Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kannar kröfur banka um kennitölu Bankar krefja alla um kennitölu þegar keyptur er gjaldeyrir. Samkvæmt lögum er bönkum og sparisjóðum skylt að biðja um hana, fari upphæðin yfir 1,2 milljónir, en annars ekki. Það gera þeir samt og er málið í athugun hjá Persónuvernd. 10.8.2005 00:01
Tekjur Actavis jukust um 14,4% Heildartekjur Actavis námu 9,8 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um 14,4 prósent. Það finnst stjórnendum tæpast nóg, en búast við betri afkomu síðari hluta ársins. Robert Wessman, forstjóri Actavis, segir að ársfjórðungurinn hafi verið annasamur hjá félaginu þar sem bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide var keypt. 9.8.2005 00:01
Hagnaðaraukning hjá Og Vodafone 321 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Og fjarskipta hf. sem aftur skiptist í Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, eftir tekjuskatt á fyrri helmingi ársins 2005 samanborið við 222 milljóna króna hagnað miðað við sama tímabil í fyrra. 8.8.2005 00:01
Hagnaður Alcan lækkaði um 42% Í fréttum frá Greiningardeild Landsbankans er greint frá því að hagnaður Alcan, næst stærsta álframleiðanda í heimi, hafi numið 190 milljónum dollara á öðrum ársfjórðungi og hefur lækkað um 42% frá sama tíma í fyrra, en þá nam hann 330 milljónum dollara. 8.8.2005 00:01
Stefna að fiskútrás í Asíu Íslenskt fiskmeti hefur slegið í gegn í Malasíu undanfarnar vikur. Útflutningsfyrirtækið Triton stefnir að mikilli fiskútrás í Asíu þar sem gæði verða tekin fram yfir lágt verð. 7.8.2005 00:01
Markaðsvirði félaga um 1500 milljarðar Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí. Markaðsvirði félaganna nemur því í dag um 1500 milljörðum króna. 6.8.2005 00:01
Hækkun á við verð Símans Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí einum saman sem er nálægt því verði sem Landssíminn seldist á eftir eitt hundrað ára uppbyggingu. 6.8.2005 00:01
Fullyrðingar séu óviðeigandi Það er undarlegt að ríkisskattstjóri skuli láta uppi persónulega skoðun sína á skattkerfinu, segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Hann segir fullyrðingarnar óviðeigandi. 6.8.2005 00:01
Fasteignamat sumarhúsa hækkar Fasteignamat á sumarhúsum og sumarhúsalóðum hefur að meðaltali hækkað um tæpan fjórðung. Fasteignamat ríkisins mat 8.800 sumarhús og eftir endurmatið er virði þeirra metið samtals 47 milljarðar króna. Meðalfasteignamat sumarhúsa eftir endurmatið er rúmar 5,3 milljónir. Fasteignamat tæplega 130 eigna lækkaði en mat tæplega 8700 eigna hækkaði eða stóð í stað. 5.8.2005 00:01
British Airways flýgur til Íslands Samkeppni í flugi á milli Keflavíkur og London mun aukast verulega í mars þegar breski flugrisinn British Airways ætlar að taka upp áætlunarflug á milli Gatwick í London og Keflavíkur fimm daga í viku. Vélarnar fara frá Gatwick snemma á morgnana og héðan klukkan hálfellefu fyrir hádegi. 5.8.2005 00:01
Líflegt í Kauphöllinni í gær Mikið gekk á í Kauphöll Íslands í gær. Í <em>Morgunkorni</em> Íslandsbanka kemur fram að viðskipti með hlutabréf námu alls 19,2 milljörðum króna, sem er langt yfir meðalveltu. Mest viðskipti voru með bréf bankanna - Íslandsbanka, KB banka og Landsbanka. Svo virðist sem að fréttin um skiptingu Burðaráss hafi hleypt nýju lífi í markaðinn og flest stærstu félaganna í úrvalsvísitölunni hafa hækkað mikið í vikunni. 5.8.2005 00:01
Jón verður forstjóri Magasin Jón Björnsson, núverandi forstjóri Haga, hefur verið skipaður forstjóri Magasin du Nord í Danmörku frá og með 1. október. Jón hefur átt sæti í stjórn Magasin síðan í ársbyrjun 2005 en hann tekur við forstjórastarfinu af Peter Husum. Þá hefur Finnur Árnason verið ráðinn forstjóri Haga í stað Jóns og tekur hann við þann 10. ágúst næstkomandi. 5.8.2005 00:01
