Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Staðfestir óléttuna Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr, 27 ára, sem giftist breska leikaranum Orlando Bloom í síðasta mánuði, aðeins nokkrum vikum eftir að þau trúlofuðust, hefur staðfest að hún gengur með barn leikarans undir belti. Háværara sögusagnirnar hafa hljómað undanfarið um að hún ætti von á barni. Já ég er ólétt," sagði Miranda í viðtali við spænska Vogue tímaritið. Ég er gengin fjóra mánuði." Miröndu finnst ekki auðvelt að vera ólétt en stuttu eftir að hún áttaði sig á því að hún væri barnshafandi byrjaði flökurleiki að gera vart við sig og það tók sinn toll í þéttskipaðri vinnudagskrá fyrirsætunnar. Miranda er viss um að Orlando eigi eftir að standa sig vel sem faðir en óskar sér að geta átt rólegt fjölskyldulíf fjarri frá fjölmiðlum sem fylgjast grannt með þeim. Barnið er væntanlegt í heiminn snemma á næsta ári. 20.8.2010 09:15
Átu þurrkað nautakjöt og snakk í hvert mál Lið Vilhelms Antons Jónssonar og Sverris Þór Sverrissonar etur kappi við tvíeykið Auðun Blöndal og Gillz í sérstökum þrautakappakstri yfir endilöng Bandaríkin. Keppnin verður sýnd á föstudagskvöldum á Stöð 2 en við sögu koma einkennileg enskukunnátta Sveppa, fellibylur og afslappaðir Suðurríkjamenn. 20.8.2010 12:30
Dúett hjálpar geimveru heim Samkvæmt vefsíðu Empire-kvikmyndaritsins eru Simon Pegg og Nick Frost með nýja gamanmynd í smíðum. Pegg og Frost slógu eftirminnilega í gegn í kvikmyndinni Shaun of the Dead sem þótti drepfyndin. Hot Fuzz fylgdi í kjölfarið sem var ekkert síðri og nú er semsagt ný mynd með þessum gríndúett í smíðum. 20.8.2010 12:00
Fá pararáðgjöf í síma Russel Brand og Katy Perry eru strax farin að sækja tíma í pararáðgjöf þrátt fyrir að átta vikur séu í brúðkaupið. Pararáðgjöfin er hugmynd söngkonunnar en hún er hrædd um að missa tengslin við tilvonandi eiginmann sinn vegna þess hvað þau eyða litlum tíma saman. Hann er á fullu við tökur á nýrri mynd og hún þeysist á milli heimshluta að syngja á tónleikum. 20.8.2010 11:30
Fleiri nöfn staðfest á Airwaves Tónlistarhátíðin Airwaves hefst eftir rúma tvo mánuði og þegar hafa verið staðfest nöfn um hundrað hljómsveita sem koma fram á hátíðinni. 20.8.2010 11:00
Græðir á fangelsisvist Tímaritið OK! hefur boðið leikkonunni Lindsay Lohan eina milljón bandaríkjadala sé hún tilbúin til að veita þeim réttinn á fyrsta viðtalinu eftir fangelsisvist hennar. 20.8.2010 10:30
Hafna kvikmyndum og þáttum Caleb Folowill, söngvari hljómsveitarinnar Kings Of Leon, sagði frá því nýlega að meðlimir hljómsveitarinnar hefðu hafnað fjölda tækifæra til að fá tónlist hljómsveitarinnar í þætti á borð við Glee, Ugly Betty og í sýnishorn fyrir ýmsar kvikmyndir. 20.8.2010 10:00
Manson og Wood hætt saman Hið stórundalega par, söngvarinn Marilyn Manson og leikkonan Evan Rachel Wood hafa nú enn einu sinni slitið sambandi sínu og í þetta sinn einnig trúlofun sinni samkvæmt heimildum vestanhafs. 20.8.2010 09:00
Kaffihús Dóru slær í gegn hjá Dönum „Hér er búið að vera brjálað að gera síðan við opnuðum," segir Dóra Takefusa en hún er nýbúin að opna kaffihúsið Lyst í Norrebro hverfinu í Kaupmannhöfn. Dóra segir viðtökurnar hafa farið fram úr sínum björtustu vonum og hún bjóst alls ekki við þessu. 20.8.2010 08:30
