Fleiri fréttir

Afburðamenn og örlagavaldar

Í vikunni afhjúpuðu fornleifafræðingar salarkynni sem þeir telja að hafi tilheyrt Neró Rómarkeisara, sem ríkti frá árinu 54 til 68 eftir Krist. Veislusalur þessi þykir mikið verkfræðiundur því hann er búinn þeim kosti að geta snúist í hringi fyrir vatnsafli. Það verður ekki af Neró tekið að hann hugsaði stórt. Hverjum dettur í hug að reisa veislusal sem snýst í hringi?

Millibilsástand

Einar Már Jónsson skrifar

Ég hef áður sagt frá því hvernig nýjar starfsgreinar fara nú að blómstra á þessum krepputímum og afsanna það svartagallsraus andstæðinga frjálshyggjunnar að menn þurfi að verða atvinnulausir ef þeim er sagt upp á einum stað. Nefndi ég sem dæmi hina nýju leigubíla sem ætlaðir eru konum einum og gera ekki síst út á þann nýja markað sem olíufurstafrúr og -dætur frá Austurlöndum mynda þegar þær koma í innkaupaferð til Parísar. Önnur stétt manna hefur einnig skotið upp kollinum að undanförnu, þeir kalla sig hljómmiklu en ákaflega sakleysislegu nafni sem því miður er ekki hægt að þýða á íslensku án þess að úr því verði dálítið klúður: þeir eru sem sé „stjórnendur millibilsástands" En öfugt við hinar rósrauðu bílstýrur, sem hafa ekkert á móti því að um starf þeirra sé fjallað í fjölmiðlum, láta þeir lítið á sér bera og forðast sem mest að vera í sviðsljósinu. Best er að sem fæstir viti um þá aðrir en þeir sem ráða þá til vinnu.

Biðjum og styðjum

Núna þegar ár er liðið frá efnahagshruninu eiga margar fjölskyldur í miklum fjárhagserfiðleikum. Sumar eiga vart til hnífs og skeiðar. Fyrir ári hefði engan órað fyrir að fólk sem þá var vel bjargálna þyrfti stuðning nú Stofnanir og hjálparsamtök hafa brugðist við stóraukinni þörf fyrir stuðning og hefur aðstoð þeirra margfaldast á einu ári.

VG á tímamótum

Fátt bendir til annars en að ríkisstjórnin lifi af brotthvarf Ögmundar Jónassonar úr heilbrigðisráðuneytinu. Hvort stjórnarsamstarfið er á vetur setjandi er allt annað mál.

Tímabært að Fréttablaðið birti minningargreinar

Það er mat margra sem komnir eru fram á og yfir miðjan aldur að sá hluti Morgunblaðsins sem hvað erfiðast sé að láta framhjá sér fara sé minningargreinarnar. Takist ekki að fylgjast með andlátstilkynningum eða skanna minningargreinar reglulega sé ávallt sú hætta fyrir hendi að andlát gamalla vina, kunningja eða fólks sem tengist vinum og vandamönnum fari einfaldlega framhjá manni.

Ekki okra á örygginu

Andrés Ingi Jónsson skrifar

:Á alþjóðlega getnaðarvarnadeginum sem haldinn var fyrr í vikunni bárust Íslendingum slæm tíðindi. Hrun hefur orðið í sölu smokka síðastliðið ár samhliða því að verð þeirra hefur tvöfaldast. Sömu sögu er að segja af öðrum getnaðarvörnum. Þetta er heilbrigðisvandamál og félagslegt mein sem verður að bregðast við. Þetta er vandamál sem snertir ungt fólk sérstaklega mikið. Þó að nú sé kreppa mega stjórnvöld ekki skorast undan því að tryggja aðgengi að ódýrum og öruggum getnaðarvörnum.

Heilbrigðiskerfið – úr vörn í sókn

Heilbrigðiskerfið er ein af grunnstoðum þjóðfélagsins. Það er auðlind sköpuð af mönnum í þeim tilgangi að auka velferð þegnanna. Auðlindin er þekking starfsmanna, búnaður, tæki og húsakostur, fjármögnuð með tekjum og sköttum landsmanna. Starfsemin snýst um að fyrirbyggja heilsuleysi eða breyta því í heilsu. Afurðin og hagnaðurinn er góð heilsa landsmanna sem er undirstaða alls atvinnulífs sem ætti erfitt uppdráttar án starfhæfra einstaklinga.

