Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leið eins og ég væri stödd í póstkorti „Þessi ferð fór fram úr öllum mínum björtustu vonum og var frábær í alla staði,“ segir Lára Rúnarsdóttir söngkona, sem er nýlent á Íslandi eftir tveggja vikna tónleikaferðlag um Evrópu. 8.8.2011 20:00
Íslenskar konur láta gott af sér leiða Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar UN Women á Íslandi kynnti taupoka sem hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur hönnuðu undir merkinu Royal Extreme. Hlutverk UN Women á Íslandi er að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks. Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women. Pokarnir eru sumarlegir og henta bæði konum og körlum við öll tækifæri. Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri. Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka. Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Woman á Laugavegi 42 , í síma 552-6200 eða á heimasíðu félagsins Unwomen.is. 8.8.2011 17:36
Þú ert ekki síðri svona ómáluð Leikkonan Kate Hudson, 33 ára, var mynduð ómáluð í andliti ásamt eldri syni sínum, Ryder Robinson, sem var á leiðinni í karate tíma. Eins og sjá má í myndasafni er leikkonan ekki síður glæsileg án andlitsförðunar en stífmáluð aðeins mánuði eftir að hún eignaðist sitt annað barn, drenginn Bingham Hawn Bellamy. 8.8.2011 16:18
United-menn þurfa tvo staði „Einn staður er ekki nóg fyrir stærsta stuðningsmannaklúbbinn á Íslandi,“ segir Steinn Ólason, formaður Manchester United-klúbbins. 8.8.2011 16:00
Víst er Tom Cruise rómantískur Leikarahjónin Tom Cruise, 49 ára, og Katie Holmes, 32 ára, leiddust brosandi þegar þau yfirgáfu tónleika sönkonunnar Katy Perry í gær í Los Angeles. Þá má einnig sjá Tom í myndasafni æfa sig á svölunum í sumarhúsi þeirra fyrir nýju myndina hans, Rock of Ages, og kæla sig við sundlaugarbakkann með Katie og dóttur þeirra Suri. 8.8.2011 13:57
Þröngi vatnsheldi gallinn gerir helling fyrir þig David Beckham, 36 ára, var klæddur í þröngan vatnsheldan galla... 8.8.2011 12:54
Myndasyrpa af Gay Pride Sólin skein í miðborg Reykjavíkur þegar árleg gleðiganga hinsegin daga fór fram. Ljósmyndari Fréttablaðsins var á staðnum og fangaði stemninguna. 8.8.2011 12:00
Glænýtt sýnishorn úr myndinni Á annan veg Íslenska gamanmyndin Á annan veg verður frumsýnd 2. september. Nýtt sýnishorn úr myndinni er frumsýnt á Vísi í dag og er hægt að horfa á það hér með greininni. 8.8.2011 11:00
Nýja gellan hans Gogga er með sixpakk George Clooney, 50 ára, er byrjaður að hitta nýja konu eftir að hann endaði sambandið við ítölsku sjónvarpsstjörnuna og fyrirsætuna Elisabettu Canalis. Nýja leikfangið hans er fyrirsætan og leikkonan Stacy Keibler, 31 árs. Hún lét fara vel um sig í sólinni með þetta líka vel þjálfaða magavöðva eins og greinilega sjá má í myndasafni. Stacey eyddi tíma með George í húsinu hans á Ítalíu í júlí. 8.8.2011 10:09
Sjá Big Lebowski-leikara í New York „Við erum búnir að panta flug og miða og hótel. Þetta verður algjör snilld“ 8.8.2011 09:45