Móðir Brittany deildi rúmi með ekkli dóttur sinnar Móðir leikkonunnar Brittany Murphy sagði rannsóknarlögreglumönnum að hún deildi rúmi með ekkli dóttur sinnar. Sharon Murphy bjó heima hjá dóttur sinni og eiginmanni hennar og var það hún sem kom að dóttur sinni látinni. 20.8.2010 08:00
Jenny komin með nýjan Kynbomban Jenny McCarthy, sem nýlega sleit sambandi sínu við leikarann Jim Carrey, hefur nú fundið sér nýjan leikfélaga einungis fjórum mánuðum eftir að hún hvarf úr lífi Carrey. 20.8.2010 07:30
Samdi sönglög fyrir Gurru Grís Máni Svavarsson, höfundur tónlistarinnar í Latabæ, hefur samið nokkur ný lög fyrir brúðuleikrit sem farið hefur sigurför um Bretland að undanförnu. Aðalpersóna brúðuleikritsins er Gurra grís eða Peppa Pig en hún hefur verið einhver vinsælasta persóna breskra barna undanfarin ár. Þættir um hana eru sýndir í 180 löndum og sýningin verður á næstunni í Liverpool. 20.8.2010 07:00
Spurð spjörum úr Ben Affleck leikstýrir og fer með eitt aðalhlutverkið í spennumyndinni The Town sem frumsýnd verður bráðum. Blake Lively, sem hefur gert garðinn frægan í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, fer einnig með hlutverk í myndinni. 20.8.2010 06:00
Höfuðverkur að hafa sig til Söng- og leikkonan Jessica Simpson er á því að það er fátt eins leiðinlegt og að hafa sig til. Jessica reynir allt hvað hún getur til að líta vel út á rauða dreglinum klædd í kjóla eftir þekkta hönnuði, með hárið vel til haft og andlitsförðunina í góðu standi. Hún segist leyfa andlitinu að anda á milli þess sem hún klæðir sig upp og málar andlitið fyrir hinar ýmsu uppákomur. Ég er ekki vön að vera með meik. Mér finnst fátt eins leiðinlegt og að hafa mig til þar sem ég þarf að vera rosalega fín. Ég velti mér daglega fram úr rúminu á hverjum morgni, set á mig andlitskrem og er síðan rokin út," sagði Jessica. 19.8.2010 16:30
Lisa Marie Presley flytur til Bretlands Lisa Marie Presley, 42 ára, dóttir Elvis Presley, er flutt í 8 milljón punda húsnæði í Bretlandi, ásamt eiginmanni sínum, Michael Lockwood, og 22 mánaða gömlum tvíburadætrum þeirra, Finley og Harper. Sagan segir að Lisa hafi fengið nóg af því að búa í Losa Angeles því þar er hún nánast daglega spurð út í fyrrverandi eiginmann sinn, Michael Jackson, sem féll frá í júní árið 2001. Nýja húsnæðið inniheldur me 19.8.2010 15:00
Britney bloggar um reynsluna í Glee Söngkonan Britney Spears, 28 ára, skemmti sér vel við tökur á sjónvarpsþáttaseríunni Glee en hún er dugleg að skrifa á Twitter síðuna hvað hún aðhefst og síðast í gær setti hún mynd, sem tekin var af henni við tökur á Glee, á síðuna sína. Britney var boðið að vera gestaleikari í þáttunum sem og hún gerði en hún er mikill aðdáandi seríunnar. Söngkonan mætti eldsnemma í gærmorgun í upptökuver FOX í Los Angeles. Áður en hún lagði af stað póstaði hún eftirfarandi skilaboðum á Twitter síðuna sína: Er um það bil að mæta í fyrsta upptökudag fyrir Glee." Nokkrum klukkustundum síðar setti Britney meðfylgjandi mynd á síðuna sína þar sem hún stillir sér upp við hlið aðstoðarkonu sinnar, Brett Miller, með gleraugu á nefinu. Britney skrifaði jafnframt: Hvað er að gerast Gleeks? Það var svo gaman í tökum í dag. Get ekki beðið eftir að sjá þáttinn!" Ekki er vitað hvort Britney leikur sjálfa sig í þáttunum eða ekki en framleiðendur vilja halda því fram að áhersla er lögð tónlist listamanna sem leika í þáttunum frekar en einkalíf þeirra. Þátturinn með Britney verður frumsýndur í lok ársins. 19.8.2010 13:00
