Fleiri fréttir

Að verða háður innanflokksátökum

Hér er fjallað um átökin sem settu svip sinn á gamla Alþýðubandalagið og eru nú farin að taka sig upp í Samfylkingunni með sömu leikendum, hótelbruna í París, hnattvæðingu, reykingabann og gesti í brúðkaupi Karls og Camillu...

Erlendir verkamenn lúti lögum

Það vekur athygli að ágreiningsmál um vinnuréttindi útlendinga hafa í marga mánuði verið til meðferðar hjá sýslumanninum á Seyðisfirði, en þegar svipað mál kom upp á Suðurlandi var þetta afgreitt með hraði hjá embættinu á Selfossi. Þessi mál voru að vísu ekki alveg eins, en engu að síður vekur þessi mismunandi afgreiðsluhraði embættanna athygli.

Hjáróma raddir

Bush forseti um sönnunargildi þróunarkenningarinnar: "Kviðdómurinn hefur enn ekki kveðið upp úrskurð sinn".

Innflytjendur eiga að læra málið

Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið hér á landi virðist gæta vaxandi andúðar hjá ungmennum hér í garð útlendinga, og má í mörgum tilfellum því miður líkja afstöðunni við fordóma eða rasisma. Þetta er svipuð þróun og hefur átt sér víða annars staðar og af því eigum við að læra.

Peningalyktin í landinu

Það er eins og sama víman fylli þjóðina einhverju óbilandi sjálfstrausti. Og af því boðleiðirnar eru svo óhugnanlega stuttar - og þjóðin svo fámenn að hún rúmast öll í einu og sama samkvæminu - er um að gera að allir geri eins. Það er þetta sem gerir þjóðina einsleita.

Er ekki hvers manns hugljúfi

Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fylgdi sannfæringu sinni á Alþingi og mótmælti samgönguáætlun og er maður vikunnar.

Tvö ár

Innrásin í Írak - Erling Ólafsson sagnfræðingur Það er nú kannski það sem er alvarlegast við þessa atburði seinustu ára að þegar öfgasinnar vilja stjórna og umbylta heiminum þá eru notuð hvaða meðul sem eru, ekki í fyrsta skipti. Og þá er ekki horfst í augu við fórnarkostnaðinn; mannfall hermanna, dauða óbreyttra borgara, pyndingar, skepnuskap.

Ingibjörgu Sólrúnu til forystu

Formannskjör Samfylkingar - Elfa Birna Ólafsdóttir, leikskólakennari Þegar ég horfi yfir farinn veg núverandi ríkisstjórnar er mér efst í huga sú skoðanakúgun sem hefur tröllriðið íslensku samfélagi í stjórnartíð hennar. Hver hefur ekki upplifað það að vera kallaður neikvæður vegna þess eins að hafa aðra skoðun en hinir?

Strætó - slys

Almenningssamgöngur - Örn Sigurðsson, arkitekt. Telja verður að þeir hafi að þessu sinni sofið á verðinum á meðan samþykkt var að rýra umferðaröryggið með svo afgerandi hætti.

Vinstri Grænir, hvað nú?

Stjórnmál á vinstri vængnum - Hafsteinn Hjartarson Flokkurinn hefur sterka málefnastöðu og sterkan vinsælan formann. En honum virðist fyrirmunað að bjóða fram fólk sem sópar fylgi að flokknum.

Karpið um veginn

Frá sjónarmiði stjórnmálamanna er eðlilegt að leggja allt kapp á samgöngumál í eigin kjördæmi. Stjórnmálamenn hafa skýr dæmi fyrir framan sig um heldur tilþrifalitla stjórnmálamenn sem hafa haldið stöðu sinni í kjördæmum sínum og gott betur fyrir að hafa verið samgönguráðherrar með hagsmuni eigin kjördæmis að leiðarljósi

Tjáningarfrelsið og fjölmiðlar

Við eigum að standa vörð um ríkisútvarpið en við megum ekki láta það kæfa einkareknu miðlana. Við eigum að eiga rödd sem er óháð viðskiptasjónarmiðum. Og við eigum að eiga raddir sem eru óháðar stjórnmálaskoðunum. Við eigum að tryggja það að það séu skýrar reglur um umgengnina við máttarstólp lýðræðisins, um grundvöll allra okkar borgaralegu réttinda.

Smáfiskadráp

Bílstjórar bæjarins voru ekki í miklum vafa um morðtilræðin: stjórnin stóð sjálf á bak við þau, sögðu þeir, til þess að geta klínt þeim á stjórnarandstöðuna. Hver var drepinn í nótt? var fyrsta spurningin, sem maður lagði fyrir leigubílstjórana á morgnana.

