Fleiri fréttir

Vill einhver trúa mér?

Björk Felixdóttir skrifar

Því miður er það enn þá veruleiki sumra íslenskra kvenna að heilbrigðisstarfsfólk telur þær ímyndunarveikar og jafnvel geðveikar. Konur með endómetríósu (legslímuflakk) stríða margar við óeðlilega mikinn sársauka en þar sem rangar hugmyndir hafa lengi verið ríkjandi um sjúkdóminn – og þekkingu á sjúkdómnum innan heilbrigðiskerfisins er reglulega ábótavant – er oft lítið gert úr honum og konurnar oftar en ekki sendar heim án meðferðar. Þeim er sagt að verkir séu eðlilegur hluti af lífi konunnar, að þær hafi einfaldlega lágan sársaukaþröskuld eða að tíðaverkir séu fyrst og fremst sálrænir og þær ættu að leita til sálfræðings eða geðlæknis. Margar ungar stúlkur og konur veigra sér við að leita hjálpar vegna þessa viðmóts.

Okkar veikasta fólk

Björn M. Sigurjónsson skrifar

Þriðjudaginn 11. september verða haldnir minningartónleikar um mann sem lést á götum Reykjavíkur. Maðurinn var langt leiddur af áfengis- og vímuefnafíkn, lífshættulegum sjúkdómi sem kalla má faraldur í íslensku samfélagi. Af kynslóð fimmtán ára Íslendinga eru níu prósent líkur á því að stúlkur muni leita sér meðferðar einhvern tíma á ævinni. Líkurnar á því að drengir leiti sér meðferðar eru mun hærri eða átján prósent. Af núlifandi Íslendingum, fimmtán ára og eldri, hafa rúmlega sjö prósent komið til meðferðar hjá SÁÁ.

Haustið og heilsan

Teitur Guðmundsson skrifar

Haustið er komið, veðrið hefur breyst til muna á örfáum dögum, gróðurinn að breytast og önnur lykt komin í loftið.

Landspítalinn og Hringbraut

Hjálmar Sveinsson skrifar

Óli Kristján Ármannsson blaðamaður skrifaði í ritstjórnargrein helgarútgáfu Fréttablaðsins að Landspítalinn ætti ekki heima í miðbænum, þar sem hann er nú.

Klók leið ríkisstjórnarinnar til að skapa störf í kreppunni

Össur Skarphéðinsson skrifar

Eitt allra snjallasta ráðið sem ríkisstjórnin brá á til að skapa störf í hápunkti kreppunnar þegar atvinnuleysið var sem hæst var ákvörðun um að endurgreiða 100% virðisaukaskatt af vinnu við viðhald bygginga einstaklinga, bæði íbúðarhúsnæðis og sumarhúsa, og af opinberum byggingum.

Er veiðigjaldaklúðrið afrek?

Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar

Í lofgjörðarrullu sinni um ríkisstjórnina í Fréttablaðinu 6. september sl. tíundar Jón Steinsson, dósent við Columbia-háskóla í New York, meðal annars veiðigjöldin, í tilraun sinni til þess að telja upp helstu dáðir núverandi stjórnvalda. Þarna er greinarhöfundur einstaklega seinheppinn. Það er eins og hann hafi kosið að kveða órímaða öfugmælavísu um ríkisstjórnina.

Hagsmunir ferðaþjónustu

Edward H. Huijbens skrifar

Engum dylst að framkomnar hugmyndir um að færa gistiþjónustu undir almenna virðisaukaskattþrepið er umtalsverð aukin skattheimta á eina tegund ferðaþjónustu. Margir spyrja hvort greinin standi undir því. Umræða um þetta mál hefur að einhverju leyti fallið í skotgrafir. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) fengu KPMG til að komast að niðurstöðu sem svo

Einelti og ábyrgð skólastjórnenda

Svanhildur María Ólafsdóttir skrifar

Skólastjórnendur bera ábyrgð á því að starfsemi skólanna fari að lögum og þar sem einelti meðal barna fer yfirleitt fram í skólanum eða í tengslum við hann þá er ábyrgð þeirra á að takast á við þennan vanda mikil. Stundum fer umræðan fram með þeim hætti að allt sem skólastjórnendur eru að vinna með á þessum vettvangi fellur í skuggann. Því verður hér reynt að varpa ljósi á það starf sem skólastjórnendur, kennarar og starfsmenn skóla vinna til að draga úr einelti.

