Fleiri fréttir

Gerðardómur er sanngjörn leið

Á þessum vettvangi hefur áður verið hvatt til þess að gerðardómi verði falið að útkljá deiluna. Það er sanngjörn leið sem er hlutlaus gagnvart báðum aðilum, sveitarfélögunum og Kennarasambandinu.

Að hengja handlangara fyrir smið

Í rauninni var frjálsri samkeppni þröngvað upp á Íslendinga við inngönguna í EES. Fram að því aðhylltist valdastéttin á Íslandi þá óorðuðu kennisetningu að samkeppni í viðskiptum væri ekki bara óæskileg hér á landi heldur líka óhugsandi í svo smáu samfélagi.

Til eitursala og handrukkara

Undirheimarnir - Albert Jensen trésmiður Það sem gerir ykkur óhugnanlegri en aðrar plágur, er að slóð ykkar er stráð eiturháðum börnum og líkum ungmenna.

Þráinn, Hanna, Svanur og Margrét

Meðal gesta í Silfri Egils eru Þráinn Bertelsson, Margrét Frímannsdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Reynir Traustason, Hallur Hallsson, Svanur Kristjánsson og Sigfús Bjartmarsson...

Ísland í dag - í gær

"Ekki varstu svo óheppinn að hafa séð Ísland í dag í gær þar sem Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Þórhallur Gunnarsson ætluðu nú aldeilis að auka áhorfið og taka Þórólf Árnason borgarstjóra af lífi í beinni útsendingu?" spyr Karl Ferdinand Thorarensen

Höfundar, krítík og móralskt vald

Eitt sinn lenti ég í því að höfundur sem ég hafði fjallað um hrækti á eftir mér úti á götu. Annar sem ég gaf slæman dóm horfði árum saman á mig eins og sært dýr, en Kristmann ætlaði að láta lemja mig...

Borgarstjóri í kröppum dansi

En kannski liggur skýringin á breyttum viðhorfum ekkert síður hjá R-listanum sjálfum en hjá Þórólfi. Frá því að Ingibjörg Sólrún stóð upp úr stól borgarstjóra í ársbyrjun 2002 hefur sundurlyndi í vaxandi mæli einkennt listann og augljóst að valdabarátta á sér stað

Á R-listinn framtíð?

Ein foringjakreppa í viðkvæmu pólitísku samstarfi kann að vera eitthvað sem hægt er að sigrast á. Tvær slíkar foringjakreppur á einu og sama kjörtímabilinu kalla hins vegar á pólitískt kraftaverk.

Skotleyfi á kennara?

Viðhorf til kennarastéttarinnar - Alma Vestmann kennari Ég skora á þá kennara sem hafa barist fyrir betra skólastarfi að horfa til framtíðar og skoða vel þessa tillögu áður en þeir greiða atkvæði. Látið ekki stundarhagsmuni víkja fyrir betri framtíð.

Borgar sig að fjárfesta í börnum?

Börnin og kennararnir - Hulda Bjarnadóttir ljósmóðir Mikilvægi barna okkar ætti að koma fram í launum kennara.

Spurningar um fréttamennsku

Egill Helgason skrifar

G. Pétur Matthíasson skrifar um íslenskar og erlendar fréttir af loftslagsbreytingum í framhaldi af pistli sem birtist hér á síðunni og umræðu í Silfri Egils

Afgan

Baldur Andrésson skrifar um vopnaða íslenska liðsaflann í Afganistan og segir að tilhugsunin um íslenska óbreytta borgara með vélbyssur sé brjálæði

Bandaríkjaforseti

Þótt sigur Bush í kosningunum sé afgerandi og hann hafi meirihluta þeirra sem tóku þátt í kosningunum á bak við sig er ekki þar með sagt að hann hafi styrkt stöðu sína á jafn sannfærandi hátt í Evrópu og öðrum heimshlutum. Það er ekki nóg að stjórnvöld í einstökum löndum fagni endurkjöri hans, heldur verður hann líka að vera studdur af almenningi um heim allan ef honum á að farnast vel.

Æfur við hæstarétt

Hvers vegna er Mugabe forseta svo mjög í mun að troða frændum og vinum í hæstarétt? Spurningin svarar sér sjálf: ef spillingin í kringum forsetann kemur til kasta dómstólanna, þá ríður á því, að traustir menn sitji í hæstarétti.

Lengjum opnunartíma Háskólasafns

Háskólabókasafnið Jarþrúður Ásmundsdóttir formaður SHÍ Undanfarið hefur stúdentaráð, undir forystu Vöku, lagt allt kapp á að lengja opnunartíma Háskólabókasafnsins aftur.

Fólk mun flýja

Fékk svohljóðandi sms eftir smá krókaleiðum frá Ameríku í gær, eftir að ljóst var að Bush hafði verið endurkjörinn: "Fólk mun flýja NY, LA ofl borgir, til Europe og Kanada." Merkilegt er að sjá hvernig íbúar Bandaríkjanna skiptast í tvær fylkingar, annars vegar fólkið við strendurnar, austanmegin og vestan, og hins vegar fólkið inni í landi......

Vöknum til meðvitundar

Samtök gegn fíkniefnum og ofbeldismönnum - Hrafnkell Daníelsson og Björn Sigurðsson Það er einnig markmið samtakana að pressa á stjórnvöld að taka af fullri hörku á málum sem snúa að ofbeldi og fíkniefnum í hvaða mynd sem  er.