Framhaldsskóla í Mosfellsbæ

Menntamál - Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar, græns framboðs Mosfellsbær er tiltölulega ungt en vaxandi bæjarfélag með hátt í 6.700 íbúa og hlutfall ungs fólks í þeim hópi er hátt. Bærinn er langstærsta sveitarfélag landsins sem ekki hefur eigin framhaldsskóla.

Skriður kominn á sjóminjasafnið

Stefán Jón Hafstein skrifar

Nýtt safn í Reykjavík - Stefán Jón Hafstein Fyrsta stóra verkefni safnsins er að setja upp sýninguna "Togaraöldin" í tilefni af 100 ára afmæli togaraútgerðar á Íslandi. Árið 1905 kom togarinn Coot til landsins og 1907 var togarinn Jón forseti smíðaður fyrir Reykvíkinga.

Uppeldi ökumanna framtíðarinnar

Umferðarstofa svarar leiðara Fréttablaðsins - Einar Magnús Magnússon Af hverju skildi Umferðarstofa sjá ástæðu til að taka á einhverjum fúkyrðaflaumi og dónaskap manna í umferðinni? Frá þessari hegðun er mjög stutt í áhættuhegðun sem getur reynst hættuleg. Þetta kemur fram í fjölda slysaskýrslna og vitnisburða um aðdraganda umferðarslysa.

Húsbrot og faldar myndavélar

Starfshættir fjölmiðla - Ingvar Gíslason Páli Benediktssyni væri nær að huga að hinu flóknara ferli þess heimsástands sem hvetur útlenda nauðleitarmenn til Íslands í atvinnuleit.

Hugleiðing um vald

Vinnustaðalýðræði - Hulda Björg Sigurðardóttir Keppni og valdabárátta eru upphafin í fréttum og afþreyingarefni um leið og varla er minnst á að ýmsir aðrir hæfileikar komi fólki vel og séu líklegri til þess að færa því hamingju.

Bush óvinsælli

Þórlindur Kjartansson skrifar

Þórlindur Kjartansson

Vafasamar afsökunarbeiðnir

"Í mínum huga er sekt einstaklingsbundin en leggst ekki á heilar þjóðir eða samfélög. Ég mun aldrei ásaka gervalla þýsku þjóðina, rétt eins og ég þoli ekki að heyra gervalla þjóð gyðinga verða fyrir ásökunum," sagði Simon Wiesenthal þegar ég tók viðtal við hann...

Bleikur litur er ekki nóg

Hvað er það við skotgrafirnar sem heillar svo marga á Íslandi? Er það kannski þægilegur skortur á útsýni?

Barátta innan Samfylkingarinnar

Þau Össur og Ingibjörg Sólrún eru bæði frambærileg í leiðtogahlutverkið og það verður líklega álit flokksmanna á þeim sem persónum sem ræður hvort þeirra verður formaður Samfylkingarinnar á fundinum í maí, málefnaágreiningur mun varla ríða þar baggamuninn.

Frægur sigur

Megas sextugur - Hann er Elvis-eftirherman sem hljómar stundum eins og langdrukkinn íslenskur sveitaprestur á 19. öld að tóna, stundum eins og ljúfur drengur, stundum eins og kátur púki - alltaf eins og rokk

Ógeðfelldar umferðarauglýsingar

Oft hefur verið rætt um að varasamt kunni að vera að nota börn í auglýsingum, nema vandað sé til verka, en þegar börn eru látin gretta sig og skæla i þessum auglýsingum og segja setningar eins og " drullaðu þér áfram kallpungur" og "færðu þig kelling" eða " ertu heilalaus hálfvitinn þinn", er skotið yfir markið.

Milliliðalaust samband við Guð

Hér er fjallað um arfleifð Jóhannesar Páls páfa, meints staðgengils Krists á jörð, lúterskar kirkjur með engum dýrlingum eða skrauti, myndir sem eru sýndar á kvikmyndahátíð og loks er minnst á hið umtalaða fyrirtæki Morgan Stanley...

Málin sem nefndir fjalla um

Til hvers að hafa þjóðkjörinn forseta sem má ekki vera annað en puntudúkka og svo forsætisráðherra sem kannski er kosinn af 15% þjóðarinnar, sem vílar og dílar við vini sína og samningabræður um alla hluti: hver á að eiga Símann, hver á að eiga bankana og almennt og yfirleitt hver má gera hvað klukkan hvað.

Fjórtán ára á Vog

Allt að tíu af hundraði sjúklinga sem koma á Vog eru þar vegna lyfja sem ávísað hefur verið af læknum. Sjúklingum í þessum flokki hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Þeir fá ávísun á róandi og örvandi ávanalyf og sterk verkjalyf.