Kæra Reykjavíkurborg

Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar

Ég er komin aftur í þína þjónustu eftir yndislegt sumarfrí. Því eyddi ég að mestu fjarri malbikuðum götum í nær stanslausri veðurblíðu, lá úti í móa með strá í munni og lét mig dreyma um að gerast bóndi. Þó bara svona sumarbóndi. En nú er ég sem sagt komin aftur þótt skrefin hafi verið heldur þung fyrsta fundardaginn. Ég vinn sem kennari í nýsmíðuðum skóla og hlakka til vetrarins vegna þess að starfið er fjölbreytt, krakkarnir skapandi og vinnufélagarnir alltaf til í að sprella.

Fjarlægðin gerir fjöllin blá

Eygló Harðardóttir skrifar

Síðastliðinn fimmtudag skrifaði Jón Steinsson mikla lofræðu um ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur í Fréttablaðið. Jóni svíður að stjórnvöld skuli ekki njóta sannmælis meðal íslensks almennings og tínir til ýmis atriði sem hann telur henni til tekna. Vissulega er rétt hjá Jóni að ríkisstjórnin er ekki alslæm og ýmislegt hefur áunnist við að reisa landið úr rústum fjármálahrunsins. En heldur þótti mér sérkennilegt að telja til afreka tvö af stærstu mistökum stjórnarinnar.

Í upphafi skal endinn skoða

Björgólfur Jóhannsson skrifar

Heyrst hefur að ríkisstjórn Íslands hafi í hyggju að hækka virðisaukaskatt á gistiþjónustu úr 7% í 25,5%. Við hjá Icelandair Group og ferðaþjónustan í heild teljum að slíkt sé misráðið hjá ríkisstjórninni því miðað við núverandi aðstæður þá er veruleg hætta á að slík aðgerð muni minnka tekjur ríkissjóðs í stað þess að auka þær. Að sjálfsögðu munu virðisaukaskattstekjur ríkissjóðs af seldum gistinóttum aukast við hækkunina – um það efast enginn. Aðrar tekjur ríkissjóðs munu hins vegar dragast saman með fækkun ferðamanna og það er mat mitt og sérfræðinga Icelandair Group að nettóáhrifin verði neikvæð fyrir ríkissjóð þegar upp er staðið. Icelandair Group er stór hagsmunaaðili í íslenskri ferðaþjónustu og er meðal annars eigandi Icelandair-hótelanna og Eddu-hótelanna. Hagsmunir okkar eru því ríkir.

Ben Stiller og Þórey

Össur Skarphéðinsson skrifar

Fjári var það gott hjá Þóreyju Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna, að benda á hér í Fbl. að lögin um endurgreiðslu 20% kostnaðar við kvikmyndir framleiddar hér á landi hafa reynst einstaklega farsæl. Þau hafa meðal annars, eins og Þórey bendir á, laðað hingað frægar kvikmyndastjörnur eins og Ben Stiller, og ekki má nú gleyma harðjöxlum eins og Clint Eastwood, sem við Geir H. Haarde vorum samtíða í líkamsrækt í World Class um árið þegar hann gerði Flags of Our Fathers.

Börn og lestur – mikilvægi foreldra

Ingibjörg Auðunsdóttir skrifar

Foreldrar eru fyrstu kennarar barna sinna og þeir aðilar sem lengst fylgja þeim eftir í lífinu. Fjöldi rannsókna sýnir fram á að þátttaka foreldra í námi barnanna styrkir þau í námi, það á einnig við um árangur þeirra í lestri. Afburðagóðan árangur finnskra barna í lesskilningi má rekja til menntunar- og félagslegra þátta, finnskir foreldrar lesa mikið. Á bókasöfnum þar í landi hefur almenningur mjög gott aðgengi að bókum og blöðum, en lestrarfærni tengist sterklega því umhverfi sem börn alast upp í. Það skiptir því máli að:

Ég á þetta ég má þetta

Bergur Hauksson skrifar

Að minnsta kosti þrír ráðherrar í núverandi ríkisstjórn hafa orðið uppvísir að lagabrotum samkvæmt annaðhvort niðurstöðu dómstóla eða úrskurðarnefndar. Viðbrögð ráðherranna hafa verið áhugaverð. Einn sagði, þegar niðurstaða dóms var á þá leið að hann hefði brotið lög, að það skipti ekki máli, ráðherrann væri í pólitík og gerði það sem pólitísk sannfæring krefðist. Annar sagðist fara eftir sannfæringu sinni og sá þriðji nefndi að líklega þyrfti að breyta lögunum.

