Lífið

Anna Mjöll sögð hafa sótt um skilnað frá Cal

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anna Mjöll og Cal Worthington eru hér á góðri stundu með stórleikaranum George Clooney.
Anna Mjöll og Cal Worthington eru hér á góðri stundu með stórleikaranum George Clooney.
Söngdívan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Cal Worthington bílasala. Þetta er fullyrt á vefnum TMZ sem sérhæfir sig í fréttum af fræga og ríka fólkinu. Anna Mjöll og Cal giftu sig í apríl síðastliðnum. Anna Mjöll mun hafa sótt um meðlagsgreiðslur frá Cal, jafnvel þótt þau hafi ekki átt nein börn saman. Um fimmtíu ára aldursmunur er á hjónunum. Cal Worthington hefur auðgast verulega á bilasölum sínum en hann er þekktastur fyrir auglýsingar sem hann framleiddi sjálfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×