Fleiri fréttir

Þessar stelpur eru að gera góða hluti

Í meðfylgjandi myndskeiði segja skartgripahönnuðirnir Telma Tryggvadóttir, Teresa Tryggvadóttir og Hulda Rós Hákonardóttir sem mynda teymið Made by 3 hvernig hugmyndin að samstarfinu kviknaði. Þær byrjuðu að hanna saman fyrir einu og hálfu ári síðan en þetta byrjaði allt á því að Teresa, sem er vöruhönnuður vann lokaverkefnið sitt með sænskum skartgripahönnuði. Hún fékk svo í lið með sér systir sína Telmu og vinkonu Huldu en þær hafa bakgrunn í viðskiptum og tísku. Þær selja nú hönnun sína í þremur verslunum í Stokkhólmi ásamt í íslensku verslununum Leonard, Módern, Kastaníu og Húsi handanna á Egilsstöðum. Þær eru einnig með vefverslun á www.madeby3.is. Mady by 3 á Facebook.

Jógvan og Friðrik Ómar ferskir eftir fiskisúpuna

Félagarnir Friðrik Ómar og Jógvan ljúka tónleikaferðalagi sínu um landið með tvennum tónleikum í tilefni Fiskidagsins mikla á Dalvík, heimabæ Friðriks Ómars. Báðir tónleikarnir fara fram í Dalvíkurkirkju.

Tveir í tjaldi á leynieyju

"Þetta er í fyrsta sinn sem ég er spurður hvort ég hafi reynslu af pólitísku starfi þegar ég er beðinn um að spila,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson.

Alexander McQueen-sýning setur aðsóknarmet

Yfir hálf milljón manna hefur lagt leið sína í Metropolitan Museum of Art listasafnið í New York til að berja sýningu Alexanders McQueen augum. Sýningin er komin á toppinn yfir aðsóknarmestu tískusýningar listasafnsins og fer á topp 20 yfir aðsóknarmestu sýningar allra tíma hjá safninu.

Rihanna í funheitum dansi með æskuástinni

Slúðurmiðlar vestanhafs fóru á fullt þegar sást til söngkonunnar Rihönnu í heitum dansi við karlmann í heimalandi sínu, Barbados. Rihanna vakti athygli fáklædd uppi á pallbíl í skrúðgöngu.

Winwin vefur opnar formlega

Hjónin Kitty Johansen og Ágúst Reynir Þorsteinsson opnuðu formlega vefsíðuna Winwin.is í Nauthólsvík í gær. Eins og myndirnar sýna mætti fjöldi manns og gleðin var allsráðandi. Skoða Winwin hér.

Reif í rassinn á Gay Pride

Óli Hjörtur Ólafsson heldur klúbbakvöldið Reif í rassinn á laugardagskvöldið í tengslum við Gay Pride. Nafnið er grípandi og tilvísun í Reif-safndiskana sem voru einu sinni vinsælir. „Þetta verður fyrir alla þá sem vilja hlusta á vandaða klúbbatónlist á Gay Pride,“ segir Óli Hjörtur Ólafsson, sem stendur fyrir klúbbakvöldinu Reif í rassinn á laugardaginn.

Moses Hightower syrgir Moses Hightower

„Þetta er töluvert áfall fyrir okkur," segir Andri Ólafsson, bassaleikari og annar söngvara hljómsveitarinnar Moses Hightower. Bandaríski leikarinn Charles Aaron „Bubba" Smith lést á miðvikudag, 66 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem ljúfi risinn Moses Hightower í Police Academy-myndunum sem voru vinsælar á níunda áratug síðustu aldar. Andri og félagar nefndu hljómsveitina eftir persónu Smiths og voru slegnir að heyra um andlát leikarans.

Litadýrð á Draggkeppni

Það þurfti að bæta við stólum í Silfurbergsalnum í Hörpunni á miðvikudagskvöldið þegar Draggkeppni Íslands 2011 fór þar fram. Keppnin var hin glæsilegasta og áhorfendur lýstu yfir mikilli ánægju með kvöldið.

Konukvöld í Grímsbæ

Meðfylgjandi myndir voru teknar á konukvöldi í Grímsbæ á vegum verslananna Örnu og Arcadesign. Fjöldi kvenna mætti enda margt spennandi í boði eins og spákonuhorn þar sem boðið var upp á fría spá, endalaus tilboð, prúttmarkaður, fljótandi veitingar og veglegt happadrætti þar sem Iceland Express, Tímadjásn, Ársól, Eldofninn, Blómastofan Grímsbæ og Rakarastofan Grímsbæ gáfu vinninga. Arna verslun á Facebook. Arcadesign Iceland á Facebook.