Siðferði og lagatækni

Gripið er til lagatæknilegra raka eins og að brotin séu fyrnd, málsmeðferð sé ólögmæt og að ekki hafi verið gætt að andmælarétti. Og maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hvað hafi orðið siðferðisvitund þessara manna og sómatilfinningu?

Þorgerður og kennararnir

Menntamálaráðherra - Sigrún Björk Jakobsdóttir Erum við að sjá hér enn og aftur sönnun þess að það er önnur mælistika lögð á konur í stjórnmálum og sú mælistika er hönnuð af miðaldra körlum

Spyrjið ykkar innri mann

Kennaradeilan - Valur Óskarsson Loksins, loksins er runnin upp sú stund að forystan áttar sig á að trúnaðarmenn bergmála engan veginn skoðanir fjöldans.

Náttúruvaktin

Gosið sem hófst í Grímsvötnum á Vatnajökli í fyrrakvöld, hið þrettánda á hundrað árum, minnir okkur á tvennt. Hvað sem allri þróun tækni og vísinda líður eru náttúruöflin manninum margfalt máttugri.

Fólk eða fyrirbæri

Nokurra ára gömul minningargrein um látinn baráttumann fyrir betra þjóðfélagi rifjaðist upp fyrir mér um daginn. Í greininni var sagt að hinn látni hefði haft ástríðufullan áhuga á velferð almennings og að hann hefði helgað líf sitt baráttu fyrir auknu réttlæti í samfélaginu.

Fjögur ár í viðbót

Ég fór niður á Lækjartorg og fékk mér kaffi áðan, heyrðist margir vera ansi svekktir. Ætli 80 prósent Íslendinga hafi ekki vonast eftir sigri Kerrys? Í Evrópu eru líklega margir í þunglyndiskasti...

Er karlinn í alvöru æðri konunni?

Málefni kvenna - Áslaug Ösp Aðalsteinsdóttir Það er ekki einleikið hve hugsunarlaust konum er skutlað aftur fyrir karla enn þann dag í dag. Í annað sinn á stuttum tíma greiddi ég af mínu VISA korti fyrir ferð okkar hjóna til útlanda. Í annað sinn voru bónda mínum sendir miðarnir og ..afritin af VISA miðunum mínum".

Svartur húmor

Friðagæslan - Böðvar Þór Unnarsson Ég hef reyndar aldrei heyrt að hann væri Íslendingum mjög tamur. Það var ekki fyrr en nú á dögunum þegar ég las um heimkomu ,,strákanna okkar" frá Afganistan að ég uppgvötvaði að svo er.

Hvaða friðarferli?

Palestína - Þorvaldur Örn Árnason Spurning dagsins í Fréttablaðinu 28. okt. sl. er villandi. Spurt var: "Mun brottflutningur landnema frá Gaza og Vesturbakkanum flýta fyrir friðarferlinu?" Friðarferlið svonefnda er úr sögunni.

Til hamingju Hagvagnar og Hópbílar

Umhverfið- Guðjón I. Eggertsson Nýlega varð sá merki viðburður að fyrirtækin Hagvagnar og Hópbílar fengu afhent vottorð til staðfestingar á að fyrirtækin hafa uppfyllt skilyrði alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðalsins ISO 14001.

Lagasetningar gegn rokki og róli

"Fylgispekt er ekki beinlínis sá eiginleiki sem ég myndi vilja innræta upprennandi þegnum þessa lands. Þjóðin er að kafna úr fylgispekt, við erum svo upptekin af því að kóa með Íslandi," skrifar Eiríkur Örn Norðdahl...

Gegn sóðum og skemmdarvörgum

Þegar maður gengur um miðbæ Reykjavíkur veltir maður fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að taka upp það sem í Bretlandi kallast "Anti-Social Behaviour Orders" - skammstöfun ASBO. Þetta eru áminningar...

Ráðvillt þjóð kýs sér leiðtoga

Þetta er eins og að eiga erfitt með að ákveða hvort maður eigi að bjóða væntanlegum matargestum upp á lambalæri eða hrossabjúgu, hvort maður þiggi frímiða á tónleika með Rolling Stones eða Bay City Rollers, hvort maður velur í landsliðið Eið Smára eða einhvern framherja Héraðssambands suður-Langnesinga.

Hús á Norður-Spáni

Þar er fjöllótt landslag og ekki líkur á því að sjór flæði yfir mann. Og þar er nokkuð rigningsamt svo ósennilegt er að myndist eyðimörk þótt hitastig hækki - eins og líklegt er að gerist syðst í álfunni..........

Stormur í vatnsglasi

MS-félagið - Birna Jennadóttir, húsmóðir og öryrki  Aðalfundur MS-félagsins var haldinn í síðustu viku og var vel mætt. Vilji fundarmanna var nokkuð eindreginn og óánægjuraddirnar fengu innan við þrjátíu atkvæði.

Um kvikmyndahátíðir í Reykjavík

Kvikmyndahátíð - Einar Þór Gunnlaugsson Er kannski ástæða fyrir stjórnir fagfélaganna að leggja niður sína eigin kvikmyndahátíð sem aldrei er haldin hvort sem er, og aðstoða þetta fólk við að klára dæmið, styðja það og styrkja svo einn almennilegur viðburður geti orðið að veruleika?

Refsum olíufélögunum!

Fjöldapóstur um samráð olíufélaganna fer eins og eldur í sinu um netið. Þar er fólk ekki hvatt til að hætta að kaupa bensín, heldur til að kaupa ekki neitt annað hjá olíufélögunum...

Sjá næstu 50 greinar