Klæðir sig eins og henni sýnist Leikkonan Taylor Momsen, 17 ára, sem skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki Jenny Humprhrey í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl hefur vakið athygli fyrir útlitið. Ljóst hár hennar, andlitsmálningin og þröngar leðurbuxur einkenna útlit hennar og vekur athygli tískumógúlanna í Hollywood. Henni er slétt sama þó að fötin sem hún gengur í fari í taugarnar á fólki. Ég klæði mig algjörlga fyrir mig sjálfa. Fötin eru ögrandi, ég er meðvituð um það, og það lætur mér líða vel. Ef einhverjum líður illa yfir því hvernig ég klæði mig af því að ég er bara sautján ára þá á viðkomandi rosalega bágt því það skiptir ekki máli," sagði Taylor. 19.8.2010 12:00
Fáir offitusjúklingar í Ameríku „Ferðin til USA var hrikalega skemmtileg og öðruvísi ferð en við félagarnir eigum að venjast. Vanalega þegar við förum erlendis þá er maður sitjandi á blackjack borði hálf rænulaus en þarna vorum við á fullu frá morgni til kvölds að safna stigum. Ég og Auddi vorum staðráðnir í að vinna þessar barnastjörnur," sagði Egill Einarsson spurður út í Ameríska drauminn sem frumsýndur verður á Stöð 2 annað kvöld. 19.8.2010 10:00
Rauk til tannlæknis á brúðkaupsdaginn Söngkonan og leikkona Hilary Duff, 22 ára, hefur nú opinberað að það brotnaði upp úr tönn hjá henni á sjálfan brúðkaupsdaginn og hún þurfti að skunda til tannlæknis daginn sem hún gekk að eiga Mike Comrie í Santa Barbara síðustu helgi. Ég byrjaði brúðkaupsdaginn á því að brjóta tönn," sagði Hilary í viðtali við bandarísku útgáfu OK tímaritsins. Brúðakaupsskipuleggjarinn sá til þess að ég komst til tannlæknis fyrir brúðkaupið. Tönnin var löguð innan við klukkutíma," sagði hún. 19.8.2010 09:15
Frank Hvam með uppistand í Háskólabíói Frank Hvam verður meðal gesta Frímanns Gunnarssonar á sérstöku uppistandskvöldi þann 29. september í stóra sal Háskólabíós. „Þetta verður brjáluð kvöldstund með Frímanni,“ segir Gunnar Hansson, skapari ólíkindatólsins. 19.8.2010 09:15
Poppuð plata frá Perry Ný plata, Teenage dream, er væntanleg innan skamms frá Katy Perry, en söngkonan sló eftirminnilega í gegn með laginu I kissed a girl árið 2008 og hefur síðan þá sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum. 19.8.2010 09:00
Gæti misst röddina Leikarinn Michael Douglas sem greindist nýverið með krabbamein í hálsi á það á hættu að missa röddina við meðhöndlun á sjúkdómnum. Leikarinn frægi, sem er giftur þokkadísinni Catherine Zeta Jones, myndi þar með stofna öllum sínum starfsferli í hættu enda röddin verkfæri leikara. Douglas hefur frestað öllum verkefnum sínum næstu tvo mánuði á meðan hann gengst undir læknismeðferð. 19.8.2010 08:45
Hundar og kettir í þrívídd Flestum ætti að vera kunnugt um stirt samband hunda og katta. Þessu stríði voru gerð skil í kvikmyndinni Hundar og kettir og nú er framhaldsmyndin af þeim ævintýrum komin í bíó. Og það þarf væntanlega ekki að koma neinum á óvart að hún er í þrívídd. 19.8.2010 08:30