Mér er misboðið

Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar

Mér er misboðið" var yfirskrift tölvupósts sem hjúkrunarfræðingur sendi Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga þegar greint var frá því í fréttum að velferðarráðherra hefði ákveðið að hækka laun forstjóra Landspítala (LSH) um 450 þúsund krónur. Ákvörðunina tók ráðherra án vitundar formanns kjararáðs sem þó á samkvæmt lögum að ákvarða laun forstjórans. Hjúkrunarfræðingum misbýður að hægt sé að hækka laun forstjórans um rúm 20% á sama tíma og skorið er gegndarlaust niður í þjónustunni við sjúklinga. Útköll vegna veikinda starfsmanna eru fátíð, yfirvinna bönnuð þó hún sé sannarlega oft nauðsynleg til að tryggja örugga og góða þjónustu, vinnustundum hjúkrunarfræðinga hefur fækkað um 6% frá 2007 á sama tíma og 4% fjölgun hefur orðið á komum á LSH. Færri hjúkrunarfræðingar eiga því að sinna fleiri sjúklingum, án hærri launa.

Fjölföldun er ekki í boði

Kristín Linda Jónsdóttir skrifar

Í upphafi nýrrar árstíðar, eins og nú þegar haustönn er að ganga í garð, óska ég þess ætíð að ég gæti fjölfaldað sjálfa mig. Vegna þess að það er svo ótrúlega margt skemmtilegt, spennandi og uppbyggjandi í boði, lítið bara yfir síður dagblaðanna. Ótal viðburðir, námskeið og tilboð um þátttöku í öllu sem nöfnum tjáir að nefna, auðvitað er þetta framboð bara dásemdin ein í sjálfu sér og vitnar um kraft og líf samfélagsins okkar.

Ég sé fyrir mér mennskan heim

Júlíus Valdimarsson skrifar

Þegar ég vaknaði einn fallegan morgun í janúar 1996 eða fyrir 16 árum setti ég á blað persónulega yfirlýsingu sem ég nefndi "Ég sé fyrir mér mennskan heim“. Það sem þarna var ritað stóð einhvern veginn ljóslifandi fyrir mér og tiltrú mín hefur ekki minnkað á þá mennsku framtíð sem þar er lýst þrátt fyrir tímabundna erfiðleika sem við göngum nú í gegnum. Ekki síst er tiltrú mín sterk á unga fólkið sem er kraftmikið og skapandi og reiðubúið til þess að leita nýrra leiða eins og kom vel fram í bús-áhaldabyltingunni sem ekki hefði átt sér stað án þess.

Staðan í dag

Sigrún Birna Björnsdóttir skrifar

Þann 1. september fékk ég útborgað. Það heyrir ekki til tíðinda hjá launþegum en þessi útborgun gerði mig hugsi. Föstudaginn 31. ágúst sat ég ráðstefnu á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis um innleiðingu sex nýrra grunnþátta í allt skólastarf. Grunnþættirnir auk annarra breytinga sem kveðið er á um í nýjum lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla valda umbyltingu í öllu skólastarfi. Ég fagna breytingunum en innleiðingarferli er ekki til og fjármagn er óskilgreint. Með öðrum orðum; það fjármagn og sú fræðsla sem þarf til að barnið komist til manns er ekki til staðar. Þetta mun auka það mikla álag sem nú þegar hvílir á kennurum og þeir eiga ekkert að fá borgað fyrir ómakið. Mér var kennt að gera alltaf mitt besta og nýta hvert tækifæri vel en hér er það ekki í boði.

Nýtur ríkisstjórnin sannmælis?

Jón Steinsson skrifar

Núverandi ríkisstjórn er með eindæmum óvinsæl um þessar mundir. Nýjustu kannanir mæla stuðning við stjórnina upp á aðeins 34%. Þetta er einkennilegt í ljósi þess hversu vel hefur gengið að koma hagkerfinu aftur á rétta braut eftir hrunið og einnig í ljósi þess hversu mörgum stórum og mikilvægum málum ríkisstjórninni hefur tekist að koma í gegn á skömmum tíma.

