Skoðun

Strætó - slys

Almenningssamgöngur - Örn Sigurðsson, arkitekt. Þann 24. ágúst sl. samþykkti Samgöngunefnd Reykjavíkur nýtt leiðakerfi Strætó bs. í formi 42 bls. plaggs, sem nefnist "Strætó - tillaga og greinargerð". Um það plagg má hafa mörg orð, en að þessu sinni einskorðast umfjöllunin við neikvæð áhrif nýja leiðakerfisins á umferðaröryggi innan íbúðarhverfa. Á bls. 8 má lesa efirfarandi: "Upphækkanir og hraðahindranir: Mjög brýnt er að ekki séu hraðahindranir í formi upphækkana þar sem strætisvagnar aka um. Þetta er afar brýnt þar sem stofnleiðir eiga í hlut og því mikilvægt að þegar verði hugað að öðrum ráðstöfunum, sem tryggja umferðaröryggi á þeim götum þar semstofnleiðir aka um". Þetta þýðir í raun að um 23 upphækkanir hverfa af götum í Breiðholti, 5 í Seláshverfi og 10 í Grafarvoghverfi þó engar aðrar ráðstafanir séu þekktar, sem gætu komið í stað þeirra svo umferðaröryggið á þessum stöðum yrði tryggt! Á fyrrnefndum fundi Samgöngunefndar Reykjavíkur þann 24. ágúst sátu 3 af 5 verkfræðingum á framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar (áður embætti Borgarverkfræðings) í Skúlatúni 2, sem starfa við umferðaröryggismál, Ólafur Bjarnason og undirmenn hans Baldvin Baldvinsson og Stefán A Finnsson. Telja verður að þeir hafi að þessu sinni sofið á verðinum á meðan samþykkt var að rýra umferðaröryggið með svo afgerandi hætti. Telja verður óhjákvæmilegt að íbúar í Breiðholti, Seláshverfi og í Grafarvoghverfi, sem þessi stór hættulega breyting bitnar á, bregðist við, bindist samtökum og hnekki þessum áformum með öllum tiltækum ráðum, t.d. með fundum í íbúasamtökum, skrifum í blöðin og innhringingum í spjallþætti og kröfubréfum til kjörinna fulltrúa, því hér er mikið í húfi. Göturnar, sem upphækkanirnar eru á, voru áður með mjög mörg slys, sem hurfu eftir að upphækkanirnar komu. Höfundur er talsmaður Höfuðborgarsamtakanna.



Skoðun

Skoðun

Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðar­efni

Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar

Sjá meira


×