Fleiri fréttir

Um rithöfundalaun

Rithöfundar á Íslandi geta sótt um laun í tvo opinbera sjóði, Launasjóð rithöfunda sem er hluti listamannalauna og Launasjóð fræðiritahöfunda hjá Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís).

Rányrkja á makríl

Makalaust er að hlusta á viðbrögð íslenskra ráðamanna og útvegsmanna við óskum Evrópuþjóða um að við höldum aftur af okkur við makrílveiðar. Makríll er nýja silfrið á Íslandsmiðum. Allir muna hvernig fór með síldina. Hún var hreinsuð upp og stofninn hefur ekki borið sitt barr síðan.

Hve lengi tekur Ölfusá við?

Benedikt Jóhannsson skrifar

Opið bréf til Elvu Daggar Þórðardóttur, formanns framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar. Sæl Elva

Sátt um eignarhald á orkufyrirtækjum – norræna leiðin

Umræða um orkumál hefur verið fyrirferðarmikil í þjóðmálaumræðunni að undanförnu, ekki síst um eignarhald á orkufyrirtækjum. Sitt sýnist hverjum um þetta efni. Sumir eru þeirrar skoðunar að eignarhaldið eigi alfarið að vera í höndum opinberra aðila. Aðrir telja sjálfsagt að einkaaðilar eigi orkufyrirtækin - ríkið eigi hvergi að koma þar nærri. Minna hefur farið fyrir sáttasjónarmiðum, málamiðlunum, vangaveltum um skynsamlegar leiðir sem annars staðar hefur náðst ágætt samkomulag um.

Samfélag fyrir alla

Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða veitt í fjórða sinn 3. desember nk. Þá verðlaunar Öryrkjabandalag Íslands þá sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Megintilgangur verðlaunanna er að varpa ljósi á þá sem hafa með jákvæðum hætti stuðlað að einu helsta baráttumáli Öryrkjabandalags Íslands: einu samfélagi fyrir alla.

Oft var þörf en nú er nauðsyn

Hinn svokallaði stöðugleikasáttmáli sem gerður var fyrir um ári síðan hefur snúist upp í andhverfu sína. Engin sátt er milli aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um hvernig við minnkum atvinnuleysi og leysum erfiða stöðu ríkissjóðs.

Pólitísk misbeiting eða fagmennska við stöðuveitingu?

Margrét S. Björnsdóttir skrifar

Stundum þarf að segja hlutina eins og þeir eru. Íbúðalánasjóður er lykil fjármálastofnun í okkar samfélagi með 800 milljarða eignir og tugmilljarða veltu á ári. Sjóðurinn er í miklum vanda, vegna erfiðrar skuldastöðu heimila, en einnig vegna taps á kaupum sjóðsins á skuldabréfum af hinum föllnu viðskiptabönkum.

Ný hugmynd að skemmtilegri helgi

Kæru íbúar í nágrannasveitarfélögunum, ef það er einhver sem ennþá heldur að það sé óyfirstíganlega löng leið til Reykjanesbæjar þá tilkynnist hér með að við erum að tala um klukkustund og undir ! Skora á ykkur að prófa hina betrumbættu Reykjanesbraut, tvöföld með meiru og vel upplýst. Þessar góðu samgöngufréttir gætu aðstoðað ykkur við valið á því hvað gera skuli um helgina 2. - 5. september.

Aðlögun í boði ESB

Hörðustu Evrópusinnar hafa undanfarið reynt að telja lesendum Fréttablaðsins trú um að hægt sé að ná samningum við Evrópusambandið um stærstu hagsmunamál Íslands. Þessu er haldið fram þrátt fyrir að stækkunarstjóri Evrópusambandsins hafi gefið þá yfirlýsingu að Íslendingar fái ekki afslátt frá reglum ESB. Orð stækkunarstjórans koma heim og saman við orð evrópskra þingmanna sem heimsótt hafa Ísland á síðustu mánuðum. Ítrekað hefur komið fram að unnt væri að semja um tímabundnar undanþágur frá reglum ESB. Þá kemur það sama fram í svari utanríkisráðuneytisins við spurningum undirritaðs um varanlegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins. Málið virðist byggt á röngum forsendum, eða var þingheimur blekktur?

Misminni Sigurðar Einarssonar

Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings hf., segist í viðtali við Fréttablaðið laugardaginn 28. ágúst sl. hafa sem formaður nefndar um framtíðarstefnu á fjármálasviði fengið bréf frá mér þar sem ég „leggist alfarið gegn… umræðu“ um hlutverk Seðlabanka Íslands sem lánveitanda til þrautavara.