Segir Gaga hafa stolið Judas Söngkona frá Chicago sakar Lady Gaga um að hafa stolið laginu Judas frá sér. Söngkonan sem heitir Rebecca Francescatti hefur stefnt Gaga vegna meints lagastundar. Hún segist hafa tekið lagið upp árið 1999. Francescatti vann með Brian Joseph Gaynor að laginu, en hann. Francescatti krefst hluta af hagnaði á sölu Judas eða skaðabóta af ótilgreindri upphæð. 7.8.2011 17:35
Sheen ætlar að horfa á sína eigin útför Charlie Sheen ætlar að halda teiti og bjóða vinum sínum að horfa á þegar persóna hans úr sjónvarpsþáttunum Two and a half man hverfur úr þáttunum í næsta mánuði. Sheen var rekinn úr þáttunum fyrr á þessu ári og Ashton Kutcher mun taka við þegar ný þáttaröð hefst í september. Samkvæmt handritinu mun persóna Sheens deyja. Sheen hefur því sagt að þátturinn þegar hann hverfur úr þáttunum. 7.8.2011 16:24
Hannar fyrir Hollywood Ameríski söngvarinn Steven Tyler bar eyrnalokka hönnuðarins Rannveigar Gísladóttur í lokaþætti American Idol og á frumsýningu Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides í vor. Stílistar Rihönnu og Keishu hafa einnig keypt lokka Rannveigar fyrir skjólstæðinga sína en hún hefur þó enn ekki séð þær koma fram með þá. 7.8.2011 14:00
Eyðsluklóin Bieber Ungstirnið Justin Bieber er einn ríkasti unglingur heims en samkvæmt heimildum fer hann mjög óskynsamlega með fé sitt. Samkvæmt The National Enquirer eyðir hann miklum peningum í að dekra við kærustu sína, söngkonuna Selenu Gomez. 7.8.2011 06:00
Sólgleraugu í endurútgáfu Nokkrar mismunandi viðhafnarútgáfur plötunnar Achtung Baby með U2 eru væntanlegar síðar á árinu. Tilefnið er að tuttugu ár eru liðin síðan þessi sjöunda hljóðversplata sveitarinnar kom út við góðar undirtektir. Ein útgáfan inniheldur sex geisladiska, fjóra mynddiska, fimm smáskífur, sextán myndir og 84 síðna bók og síðast en ekki síst alveg eins sólgleraugu og söngvarinn Bono notaði í myndbandinu við The Fly. Með annarri útgáfu fylgir einnig 92 blaðsíðna bók. Platan verður jafnframt fáanleg í vínylboxi, auk þess sem einföld endurhljómjöfnuð útgáfa verður í boði. 6.8.2011 17:00
Opna Forréttabar á næstunni „Þetta verður alveg frábær staður,“ segir Guðmundur Þór Gunnarsson. Eigendur Humarhússins ætla að opna veitingastaðinn Forréttabarinn um næstu mánaðamót. Hann verður staðsettur á Nýlendugötu 14 þar sem verslunin Liborius var áður til húsa. Undirbúningur er í fullum gangi þessa dagana. 6.8.2011 15:00
James Bond á hælum íslenskra hvalveiðimanna „Brosnan hefur sinn skilning á þessu, sem ég er auðvitað ekki sammála," segir Gunnar Bergmann, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf. 6.8.2011 13:00
Komin með nýjan mann Leikkonan Kate Bosworth grætur ekki endalok samband síns og True Blood-leikarans Alexanders Skarsgård. Aðeins nokkrum dögum eftir að tilkynnt var um sambandsslitin hefur hún tvisvar sést í för með leikstjóranum Michael Polish. 6.8.2011 11:00
GUS GUS-myndband frumsýnt Það var fjölmennt í frumsýningarpartýi hljómsveitarinnar GusGus við frumsýningu á nýju tónlistarmyndbandi. 6.8.2011 11:00
Bon Jovi bauð Sigga Hlö og eiginkonu á tónleika "Þetta er öðlingur. Rosalega fínn gæi og jarðbundinn. Þetta var eins og að hitta frænda sinn á svipuðum aldri,“ segir útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö. 6.8.2011 08:00