Ríkið tekur til sín stóran hluta lífeyrissjóðsgreiðslna

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir skrifar

Hið opinbera klípur, oft duglega, af greiðslum til lífeyrisþega úr tveimur áttum. Annars vegar í gegnum tekjuskatt og/eða fjármagnstekjuskatt og hins vegar með tekjutengingum, þar sem skattskyldar tekjur fyrir skatt skerða lífeyrisgreiðslur, sem fólk fær úr almannatryggingakerfinu. Veigamest er tekjutengingin á sérstaka uppbót til framfærslu, en hún skerðist krónu á móti krónu (100% skerðing) við skattskyldar tekjur fyrir skatt. Lítum á dæmi:

Ben Stiller og samkeppnishæfni

Þórey Vilhjálmsdóttir skrifar

Fréttir af Ben Stiller og fylgdarliði hans hafa verið áberandi á síðustu vikum og mánuðum. Það er ekki hægt annað en vera stoltur af athyglinni sem vakin er á landinu okkar með veru hans og annarra kvikmyndastjarna hér. En það er vert að minna sig á það af hverju þau eru hér. Við viljum gjarnan tengja það beint við okkar stórbrotna landslag og fögru náttúru sem að sjálfsögðu eiga þar stóran þátt. En fyrst og fremst komum við til greina sem tökustaður fyrir stórmyndir eins og "The Secret life of Walter Mitty“ vegna laga um endurgreiðslu til kvikmyndagerðar sem sett voru árið 1999. Lögin byggja á því að veita endurgreiðslu á 20% af framleiðslukostnaði kvikmynda sem fellur til á Íslandi. Við setningu þessara laga varð Ísland samkeppnishæft á alþjóðlegum vettvangi sem tökustaður fyrir erlendar stórmyndir.

Lengi hefur Fjallkonan hrópað á hjálp!

Herdís Þorvaldsdóttir skrifar

Árið 1888, fyrir 124 árum, heldur Jón Bjarnason prestur, fyrst í Álftafirði og svo í Gimli í Nýja Íslandi, erindi um Ísland. Það var flutt í Dakota á 4. ársþingi hins ev.lút. kirkjufélags í Vesturheimi. Erindið fjallar að mestu leyti um hina skelfilegu gróðureyðingu á Íslandi. Síðan að skóginum var eytt sé hún orðin mjög hraðfara, nú liggi jarðvegurinn sem er ekki þegar eyddur opinn fyrir algerri eyðileggingu. Á meðan fjallshlíðarnar, holtin og hæðirnar voru hrísi vaxnar hélst jarðvegurinn kyrr. Það var ekki heyjað nóg fyrir skepnurnar sem settar voru á. Þess í stað var treyst sem mest á vetrarbeit sem var, og er, einhver versta landnýting sem hugsast getur, segir landfræðingurinn Ólafur Arnalds.

Það er mikilvægt að eiga val: fermingarfrelsi í aldarfjórðung!

Hope Knútsson skrifar

Árið 1988 datt mér í hug að efna til borgaralegrar fermingar á Íslandi. Ég þekkti til slíkra ferminga í öðrum löndum sem voru óháðar trú og börnin mín sem voru að nálgast fermingaraldur höfðu áhuga á slíku vegna þess að við erum ekki kristin. Ég skrifaði grein í dagblöðin og sagði að börnin mín myndu verða fyrstu Íslendingarnir til að fermast borgaralega og spurði hvort fleiri vildu vera með. Síminn byrjaði að hringja og hefur ekki stoppað síðan. Það sem ég ætlaði að gera einu sinni hefur orðið að ævistarfi. Fimmtán aðrar fjölskyldur höfðu samband við mig fyrsta árið og við bjuggum til nefnd sem setti saman fermingarnámskeið. Við tókum til fyrirmyndar skipulag Norðmanna sem hafa staðið að borgaralegum fermingum síðan 1951. Við höfum verið að þróa námskeiðið síðan.

Er Strætó bs ekki fyrir fatlaða?