Jón finnur smugu

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur valið þá leið sem óhagstæðust er fyrir neytendur þegar hann ákveður hvernig tollar skuli lagðir á innfluttar landbúnaðarvörur, eins og fram kom á neytendasíðu Fréttablaðsins í gær.

Auðlindir, að nýta eða misnota?

Flestir kannast við þann mun sem felst í að nýta eða að misnota. Þegar ég á góðan vin þá get ég nýtt mér vináttuna þegar ég er í vandræðum og beðið um hjálp. Á móti mun ég einnig vera til að aðstoða hann þegar þörf er á. Þannig munum við bæði hafa gagn af því að vera vinir. En svo eru dæmi til að menn misnoti aðra. Misnotkunin felst í því að menn taka það mikið til sín að hinn aðilinn verður fyrir tjóni.

Foreldrar í skólabyrjun

Haustin eru heillandi tími. Skólarnir eru að hefja störf að nýju eftir sólríkt sumar. Eftirvænting ríkir meðal skólabarnanna - augnagotur og umhugsun um hvað veturinn muni bera í skauti sér. Það er ekki laust við að foreldrarnir fái líka fiðring í magann, kannski af gömlum vana.

Er botninn heppilegur áfangastaður?

Fjármálaráðherra hefur birt fjölda blaðagreina til að gleðja okkur landsmenn og freista þess að sannfæra okkur um mikinn árangur af störfum núverandi ríkisstjórnar.

Nýsköpun í ferðaþjónustu

Stundum er haft á orði að hver erlendur ferðamaður skilji að jafnaði 100.000 krónur eftir sig eða að hann jafngildi einu þorsktonni úr sjó. Fleiri ferðamenn eru velkomnir þó að einhvers staðar séu til þolmörk samfélags og náttúru. Geri mætti ráð fyrir að samfélagið legði áherslu á að styðja við nýsköpun, rannsóknir og þróunarstarf í geiranum. En þegar að er gáð fer margfalt minna fyrir slíku en stuðningi við hefðbundinn iðnað og alls kyns framleiðslu.

Ross Beaty sýnir sitt rétta andlit

Á forsíðu Fréttablaðsins í dag blasir við fyrirsögnin: „Vill síður selja orku til álvera.“ Þar er sagt frá því að Ross Beaty, hinn erlendi eigandi Magma Energy, lýsi þeirri skoðun í bréfi til iðnaðarráðherra að æskilegra sé að selja græna orku frá Hitaveitu Suðurnesja til annarra fyrirtækja en álvera. Slík fyrirtæki séu að auki reiðubúin að greiða mun hærra verð fyrir orkuna. Hljómar vel, ekki satt?

Landið tekur að rísa! - Grein 6

Í greinaflokki þessum undir heitinu „Landið tekur að rísa" hefur verið fjallað um aðdraganda og orsakir hrunsins sem hér varð, aðgerðir ríkisstjórnarinnar því tengdu, árangur aðgerðanna, hin ærnu verkefni framundan og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ég tel mig hafa fært fyrir því traust og tölfræðilega studd rök að það gríðarmikla verkefni sem núverandi ríkisstjórn fékk í fangið er á góðri leið með að takast. Við erum á réttri leið þó heilmiklar brekkur séu eftir. Og þá að framtíðinni og þeirri staðreynd að tækifærin sem landið hefur til að endurreisa sig og skila okkur á ný lífskjörum eins og best þekkjast í heiminum eru óteljandi.

Gefðu oss Guð, meira þras!

Gefðu oss Guð, meira puð.“ Þannig hljóðar brot af þjóðþekktum texta. Þetta var ort á þeim árum þegar „meira puð“ var einna eftirsóknarverðast í augum Íslendinga. Nú er þrasið orðið puðinu yfirsterkara.

Samtök lánþega í hlutverki ASÍ og SA

Á næstu dögum verða tvö lykil-mál flutt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, hvar tekið verður á öllum vafaatriðum sem hugsanlega er hægt að finna til er varða erlenda/gengistryggða lánasamninga tiltekinnar bankastofnunar. Þessi mál eru kostuð af Samtökum lánþega og vilja samtökin þannig stuðla að því að allir lánþegar njóti góðs af þeirri vinnu sem lögð er í þessi tilteknu mál. Í öðru málinu er um að ræða lán til einkahlutafélags (Tölvupósturinn ehf.) en til einstaklings (Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir) í hinu málinu. Aðalmeðferð í máli Tölvupóstsins fer fram þann 25. ágúst og verður það flutt af Jóhanni Hafstein hdl. en Björn Þorri Viktorsson hrl. mun flytja mál Sveinbjargar þann 3. september. Í báðum þessum málum er tekið á verðtrygginga- og vaxtaákvæðum og einnig verður tekið á túlkun á jafnvirðishugtaki sem og vafaatriðum er varða lán sem hugsanlega eru erlend, en gengistryggð í íslenskum krónum.