Berlínarsnúður á leið til Íslands

„Við höfum verið í sambandi við hann í fjögur ár. Hann er gríðarlega mikils metinn í Þýskalandi,“ segir Helgi Már Bjarnason úr útvarpsþættinum Party Zone á Rás 2.

Bradley Cooper í stað Marks Wahlberg

Leikarinn Bradley Cooper er í viðræðum um að hlaupa í skarðið fyrir Mark Wahlberg sem aðalleikari gamanmyndarinnar The Silver Linings Playbook. Hún er byggð á samnefndri skáldsögu Matthews Quick.

Þú ert meira að segja sexí í þessu

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, var glæsilegur þrátt fyrir að vera kappklæddur í einhverskonar brynju með gráa lambúshettu á höfðinu við tökur á nýrri kvikmynd, World War Z, sem fram fóru í dag í Cornwall Englandi. Brad, ásamt aukaleikurum, stillti sér upp á þilfari skips sem var skreytt með gervisnjó eins og sjá má á myndum.

Keppt í uppistandi á Prikinu

„Þetta hefur ekki verið gert síðan fyndnasti maður Íslands var síðast krýndur,“ segir grínistinn Halldór Halldórsson, Dóri DNA. Dóri, Steindi Jr. og Ágúst Bent setjast í dómarasætið á Prikinu á morgun þar sem keppni í uppistandi fer fram klukkan átta. Dóri segir skráningu í keppnina ganga vel, en þeir sem vilja spreyta sig geta ennþá skráð sig til leiks með því að senda póst á bokanir@prikid.is.

Fékk viðurkenningarskjal fyrir heimsmet á hjólabretti

"Það er mikill heiður að eiga svona og þá sérstaklega að feta í fótspor pabba," segir Hlynur Gunnarsson, sem nýlega fékk sent viðurkenningarskjal frá Guinness World Records, eftir að hann sló heimsmet í að halda jafnvægi á hjólabretti í desember í fyrra.

Er mín dottin aftur í djammgírinn?

Leikkonan Lindsay Lohan, 24 ára, reyndi allt hvað hún gat til að koma í veg fyrir að ljósmyndarar mynduðu hana yfirgefa tónleika hljómsveitarinnar Coldplay í Los Angeles í gærkvöldi eins og sjá má í myndasafni. Nú eru sögusagnir um að Lindsay, sem var klædd í stuttbuxur og skyrtu, sé aftur dottin í sama gamla djammgírinn en leikkonan hefur oftar en ekki komist í kast við lögin og nú síðast keyrði hún full og stal rándýru hálsmenni. Þá var hún dæmd í stofufangelsi fyrir að hafa rofið skilorð. Djammarinn Lindsay var síðast á bak við lás og slá árið 2010. Komdu frítt í bíó!

Hætta í íshokkí til þess að gerast klappstýrur

"Þetta er vinaleg íþrótt sem leggur mikið upp úr góðum liðsanda og jákvæðni,“ segir sænski klappstýrumeistarinn Alexander Ström, sem ásamt félaga sínum Pétri Sveinssyni ætlar að kynna klappstýruíþróttina fyrir Íslendingum og standa fyrir námskeiði um helgina. "Ég er viss um að Íslendingar eru forvitnir að vita um hvað íþróttin snýst,“ segir Pétur og bætir við að klappstýring sé íþróttagrein og ekki einungis klapp frá hliðarlínunni á öðrum íþróttaleikjum.

Nei sko prinsessan verslar sjálf í matinn

Á meðfylgjandi myndum má sjá hertogaynjuna af Cambridge, Kate Middleton, 29 ára, versla eina síns liðs í Tesco matvöruversluninni í norður Wales. Prinsessan gaf sér góðan tíma við innkaupin áður en hún setti vörurnar í skottið á bílnum sínum. Þá má einnig sjá Kate og Elísabetu drottningu virða fyrir sér brúðkaupskjól Kate í Buckingham höll þar sem hann verður til sýnis fyrir almenning.

Hætt saman

Eftir fjögurra ára samband eru þáttastjórnandinn Alexa Chung og Alex Turner, söngvari hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, hætt saman. Það var talskona Chung sem staðfesti sambandsslitin við fjölmiðla eftir miklar vangaveltur slúðurmiðla vestanhafs.

Þau hata hvort annað (dagsatt)

Johnny Depp og Angelina Jolie áttu í erfiðleikum með að sýna að þeim líkaði vel við hvort annað á rauða dreglinum, Jay-Z og Kanye West rífast eins og hundur og kötttur og það vita allir í New York að Sarah Jessica Parker og Kim Cattrall náðu engan veginn saman á meðan á Sex and The City ævintýrinu stóð.