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar

Mál sem hefur vakið litla athygli er fyrirhugað útboð á ferðaþjónustu fatlaðra. En er þetta ekki þjónusta sem á heima undir hatti Strætó?

Uppbyggingarhrun

Magnús Jónsson skrifar

Í makríldeilunni svokölluðu er tekist á um skiptingu afla úr þessum stóra fiskistofni. Margt bendir til þess að stærð hans sé stórlega vanmetin, sagði Guðmundur Óskarsson fiskifræðingur í viðtali í Morgunblaðinu nýlega og magn þeirrar fæðu sem þessi ránfiskur tekur til sín þá einnig. Kannski er hann að éta árlega tugi milljóna tonna úr lífmassa Norður-Atlantshafsins, aðallega ljósátu, rauðátu, svifdýr, sandsíli, trönusíli og jafnvel smáloðnu, síldarseyði og annað fisksmæli. Margir sjómenn líkja þessum fiski við engisprettufár.

Vilja konur láta nauðga sér?

Sæunn Kjartansdóttir skrifar

Töluverð umræða hefur sprottið í kjölfar útgáfu bókar þar sem konur lýsa kynferðislegum fantasíum sínum. Án þess að hafa séð umrædda bók hef ég hnotið um umfjöllun þar sem spurt er hvort skrif af þessu tagi séu til þess fallin að endurvekja mýtuna um að innst inni þrái konur að láta nauðga sér. Þýðir nei kannski ekki nei?

Nýtt ráðuneyti allra atvinnugreina

Steingrímur J. Sigfússon skrifar

Á laugardaginn tók til starfa nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og með því hafa stjórnvöld og atvinnulífið eignast öflugt tæki til stefnumótunar, framþróunar og nýsköpunar. Markmiðið er skýrt og klárt – að búa eins vel og kostur er í haginn fyrir öflugt atvinnulíf.

Krónan á þunnum ís, 2. hluti

Zack Vogel skrifar

Brasilía og Kína hafa farið ólíkar leiðir í sínum gengismálum. Af því geta Íslendingar lært þó stærðarmunur hagkerfanna sé mikill. Argentína og Venesúela hafa lengi reynt að halda gjaldmiðlum sínum sterkari en sem svarar til jafnvægisgengis þeirra og hafa reynt að halda aftur af verðbólgu með miklum stjórnvaldsafskiptum án þess að grípa til gengisfellinga.

Lítil athugasemd

Pétur Gunnarsson skrifar

Í Fréttablaðinu 3. sept. sl. vakti athygli mína lítil klausa. Tilefnið var undirskrift gegn því að öræfi Íslands væru seld útlendingum, en greinarhöfundur setur síðan atburðinn í óvænt samhengi við undirskriftasöfnun sextíumenninganna frá 1964 þar sem hvatt var til takmörkunar á útsendingum hersjónvarpsins sem þá var við lýði.

Frönsk barnalög tryggja mannréttindi

François Scheefer skrifar

Frönsku barnalögin frá 4. mars 2002 tryggja mannréttindi barna og foreldra, eins og sænsk og norsk barnalög. Enda meta löggjafar Frakklands, Svíþjóðar og Noregs þau grunnréttindi að börn njóti heilbrigðra tengsla við báða foreldra sína og báðar stórfjölskyldur – og þau grunnréttindi að foreldrar eigi óheft og eðlileg samskipti við börnin sín – meðal allra ríkustu mannréttinda.

Að finnast lífið vera ævintýri

Þorleifur Örn Gunnarsson skrifar

Eftir stúdentspróf ákvað ég að fara að vinna á leikskóla. Ég var heppinn með vinnustað því þar var mér treyst til að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi á deildinni minni. Ég beið með óþreyju hvers deildarfundar þar sem skoðanir mínar voru virtar en vænst þótti mér um að fá minn eigin hóp til að vinna með. Hópurinn samanstóð af nokkrum fjögurra ára einstaklingum. Eitt af því sem ég tók mér fyrir hendur var að fara með hópinn í skipulagða vettvangsferð í hverri viku. Við tókum með okkur farangur svo sem stækkunargler, vatnsbrúsa og stundum rúsínupoka. Ferðin var skipulögð af mér um nærumhverfi leikskólans. Með þessum börnum lærði ég í fyrsta skipti á mínum ferli eitthvað nýtt. Ég uppgötvaði að kennsla er alltaf gagnkvæm. Ég lærði kennslufræði.