Andri hættir hjá KEA Framkvæmdastjóri KEA, Andri Teitsson, hefur sagt starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum. Í tilkynningu frá KEA kemur fram að hann og kona hans eigi von á tvíburum auk þess sem þau eigi fyrir fjögur börn 8 ára og yngri svo Andri hyggst taka sér langt feðraorlof. Segir í tilkynningunni að þetta hefði leitt til þess að málefni KEA hefðu verið í biðstöðu um lengri tíma og það taldi stjórnin óheppilegt. 5.8.2005 00:01
Skrifað undir kaupsamning Símans Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði í dag kaupsamning fyrir hönd íslenska ríkisins við Skipti ehf. um kaup Skipta á 98,8 prósenta hlut ríkisins í Símanum. Kaupsamningurinn er gerður á grundvelli tilboðs sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf ríkisins í Símanum þann 28. júlí síðastliðinn, en það hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna og var hæst þriggja tilboða sem bárust í eignarhlut ríkisins. 5.8.2005 00:01
Mikil auking á markaðsvirði félaga Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur aukist um 58,3 milljarða króna fyrstu fjóra daga ágústmánaðar. Þetta kemur fram í <em>Hálffimmfréttum</em> KB banka í dag. Samtals hefur því markaðsvirði félaganna aukist um 436 milljarða króna á árinu. Samanlagt markaðsvirði félaganna í Kauphöllinni stóð í um 1.520 milljörðum króna í lok dagsins. 5.8.2005 00:01
Lánshæfismat ríkissjóðs óbreytt Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að mat þess á lánshæfi ríkssjóðs sé óbreytt. Lánshæfieinkunn ríkissjóðs gagnvart erlendum skuldum er því enn AA- og AAA gagnvart skuldum í innlendri mynt. 5.8.2005 00:01
Orlof sé fyrir almenna starfsmenn Framkvæmdastjóri KEA hefur sagt starfi sínu lausu. Hann bað um að fá að fara í fæðingarorlof en stjórn KEA var því mótfallin. Stjórnarformaður KEA telur að lög um fæðingarorlof hafi fyrst og fremst verið sett til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna. 5.8.2005 00:01
I-Holding yfirtekur ILLUM vöruhúsið í Kaupmannahöfn Hópur íslenskra fjárfesta, I-Holding ehf., hefur gengið frá kaupum á 80% hlut í ILLUM vöruhúsinu í Danmörku ásamt fasteignininni sem hýsir reksturinn af Merrill Lynch International Global Principal Investment. 4.8.2005 00:01
Dagsbrún móðurfélag 365 miðla Og fjarskipti hf. ráðgera að nýtt skipulag samstæðunnar muni taka gildi 1. október nk. Hið nýja nafn samstæðunnar mun verða Dagsbrún hf. Fjarskiptarekstri félagsins verður komið fyrir í dótturfélaginu Og fjarskipti (Og Vodafone) sem heyra mun undir móðurfélagið ásamt 365 prentmiðlum ehf. og 365 ljósvakamiðlar ehf. 4.8.2005 00:01
Danir hljóma gramir Baugur, Straumur og fyrirtæki í eigu Birgis Þórs Bieltvedts hafa keypt stórverslunina Illum við Strikið í Kaupmannahöfn en sami hópur keypti nýverið Magasin du Nord þar í borg. Dönsk blöð greina frá þessum viðskiptum með ítarlegum hætti í morgun og er ekki laust við að úr textanum megi lesa að Dönum þyki berin súr. 4.8.2005 00:01
Þjónustugjöld ekki felld niður Ekki er líklegt að þjónustugjöld bankanna verði felld niður í bráð eins og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lagði til í gær. Bankarnir skiluðu allir methagnaði á fyrri hluta ársins, samtals um 54 milljörðum króna. 4.8.2005 00:01
855 milljóna tap deCode Tap deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, nam 855 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs og var óbreytt frá sama tímabili í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins nam tap félagsins tæpum tveimur milljörðum króna en stjórnendur fyrirtækisins segja aukin útgjöld vegna lyfjaþróunarverkefna ástæðuna fyrir tapinu. 3.8.2005 00:01