Leonardo DiCaprio launahæstur Leonardo DiCaprio hefur tekið fram úr Johnny Depp sem launahæsti leikarinn í Hollywood. Samkvæmt tímaritinu Forbes hefur DiCaprio þénað 77 milljónir dala undanfarið ár, eða tæpa níu milljarða króna. 5.8.2011 22:00
Brakandi ferskt sýnishorn fyrir Týndu kynslóðina Mikil eftirvænting ríkir fyrir sjónvarpsþættinum Týnda kynslóðin sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í opinni dagskrá á föstudagskvöldum í vetur. Þátturinn er í umsjón Björns Braga Arnarssonar og Þórunnar Antoníu og fer fyrsti þátturinn í loftið 19. ágúst næstkomandi. 5.8.2011 18:15
Britney nuddar kærastann Söngkonan Britney Spears, 29 ára, nuddaði axlirnar á kærastanum sínum, Jason Trawick, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þegar þau sigldu um á spíttbát í gær. Með í för voru synir Britney, Jayden James og Sean Preston. Þá má einnig sjá fleiri myndir af söngkonunni og drengjunum synda með ömmu sinni, mömmu Britney, í myndasafni. 5.8.2011 16:33
Þessar stelpur eru að gera góða hluti Í meðfylgjandi myndskeiði segja skartgripahönnuðirnir Telma Tryggvadóttir, Teresa Tryggvadóttir og Hulda Rós Hákonardóttir sem mynda teymið Made by 3 hvernig hugmyndin að samstarfinu kviknaði. Þær byrjuðu að hanna saman fyrir einu og hálfu ári síðan en þetta byrjaði allt á því að Teresa, sem er vöruhönnuður vann lokaverkefnið sitt með sænskum skartgripahönnuði. Hún fékk svo í lið með sér systir sína Telmu og vinkonu Huldu en þær hafa bakgrunn í viðskiptum og tísku. Þær selja nú hönnun sína í þremur verslunum í Stokkhólmi ásamt í íslensku verslununum Leonard, Módern, Kastaníu og Húsi handanna á Egilsstöðum. Þær eru einnig með vefverslun á www.madeby3.is. Mady by 3 á Facebook. 5.8.2011 15:15
Jógvan og Friðrik Ómar ferskir eftir fiskisúpuna Félagarnir Friðrik Ómar og Jógvan ljúka tónleikaferðalagi sínu um landið með tvennum tónleikum í tilefni Fiskidagsins mikla á Dalvík, heimabæ Friðriks Ómars. Báðir tónleikarnir fara fram í Dalvíkurkirkju. 5.8.2011 15:00
Tveir í tjaldi á leynieyju "Þetta er í fyrsta sinn sem ég er spurður hvort ég hafi reynslu af pólitísku starfi þegar ég er beðinn um að spila,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson. 5.8.2011 14:00
Alexander McQueen-sýning setur aðsóknarmet Yfir hálf milljón manna hefur lagt leið sína í Metropolitan Museum of Art listasafnið í New York til að berja sýningu Alexanders McQueen augum. Sýningin er komin á toppinn yfir aðsóknarmestu tískusýningar listasafnsins og fer á topp 20 yfir aðsóknarmestu sýningar allra tíma hjá safninu. 5.8.2011 14:00
Rihanna í funheitum dansi með æskuástinni Slúðurmiðlar vestanhafs fóru á fullt þegar sást til söngkonunnar Rihönnu í heitum dansi við karlmann í heimalandi sínu, Barbados. Rihanna vakti athygli fáklædd uppi á pallbíl í skrúðgöngu. 5.8.2011 13:00
Winwin vefur opnar formlega Hjónin Kitty Johansen og Ágúst Reynir Þorsteinsson opnuðu formlega vefsíðuna Winwin.is í Nauthólsvík í gær. Eins og myndirnar sýna mætti fjöldi manns og gleðin var allsráðandi. Skoða Winwin hér. 5.8.2011 11:43