Að semja eða semja ekki

Jón Steindór Valdimarsson skrifar

Ísland og ESB hófu formlegar samningaviðræður um aðild Íslands að ESB þann 27. júlí 2010. Það er merkur áfangi í samskiptasögu landsins við umheiminn og rökrétt framhald vaxandi samskipta og samvinnu við þau 27 ríki sem eiga aðild að ESB.

Landið tekur að rísa! - Grein 5

Íslendingar eru sjálfstæð og fullvalda þjóð með eigin örlög í sínum höndum. Þannig viljum við hafa það og það er stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

Staðarbófar og farandbófar

Um stjórnmál eru ævinlega skiptar skoðanir, svo sem liggur í hlutarins eðli. Sum atriði eru þó hafin yfir skynsamlegan ágreining í okkar samfélagi. Þannig er lýðræðisskipanin hafin yfir allan vafa. Um þetta sagði George Brown, utanríkisráðherra Bretlands 1966-68: „There shall be no one to stop us from being stupid if stupid we want to be." Með öðrum orðum: Lýðræði er algilt og óvefengjanlegt líkt og önnur mannréttindi og leyfir engin frávik, engar undantekningar. Lýðræði er æðra öðru stjórnskipulagi óháð því, hvort það skilar almenningi betri kjörum en til dæmis einræði, fáræði eða þjófræði (e. kleptocracy). Lýðræði er samt ekki alltaf samfelldur dans á rósum, segja sumir. Um þetta sagði Winston Churchill, forsætis-ráðherra Bretlands í stríðinu: „Lýðræði er versta stjórnskipulagið, nema allt hitt er enn verra."

Að sýna ekki öll spilin

Andrés Pétursson skrifar

Það er mér bæði ljúft og skylt að svara áskorun Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns, um svar vegna ummæla Stefan Fule, stækkunarstjóra ESB um varanlegar sérlausnir fyrir einstök aðildarlönd Evrópusambandsins.

Vill órólega deild VG fella stjórnina?

Órói virðist hafa aukist innan Vinstri grænna vegna stjórnarsamvinnunnar við Samfylkinguna. Síðasta upphlaup VG vegna Magma málsins var stórt og ekki enn séð fyrir endann á því. Stuttu áður var upphlaup hjá VG vegna umsóknarinnar um aðild að ESB en því máli var frestað til hausts. Það var þó í stjórnarsáttmálanum að sækja ætti um aðild að ESB þannig að ekki var ástæða til þess að efna til upphlaups út af því máli. Stærsta upphlaupið var þó vegna Icesave-málsins en þar var ágreiningur svo mikill, að Ögmundur Jónasson þá heilbrigðisráðherra, sagði af sér ráðherraembætti í mótmælaskyni við stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu.

Var rannsóknarskýrsla lífeyrissjóðanna tilbúin í vor?

Landssamtök lífeyrissjóða tilkynntu föstudaginn 20.08.2010 að ríkissáttasemjari hefði skipað rannsóknarnefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna í landinu. Megin markmið nefndarinnar er að rannsaka fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegt umhverfi lífeyrissjóðanna. Það hljómar mjög vel að skoða eigi starfsemi lífeyrissjóðanna. Það eitt að frumkvæðið komi frá Landssamtökunum vakti aftur á móti undrun mína þar sem ég trúi að lífeyrissjóðirnir láti ekki gera svona skýrslu nema að niðurstaðan sé þegar tryggð?

Þeirra eigin orð II

Umræðan um hugsanlega aðild okkar Íslendinga að ESB er lífleg um þessar mundir. Hún hefur kallað á skoðun heimilda um þau málefni, sem hæst ber í rökræðunni. Ég sagði hér nýlega frá því, að mér hefði fundist bera dálítið á milli þess, sem fram kom í „Tengsl Íslands og Evrópusambandsins“, skýrslu Evrópunefndarinnar frá 2007, og málflutningi sumra nefndarmanna undanfarna mánuði. Önnur heimild barst mér nýlega og vakti svipaðar hugrenningar.