Olíuverðið nálgast sögulegt hámark Olíuverð fór yfir sextíu og tvo dollara á fatið í morgun og nálgast nú metverðið sem náðist fyrr í sumar. Ástæðan er sú að talið er að olíubirgðir Bandaríkjanna séu í lágmarki og frést hefur af töluverðum vandkvæðum hjá olíuhreinsunarstöðvum. 3.8.2005 00:01
Skoða uppskipti Burðaráss Bæði Fjármálaeftirlitið og yfirtökunefnd munu skoða uppskipti Burðaráss á milli Landsbankans og Straums fjárfestingabanka. 3.8.2005 00:01
Friðrik keypti 52% í Tölvumyndum Friðrik Jóhannsson, fráfarandi forstjóri Burðaráss, hefur keypt 52 prósenta hlut í Tölvumyndum, 41 prósent af Burðarási og 11 prósent af dótturfélagi Straums. Burðarási verður skipt milli Straums og Landsbankans. Friðrik vildi ekki staðfesta þessar upplýsingar þegar Stöð 2 sagði fréttina í gær en staðfestir þær hins vegar í dag. 3.8.2005 00:01
Forstöðumaður KB hyggst kæra Ingvar Vilhjálmsson, forstöðumaður KB banka, hyggst kæra álagningu skatta hvað sig varðar en samkvæmt opinberum álagningarskrám er hann ígildi fimmtíu og sjö bankagjaldkera. Gjaldkerarnir hafa að meðaltali 170 þúsund krónur á mánuði en forstöðumaðurinn rúmar 9,3 milljónir, ef trúa má álagningarskránum. 3.8.2005 00:01
Amide kaupir þrjú samheitalyf Actavis Group tilkynnti í dag að dótturfélag þess, Amide Pharmaceuticals Inc., hafi keypt þrjú samheitalyf af Sandoz, dótturfyrirtæki lyfjafyrirtækisins Novartis AG’s. Búist er við að árlegar sölutekjur af lyfjunum nemi um 4-5 milljónum Bandaríkjadala. 3.8.2005 00:01
Aðeins 3 konur á meðal 100 efstu Í hópi eitt hundrað forstjóra íslenskra fyrirtækja, sem hafa yfir eina milljón króna í laun á mánuði, eru aðeins þrjár konur. Konur eru lægra metnar til launa og það hefur ekkert breyst, segir hagfræðingur ASÍ. 3.8.2005 00:01
Geta aukið útlán um billjón Íslenskir bankar geta aukið útlán um allt að þúsund milljarða eða eina billjón króna. Seðlabankinn býst við áframhaldandi stöðugleika þrátt fyrir sterkari lánastöðu bankanna. 3.8.2005 00:01
Baugur kaupir matvælafyrirtæki Baugur Group og Talden Holding hafa keypt matvælafyrirtækið Woodward Foodservice af Giant Bidco sem yfirtók Big Food Group fyrr á þessu ári. Kaupin eru gerð í samvinnu við stjórnendur Woodward. Lloyds TSB bankinn fjármagnar kaupin. 3.8.2005 00:01
Eigið fé verður 100 milljarðar Að lokinni sameiningu Burðaráss við Landsbankann annars vegar og Straum Fjárfestingarbanka hins vegar verður eigið fé Landsbankans tæplega 100 milljarðar króna og eigið fé fjárfestingabankans sem hljóta mun nafnið Straumur – Burðarás Fjárfestingabanki hf. verður rúmlega 100 milljarðar króna. 2.8.2005 00:01
Friðrik Jóhannsson fjárfestir Friðrik Jóhannsson, fráfarandi forstjóri Burðaráss, hefur keypt fimmtíu og tveggja prósenta hlut í Tölvumyndum. Sjálfur vildi Friðrik ekki staðfesta þessar upplýsingar, sem fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimildum. Þetta kemur í kjölfar sameiningar Landsbankans, Burðaráss og Straums. 2.8.2005 00:01
Atkins í greiðslustöðvun Atkins Nutritionals, fyrirtækið sem hefur verið einna fremst í að breiða út megrunarkúr sem byggir á því að borða ekki kolefni, hefur farið fram á greiðslustöðvun. 1.8.2005 00:01
Skipta Burðarási á milli sín Eignum Burðaráss verður skipt á milli Landsbanka Íslands og Straums fjárfestingarbanka . Unnið var að útfærslu á skiptingunni um helgina og var tillaga um þetta efni lögð fyrir stjórnir félaganna í gærkvöld. Burðarás verður því ekki rekinn áfram í óbreyttri mynd heldur yfirtekur Straumur félagið. 1.8.2005 00:01