Tískumyndband þróaðist út í nýja Gusgus myndbandið

"Tökurnar gengu vel enda blandaðist þarna saman fallegur hópur af fólki, góð tónlist og frábært veður,“ segir Ellen Loftsdóttir stílisti, sem leikstýrir nýjasta myndbandi hljómsveitarinnar GusGus ásamt sambýlismanni sínum Þorbirni Ingasyni.

Sumir eru í klikkuðu formi

Þýska Project Runway stjarnan og ofurfyrirsætan Heidi Klum, 38 ára, gaf Seal eiginmann sínum rembingskoss á lúxussnekkju 1. ágúst síðastliðinn. Eins og myndirnar sýna er Heidi í klikkuðu formi en hún skokkar sig í form að eigin sögn. Þá má einnig sjá börnin þeirra fjögur Leni, Henry, Johan, og Lou með þeim á snekkjunni í myndasafni.

Ævintýri í sundbíói

Sundbíó Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, hefur verið flutt úr Sundhöll Reykjavíkur í innisundlaug Laugardalslaugar. Í þetta sinn verður sýnd ævintýramyndin The NeverEnding Story frá árinu 1984. Íslenskir tónlistarmenn ætla einnig að mæta á svæðið og flytja sína útfærslu af titillagi myndarinnar sem Limahl gerði ódauðlegt á sínum tíma.

Skúli einn á Vestfjörðum

Tónlistarmaðurinn Skúli mennski fer einn og yfirgefinn um Vestfirði 4. til 7. ágúst og flytur eigin verk. Lög af nýjustu plötu hans, Búgí!, verða í forgrunni en eldra efni og óútgefið fær að fljóta með. Yfirskriftin er „Einn og yfirgefinn“ þar sem hljómsveit hans Grjót verður ekki með í för. Mugison verður Skúla þó til halds og trausts tvö kvöld og flytur eigin lög.

Sívaxandi draggkeppni

Mikil spenna er fyrir Draggkeppni Íslands 2011 sem fer fram í Hörpu í kvöld. Georg Erlingsson Merritt sér um að skipuleggja keppnina sem hefur stækkað til muna á síðustu árum.

Scarlett Johansson afþakkaði stefnumót

Hálfgert æði hefur gripið um sig meðal bandarískra hermanna undanfarnar vikur eftir að einn þeirra varð sér úti um stefnumót með leikkonunni Milu Kunis. Fjöldi hermanna hefur fetað í fótspor hins heppna dáta og boðið ýmsum stjörnum á árlegt ball hermanna og nú síðast fékk Scarlett Johansson slíkt boð.

Hollenskar í íslenskri hönnun

Keppendur í sjónvarpsþættinum Holland"s Next Top Model tóku þátt í tískusýningu í Hörpunni um verslunarmannahelgina. Sýningin átti að fara fram á Ingólfstorgi en ákveðið var að færa hana til.

Sáust ítrekað saman

Leikarinn James Franco sagði frá því í viðtali við Playboy að hann og kærasta hans til fimm ára, leikkonan Ahna O’Reilly, væru hætt saman. Hann kenndi námsþorsta sínum um sambandsslitin.

Hörkukroppur korter eftir fæðingu

Ástralska ofurfyrirsætan Miranda Kerr, 28 ára, sem eignaðist soninn Flynn fyrir sex mánuðum með eiginmanni sínum, Orlando Bloom, var sjóðheit í sundbol á tískusýningu í Sydney. Forgangsröðunin er önnur hjá mér í dag. Nú vil ég vera meira með syni mínum og vinna minna, lét Miranda hafa eftir sér. Eins og sjá má á myndunum er ekki að sjá að Miranda sé nýbúin að fæða drenginn.

Sást með annari konu

Rapparinn Jay-Z hefur verið kvæntur söngkonunni Beyoncé frá árinu 2008 og er parinu mjög umhugað um einkalíf sitt. Samkvæmt sjónarvottum sást þó rapparinn skemmta sér með fyrirsætunni Selitu Ebanks á skemmtistað.

Raftónar undir jökli

Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2011, Undir jökli verður haldin í annað sinn dagana, 5-7. ágúst, á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Um þrjátíu íslenskir flytjendur koma fram á hátíðinni í ár, þar á meðal Beatmakin Troopa, Epic Rain, Krummi, Prins Valium, Stereo Hypnosis og Steve Sampling. Einnig stíga á svið tveir erlendir tónlistarmenn, þeir Biosphere og Solar Fields. Í ár verður hátíðin tileinkuð raftónlistarfrumkvöðlinum Bjössa Biogen, sem lést í byrjun þessa árs.

Það má alltaf laga útlitið á þeim

Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, leiddi nýja kærastann Justin Theroux, 39 ára, á Heathrow flugvellinum í London á dögunum. Eins og meðfylgjandi myndir sýna hefur Jennifer séð til þess að Justin lítur ekki lengur út eins og hellisbúi. Rakaður og snyrtilegur til fara. Þá má einnig sjá parið yfirgefa veitingahús uppáklætt.