Landið tekur að rísa! - Grein 4

Steingrímur J. Sigfússon skrifar

Í fyrri greinum hefur verið farið yfir orsakir og afleiðingar bankahrunsins, þann árangur sem þegar hefur náðst í glímunni við kreppuna og staða þjóðarbúsins verið greind. Um leið og því ber að fagna sem áunnist hefur er engin ástæða til að draga dul á að mikil og erfið verkefni bíða úrlausnar. Nú verður farið yfir nokkur þau helstu hér innanlands. Þau sem bíða okkar í samskiptum við erlenda aðila verða reifuð síðar.

Aukið lýðræði í nýrri stjórnarskrá

Lýðræðishugsjónina þarf að hafa að leiðarljósi þegar ný stjórnarskrá er samin. Lýðræðið er aukið aðallega á tvennan hátt, með því að endurskipuleggja valddreifinguna í stjórnskipuninni og með meiri þátttöku borgaranna í pólitískum ákvörðunum.

Skólabyrjun

Ákveðinn sjarmi er alltaf yfir skólabyrjun á hverju hausti. Börnin fara af stað að morgni dags með tösku á baki, komast í sína rútínu, hitta félagana og fara yfir sumarið. Að mörgu er þó að hyggja til að allt fari rétt og örugglega fram. Umferðin er stór þáttur þar. Í raun skiptir ekki öllu hvort um byrjendur í skólagöngu er að ræða eða börn sem eru búin að vera lengur í skóla. Þau sem eldri eru taka oft meiri áhættu t.d. með því að stytta sér leið, sem er oftast ekki öruggasta leiðin.

Landið tekur að rísa! - Grein 3

Steingrímur J. Sigfússon skrifar

Almenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg íslenska hagkerfið hlaut við fall bankanna síðla árs 2008. Stærð þeirra og umsvif ollu því að vandi Íslands varð mun meiri en önnur ríki hafa staðið frammi fyrir af sambærilegum ástæðum. Um orsakir þessa hef ég þegar fjallað í fyrri greinum, en sný mér nú að jákvæðum teiknum sem eru á lofti í íslensku efnahagslífi.

Brennuvargar gagnrýna

Ýmsir krefjast afsagnar viðskiptaráðherra fyrir meint afglöp í tengslum við mat á gengistryggðum lánum, svokölluðum myntkörfulánum. Ekki sakar að rifja upp aðdraganda málsins.

Brotnar kirkjusögur

Sigríður Guðmarsdóttir skrifar

Fyrir fjórtán árum kom bréf inn um lúguna hjá mér. Bréfið var sent til allra starfandi presta þjóðkirkjunna og lýsti upplifun konu sem ásakaði þáverandi biskup um kynferðisbrot .

Frjálshyggjan og efnahagshrunið á Íslandi

Í umræðunni um efnahagsmál hefur mikið verið fjallað um þátt svonefndrar frjálshyggju í hruni efnahagslífsins á Íslandi og jafnframt hvort sú þróun sem hófst árið 1991 hafi verð upphafið af mesta góðæri á Íslandi eða upphafið að efnahagshruninu.

Kæri borgarstjóri - göngugata, ekki göngugata, göngugata?

Hvað er ráðandi við götumynd miðborgarinnar í dag? Eru það falleg hús eða mannlífið ? Eða er það kannski bíllinn sem er ráðandi í dag? Þú hefur á Facebook spurt spurninga varðandi lokun Austurstrætis fyrir bílaumferð og svokölluð "Shared space" sem bendir til að þú hafir áhuga á að breyta til og láta húsin og mannlífið vera ráðandi.

Um 2.000.000 ferkílómetra áhrifasvæði

Fyrir nokkru birtist greinin „Virkisturn í norðri?" í Morgunblaðinu eftir Ögmund Jónasson alþingismann sem valdið hefur töluverðu fjaðrafoki. Í greininni heldur Ögmundur því fram að ef Ísland „sameinist" Evrópusambandinu (ESB) stækki yfirráðasvæði sambandsins um tæp 10 prósent og áhrifasvæði (eftirlits- og björgunarsvæði) um 20 prósent. Áhrifasvæðið færi úr u.þ.b. 10 milljónum ferkílómetra í 12 milljónir ferkílómetra.

