Til eitursala og handrukkara 8. nóvember 2004 00:01 Undirheimarnir - Albert Jensen trésmiður Gegn ykkur, sem kjósið að vera þjóðfélagsmein, í stað þess að vera menn, ber þjóðinni að berjast eins og meindýraplágu. Ómar Smári Ármannsson var í Fréttablaðinu 23. október ekki að gefa grænt ljós á handrukkun. Hann komst bara klaufalega að orði. Þá sem réðust inn á skrifstofur DV átti að setja bakvið lás og slá. Þar skyldu þeir vera til loka komandi dóms. Linkind við ykkar, kenni ég þingmönnum. Þeir tala um ykkur sem þjóðarplágu og láta þar við sitja. Þið hafið þokast yfir landið og skaðinn af ykkar völdum orðinn óheyrilegur. Þið farið að skyggja á svarta dauða, en rottur báru þann faraldur í menn. Það sem gerir ykkur óhugnanlegri en aðrar plágur, er að slóð ykkar er stráð eiturháðum börnum og líkum ungmenna. Það vefst ekki fyrir siðlausum illmennum að ánetja börn eitri. Þau eru fá sem ná því að verða fullorðin og þá stórskemmd. En á meðan þau eru að veslast upp, eru þau gróðafyrirtæki ykkar. Ykkur nægir ekki að hafa blóðmjólkað börnin, firrt þau námi og framtíð og kvalið þá stuttu ævi sem eitur ykkar skammtaði þeim. Þið rænið fjölskyldur gleði og hamingju. Þið rænið fólk lífinu. Fyrir utan allan þann fjölda sem þið myrðið á óbeinan hátt, stuðlið þið að öryggisleysi borgaranna með sívaxandi afbrotahrinum sem rekja má til eitursölu ykkar. Eftir að barn hefur ánetjast eitri, leyfið þið því að stofna til skulda sem eru á margföldum vöxtum og þá kemur að foreldrunum að borga. Ef ekki er greitt, þá er lögum ykkar að mæta. Upp úr því hefja börnin að stela hvar sem því verður við komið. Með aldrinum þurfa þau meira eitur og peninga og verða að lokum hættulegir innbrotsþjófar. Nú er svo komið að fólk þorir varla frá eignum sínum. Þótt barn eða ungmenni deyi af völdum eiturs, eða fremji sjálfsmorð í vonlausri stöðu, þá skiptir það engu fyrir ykkur. Þið færið skuldina á móðir eða aðra ættingja ungmennis sem þið voruð að myrða á ykkar hátt. Það nægir ykkur ekki, að valda dauða dóttur, eða sonar, þið hafið af foreldrunum ævistarfið ef þið getið. Þið þurfið ekki hnífa, byssur eða önnur vopn. Þetta leikur allt í höndunum á ykkur. Ég er undrandi á að Alþingi skuli enn heykjast á að setja lög sem gera ykkur ófært að færa þjóðina í fjötra ótta og óöryggis og sem koma í veg fyrir að þið fáið að eitra fyrir ungmenni þjóðarinnar. Starfslið DV virðist vera það eina, utan fárra einstaklinga, sem þorir að berjast við meinvætti þjóðarinnar. Vonandi áttar fólk sig á að í stríðinu við ykkur, er DV að vinna þjóðþrifaverk. Ég vona að DV-fólkið láti ekki úrkynjaða bölvalda þjóðarinnar hræða sig. Við ykkur vil ég segja: Leitið hjálpar hjá samfélagi manna við andlegri neyð ykkar. Því votti fyrir ærlegheitum í sálinni, er von. Losið ykkur við græðgina, heimskuna og illskuna og takið með heiðarlegum hætti þátt í samfélagi manna og þá fyrst mun ykkur líða vel. Forðið ykkur úr myrkrinu og leitið ásjár manna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar