Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Húðflúraður aðdáandi Ung stúlka í Kaliforníu lét húðflúra nafn tónlistarmannsins Drake þvert yfir ennið á sér skömmu fyrir jól. Sagan barst Drake, sem sagði uppátækið einkennilegt og kvaðst vilja hitta stúlkuna. 31.12.2011 20:00
Sérfræðingar í Seinfeld öttu kappi Spurningakeppni var haldin á Bakkusi á fimmtudagskvöld þar sem viðfangsefnið var bandarísku gamanþættirnir Seinfeld. Um 150 manns mættu á þessa fyrstu Seinfeld-keppni, sem var mun meira en aðstandendur hennar bjuggust við. Tvö lið deildu með sér sigrinum. 31.12.2011 13:00
Umsóknir fyrir Wacken Umsóknarferlið fyrir Wacken Metal Battle Iceland er hafið og verður þetta í fjórða sinn sem hljómsveitakeppnin er haldin hér á landi. Sigursveitin heldur utan til Þýskalands þar sem lokakeppnin fer fram í ágúst á hátíðinni Wacken Open Air, sem er stærsta þungarokkshátíð veraldar. Uppselt var á hana í nóvember síðastliðnum. 31.12.2011 12:00
Hélt upp á afmæli fyrir systur sína Breska stjörnufjölskyldan David og Victoria Beckham buðu systur knattspyrnukappans, Johanne Beckham, í dýrindis kvöldverð milli jóla og nýárs í tilefni af 30 ára afmæli hennar. Johanne var hæstánægð með bróður sinn og svilkonu og setti mynd af sér á samskiptavefinn Twitter með eftirfarandi skilaboðum „Átti yndislegt kvöld í gær. Fjölskyldan mín kom mér á óvart með kvöldverði á uppáhaldsveitingastaðnum mínum. Á ekki afmæli fyrr en í febrúar en þar sem bróðir minn verður ekki á landinu þá fögnuðum við núna. Ég er svo glöð.“ 31.12.2011 12:00
Sendi Barbie skilaboð Kim Kardashian vakti athygli fyrir skrýtin skilaboð á Twitter-samskiptasíðunni yfir hátíðirnar. Hún sendi til dæmis dúkkunni Barbie nokkur skilaboð á jóladag, en Barbie er að sjálfsögðu á Twitter. 31.12.2011 11:00
Vill stofna fjölskyldu Stacy Keibler og George Clooney njóta nú lífsins saman í Cabo á Kaliforníuskaganum ásamt sameiginlegum vinum. Þó að Keibler sé sátt við lífið eins og það er þessa stundina þráir hún að giftast síðar, ef marka má orð heimildarmanns. 31.12.2011 09:45
Kenndi Óttari að upplifa heimalandið upp á nýtt „Ísland er paradís ljósmyndarans og hvert sem maður lítur er að finna áhugaverð myndefni,“ segir ljósmyndarinn Elo Vázquez, en hún er unnusta rithöfundarins Óttars M. Norðfjörð og heldur sýningu hér á landi í næstu viku. 31.12.2011 09:30
Jordan bað kærustunnar Einn frægasti körfuboltakappi heims, Michael Jordan, bað kærustu sinnar milli jóla og nýárs. 31.12.2011 09:15
Ríkidómurinn heftandi Breski leikarinn Benedict Cumberbatch kveðst ráðinn í nokkuð einsleit hlutverk vegna bakgrunns síns, en hann ólst upp meðal efnamanna í Kensington-hverfinu í London. Cumberbatch sló í gegn sem einkaspæjarinn Sherlock Holmes í samnefndum sjónvarpsþáttum frá BBC og fer með hlutverk í kvikmyndinni Tinker, Tailor, Soldier, Spy. 31.12.2011 08:15
Á gangi án hrings Söngkonan Katy Perry og Russell Brand eyddu jólunum hvort í sinni heimsálfunni sem ýtir enn frekar undir sögusagnir um yfirvofandi skilnað hjónanna. Perry og Brand giftu sig í október árið 2010. 31.12.2011 08:00
Þráir svefn Leikkonan Charlize Theron hefur verið mjög upptekin á þessu ári og segist þrá svefn eftir mikla vinnutörn. Theron leikur í þremur myndum sem verða frumsýndar á næsta ári en það eru Prometheus, sem var einmitt tekin upp hér á landi, Young Adult og Snow White and the Huntsman. 31.12.2011 07:00
Syrgja hundinn Það voru ekkert sérstaklega gleðileg jól hjá Osbourne-fjölskyldunni í ár því hún missti chihuahua-hundinn sinn Martin á jóladag. Hundurinn var 14 ára gamall og kær fjölskyldumeðlimur, en Kelly Osbourne sendi eftirfarandi skilaboð á Twitter-samskiptavefnum á jóladag. 31.12.2011 06:45
Útilokar ekki endurkomu Guns N’ Roses Axl Rose, forsprakki hljómsveitarinnar Guns N‘ Roses, segir ekki útilokað að upprunalegir meðlimir hljómsveitarinnar komi saman á næsta ári. 31.12.2011 06:15
Amman og afinn slösuð Amma og afi ungstirnisins Justins Bieber slösuðust í bílslysi milli jóla og nýárs. Móðir Biebers, Patti Mallette, sendi út eftirfarandi skilaboð á Twitter og biðlaði til að allra að biðja fyrir bata foreldra sinna: 31.12.2011 06:00
Trúir ekki á ást við fyrstu sýn Bandaríska leikkonan Katherine Heigl, sem gerði garðinn frægan í læknaþáttunum Grey‘s Anatomy, segist alls ekki trúa á ást við fyrstu sýn. 31.12.2011 05:30
Gaf kærastanum dýra gítara Kristen Stewart gerði vel við kærasta sinn, Robert Pattinson, um jólin og gaf honum tvo gamla og verðmæta gítara í jólagjöf, Fender Jazzmaster frá 1959 og K&F Lap Steel frá 1947. Fyrir sögufræga gripina borgaði hún tæpa eina og hálfa milljón og þóttist nokkuð viss um að kærastinn yrði kampakátur með gjöfina. Ástæðan er sú að Pattinson hefur í hyggju að nýta sér ofurfrægð sína í kjölfar velgengni Twilight-myndanna og stefnir í stúdíó til að taka upp sína fyrstu breiðskífu. 31.12.2011 05:00
Leaves með nýja plötu árið 2012 „Hún verður gjörólík síðustu plötu,“ segir Arnar Guðjónsson, söngvari Leaves. 31.12.2011 04:30
Seldu drykki Systurnar Violet og Seraphina Affleck komu upp límónaði-sölubás fyrir framan hús sitt á þriðjudaginn var og seldu vegfarendum glas af ísköldu límonaði. Nokkrir papparassar keyptu einnig drykk af systrunum. 31.12.2011 03:30
Borgríki valin mynd ársins Glæpamyndin Borgríki hefur verið kjörin besta innlenda mynd ársins af álitsgjöfum Fréttablaðsins. 31.12.2011 03:00
Vinsælast á Vísi árið 2011 - Lífið 2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm vinsælustu fréttir ársins 2011 úr Lífinu á Vísi. 30.12.2011 06:00
Anna Mjöll sögð hafa sótt um skilnað frá Cal Söngdívan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Cal Worthington bílasala. Þetta er fullyrt á vefnum TMZ sem sérhæfir sig í fréttum af fræga og ríka fólkinu. Anna Mjöll og Cal giftu sig í apríl síðastliðnum. Anna Mjöll mun hafa sótt um meðlagsgreiðslur frá Cal, jafnvel þótt þau hafi ekki átt nein börn saman. Um fimmtíu ára aldursmunur er á hjónunum. Cal Worthington hefur auðgast verulega á bilasölum sínum en hann er þekktastur fyrir auglýsingar sem hann framleiddi sjálfur. 29.12.2011 09:00
Cruise á toppnum Eftir fremur magra tíð með kvikmyndum á borð við Lions for Lambs, Knight and Day og Valkyrie er Tom Cruise kominn aftur á toppinn. 29.12.2011 18:00
Drive stendur upp úr Kvikmyndaspekúlantar eru farnir að gera upp árið 2011 og velja bestu myndir ársins. Drive eftir danska leikstjórann Nicholas Winding Refn virðist vera fremst meðal jafningja. 29.12.2011 17:00
Dyggir aðdáendur gætu fengið sjokk Hjaltalín mun flytja mikið af nýju efni á tónleikum á Faktorý í kvöld. Upptökur fyrir þriðju breiðskífu sveitarinnar hefjast í janúar. Nýja efnið er töluvert ólíkt því sem sveitin hefur gert áður, og lýsa hljómsveitarmeðlimir því sem dekkri útgáfu af Hjaltalín. 29.12.2011 16:00
Valdimar fjölgar sér Hljómsveitin Valdimar, sem er leidd af hinum magnaða söngvara Valdimari Guðmundssyni, notaði jólahátíðina til að vinna óeigingjarnt starf í þágu fjölgunar mannkyns. Guðlaugur Guðmundsson bassaleikari eignaðist dreng hinn 21. desember og trompetleikarinn Margeir Hafsteinsson eignaðist dreng á jóladag. Mikil hamingja er í herbúðum hljómsveitarinnar og er von á að hún skili sér á næstu plötu hennar, sem gæti komið út á næsta ári. 29.12.2011 15:00
Haglél og Brakið seldust í 50 þúsund eintökum Örn Elías Guðmundsson, eða Mugison, og Yrsa Sigurðardóttir eru metsölukóngur og -drottning ársins hvað íslenska plötu- og bókaútgáfu varðar. 29.12.2011 14:00
Herja á neftóbaksmarkað Íslenska tóbaksfélagið hefur hafið framleiðslu og innflutning á neftóbaki. Framleiðslan fer fram hjá V2 Tobacco í Silkiborg í Danmörku og hefur tóbakið hlotið nafnið Skuggi. Sverrir Gunnarsson, sem stofnaði félagið í samstarfi við föður sinn, segir takmarkið vera að flytja inn fleiri tegundir tóbaks, meðal annars vafningstóbak, sígarettur og vindla. "Við erum enn að bíða eftir formlegu leyfi frá ÁTVR en ég hef enga trú á öðru en að það komi innan skamms. Ríkið má ekki mismuna fyrirtækjum sem það er sjálft í samkeppni við.“ 29.12.2011 13:00
Hraðskreiðir bílar í sjöunda sinn Hver hefði trúað því, þegar kvikmyndin The Fast and the Furious var frumsýnd fyrir tíu árum, að framhaldsmyndirnar yrðu hugsanlega sjö. En það virðist ætla að verða að veruleika enda sló fimmta myndin algjörlega í gegn, bæði hjá gagnrýnendum og hjá áhorfendum. Vin Diesel hefur staðfest að sagan fyrir sjöttu myndina hafi verið það umfangsmikil að nauðsynlegt var að klippa hana í tvennt og gera úr henni tvær myndir. 29.12.2011 12:00
Ísland dregið inn í grannadeilur í Eurovision Ísland hefur óvænt verið dregið inn í deilur Armena og Asera vegna Eurovision-keppninnar sem fer fram í höfuðborg Aserbaídsjans, Bakú, í maí á næsta ári. Ísland er á sumum armenskum fréttamiðlum sagt hafa dregið sig úr keppni. 29.12.2011 11:00
Borgin og Austur berjast um gestina á nýárskvöld Glaumur og gleði verður ríkjandi í höfuðborginni um helgina þegar gamla árið verður kvatt og hið nýja boðið velkomið. 29.12.2011 09:30
Pabbi á ný Stórleikarinn Robert De Niro og eiginkona hans Grace Hightower De Niro eignuðust sitt annað barn á dögunum og var það lítil stúlka sem hlaut nafnið Helen Grace. Stúlkan fæddist með aðstoð staðgöngumóður en fyrir eiga hjónin þrettán ára gamlan son, Elliot. De Niro er 68 ára gamall og Hightower er 56 ára gömul en þau hafa verið saman frá árinu 1987. De Niro á nú alls sex börn og er það elsta fertugt að aldri og því töluverður aldursmunur á því elsta og yngsta. 29.12.2011 09:00
Sherlock og barnapían Tvær nýjar kvikmyndir verða frumsýndar um helgina, annars vegar önnur myndin um Sherlock Holmes með Robert Downey Jr. í hlutverki spæjarans og hins vegar gamanmynd með Jonah Hill í aðalhlutverki. 29.12.2011 08:00
Útgáfutónleikar á Kex Hljómsveitin Low Roar, með tónlistarmanninn Ryan Karazija í broddi fylkingar, fagnar útkomu fyrstu breiðskífu sinnar með útgáfutónleikum á Kex hostel í kvöld. Low Roar mun flytja lög af samnefndri plötunni og leynigestir munu einnig taka lagið fyrir tónleikagesti. 29.12.2011 07:00
Áramótaheitin í Hollywood Heimsbyggðin stundar það öll að lofa bót og betrun og strengja áramótaheit þegar að því kemur að kveðja liðið ár. Margt hefur verið skrifað um erfiðleika mannskepnunnar við að standa við háleitar fyriráætlanirnar, sem iðulega falla í gleymsku á fyrstu dögum nýja ársins. 28.12.2011 16:00
