð fór fram.

Einar hættir hjá Flugleiðum

Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri rekstrarstýringar og viðskiptaþróunar hjá FL Group lætur af störfum um næstu mánaðamót. Hann var um árabil hægri hönd Sigurðar Helgasonar, fyrrverandi forstjóra Flugleiða, og á sínum tíma var hann fyrsti útvarpsstjóri Bylgjunnar. Þá hefur Þorsteinn Örn Guðmundsson byggingaverkfræðingur verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnumótunar og viðskiptaþróunar hjá félaginu.

Róbert Melax stýrir Degi Group

Ákveðið hefur verið að Róbert Melax, stjórnarformaður og aðaleigandi Dags Group, taki við forstjórastarfi hjá félaginu en hann leysir af hólmi Sverri Berg Steinarsson sem starfað hefur sem forstjóri félagsins síðastliðið ár. Sverrir hefur undanfarið unnið að fjárfestingarverkefnum erlendis og mun hann á næstunni beina kröftum sínum að þeim verkefnum ásamt því að taka sæti í stjórn félagsins, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Amide fær leyfi fyrir nýju lyfi

Actavis Group hefur fengið samþykki bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar fyrir markaðsleyfi á lyfinu Loxapine í gegnum bandarískt dótturfélag sitt, Amide. Loxapine er geðdeyfðarlyf og notað til meðferðar á geðklofa. Í tilkynningu frá Actavis segir að lyfið sé góð viðbót við lyfjaúrval Amide á Bandaríkjamarkaði en þó er ekki búist við því að tekjur af sölu lyfsins muni hafa veruleg áhrif á afkomu félagsins árið 2005.

Íslenskir forstjórar í 21. sæti

Það eru til forstjórar á Íslandi sem fá fleiri milljónir í laun á mánuði. Sjálfsagt finnst einhverjum það býsna gott. En íslenskir forstjórar eru ekki hálfdrættingar á við kollega sína í öðrum Evrópulöndum; verma 21. sætið yfir launahæstu forstjórana í álfunni.

Óvæntar verðbólgufréttir

Vísitala neysluverðs í ágúst 2005 hækkaði um 0,21 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Markaðsaðilar höfðu spáð því að vísitalan lækkaði örlítið eða stæði í stað

Möguleiki á yfirtöku

Gengi easyJet hækkaði í gær um rúm sjö prósent og fór um tíma yfir 310 pens. Talið er að FL Group sé enn að auka hlut sinn í félaginu. Stelios Haji-Ioannou, aðaleigandi easyJet, myndi vilja fá að minnsta kosti 310 pensa boð í hvern hlut áður en hann íhugaði að selja.

Fær 20 milljóna starfslokasamning

Andri Teitsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KEA, fær tæpar tuttugu milljónir króna í starfslokasamning og stjórnarmenn í KEA höfðu fundið að einkafjárfestingum hans á meðan hann var í vinnu við fjárfestingar fyrir KEA

Sjá næstu 50 fréttir