Ávextir fjölmenningarsamfélagsins

Fólksflutningar hafa verið hluti af mannkynssögunni frá upphafi til okkar daga. En samfara aukinni hnattvæðingu og vaxandi samskiptum ríkja á milli hafa fólksflutningar og málefni innflytjenda orðið flóknari.

Öryggi og hegðun barna á netinu

Hvað getum við gert til að efla öryggi í tækni- og netnotkun barna og unglinga? Við þurfum að byrja á því að sá fræinu. Það gerum við með því að virkja þá sem eru í kringum okkur, til dæmis foreldra, skólastjórnendur og alla sem geta komið að þessu verkefni, með jákvæðu hugarfari til að kenna okkur sem yngri erum að fara að með gát.

Breyttir tímar kalla á nýjar lausnir

Á dögunum hélt Sheila Riddel, prófessor við Edinborgarháskóla, erindi á málstofu í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands um aðgengi fatlaðra að háskólanámi í Bretlandi. Hlutfall fatlaðra í háskólanámi á Íslandi hefur lengst af verið lágt og hefur slæmt aðgengi og skortur á stuðningi háð þeim í náminu.

Yfirdrátturinn

Dr. Gunni skrifar

Hér kem ég með allt niður um mig og játa það möglunarlaust: Ég er óreiðumaður! Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Einu sinni var bankakerfið þannig að manni tókst ekki eins auðveldlega að verða óreiðumaður. Ég átti alltaf pening og skuldaði aldrei neitt í gamla daga, allavega í minningunni. Maður fór til útlanda með ferðatékka og seðlabúnt. Kreditkort voru ekki til. Maður skammtaði sér aur í þrjár vikur, en datt svo auðvitað inn í alltof góða plötubúð og eyddi um efni fram. Mér er minnisstæð síðasta vikan í Interrail-ferðinni 1983. Þá gisti ég á farfuglaheimili sem hafði þann ókost að manni var hent út á milli kl. 9 og 17.

Aðlögun

Síðustu árin fyrir hrun lifði íslenska þjóðin um efni fram. Að okkur var haldið erlendu lánsfé, innistæðulaust framboð húsnæðislána einkabanka ýttu undir verðbólgu og eftirspurn og rangar aðgerðir stjórnvalda í skattalækkunum og fjárfestingu kyntu svo enn undir bólunni. Allt þetta hrundi svo á okkur fyrir réttu ári síðan.

Lýsing á heimilum – gló- eða flúrlýsing?

Sólin er sá ljósgjafi sem sjón mannsins hefur þróast við frá upphafi. Þar með hlýtur sólin að vera sá ljósgjafi sem best er til þess fallinn að lýsa manninum við hvers kyns sjónstarf. Og þar af leiðir að sá raf-ljósgjafi sem mest líkist sólarljósinu hlýtur því að vera sá heppilegasti af þeirri gerð til að lýsa heimili okkar.

Þröng staða – þrjár leiðir

Þorvaldur Gylfason skrifar

Íslendingar eiga nú um þrjár leiðir að velja út úr þeirri þröngu stöðu, sem gömlu bankarnir komu landinu í með fulltingi stjórnmálastéttarinnar og stjórnenda nokkurra stórfyrirtækja. Fyrsti kosturinn er að halda í þau áform, sem lýst er í efnahagsáætlun stjórnvalda í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) í nóvember 2008, og endurskoða þau eftir því sem aðstæður breytast. Næsti kostur er að hafna lánsfé AGS, en halda áfram að þiggja ráð sjóðsins. Þriðji kosturinn er að hafna bæði lánsfénu og ráðunum og róa á önnur mið. Athugum þessar þrjár leiðir í öfugri röð.

Stóraukið mikilvægi internetsins í viðskiptum fyrirtækja

Með vaxandi áhrifum internetsins hafa orðið miklar breytingar á möguleikum í markaðssetningu á milli fyrirtækja og núna, þegar kynslóðaskipti verða í stjórnum fyrirtækja og við taka aðilar sem hafa mun betra tölvulæsi en fyrirrennarar þeirra, breytist þetta en meira.

Sáttmáli um yfirfæranlegt tap almennings

Það er ljóst að æ fleiri almennir borgarar eiga í greiðsluerfiðleikum, hvort sem um ræðir íbúðalán eða lán til neyslu. Vandinn er stór og enn hefur engin fær leið fundist sem leysir vandann sársaukalaust.

Hver er ímynd Íslands?

Heimurinn allur hefur orðið fyrir skaða af völdum fjármálakreppunnar. Mismunandi er þó hvaða áhrif slíkt hefur haft á ímynd þjóðanna. Flestum er orðið ljóst að lönd og þjóðir þurfa að huga að því að vera sýnileg og reyna að hafa áhrif á ásýnd og orðspor landanna. Góð ímynd af landi og þjóð er m.a. talin auka útflutning, erlendar fjárfestingar, straum ferðamanna og alþjóðleg pólitísk áhrif. Horfa verður þó til þess að lönd hafa mismunandi ímynd með tilliti til þessara þátta og ágreiningur er um hvort í raun er hægt að mæla heildarímynd þjóðar.

Beint lýðræði

Jón Sigurðsson skrifar

Mikil ástæða er til að vekja athygli á hugmyndum um beint lýðræði og reynslu af því meðal þjóðanna. Fræg er reynsla Svisslendinga, Íra og Dana svo að nálæg dæmi séu nefnd. Þvert á móti þeirri reynslu er sú tilhögun Þjóðverja að aldrei skuli efnt til þjóðar­atkvæðagreiðslu, vegna þess að harðstjórar geta beitt þeirri aðferð til að styrkja ofurveldi sitt.

Prófsteinn á nýja Ísland

Tryggvi Agnarsson skrifar

Við köllum það nýja Ísland, sem við reisum á rústum gamla landsins okkar. Við teljum okkur nú reynslunni ríkari og viljum að nýtt þjóðfélag okkar verði byggt á lýðræði og jafnrétti og við berjumst af öllum mætti gegn sérhagsmunagæslu, spillingu, skattpíningu og sóun.

Það sem landneminn fann ekki

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Kristófer Kólumbus var víst afskaplega önugt og leiðinlegt gamalmenni. Hann var reyndar ekki svo gamall þegar hann hrökk upp af; einmana og ómeðvitaður um að hafa farið til Ameríku.

Skjaldborg fyrir okkur öll

Eygló Harðardóttir skrifar

Þegar Samfylkingin sleit samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn var sagt að þar sem Jóhanna Sigurðardóttir kæmi að, þar ynnust verkin. Slá átti skjaldborg um heimilin og byggja velferðarbrú fyrir fjölskyldurnar í landinu enda Jóhanna talin þekkt fyrir sköruglega verkstjórn. Því er ekki að undra að þjóðin hafi að undanförnu velt fyrir sér hvar Jóhanna Sigurðardóttir sé.

Hvers konar verðtrygging?

Þorkell Helgason skrifar

Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi, hefur lagt til að verðtrygging lána miðist fremur við laun en neysluverð. Þannig tengist greiðslubyrðin beint við afkomu lángreiðenda. Hængurinn er sá að til lengdar litið hafa laun hækkað meira en verðlag og svo verður vonandi í framtíðinni. Í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í gær er t.d. bent á að launavísitala hafi hækkað um 29% umfram vísitölu neysluverðs síðan 1991. Því er hæpið að lántakendum sé greiði gerður með tengingu höfuðstóls við laun.

Þar spretta laukar

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Í hrakveðursrigningu verður maður að manna sig upp og fara út og ganga frá laukabeðunum. Reyndar er ekki nema hálft beð eftir: snemma í ágúst var drifinn mannskapur í að hreinsa fallna stöngla ofan af og stinga laukana undir upp, grisja, henda skemmdum laukum, hreinsa þá sæmilega stóra af hismi og örverpum og smáhýðum sem voru að vaxa af rótinni. Þá líður manni eins og farandverkamanni á laukagarði í Niðurlöndum. Utan hendurnar eru ekki útataðar í sterafullum og áburðarsjúkum jarðvegi, heldur bara íslenskri moldardrullu.

Ofbeldisvæðingin

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Fimm ára stúlka var stungin með eggvopni af ungri konu í Keflavík, og liggur þungt haldin á Landspítalanum. Grunur leikur á að konan hafi verið að hefna sín á foreldrum, samkvæmt fjölmiðlum gærdagsins, en ekki er ljóst þegar þetta er skrifað, fyrir hvað. Í gær var líka viðtal við lögreglustjóra Suðurnesja, sem segir skipulagða glæpastarfsemi finnast í umdæminu. Þar séu bæði innlendir og erlendir hópar sem fylgst sé vel með. Hættumat greiningardeildar þjóni embættinu og hún mæli með að fleiri umdæmi verði greind með sambærilegum hætti.