Reif í rassinn á Gay Pride Óli Hjörtur Ólafsson heldur klúbbakvöldið Reif í rassinn á laugardagskvöldið í tengslum við Gay Pride. Nafnið er grípandi og tilvísun í Reif-safndiskana sem voru einu sinni vinsælir. „Þetta verður fyrir alla þá sem vilja hlusta á vandaða klúbbatónlist á Gay Pride,“ segir Óli Hjörtur Ólafsson, sem stendur fyrir klúbbakvöldinu Reif í rassinn á laugardaginn. 5.8.2011 11:00
Moses Hightower syrgir Moses Hightower „Þetta er töluvert áfall fyrir okkur," segir Andri Ólafsson, bassaleikari og annar söngvara hljómsveitarinnar Moses Hightower. Bandaríski leikarinn Charles Aaron „Bubba" Smith lést á miðvikudag, 66 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem ljúfi risinn Moses Hightower í Police Academy-myndunum sem voru vinsælar á níunda áratug síðustu aldar. Andri og félagar nefndu hljómsveitina eftir persónu Smiths og voru slegnir að heyra um andlát leikarans. 5.8.2011 11:00
Litadýrð á Draggkeppni Það þurfti að bæta við stólum í Silfurbergsalnum í Hörpunni á miðvikudagskvöldið þegar Draggkeppni Íslands 2011 fór þar fram. Keppnin var hin glæsilegasta og áhorfendur lýstu yfir mikilli ánægju með kvöldið. 5.8.2011 11:00
Konukvöld í Grímsbæ Meðfylgjandi myndir voru teknar á konukvöldi í Grímsbæ á vegum verslananna Örnu og Arcadesign. Fjöldi kvenna mætti enda margt spennandi í boði eins og spákonuhorn þar sem boðið var upp á fría spá, endalaus tilboð, prúttmarkaður, fljótandi veitingar og veglegt happadrætti þar sem Iceland Express, Tímadjásn, Ársól, Eldofninn, Blómastofan Grímsbæ og Rakarastofan Grímsbæ gáfu vinninga. Arna verslun á Facebook. Arcadesign Iceland á Facebook. 5.8.2011 08:58
Berlínarsnúður á leið til Íslands „Við höfum verið í sambandi við hann í fjögur ár. Hann er gríðarlega mikils metinn í Þýskalandi,“ segir Helgi Már Bjarnason úr útvarpsþættinum Party Zone á Rás 2. 5.8.2011 07:00
Bradley Cooper í stað Marks Wahlberg Leikarinn Bradley Cooper er í viðræðum um að hlaupa í skarðið fyrir Mark Wahlberg sem aðalleikari gamanmyndarinnar The Silver Linings Playbook. Hún er byggð á samnefndri skáldsögu Matthews Quick. 4.8.2011 22:00
Þú ert meira að segja sexí í þessu Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, var glæsilegur þrátt fyrir að vera kappklæddur í einhverskonar brynju með gráa lambúshettu á höfðinu við tökur á nýrri kvikmynd, World War Z, sem fram fóru í dag í Cornwall Englandi. Brad, ásamt aukaleikurum, stillti sér upp á þilfari skips sem var skreytt með gervisnjó eins og sjá má á myndum. 4.8.2011 17:04
Keppt í uppistandi á Prikinu „Þetta hefur ekki verið gert síðan fyndnasti maður Íslands var síðast krýndur,“ segir grínistinn Halldór Halldórsson, Dóri DNA. Dóri, Steindi Jr. og Ágúst Bent setjast í dómarasætið á Prikinu á morgun þar sem keppni í uppistandi fer fram klukkan átta. Dóri segir skráningu í keppnina ganga vel, en þeir sem vilja spreyta sig geta ennþá skráð sig til leiks með því að senda póst á bokanir@prikid.is. 4.8.2011 16:00
