Skoðun

Biðjum og styðjum

Núna þegar ár er liðið frá efnahagshruninu eiga margar fjölskyldur í miklum fjárhagserfiðleikum. Sumar eiga vart til hnífs og skeiðar. Fyrir ári hefði engan órað fyrir að fólk sem þá var vel bjargálna þyrfti stuðning nú

Stofnanir og hjálparsamtök hafa brugðist við stóraukinni þörf fyrir stuðning og hefur aðstoð þeirra margfaldast á einu ári. Aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hefur vaxið úr rúmlega 900 þúsund krónum í september 2008 í um 8 milljónir króna í september 2009. Hjálparstarf kirkjunnar tekur á móti fólki og býður upp á mataraðstoð, aðstoð við að leysa út lyf, fatnað, skólavörur og fleira eftir aðstæðum. Ennfremur er þar veitt félagsleg ráðgjöf.

Næstu tvo sunnudaga 4. og 11. október verður safnað fé í kirkjum landsins til stuðnings við þurfandi fjölskyldur sem farið hafa illa út úr efnahagshruninu. Fólk er hvatt til að mæta í guðsþjónustur og leggja sitt af mörkum. Athygli er vakin á því að leggja þarf fram reiðufé því ekki er hægt að taka við framlögum í kirkjum með öðrum hætti.

Einnig er hægt að leggja inn framlag á reikning Hjálparstarfs kirkjunnar í gegnum styrktarsíðuna www.framlag.is eða heimasíðu starfsins www.help.is og á reikning Hjálparstarfsins kt. 450670-0499, reikningsnúmer 334-26-27.

Samskot í guðsþjónustum Þjóðkirkjusafnaða hafa ekki verið algeng þótt slíkt sé siður í kirkjustarfi um allan heim. Þó hafa nokkrar kirkjur á höfuðborgarsvæðinu tekið upp þennan háttinn og gefist vel.

Þeim fjármunum sem safnast í þessu átaki verður öllum varið til stuðnings þurfandi fjölskyldum á Íslandi.

Leggjum af mörkum eins og við getum. Biðjum og styðjum.

Höfundur er prestur.




Skoðun

Skoðun

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar

Sjá meira


×