Fleiri fréttir

Gyða hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
Sellóleikarinn og tónskáldið Gyða Valtýsdóttir var á meðal þrettán norrænna tónlistarmanna sem voru tilnefndir til verðlaunanna.

Kanye West loksins búinn að gefa út Jesus is King
Rapparinn vinsæli Kanye West gaf rétt í þessu út plötuna Jesus is King.

Föstudagsplaylisti Brynhildar Karlsdóttur
Diskótekið „Endurtekið“. Sama lag spilað í sí og æ. Plötuþeytirinn er Hórmóninn Brynhildur Karlsdóttir.

Sykur eignast ungling
Í dag gefur hljómsveitin Sykur út plötuna JÁTAKK, þeirra fyrsta plata í heil átta ár. Sum lögin á henni hafa lengi fylgt þeim og því sé í raun hægt að líkja þessu við að eignast ungling í stað barns.

Oscar flutti lagið Superstar hjá Gumma Ben og Sóli fór í bakrödd
Tónlistarmaðurinn Oscar Leone flutti lagið Superstar í Föstudagskvöldi hjá Gumma Ben síðastliðið föstudagskvöld.

Fara í gegnum tuttugu ára feril með afmælistónleikum
Hljómsveitin Buff fagnar tuttugu ára afmæli með þrennum tónleikum á næstunni. Hljómsveitin var stofnuð haustið 1999 af tilstuðlan sjónvarpsstjóra Skjás 1 á þeim tíma, sem þá hafði nýlega hafið göngu sína.

Sannir aðdáendur, miðaldra konur og Hnetan upp á tíu
Herra Hnetusmjör bauð til rappveislu í Gamla bíói á föstudag.

157 lög send inn í Söngvakeppni Sjónvarpsins
Sjö manna valnefnd mun velja hvaða tíu lög munu keppast um að verða framlag Íslands í Eurovision árið 2020.

Föstudagsplaylisti Alison MacNeil
Gamlar indí-syndir og nýjar.

Stjörnum prýtt massamyndband DJ MuscleBoy
Tónlistarmaðurinn Egill Einarsson sem gengur undir nafninu DJ MuscleBoy gaf í dag út nýtt tónlistarmyndband við lagið Muscle Club og má segja að myndbandið sé af dýrari gerðinni.

Vinnur við að leika sér
Björn Thoroddsen stendur fyrir gítarhátíð í Bæjarbíói 2. nóvember. Allar sólóplötur hans eru nú komnar á Spotify og sveit hans var að gefa út lag.

Auglýsa eftir brauðtertum gegn tónleikamiðum
Hljómsveitin Góss skipuð þeim Sigríði Thorlacius, Sigurði Guðmundssyni og Guðmundi Óskari Guðmundssyni eru sannarlega á þjóðlegu nótunum þegar kemur að seinnipartstónleikum þeirra í Vinabæ næstkomandi laugardag.

Valli Sport tók viðtöl við fjörutíu konur og notar orð þeirra í lagi með Þórunni Antoníu
Þórunn Antonía og Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, gefa út á næstu dögum lagið Ofurkona.

Nanna dansar á vatni í nýju myndbandi OMAM
Íslenska sveitin Of Monsters And Men gaf í gær út nýtt myndband við lagið Wild Roses. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir fer sjálf á kostum í myndbandinu sem tekið er upp í Sundhöllinni í Hafnarfirði.

Víkingur Heiðar listamaður ársins hjá Gramophone
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson var í dag valinn listamaður ársins hjá breska tónlistartímaritinu Gramophone.

Tóngerir tunglferðir
Halldór Eldjárn gefur út sína fyrstu sólóplötu í vikunni þar sem hann tvinnar saman sín helstu áhugamál; tónlist, forritun og tunglferðir. Hann heldur útgáfutónleika í Iðnó annað kvöld.

Skrifaði undir nýjan plötusamning í fangelsi
Rapparinn Tekashi 6ix9ine hefur skrifað undir plötusamning sem kveður á um tvær plötur, eina á ensku og eina á spænsku.

Nýtt lag GDRN úr smiðju Frikka Dórs og Jóns Jónssonar
Bræðurnir Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson stukku út í djúpu laugina þegar poppstjörnurnar tóku að sér að semja tónlistina í leikritið Shakespeare verður ástfanginn.

Föstudagsplaylisti Danna Croax
Er Croax kokkaði upp drum & bass bombu óx lagalistasafni Hausa ásmegin.

Kristina syngur lag í margra milljarða kvikmynd með heimsþekktum leikurum
Kristina Bærendsen sem sló í gegn með laginu Mama Said í Söngvakeppninni lauk nýverið við að syngja eitt titillaga stórrar erlendrar kvikmyndar, en myndin kemur út á haustmánuðum.

Lostafullt myndband frá Elísabetu Ormslev
Söngkonan Elísabet Ormslev frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Sugar.

Barnaplata spratt úr viðbjóðnum
Snorri Helgason tónlistarmaður hefur safnað einvalaliði tónlistarfólks til að gefa út barnaplötuna Bland í poka. Í dag kemur á allar helstu streymisveitur fyrsta lagið af henni, Kringlubarnið.

Föstudagsplaylisti Þóris Georgs
Afmælisdrungi og afmælispönk í boði Þóris Georgs.

Úthúða íslenskum röppurum í rokkslagara hvunndagshetjunnar
Nýtt lag og myndband með rokksveitinni Pink Street Boys.

„Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi“
Ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir, Auður, segir að honum sé alveg sama um gagnrýni frá fólki sem hann þekki ekki. Það hafi ekkert vægi fyrir honum en það sé hins vegar erfitt þegar fólk sem honum þykir vænt um er ósammála því sem hann er að gera.