Burt með allt pukur og baktjaldamakk

Jakob F. Ásgeirsson skrifar

Í síðustu viku skýrði framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins frá því opinberlega að „starfshópur" væri að útfæra þá hugmynd að val á framboðslistum flokksins í næstu alþingiskosningum færi fram „á fulltrúaráðsfundi" eins og það var orðað. Flesta stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins hefur vafalaust sett hljóða við þessi tíðindi.

Hestamenn hunsaðir

Brynjar Kvaran skrifar

Nú er til kynningar hjá Reykjavíkurborg nýtt deiliskipulag fyrir Heiðmörk og hægt að gera athugasemdir við það til 12. september nk. Hestaíþróttin er þriðja fjölmennasta íþróttagreinin innan ÍSÍ með um tólf þúsund félagsmenn. Á höfuðborgarsvæðinu einu eru skráðir félagsmenn um sex þúsund. Fjöldi þeirra sem stunda hestamennsku er þó mun meiri þar sem stór hluti hestamanna er ekki félagsbundinn. Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig margir reiðskólar og hestaleigur og áætlað er að um átján þúsund manns stundi hestamennsku á ári hverju á höfuðborgarsvæðinu.

Úrskurður um aukið meðlag – brot á jafnréttislögum?

Linda Wiium og Leifur Runólfsson skrifar

Skylt er foreldrum, báðum saman og hvoru um sig, að framfæra barn sitt. Framfærslu barns skal haga með hliðsjón af högum foreldra og þörfum barns. Þegar foreldrar barns búa ekki saman hér á Íslandi er lágmarksframfærsla með barni svokallað einfalt meðlag sem er fastsett af Tryggingastofnun ríkisins. Í dag nemur einfalt meðlag kr. 24.230 kr. Meðlagið tilheyrir barninu en það er forsjárforeldrið eða það foreldrið sem barn býr hjá sem tekur við meðlaginu og hefur umsjón með því.

Krónan á þunnum ís, 1. hluti

Zack Vogel skrifar

Íslandi hefur tekist vel upp í glímu sinni við afleiðingar bankakreppunnar og þjóðir heims líta nú til landsins í leit að lausnum á eigin vandamálum. Þetta þýðir ekki að Ísland sé komið á lygnan sjó. Þvert á móti stendur landið frammi fyrir óleystum vandamálum sem takast þarf á við á næstu árum. Á Íslandi búa 315.000 íbúar og þeir halda úti óháðum gjaldmiðli án þess að festa gengi hans við nokkurn annan gjaldmiðil. Þessi gjaldmiðill er íslenska krónan. Íslendingar þurfa að svara þeirri spurningu hvort það sé heppilegt fyrirkomulag að búa áfram við krónuna.

Hvað ef það væri þitt barn?

Bryndís Jónsdóttir skrifar

Síðustu daga og vikur hafa fjölmiðlar fjallað um málefni lítils drengs með þroskahömlun. Litli drengurinn hefur gengið í almennan grunnskóla fram að þessu. Þar líður honum ekki vel og foreldrar hans hafa metið það svo að hag hans sé betur borgið í Klettaskóla sem er er sérskóli fyrir þroskahömluð og fötluð börn. En sérfræðingarnir segja nei, í umboði pólitíkusa eins og þín, og þeir hafa ekki einu sinni hitt barnið að sögn foreldranna.

Foreldrar komi að ráðningum skólastjóra grunnskólanna

Kjartan Magnússon skrifar

Víða erlendis taka foreldrar grunnskólabarna mun virkari þátt í ráðningarferli skólastjóra en tíðkast á Íslandi. Talið er æskilegt að foreldrar, skattgreiðendur, hafi þannig beina aðkomu að þeirri lykilákvörðun, sem ráðning skólastjóra vissulega er fyrir skólann og viðkomandi íbúahverfi.

Er Georg Bjarnfreðarson hæfastur?

Ásta Bjarnadóttir skrifar

Kærunefnd jafnréttismála er áhrifamikill úrskurðaraðili í deilumálum um opinberar ráðningar hér á landi. Þegar kærunefndin tekur mál til umfjöllunar leggur hún almennt til hliðar fyrra mat sem gert hefur verið og framkvæmir sitt eigið sjálfstæða mat á kæranda og þeim sem var ráðinn. Kærunefndin úrskurðar svo um hæfni þeirra, oft með mjög afgerandi hætti.