Hannar leikmyndina í Rocky Horror „Ég vann í Þjóðleikhúsinu alla mína skólagöngu og leikmyndahönnun var í rauninni það sem ég ætlaði alltaf að gera. Svo tók myndlistin völdin og þetta fór á hilluna í nokkur ár,“ segir Pétur Gautur myndlistarmaður en hann sér um að hanna leikmyndina í Rocky Horror söngleiknum sem frumsýndur verður á Akureyri þann 10. spetember, Pétur er nú betur þekktur fyrir myndlistina en leikmyndagerð en hann segist í rauninni hafa byrjað í leikhúsinu. 19.8.2010 08:15
Rokkað gegn fátækt Styrktartónleikar verða haldnir á skemmtistaðnum Sódómu á fimmtudaginn kemur. Allur ágóði tónleikanna rennur til Fjölskylduhjálpar Íslands. Á tónleikunum koma fram sveitirnar Skálmöld, Vicky, Dark Harvest, Mögl og Gone Postal. Einnig verður frumsýnd ný hönnunarlína Thors Hammer en það eru meðal annars armbönd, belti og ullarpeysur svo fátt eitt sé nefnt. DJ. Daði mun svo þeyta skífum eftir tónleikana. 19.8.2010 08:00
Ask the Slave með nýja plötu Önnur breiðskífa rokkhljómsveitarinnar Ask the Slave kemur í verslanir á morgun. Platan nefnist The Order of Things og einkennist af ringulreið sem endar með einræðu Ólafs Darra Ólafssonar, leikara. 19.8.2010 08:00
Rokkari og poppkóngur sameinast Eurovision-lagahöfundurinn Örlygur Smári fetar heldur ótroðnar slóðir í nýju lagi fyrir stúlknasveitina Elektru. 19.8.2010 08:00
Cher gefur út nýja plötu Söngkonan Cher hefur tilkynnt að hún sé nú með nýja plötu á byrjunarstigi. Hún vinnur með lagahöfundinum Diane Warren sem samdi einnig eitt af lögunum, You Haven"t Seen The Last Of Me, í kvikmyndinni Burlesque sem væntanleg er í vetur. 19.8.2010 07:45
Heimsókn frá Þýskalandi Undanfarið ár hefur staðið yfir undirbúningur fyrir komu stúlknakórs frá Berlín sem ber nafnið „Mädchenchor der Sing-Akademie zu Berlin“ í heimsókn til Stúlknakórs Reykjavíkur. Stúlkurnar í báðum kórum eru á aldrinum 11 til 19 ára og munu þær syngja saman á tónleikum í Grensáskirkju á laugardag, þann 21. ágúst, klukkan 15.00. 19.8.2010 07:15
Skrásetur lífsgleði á filmu Ljósmyndarinn og grafíski hönnuðurinn Jóhannes Kjartansson gefur út ljósmyndabók. Í bókinni er að finna 500 myndir en Jói, eins og hann er kallaður, hefur verið að skrásetja lífið á filmu síðan árið 2005. Bókin ber nafnið Joi de vivre; orðaleikur úr franska orðtakinu Joie de vivre eða Lífsgleði á íslensku. 19.8.2010 07:00
Nokkuð fyrirsjáanlegt leikaraval Leikarahópurinn í kringum fyrstu myndina um Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist er smám saman að skýrast. Fjölmiðlar vestra greindu frá því í gær að viðræður við sænska stórleikarann Max von Sydow væru hafnar en hann ætti að leika Henrik Vanger, höfuð Vanger-fjölskyldunnar sem leitar að týndri frænku sinni. 19.8.2010 06:30
Hjaltalín fær fimm stjörnur í Noregi Fjallað er um plötu sveitarinnar Hjaltalín, Terminal, á netmiðli Bergens Avisen en platan er nýkomin út í Skandinavíu. Gagnrýnandi ba.no gefur plötunni 5 af 6 í svokölluðu teningakasti og kallar Hjaltalín stórsveit innan indie-tónlistarstefnunnar. 19.8.2010 06:15
Sögulegur menningarviðburður The Expendables hefur vakið gríðarlega lukku meðal karlmanna sem hafa lengi þráð að sjá testósterónið flæða unnvörpum. Kvikmyndin virðist hafa uppfyllt allar þær óskir því The Expendables hefur fengið frábæra dóma og ótrúlega aðsókn. 19.8.2010 06:00