Dáir kettina sína Leikarinn Robert Downey Jr. viðurkenndi nýverið að hann væri orðinn mikill kattamaður eftir að hafa ættleitt kettlingana Montgomery og Dartanian. Hann segir sambúðina með kettlingunum hafa breytt lífi sínu til hins betra og að hann gæti ekki hugsað sér lífið án þeirra. 28.12.2011 15:00
Engin væmin atriði í Seinfeld Spurningakeppni verður haldin á Bakkusi við Tryggvagötu á fimmtudagskvöld þar sem viðfangsefnið er bandarísku gamanþættirnir Seinfeld sem nutu mikilla vinsælda á tíunda áratugnum. 28.12.2011 14:00
Fer fram á helming eigna eiginmannsins Eiginkona körfuknattleikmannsins Kobe Bryant hefur sótt um skilnað frá íþróttastjörnunni eftir að upp komst að hann hefur haldið stöðugt framhjá henni undanfarinn áratug. Hjónin höfðu ekki skrifað undir kaupmála fyrir brúðkaupið og því getur Vanessa Bryant farið fram á helming eigna eiginmannsins. 28.12.2011 13:00
Hrotið yfir Heimsljósi Hátíðarandinn sveif yfir vötnum í Þjóðleikhúsinu á annan dag jóla þegar frumsýning var á Heimsljósi Halldórs Laxness. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var meðal gesta eins og jafnan þegar stærstu verk leikársins eru frumsýnd. 28.12.2011 12:00
Hannar uppvakninga fyrir næstu stórmynd Brad Pitt "Við erum komnir mjög stutt á veg með World War Z en hún verður sérstök og mjög áhugaverð," segir Unnsteinn Guðjónsson, eða Ummi eins og hann er alla jafna kallaður. 28.12.2011 11:00
Kórinn var vinsælastur Kór eiginkvenna breskra hermanna, Military Wives, bar sigur úr býtum í kapphlaupinu um vinsælasta lagið um jólin í Bretlandi. 28.12.2011 10:00
Trúlofuðust á jóladag Matthew McConaughey hefur trúlofast kærustu sinni til síðustu fimm ára, brasilísku fyrirsætunni Camilu Alves. Leikarinn bar bónorðið upp á jóladag og fagnaði jákvæðu svari hennar með því að setja mynd af þeim að kyssast á Twitter. "Var að biðja Camilu um að giftast mér. Gleðileg jól," skrifaði hann. 28.12.2011 08:00
Sveinn Rúnar semur í Úkraínu „Ég kom hingað fyrst 2005, rétt eftir appelsínugulu byltinguna," segir tónskáldið Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann er staddur í Úkraínu, nánar tiltekið í Kænugarði, að taka upp og semja tónlist. Sveinn Rúnar hefur aðsetur í hljóðverinu Coffein sem staðsett er í hjarta borgarinnar, en eiginkona tónskáldsins, María, er frá Úkraínu. 27.12.2011 20:00
Þúsund tölvunirðir hertaka Hörpu EVE Fanfest hefur verið fastur liður í lífi leikmanna tölvuleiksins vinsæla, hátíðin á næsta ári á að vera sú glæsilegasta í sögunni og af þeim sökum hefur verið ákveðið að halda hana í tónlistar-og ráðstefnuhúsinu Hörpu dagana 22.-24. mars. 27.12.2011 16:30
O´Connor skilin eftir 18 daga hjónaband Stórsöngkonan Sinead O´Connor hefur ákveðið að skilja eftir einungis átján daga hjóanband. Þau giftu sig í snarhasti í Las Vegas, en Adam var ekki lengi í Paradís. Af ástæðum sem þið munið öll skilja, ætlaði ég að halda þessu leyndu en mér hefur verið tilkynnt það í dag að þetta myndi leka út á næstu dögum," skrifaði O´Connor á vefsíðu sína. Hún hafi því viljað greina frá þessu sjálf. 0 27.12.2011 16:28
Stjörnur sungu í Hljómskálanum Mikið stuð verður í sérstökum áramótaþætti af Hljómskálanum. Ljósmyndari Fréttablaðsins fylgdist með upptökunum. 27.12.2011 14:00