Frændi minn er með krabbamein

Bergur Hauksson skrifar

Frændi minn er með krabbamein og var eitthvað ósáttur við að vera sendur heim af spítalanum vegna þess að tæki sem er hluti af meðferð hans var bilað. Samkvæmt fréttum þá kostar svona tæki um fjögur hundruð milljónir króna. Það eru ekki til peningar segja stjórnmálamennirnir sem hafa sumir unnið myrkranna á milli í þrjú ár og eru orðnir þreyttir. Ég sagði frænda mínum að vera ekki að þessu væli, honum væri ekki vorkunn, stjórnvöld væru alltaf að hugsa um hann en það væru ekki til peningar. Honum væri nær að hugsa um þreyttu stjórnmálamennina sem væru alltaf að vinna, enginn vorkenndi þeim.

Skólaforeldrar í aðalhlutverki

Margrét V. Helgadóttir skrifar

Nú í haust hófu um það bil 1.400 nýir nemendur skólagöngu í 1. bekk í grunnskólum Reykjavíkur. Við þau tímamót er gaman að láta hugann reika til þess dags þegar við foreldrarnir vorum í þessum sporum og mættum full eftirvæntingar fyrsta skóladaginn. Þetta er stór dagur fyrir börnin en ekki síður fyrir okkur foreldrana. Litlu ungarnir okkar á leið inn í tíu ára grunnskólaferðalag og við teljum okkur jú vita manna best hvað þau eiga eftir að læra og reyna á vegferð þessari.

Það er ekki hlaupið að því að fá örorkumat

Hilmar Guðmundsson skrifar

Að vera öryrki er hugtak sem erfitt er að útskýra. Örorka er afleiðing slysa eða sjúkdóma sem viðkomandi hefur orðið fyrir á lífsleiðinni. Það að verða öryrki er langt og flókið ferli. Ef viðkomandi er á vinnumarkaði við slys fær hann laun í veikindaleyfi samkvæmt samningi þess verkalýðsfélags sem hann er í. Veikindalaun greiðast eftir áunnum réttindum, en því næst fær hann greitt frá sjúkrasjóði síns stéttarfélags. Mismunandi er hvað þær greiðslur berast lengi, en yfirleitt ekki meira en ár. Því næst fer fram mat á því hvort viðkomandi geti farið í endurhæfingu sem er líkleg til að skila árangri. Ef svo er þá er sótt um endurhæfingarlífeyri, annars er sótt um örorkulífeyri. Viðkomandi getur einnig farið í örorkumat hjá lífeyrissjóði sínum.

Hvatning til kennara

Ragnar Halldórsson skrifar

Kennarar þurfa hvatningu og þakklæti eins og aðrir. Að fá jákvæð viðbrögð við góðri frammistöðu til að gera sitt besta. En þetta gleymist því miður allt of oft.

Aukið öryggi á norðlægum slóðum

Gunnar Alexander Ólafsson og Elvar Örn Arason skrifar

Umtalsverðar breytingar hafa orðið á framkvæmd varnarstarfsins við Bandaríkin eftir brottför varnarliðsins árið 2006. Breyttar aðstæður á alþjóðavettvangi kölluðu á endurskoðun á stefnu íslenskra stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum.

Getum við ekki lyft umræðunni upp á hærra plan?

Ólafur Sigurðsson skrifar

Heilsustofnun NLFÍ (HNLFÍ) þjónustar um 1.700-2.000 Íslendinga á ári. Stofnunin er með þjónustusamning við ríkið, þar sem tiltekið er hvaða þjónustu eigi að veita og hvað greitt er fyrir. Okkur reiknast til að við veitum ríkinu mjög ódýra þjónustu. Við fullyrðum einnig að starf HNLFÍ hefur skilað þjóðfélaginu aftur því sem lagt er í það, með heilbrigðari einstaklingum. Hér var líka tekið til hendinni í kjölfar kreppunnar. Skorinn niður kostnaður frá 2009 um tæp 30%. Þrátt fyrir það hefur okkur verið hótað meiri niðurskurði nánast árlega.

Sjá næstu 50 greinar