Þeirra eigin orð

Andstæðingar aðildarviðræðna við ESB hafa að undanförnu farið mikinn í fjölmiðlum, ekki síst í dagblöðum og á vefsíðum. Þar er víða haldið uppi hræðsluáróðri, ekki síst því, að einu gildi. um hvað verði samið við ESB, ekkert af því muni standa nema tímabundið. Talað er um, að samningar við ESB yrðu nánast einskis virði.

Föðurlandsást og þjóðernisstefna

Það getur verið erfitt að vera þjóðernissinni í dag. Oft er sett samasemmerki á milli þjóðernisstefnu og fasisma. Þeir sem helst gagnrýna þjóðernissinna eru þeirrar skoðunar að best sé að þurrka út allt þjóðerni og eitt tungumál eigi að duga öllu mannkyni.

Meirihluti nemenda verðskuldar meiri athygli

Ég þakka svör Ólafs H. Helgasonar og Guðmundar J. Guðmundssonar við grein minni frá 30. júlí s.l. Ekki get ég annað en brugðist við þó að það hafi í för með sér að enn víkur sögunni að því sem ég álít minniháttar vanda í skólakerfinu, þ.e. innritunarreglum í framhaldsskóla. Ég ítreka að tíma okkar sem höfum áhuga á skólamálum væri mun betur varið í að ræða alvarlegri mál, svo sem þá staðreynd að mun færri nemendur ljúka framhaldsskólanámi hér en eðlilegt getur talist. Sú staðreynd ein og sér ætti að duga til að sannfæra menn um að eitthvað er bogið við þá skipan skólamála sem við höfum vanist og aðkallandi að leita annarra leiða til að tryggja fleirum menntun.

Varnarsamtök íslenskunnar

Nokkrar umræður hafa verið undanfarið í þessu blaði um íslenskuna og þá einkum um hvernig eigi að leiðbeina fólki um málfar. Er það vel, hollt er að skiptast á skoðunum um tungumálið og fátt verra en skeytingarleysið, en það kemur fram í því þegar mönnum er sama hvernig íslenskan er notuð og hvort svo er. Engu er líkara en hún sé farin að þvælast fyrir fólki sem er tamara að grípa til enskunnar sem er þó jafnvel hvorki fugl né fiskur.

Skila verkferlar gegn kynferðisofbeldi árangri?

Á síðustu árum hafa skotið upp kollinum gömul mál þar sem ásakanir á hendur fyrrverandi biskupi Íslands um kynferðisofbeldi koma við sögu. Þegar ásakanirnar á hendur biskupi komu fram var ég í guðfræðinámi, sótti safnaðarstarf í Langholtskirkju og sinnti barnastarfi í afleysingum. Ég átti barn hjá dagmömmu í hverfinu. Við urðum góðir kunningjar og einn daginn trúði hún mér fyrir því að biskup Íslands, sem hefði m.a. gift þau hjónin hefði leitað á hana kynferðislega með nokkuð alvarlegum hætti.

Enn um „Lebensraum“

Haukur Hauksson gerir athugasemdir við grein mína um A-Evrópu stækkun ESB og hvernig sú stækkun hafði áhrif á þróun mála í Úkraínu. Ég fagna skrifum Hauks enda eru fáir sem þekkja þessi lönd betur en hann. Ef til vill tók ég of stórt upp í mig varðandi Úkraínu og biðst ég forláts á því. Ég byggði þessi ummæli á fréttaflutningi frá landinu á þeim tíma en þá var mikið talað um áhyggjur Rússa af þróun mála í Úkraínu. Hins vegar er það staðreynd að forráðamenn Evrópusambandsins vöruðu þá sterklega við því að skipta sér af innanríkismálum landsins. Það hlýtur að hafa haft áhrif á Rússana að landamæri nýju aðildarlanda ESB þ.e. Póllands, Slóvakíu, Ungverjalands og Rúmeníu liggja öll að Úkraínu.

Nokkur orð um skiptingu auðlinda þjóðarinnar

Núna eru nokkur uppsjávarvinnsluskip að búa til mikil verðmæti úr makríl sem leitað hefur inn í íslenska landhelgi. Þetta er fisktegund sem íslenskir útgerðarmenn hafa engan nytjarétt á, því það eru sjómenn í nágrannaríkjum okkar sem hafa nýtt þennan stofn fram að þessu.

Kirkjan og kynferðisofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi er alvarleg staðreynd í samfélaginu. Allar stofnanir og félagasamtök, ekki síst þau sem vinna með og í þágu barna og unglinga þurfa að vera á varðbergi og skoða starfshætti sína í því ljósi.

Sjá næstu 50 greinar