Bónusar bankamanna

Jón Kaldal skrifar

Ofurlaun og fjallháir bónusar forstjóra fjármálafyrirtækja tilheyra fortíðinni á Íslandi, að minnsta kosti í bili, en eru ennþá deiluefni annars staðar. Þetta mál var meðal annarra sem leiðtogar tuttugu helstu iðnríkja heims ræddu á fundi sínum í Pittsburgh á dögunum.

Samkeppni á samdráttartímum

Eitt af því mikilvægasta sem huga þarf að við endurreisn íslensks efnahagslífs er hvernig tryggja má að hagkerfi framtíðar­innar geti skilað landsmönnum sem bestum lífskjörum á næstu árum og áratugum. Í þeirri vinnu þarf augljóslega bæði að horfa til þess sem vel var gert á undan­förnum árum og þess sem fór úrskeiðis. Við þurfum að byggja á því fyrra og koma í veg fyrir að það síðara geti endurtekið sig. Við getum einnig horft til reynslu annarra landa af alvarlegum efnahagsáföllum og hvað hefur gefist vel og hvað illa við að vinna á þeim.

Norrænt velferðarkerfi á Íslandi III

Öryrkjabandalag Íslands leggur þunga áherslu á að í næstu fjárlögum verði þær skerðingar sem lagðar voru á lífeyrisþega í sumar dregnar til baka. Því lengri tími sem líður er meiri hætta á að þær festist og þau loforð að þetta væru aðeins tímabundnar ráðstafanir gleymist. Eftir mikla vinnu lagði nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins fram drög að skýrslu um nýskipan almannatrygginga með tillögum að breytingum á kerfinu. Þar er margt áhugavert og jákvætt, en ÖBÍ gerir þó nokkrar athugasemdir og hefur skilað umsögn þar um. Þar er lögð áhersla á að kjör lífeyrisþega verði ekki skert meira en orðið er.

Samræður við þjóðina

Gerður Kristný skrifar

Allir virtust hafa skoðun á því hver ætti að verða næsti ritstjóri Morgunblaðsins en aðallega þó á því hver ætti alls ekki að verma ritstjórastólinn. Fátt þráir fólk meira en stöðugleika og það er einmitt það sem Morgunblaðið þótti sýna hér í eina tíð. Þar störfuðu sömu ritstjórarnir áratugum saman og allir vissu fyrir hvað þeir stóðu. Og þar sem Ólafur Stephensen hafði unnið undir þeim árum saman var ráðning hans ekkert sérstaklega óþægileg. Hann var hluti af gamla Mogganum en þorði samt að bjóða upp á nýjungar.

Seðlabanki Íslands heldur þversögninni áfram

Valdimar Ármann skrifar um stýrivexti Seðlabanki Íslands er samur við sig og heldur áfram hávaxtastefnu sinni og þversögnum. Engin viðleitni er sýnd til að koma Íslandi í gang aftur eða skilja önnur sjónarmið. Margir hafa stigið fram og rökstutt það að lægri vextir myndu auka trúverðug­leika Íslands, losa um innlent fjármagn sem mun leita í arðbær verkefni og að lokum þess vegna styðja við gengi krónunnar.

Frumskógar- lögmálinu hafnað

Árið 1906 sendi bandaríski sósíalistinn Upton Sinclair frá sér skáldsöguna Frumskóginn (e. The Jungle). Í henni segir af ömurlegum lífsaðstæðum innflytjenda úr verkamannastétt í kjötiðnaðarverksmiðjum Chicago. Þótt verkið sé í dag flestum gleymt voru áhrif þess á sínum tíma geysimikil. Hér á landi urðu til dæmis þeir Þórbergur Þórðarson og Halldór Laxness fyrir miklum áhrifum af Frumskóginum, eins og glöggt má sjá í Bréfi til Láru og Sjálfstæðu fólki.

Formanni Evrópusamtakanna svarað

Sturla Böðvarsson skrifar um Evrópumál skrifar

Það er ánægjulegt að Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, skuli hafa lesið af áhuga það sem ég skrifaði um Evrópusambandið í vefritið Pressuna. Þar varpa ég fram spurningunni hvort aðild að Evrópusambandinu yrði „fórn eða björgunaraðgerð".

Hugsjónin um Evrópu

Oddný Sturludóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifa um Evrópumál skrifar

Eftir seinni heimsstyrjöldina blasti við siðferðislegt hrun í Evrópu. Álfan var í sárum og ljóst var að hörmungar tveggja styrjalda máttu ekki endurtaka sig. Sjö árum eftir styrjaldarlok var Kol- og stálbandalag Evrópu stofnað.