Erfitt að vera mamma Leikkonan Emma Thompson, 51 árs, segir að móðurhlutverkið sé erfitt og að það fari gjörsamlega með hana að reyna að ala upp dóttur sína, Gaia, sem er tíu ára gömul. „Guð það er hræðilegt að vera foreldri," lét Emma hafa eftir sér. Þegar ég verð reið á ég erfitt með að fyrirgefa mér viðbröðg mín. Mér finnst eins og mér hafi mistekist þegar ég missi stjórn á skapi mínu," sagði Emma. 18.8.2010 19:30
Ósviknir Nígeríusvindlarar að störfum - lesið bréfin hér Vísir fékk send sprenghlægileg samskipti milli svindlara í Tógó og leikhópsins 16 elskendur, sem frumsýnir verkið Nígeríusvindlið í Þjóðleikhúsinu á föstudag. 18.8.2010 16:30
Langar að opna hótelkeðju Paris Hilton, 29 ára, sem hefur tekist á við ýmislegt í gegnum tíðina eins og sjónvarpsþáttagerð, söng, ilmvatnsframleiðslu og leiklist hefur áhuga á að demba sér út í hótelrekstur líkt og fjölskylda hennar. Paris segir að kominn sé tími á að hún fræðist um hótelrekstur eftir að hafa gert það gott í skemmtanabransanum. „Ég er búin að takast á við nánast allt sem ég get hugsað mér að gera. Næsta verkefni mitt er að demba mér út í viðskipti og hóteliðnað. Næsta skref er að opna mína eigin hótelkeðju," sagði Paris Ekki er vitað hvort Paris fái leyfi til að nota Hilton nafnið en á meðan hún undirbýr hótelreksturinn horfir hún á sjónvarpsþættinua True Blood. „Ég hef ekki mikinn tíma til að horfa á sjónvarp af því að ég hef svo mikið að gera og er alltaf á ferðinni en það er einn þáttur sem ég elska og það er True Blood. Kannski fæ ég að leika vampíru einhvern tíman. Það væri frábært," sagði hún. 18.8.2010 15:00
Engir megrunarkúrar í fríinu Leikkonan Eva Longoria Parker, 35 ára, upplýsti í viðtali við tímaritið OK á dögunum hvernig hún heldur sér í góðu líkamlegu formi. Desperate Housewives stjarnan þarf að hafa fyrir því að halda sér í góðu formi. Hún mætir í líkamsræktina fjórum sinnum í viku og borðar nákvæmlega það sem þjálfarinn hennar segir henni að borða. „Þegar ég er í Los Angeles þá hitti ég einkaþjálfarann minn fjórum sinnum í viku. Mér líður vel eftir æfingarnar og þess vegna er ég að þessu. Ég er ekki stöðugt að hugsa: Oh ég vil vera grindhoruð. Vellíðan er málið fyrir mig," sagði Eva. Þrátt fyrir að hugsa vel um líkama sínn leyfir Eva sér að borða allt sem hana langar í án þess að fá samviskubit en aðeins þegar hún fer í sumarfrí. „Þegar ég er í fríi geri ég allt sem ég leyfi mér ekki annars. Ég borða hvað sem er hvenær sem er." 18.8.2010 13:00
Hera eftirsótt í Evrópu Við heyrðum í Heru Björk söngkonu og Eurovisionfara til að forvitnast hvað hún tekst á við þessa dagana eftir ævintýrið í Noregi. Hera hefur nóg að gera og segir Evrópu vera komna á bragðið enda er söngkona fullbókuð næstu misseri. „Ég get víst ekki kvartað yfir verkefnaleysi eftir Eurovision ævintýrið þó svo að þau séu nú flest erlendis næstu misserin. Ég var búin að búa mig undir „lægðina" hér heima sem að óhjákvæmilega fylgir alltaf Eurovision þar sem að landinn þarf smá hvíld eftir endalausar fréttir frá Eurovisionlandinu," svarar Hera og heldur áfram: 18.8.2010 12:00
Unnustinn hjálpaði að sigra krabbameinið Leikkonan Christina Applegate, 38 ára, sem á von á sínu fyrsta barni með unnustanum, Martyn Lenoble, 41 árs, sem hún trúlofaðist á þessu ári, stillti sér upp á rauða dreglinum fyrir frumsýningufjölskyldumyndarinnar Hundar og Kettir 2 í 3D sem er framhald af einni af vinsælli barnamyndum síðari ára. Leikkonan greindist með krabbamein í brjósti sumarið 2008 og þakkar hún Martyn fyrir stuðninginn þegar hún tókst á við veikindin. „Ég er svo þakklát Martyn fyrir að birtast í lífi mínu á þessum tímapunkti því hann var kletturinn minn. Hann gaf mér ástæðu til að brosa og viljann til að lifa áfram." 18.8.2010 11:00