Fékk viðurkenningarskjal fyrir heimsmet á hjólabretti "Það er mikill heiður að eiga svona og þá sérstaklega að feta í fótspor pabba," segir Hlynur Gunnarsson, sem nýlega fékk sent viðurkenningarskjal frá Guinness World Records, eftir að hann sló heimsmet í að halda jafnvægi á hjólabretti í desember í fyrra. 4.8.2011 14:27
Er mín dottin aftur í djammgírinn? Leikkonan Lindsay Lohan, 24 ára, reyndi allt hvað hún gat til að koma í veg fyrir að ljósmyndarar mynduðu hana yfirgefa tónleika hljómsveitarinnar Coldplay í Los Angeles í gærkvöldi eins og sjá má í myndasafni. Nú eru sögusagnir um að Lindsay, sem var klædd í stuttbuxur og skyrtu, sé aftur dottin í sama gamla djammgírinn en leikkonan hefur oftar en ekki komist í kast við lögin og nú síðast keyrði hún full og stal rándýru hálsmenni. Þá var hún dæmd í stofufangelsi fyrir að hafa rofið skilorð. Djammarinn Lindsay var síðast á bak við lás og slá árið 2010. Komdu frítt í bíó! 4.8.2011 13:56
Hefna sín á Charlie Sheen - verður jarðaður í næstu þáttaröð Persóna Charlie Sheen í Two and a Half Men verður ekki aðeins látin deyja í næstu þáttaröð heldur verður hún einnig jörðuð. Piparsveinninn Charlie Harper verður jarðaður og framleiðandinn Chuck Lorre kemur þannig fram hefndum. 4.8.2011 13:00
Hætta í íshokkí til þess að gerast klappstýrur "Þetta er vinaleg íþrótt sem leggur mikið upp úr góðum liðsanda og jákvæðni,“ segir sænski klappstýrumeistarinn Alexander Ström, sem ásamt félaga sínum Pétri Sveinssyni ætlar að kynna klappstýruíþróttina fyrir Íslendingum og standa fyrir námskeiði um helgina. "Ég er viss um að Íslendingar eru forvitnir að vita um hvað íþróttin snýst,“ segir Pétur og bætir við að klappstýring sé íþróttagrein og ekki einungis klapp frá hliðarlínunni á öðrum íþróttaleikjum. 4.8.2011 12:45
Nei sko prinsessan verslar sjálf í matinn Á meðfylgjandi myndum má sjá hertogaynjuna af Cambridge, Kate Middleton, 29 ára, versla eina síns liðs í Tesco matvöruversluninni í norður Wales. Prinsessan gaf sér góðan tíma við innkaupin áður en hún setti vörurnar í skottið á bílnum sínum. Þá má einnig sjá Kate og Elísabetu drottningu virða fyrir sér brúðkaupskjól Kate í Buckingham höll þar sem hann verður til sýnis fyrir almenning. 4.8.2011 11:11
Hætt saman Eftir fjögurra ára samband eru þáttastjórnandinn Alexa Chung og Alex Turner, söngvari hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, hætt saman. Það var talskona Chung sem staðfesti sambandsslitin við fjölmiðla eftir miklar vangaveltur slúðurmiðla vestanhafs. 4.8.2011 11:00
Þau hata hvort annað (dagsatt) Johnny Depp og Angelina Jolie áttu í erfiðleikum með að sýna að þeim líkaði vel við hvort annað á rauða dreglinum, Jay-Z og Kanye West rífast eins og hundur og kötttur og það vita allir í New York að Sarah Jessica Parker og Kim Cattrall náðu engan veginn saman á meðan á Sex and The City ævintýrinu stóð. 4.8.2011 10:29
Tískumyndband þróaðist út í nýja Gusgus myndbandið "Tökurnar gengu vel enda blandaðist þarna saman fallegur hópur af fólki, góð tónlist og frábært veður,“ segir Ellen Loftsdóttir stílisti, sem leikstýrir nýjasta myndbandi hljómsveitarinnar GusGus ásamt sambýlismanni sínum Þorbirni Ingasyni. 4.8.2011 09:45