Melissa hreifst af Hellvar í Hudson

Melissa Auf der Maur, fyrrum bassaleikari Hole og The Smashing Pumpkins, hreifst af hljómsveitinni Hellvar á útitónleikum í borginni Hudson í Bandaríkjunum fyrir skömmu.

Ljósmyndir urðu Amy að falli

Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Paz de la Huerta er að leggja lokahönd á nýja kvikmynd sem byggð er á sögunni um rauðu skóna. Hún segir mikilvægt að boðskapur kvikmyndarinnar komist til skila því hann eigi mjög vel við í dag.

Buslar berbrjósta

Breska fyrirsætan Kate Moss, 37 ára, er stödd í Suður Frakklandi á St. Tropez með Jamie Hince, sem hún giftist fyrr í sumar, dóttur sinni, Lilu Grace, og vinum hennar. Eins og meðfylgjandi myndir sýna kældi Kate sig niður með því að stökkva í sjóinn ber að ofan. Fimm heppnir lesendur Lífsins fá tvo boðsmiða á myndina Rise of the planet of the apes. Taktu þátt í bíóleik hér.

Ástfangin hjólandi

Lítið hefur sést til Blake Lively og Leonardos DiCaprio undanfarið og hafa slúðurmiðlar velt því fyrir sér hvort parið hafi slitið sambandi sínu. Svo er þó ekki því til þeirra sást í Los Angeles á miðvikudag.

Blogga um brjóst og sólgleraugu

"Það er fátt betra en brjóst og sólgleraugu. Þetta tvennt skiptir okkur miklu máli og vildum deila því með heiminum,“ segir Jón Atli Helgason, plötusnúður og hárgreiðslumaður um bloggið, www.titsintheshade.com.

Hvað í ósköpunum er í gangi hérna?

Söngkonan Rihanna flippaði vægast sagt út á árlegri hátíð sem haldin var á Barbados í gær. Rihanna átti ekki í stökustu vandræðum með að dansa léttklædd eins og flestir í skrúðgöngunni sem hún var virkur þátttakandi í. Myndirnar tala sínu máli en þær má skoða hér.

Komdu frítt í bíó

Kvittaðu á Facebook síðu Lífsins, deildu leiknum á þinni Facebook síðu og hver veit nema þú fáir miða fyrir tvo á myndina Rise of the planet of the apes sem sýnd er í Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó. Meðfylgjandi má sjá myndir af aðalleikurnum, Freidu Pinto og James Franco, stilla sér upp á rauða dreglinum þegar myndin var frumsýnd í Los Angeles síðustu helgi. Við drögum út fimm heppna vinningshafa fimmtudaginn 4. ágúst næstkomandi.

Hvetur fólk til dáða

Neyðarsöfnun hefur staðið yfir hjá UNICEF að undanförnu vegna þeirrar miklu hungursneyðar sem ríkir í norð-austurhluta Afríku.

Spennandi bransi

Rihanna sagði í nýlegu viðtali að söngkonur væru ráðandi í tónlistarbransanum í dag og nefnir í því samhengi stúlkur á borð við Katy Perry, Lady Gaga og Beyoncé. „Þetta er góður hópur af konum, ég, Lady Gaga, Katy Perry, Beyoncé og Kesha. Það er augljóst að konur eru mjög ráðandi innan bransans í dag og það er vegna þess að við höfum mikið keppnisskap.

Geispar á milli þess sem hún gúffar í sig

Eins og myndirnar sýna geispaði sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 30 ára, á milli þess sem hún smakkaði brúðartertur með mömmu sinni, systur Khloe og verðandi eiginmanni sínum, körfuboltastjörnunni Kris Humphries, sem hún trúlofaðist í lok maí eftir aðeins sex mánaða kynni. Að vanda var fjölskyldan í fylgd kvikmyndatökumanna á meðan á kökusmökkuninni stóð.

Horfir fram á við sátt við skilnaðinn

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez, 42 ára, sem er nýskilin við barnsföður sinn, Marc Anthony eftir sjö ára hjónaband, segist hafa gengið í gegnum sjálfsskoðun sem leiddi til þess að hún ákvað að enda hjónabandið. Hún er sátt við ákvörðunina og ætlar að einbeita sér að því að vera góð mamma. Ég elska sjálfa mig og þess vegna ákvað ég að enda hjónabandið, lét Jennifer hafa eftir sér. Í myndasafni má sjá Jennifer með tvíburununum Max og Emme, 3 ára, og mömmu sinni, Guadalupe, á leikvelli í Atlanta 31. júlí síðastliðinn.

Sjá næstu 50 fréttir