Kærir sig ekki um líkamshár Kim Kardashian, 29 ára, er með líkamshár á heilanum að eigin sögn. Hún hefur undanfarin ár eytt fjármúgu í að láta fjarlægja líkamshár á líkama sínum sem hún telur óæskileg með hjálp leisertækninnar. Í dag segir hún húðina vera mjúka og hárlausa. Ég er ættuð frá Armeninu þannig að auðvitað er ég með leisertæknina á heilanum þegar kemur að líkamshárum. Undir höndum, bikíniröndin, fæturnir og líkami minn eins og hann leggur sig er hárlaus," lét Kim hafa eftir sér í tímaritinu Allure. Einnig ræddi Kim þegar hún sat fyrir í Playboy árið 2007. Hún segist ekki sjá eftir að hafa setið fyrir nakin heldur hefði hún viljað vera í betra formi þá. Já ég sé eftir að hafa setið fyrir í Playboy þá. Ekki það að hafa setið fyrir í umræddu blaði heldur á þessum tímapunkti var ég ekki í besta formi lífs míns," sagði Kim spurð út í fyrirsætustarfið og hvor það sé nokkur eftirsjá. Je minn eini ég var svo þung þá. Síðan þá hef ég misst 8 kíló. Andlitið á mér er grennra og líkami minn líka, maginn á mér er sléttur líka," sagði Kim. 18.8.2010 09:15
Klæðist einum kjól í mánuð Indía Salvör Menuez er hálfíslensk stúlka sem hefur tekið að sér að klæðast sama kjólnum daglega í heilan mánuð til góðgerðarstarfa. Verkefnið nefnist The uniform project og er upphafsmaður þess stúlka að nafni Sheena sem ákvað árið 2009 að klæðast sama kjólnum í heilt ár til styrktar skólabörnum á Indlandi. 18.8.2010 08:30
Hver er þessi Rooney Mara? Leikkonan Rooney Mara hefur landað einu af eftirsóknarverðustu kvenhlutverkum í kvikmyndaheiminum í dag, sjálfri Lisbeth Salander, tölvuhakkaranum og pönkaranum úr þríleik Stiegs Larsson. En hver er þessi óþekkta leikkona sem á eftir að skjótast hratt upp frægðarstigann í Hollywood? 18.8.2010 09:30
Skarð Spaugstofunnar ófyllt „Ég er ekki að fara vinna með RÚV, allavega ekki laugardagsþáttinn. Ég er bara á fullu að gera Gauragang. Hún verður frumsýnd um jólin og ég er bundinn í þeirri vinnu þangað til,“ segir Gunnar Björn Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV, lýsti því yfir í samtali við Fréttablaðið fyrir viku að hún hefði hug á því að falast eftir kröftum Gunnars til að stjórna þætti á þeim dagskrártíma sem áður hýsti Spaugstofuna. En hún er, eins og flestum ætti að vera kunnugt um, hætt í Efstaleitinu. 18.8.2010 08:00
Jolie spennt fyrir framhaldi Leikkonan Angelina Jolie segist spennt fyrir því að kanna persónu sína úr kvikmyndinni Salt betur. 18.8.2010 07:30
Vesturport hellir sér útí gamanleik og farsa „Það var kominn tími til að reyna sig við gamanleik, eftir að hafa verið í svona „léttmeti" eins og Hamskiptunum og Fást," segir Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Vesturport í samstarfi við Borgarleikhúsið hyggst setja upp sýningu sem verður í eilítið öðruvísi dúr en aðrar sýningar hópsins. Um er að ræða farsakenndan gamanleik um húsmóðurshlutverkið á Íslandi. Verkið er glænýtt, skrifað af þeim Víkingi Kristjánssyni, Birni Hlyni Haraldssyni, Nínu Dögg, Jóhanni Níels og Gísla Erni. 18.8.2010 07:00