Prófsteinn í orkunýtingarmálum

Þorsteinn Pálsson skrifar

Í þessari viku fengu landsmenn enn eina staðfestingu á að óbreytt peningastefna getur ekki verið undirstaða endurreisnarinnar. Í næstu viku verða síðan kynntar niðurstöður um þrjá aðra prófsteina endurreisnarinnar: Orkunýtingaráformin, eignarhald á bönkunum og ríkisfjármálin.

Þjóðhagslega hagkvæm listamannalaun

Það eru mikil verðmæti fólgin í menningunni á Íslandi, og ekki síst beinar tekjur þrátt fyrir að öðru sé stundum haldið fram. Ferðamenn streyma til landsins til að njóta tónlistar og myndlistar, fara á söfn og á tónleika, í leikhús og flytja inn gjaldeyri í miklu magni, þetta eru beinar tekjur sem verslanir og þjónustufyrirtæki njóta góðs af.

Að tala við þjóðina

Atvinnurekendur vita að á tímum mikilla breytinga er gríðarlega mikilvægt að halda vel utan um starfsfólk sitt. Sameiningar fyrirtækja sem líta vel út á pappírnum geta oft mistekist vegna þess eins að stjórnendur gæta ekki að mannlega þættinum. Á breytinga- og umbrotatímum er nauðsynlegt að halda starfsfólki vel upplýstu, draga úr óvissu eins og kostur er og tryggja þannig stuðning við fyrirhugaðar breytingar. Án stuðnings starfsfólks eru meiri líkur en minni að illa fari - að breytingar nái ekki þeim árangri sem stefnt er að.

Ex

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Valéry Giscard d’Estaing var lengi vel eini eftirlifandi fyrrverandi forseti Frakklands og því oft kallaður Exið í frönsku pressunni.

Úr vörn í sókn!

Þráinn Bertelsson skrifar

Aldrei á minni lífsfæddri ævi hefur mér fundist Ísland eiga jafnbágt og núna. Sundrung ríkir og óvissa og kvíði nagar þjóðarsálina.

Nýttu kraftinn!

Það er sérstakt til þess að hugsa að nú sé að verða heilt ár síðan tilvera okkar Íslendinga fór hreinlega á hvolf í einu vetfangi. Það er einhvern veginn svo langt síðan en samt svo stutt, það hefur svo margt gerst en samt ekki neitt. Við erum enn stödd í óvissuskýi.

Að byggja betra samfélag

Steinunn Rögnvaldsdóttir skrifar

Þátttaka Vinstri grænna í ríkis­stjórn er mörkuð af risavöxnum verkefnum endurreisnar Íslands. Verkefnin eru mörg og erfið og ýmsum þykir ekki nóg að gert. Mig langar að fagna allri málefnalegri gagnrýni á verk VG í ríkisstjórn, og öllum raunhæfum tillögum um hvernig við getum staðið okkur betur við að endurreisa Ísland í anda velferðar, sjálfbærni og jafnréttis.

Kynferðisofbeldi ekki einkamál þjóða

Diljá Ámundadóttir skrifar

Nauðganir eiga ekki að vera einkamál þjóða eða samfélaga. Baráttan gegn kynferðisofbeldi er mannréttindabarátta og sem slík er hún óháð landamærum; kynferðisglæpir koma okkur öllum við, hvar á jarðkringlunni sem þeir eru framdir.

Helgi Hóseasson og staðfestar ógildingar

Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar

Baráttumál Helga Hóseassonar hafa oft verið illa misskilin. Fáir hafa í raun reynt að skilja hvers vegna hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn.

Komum atvinnulífinu á hreyfingu

Brynhildur Georgsdóttir skrifar

Hjá Nýja Kaupþingi hafa síðustu mánuðir verið notaðir til að undirbúa endurskipulagningu lánamála fyrirtækja í skuldavanda. Ljóst er að mörg fyrirtæki eiga nú þegar í miklum vanda óháð því hvort krónan styrkist eða

Hjálpartraust

Þorvaldur Gylfason skrifar

Vaknaðu, sagði konan mín. Klukkan var þrjú um nótt. Ég hlýddi og hlustaði með henni á dynki og brothljóð úr nærliggjandi íbúð, skerandi skaðræðisvein og formælingar með málvillum, fimm á Richter.

Sjá næstu 50 greinar