Burt með reykinn

Veitingamenn hafa gert tillögu um bann við reykingum á stöðum sínum eftir tvö ár, en óþarft er að bíða svo lengi.

Ný fjölmiðlalög á hverju ári?

Báðar fjölmiðlanefndirnar og tillögur þeirra eru skyndiviðbrögð við hræringum sem hafa átt sér stað á íslenskum fjölmiðlamarkaði allra síðustu ár þar sem gömul valdahlutföll hafa riðlast.

Einn markaður - ein lög

Skýrsla fjölmiðlanefndar: Það sem á vantar er að frumvarpið um ríkisútvarpið verði afgreitt samhliða væntanlegu fjölmiðlafrumvarpi eða sem hluti af því.

Latur við húsverkin

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins og framherji hjá enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea, er maður vikunnar hjá Fréttablaðinu. Hann hefur, líkt og svo oft áður, verið í sviðsljósinu þessa vikuna með liði sínu Chelse, skoraði tvö mörk fyrir liðið í 3-1 sigri á Southampton á laugardaginn.

Vistarbönd nútímans

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar

Tíðarandinn - Sigmundur Ernir Rúnarsson Ég veit ekki hvort við yrkjum nokkurn tíma ljóð og sögur um Filippseyinginn, Tyrkjann og Lettann sem komust til Íslands á árþúsundaskiptunum og byrjuðu að vinna hér, byggja og fjölga sér - fíla frelsið.

Endurskoða þarf 24 ára reglu

Toshiki Toma skrifar

Útlendingalöggjöfin - Toshiki Toma Hvað kemur þá 24 ára aldurstakmark málamyndahjónaböndum við? Svo framarlega sem ég skildi, höfum við hingað til ekki verið upplýst um aldur þeirra sem hafa verið grunaðir um að ganga í málamyndahjónabönd. Er hann í flestum tilvikum lægri en 25 ár eða hvað? Hvers vegna 24 ára?

Þurfa grunnskólanemar trúaráróður?

Námsefni grunnskóla - Óli Gneisti Sóleyjarson  Persónulega hef ég ekkert á móti því að kennt sé um kristna goðafræði í skólum, ekki frekar en að kennt sé um ásatrú. Málið snýst um að námsefnið sé sett upp á heiðarlegan hátt í stað þess að um áróður sé að ræða.

Ástarsaga aldarinnar

Hér er fjallað um rómantískasta atburð seinni tíma, hjónaband Karls Bretaprins og Camillu Parker-Bowles og neikvætt viðhorf Elísabetar drottningar á þessari gleðistund...

Silfur Egils sex ára

Silfur Egils er sex ára núna um helgina. Þátturinn fór fyrst í loftið 11. apríl 1999 á Skjá einum, sem þá sýndi aðallega gamla Dallasþætti - fyrir alþingiskosningar sem voru þá um vorið. Var talin ástæða til að skerpa á fremur dauflegri pólitískri umræðu....

Ítalska leiðin kvödd?

Nú standa menn frammi fyrir spennandi umræðu um niðurstöður og tillögur nýju fjölmiðlanefndarinnar. Það að þverpólitískt samkomulag hafi náðst í nefndinni er vissulega gleðiefni. Hins vegar má ekki líta á slíkt samkomulag sem svo endanlegt að það frysti umræðuna og komi í veg fyrir breytingar og endurbætur.

Frábær tíðindi

Leikskólamál - Flosi Eiríksson Vonandi verður framganga Reykjavíkurlistans og yfirlýst stefna flokksþings Framsóknar um gjaldfrían leikskóla til að hjálpa framsóknarmönnum í Kópavogi að safna kjarki og þori til að greiða atkvæði eftir sannfæringu sinni.

Siðmennt styður fræðslu um kristni

Kristnifræðsla - Sigurður Hólm Gunnarsson Guðmundur Magnússon endurtekur rangfærslu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, gagnrýnislaust í grein undir liðnum Sjónarmið í Fréttablaðinu fyrir skömmu.

Vandi landsliðsins í knattspyrnu

Knattspyrna - Össur P. Valdimarsson Ófarir landsliðs okkar í knattspyrnu að undanförnu hafa ekki farið fram hjá mörgum.

Ný ríkisstjórn og ný verkefni

Stjórnmál - Lúðvík Gizurarson, hrl. Nýja ríkisstjórn vantar í dag með ný verkefni og nýjar áherzlur. Samfylkingin bauð Halldóri Ásgrímssyni eftir síðustu kosningar að verða forsætisráðherra í nýrri samstjórn Samfylkingar og Framsóknar án skilyrða.

Sjá næstu 50 greinar